Tíminn - 21.03.1978, Blaðsíða 17

Tíminn - 21.03.1978, Blaðsíða 17
Þriöjudagur 21. marz 1978 17 Selveiði við Labradorí fullum gangi St. John’s, Nýfundna- landi/Reuter. Norskir og kana- diskir veiðimenn hafa þegar drepið 43.000 seli, en aðeins 10 dagar eru liðnir siðan árleg sel- veiði hófst við strendur Labrador. Slæmur ís og sú staðreynd að sel- irnir eru nú á óvenju norðlægum slóðum hefur hamlað veiðunum. 1 ár er leyfilegtað veiða 180 þúsund seli, en kanadiska stjórnin segir aðsá kvóti muni verða til þess að selunum fjölgi hægt og bitandi. Þeir, sem berjast fyrir verndun selastofnsins, segja að ekki sé nægilega mikið vitað um lifn- aðarhætti skepnunnar til að full- vist sé að kvótinn sem settur hef- ur verið sé hæfilegur. Hópur er nefnir sig Greenpeace hefur kvatt Pierre Trudeau til að fara sjálfur á vettvang til að sjá með eigin augum hvilik slátrun selveiðin er. Leiðrétting 1 frétt um prófkjör sjálfstæðis- manna i Kópavogi, sem birtist i blaðinu sl. sunnudag, féllu niður nöfn þeirra manna er skipa ann- aðog fjórða sætiá listanum.En listinn litur þannig út eftir próf- kjörið: Axel Jónsson, Guðni Stefánsson, Bragi Mikaelsson, Grétar Norðfjörð, Steinunn Sigurðardóttir og Stefnir Helga- son. Ályktanir © sem hugsaö verði fyrir þörfum allra þjóöfélagshúpá jafnt. Byggingasamþykktum verði breytt þannig aö öllum þjóðféla gsþegnu m ungum og öldnum og öryrkjum verði gert mögulegt að búa hvar sem er og íerðast um hibýli þau sem reist verði þannig að ekki þurfi að sérhanna húsfyrir neina sérstaka hópa þjóðfélaginu. Auðvelda skal fjölskyldum flutning milli ibúða þannig að ibúðin henti ætið sein best fjöl- skyldustærð eins og hún er h verju sinni. A meðan endanleg stefnumótun þessara mála fer fram skal unnið að þvi að auka og efla félagslegar ibúðabyggingar i landinu eftir hliðstæðum kerfum og nú tiðkast um verkamannabústaði og leigu- og söluibúðir sveitarfélaga. Stefnt skal að þvi að fjármögn- un hóflega stórra ibúða fyrir aldr- aða, öryrkja, og ungt fóik er byggir i fyrsta sinn.verði leyst á svipuðum grundvelli. Reglugerð um samvinnubygg- ingarfélög verði samin. Þá skal ennfremur bent á að lið- ur i lausn húsnæðisvandans er að endurbæta eldri byggingar og byggingasvæði og bendir i þvi efni á framkomið frumvarp þing- manna Framsóknarmanna um þau mál. Þá fagnar þingið þvi starfi sem hafið er hjá Húsnæðis- málastofnun er beinist að stefnu- mörkun á lausn ibúðarmála fyrir aldraða og úttekt og áætlunar- gerðvarðandi þessi mál og væntir þess að þetta sé upphaf að viðtæk- ari stefnumótun og áætlanagerð varðandi lausn húsnæðismála almennt. Jafnréttismál Þingið ályktar að jafnréttis- hugsjónin þurfiaðkomainn á alla þætti þjóðfélagsins og áréttar stuðning við framkvæmd jafn- réttislaganna. Þing Framsóknarflokksins hvetur alla þjóðfélagsþegna jafnt konur sem karla til stóraukinnar þátttöku i stjórnmálum og félags- málum. Til þess að koma til móts við vaxandi þátttöku beggja foreldra i atvinnulifinu, er mikilvægt að auka stuðning við tómstunda- og félagsstarf barna og unglinga, efla dagvistunarstofnanir og samvinnu fólks um barnagæslu. Þingið telur mikilvægt að vinna gegn félagslegri einangrun aldr- aðra og vill að stuðlað sé að aukn- um tækifærum þeirra til vinnu og tónstumdaiökana. Eigum nú mikið úrval af frábærum ferðaútvarpstækjum Linda Schapper við eitt teppa sinna á Kjarvalsstöðum i gær. Timamynd: Gunnar. , S tór kos tlegnr staður fyrir teppin mín’ FI — ,,Ég hef heyrt, aö listmálar- ar séu ekki mjög ánægðir meö sýningaraðstööuna hér á Kjar- valsstöðum, en fyrir teppin min er staðurinn stórkostlegur og hef ég aldrei sýnt á öörum betri,” sagði Linda Schapper, amerisk listakona, sem um þessar mundir heldur mikla sýningu á stoppuð- um teppum (quilts) að Kjarvals- stöðum. Þetta er 18. einkasýning Lindu, en áður hefur hún sýnt i Milanó, Munchen, Stuttgart, Frankfurt, Paris og Hannover auk Norður- landanna, en þar hafa teppi Lindu fariö eins og eldur i sinu, og á siö- ustu sýningu i Kaupmannahöfn bárust henni 22 pantanir á tepp- um, en alls hefur Linda gert um 70 til 80 teppi frá þvi hún byrjaði á þessari listgrein árið 1975. Héðan fer sýningin til Dyflinnar og Lissabon. Linda er 29 ára að aldri, fædd i Boston, búsett i Paris, gift sviss- neskum arkitekt, og hún byrjaði að stoppa teppi i Libanon Hún fékkst fyrst talsvert við málun i Libanon, en borgarastriðið brauzt út og Linda, sem sækir fyrir- myndir i samtiðina var allt i einu farin að mála hverja jarðarförina á fætur annarri. Venti hún þá sinu kvæði i kross og fór að stoppa teppi, formsterk og i glöðum lit- um. Hún var enginn byrjandi i þessu, — hafði kynnt sér málin áður á Spáni, i Þýzkalandi og Sviss. Linda Schapper kynnti list sina fyrir fullu húsi i Menningarstofn- un Bandarikjanna á fimmtudags- kvöldið og i dag laugardag mun hún frá kl. 18.00-20.00 sýna áhugamönnum, hvernig hún ber sig að viö teppagerðina og svara spurningum þeirra. Sýningin opnar kl. 18.00 i dag og stendur til 8. april. SKIPHOLTI 19 R. SIMI 29800 (5 LINUR) 27 AR I FARARBRODDI Verð kr 38 500 Verð kr 19 980 Verð kr. 56.930 Verð kr. 98.115

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.