Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 6
6 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR
HUGSAÐU VEL UM HÚÐINA
ÞÚ FÆRÐ DECUBAL
Í NÆSTA APÓTEKI
LÖGREGLUMÁL Eldur kviknaði í
bílskúr á Seltjarnarnesi um
klukkan níu að kvöldi jóladags.
Tveir slökkviliðsbílar voru sendir
á vettvang, og náðist fljótlega að
slökkva eldinn. Enginn var í
hættu.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
skemmdist bílskúrinn töluvert.
Reykræsta þurfti íbúðina við
hliðina á honum, en enginn eldur
barst þangað inn. Ekki liggur
fyrir hvernig eldurinn kom upp
en grunur leikur á að hann hafi
kviknað út frá ísskáp í skúrnum.
Málið er komið í hendur rann-
sóknardeildar lögreglu. - sþs
Upptök eldsins ókunn:
Eldur í bílskúr
á Seltjarnarnesi
INDÓNESÍA, AP Að minnsta kosti
áttatíu manns hafa látist eða er
saknað eftir að aurskriður féllu
á eyjunni Jövu í Indónesíu í gær.
Þá hafa þúsundir manna þurft að
leita skjóls eftir að flóð og aur-
skriður eyðilögðu hús þeirra.
Mikil flóð og rigningar hafa
verið í Indónesíu að undan-
förnu.
Aðstæður til björgunar eru
víða slæmar. Ófært er um vegi
vegna aurskriðna og hafa her-
menn, lögreglumenn og sjálf-
boðaliðar þurft að grafa eftir
fólki með berum höndum. Vegna
ófærðarinnar hafa björgunar-
sveitir ekki komist að
afskekktum svæðum. Að sögn
embættismanna á svæðinu er
því óttast að fjöldi látinna muni
hækka á næstu dögum.
Versta tilvikið sem kom upp í
gær var í Karanganyar. Þar voru
sextíu manns í matarboði að
fagna því að tekist hafði að
hreinsa auri þakið hús, þegar aur-
skriða féll og fólkið grófst undir.
Nákvæmlega þrjú ár voru í gær
liðin frá því að stór flóðbylgja
skall á þrettán löndum í Suður-
Asíu og var þess minnst víða um
álfuna í gær. Indónesía var það
land sem varð hvað verst úti í flóð-
bylgjunni á annan í jólum 2004, en
þá létust að minnsta kosti 128 þús-
und manns þar í landi.
- þeb
Mikil flóð og aurskriður vegna rigninga á Jövu:
Áttatíu eru taldir af í Indónesíu
BANDARÍKIN, AP Tígrisdýr varð
einum manni að bana og særði
tvo aðra alvarlega í dýragarðin-
um í San Francisco á þriðjudag.
Dýrið slapp úr búri sínu rétt fyrir
lokun, en fáir gestir voru í
garðinum.
Lík mannsins sem lést fannst
skammt frá tígrisdýrabúrinu, en
hinir tveir fundust við kaffihús í
300 metra fjarlægð. Tígrisdýrið
sat við hliðina á öðrum manninum
þegar lögreglu bar að garði og
var það skotið umsvifalaust.
Fórnarlömbin þrjú voru allt
menn á þrítugsaldri. Þeir sem
lifðu árásina af eru ekki taldir í
lífshættu. - þeb
Síberíutígrisdýr slapp úr búri:
Drap einn og
særði tvo aðra
LÖGREGLUMÁL Mál manns sem
stakk á hjólbarða fimm lögreglu-
bíla hjá lögreglunni á Suðurnesj-
um á jólanótt er nú í rannsókn.
Hann var yfirheyrður í fyrradag
og sleppt að því loknu.
Maðurinn virðist hafa skemmt
bílana til að hefna sín á lögregl-
unni, en hann hafði verið stöðvað-
ur fyrir ölvunarakstur fyrr um
kvöldið. Hann fór síðan heim til
sín, og reyndi að villa um fyrir
lögreglu með því að fara úr
skónum síðustu skrefin. Þetta
gerði hann til að erfiðara væri að
rekja spor hans.
Það dugði ekki, og var maður-
inn handtekinn stuttu síðar. - sþs
Reyndi að hylja spor sín:
Dekkjastingur
á stjá á jólanótt
Skullu saman á Kjalarnesi
Tveir bílar skullu saman á Kjalarnesi
hjá gatnamótum við Hvalfjarðarveg-
inn á jóladag. Báðir bílarnir fóru út af
veginum við áreksturinn. Fólkið sem
var í bílunum slasaðist ekki alvarlega.
LÖGREGLUFRÉTTIR
TÍGRISDÝRIÐ TATIANA Tatiana var felld
eftir að hún hafði ráðist á þrjá gesti
dýragarðsins. NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Nýtt megrunarlyf
sem fullyrt er að létti fólk um
fimm til tíu prósent þyngdar
sinnar er að öllum líkindum á leið
á markað í Bretlandi á næstu
mánuðum. Lyfið heitir Alli og
verður fáanlegt án lyfseðils, en
það er vægari útgáfa af megrunar-
lyfinu Xenical sem aðeins fæst
gegn lyfseðli.
Fyrirtækið GlaxoSmithKline
hefur sótt um leyfi til þess að
selja lyfið í Bretlandi, en fyrir-
tækið hefur selt lyfið í Banda-
ríkjunum undanfarið með góðum
árangri. Dagsskammtur af lyfinu
mun kosta eitt sterlingspund.
Offita er vaxandi vandamál í
Bretlandi, en landsmenn eru
orðnir feitasta þjóð Evrópu. Tals-
menn GlaxoSmithKline segja
lyfið vera hvetjandi fyrir þá sem
nú þegar séu í megrun. Þeir geti
tekið töflu með hverri máltíð, auk
þess sem þeir hreyfi sig og borði
hollt. Læknar í Bretlandi hafa þó
áhyggjur af því að lyfið verði
misnotað og fólk muni eingöngu
taka töflurnar.
Lyfið Alli virkar þannig að það
hindrar líkamann í því að taka
upp fitu úr fæðunni. Fitan meltist
ekki og fer því úr líkamanum
með öðrum úrgangi í stað þess að
setjast á líkamann. Lyfið getur þó
einnig truflað upptöku vítamína
úr fæðunni. Þá fylgja lyfinu aðrar
óskemmtilegar aukaverkanir,
aðallega mikill vindgangur og
niðurgangur.
Gareth Williams, læknisfræði-
prófessor við Bristol-háskóla,
fjallar um lyfið í nýjasta tölu-
blaði breska læknablaðsins. Þar
spáir hann því að vegna fyrr-
nefndra aukaverkana muni fólk
ekki endast lengi í töku lyfsins.
Þá segir hann einnig að meðallík-
ami brenni 100 hitaeiningum
aukalega á dag vegna lyfsins.
„Sama árangri væri hægt að ná
með því að skilja nokkrar fransk-
ar kartöflur eftir á diskinum eða
fá sér epli í staðinn fyrir ís,“
segir Williams.
Lyfjafræðingar hjá Lyfjastofn-
un, sem Fréttablaðið ræddi við,
könnuðust ekki við að sótt hefði
verið um markaðsleyfi fyrir lyfið
hér á landi.
thorunn@frettabladid.is
Bretar óttast að nýtt megr-
unarlyf verði misnotað
Megrunarlyfið Alli verður líklega fáanlegt í Bretlandi á næstunni. Fimm til tíu prósenta þyngdartap á
fjórum mánuðum og verður fáanlegt án lyfseðils. Ekki er vitað til þess að lyfið sé á leið hingað til lands.
ALLI Því er lofað að bæði menn og konur geti lést um fimm til tíu prósent með því
einu að taka megrunarlyfið Alli. Það hefur verið á markaði í Bandaríkjunum í rúmt
hálft ár og verður líklega komið á markað í Bretlandi innan skamms.
NORDICPHOTOS/GETTY
Bílslys í Borgarfirði
Einn var fluttur á heilsugæsluna í
Borgarnesi eftir að bifreið fór út af
vegi á mótum Borgarfjarðarbrautar
og Reykhóladalsvegar í gærdag.
Fjórir voru í bílnum, sem er mikið
skemmdur. Mikill snjór og hálka var í
Borgarfirði þegar slysið varð.
Borðaðir þú rjúpur
í jólamatinn í ár?
Já 11%
Nei 89%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fórst þú í jólaköttinn?
Segðu skoðun þína á visir.is.
LEITAÐ AÐ TÝNDUM Hermenn og sjálf-
boðaliðar leita að fólki eftir aurskriðu í
Tawangmangu á eynni Jövu.
NORDICPHOTOS/AFP
MENNTUN Nýverið tilkynnti alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
að árið 2009 yrði alþjóðlegt ár
stjörnufræðinnar (IYA2009). Með
því er vakin athygli á stjörnufræði
og raunvísindum og stuðlað að
betri skilningi á þeirri alþjóðlegu
auðlind sem fólgin er í andlega
hvetjandi áhrifum og innblæstri
stjarnvísinda.
Um leið er haldið upp á þann
atburð í sögu raunvísinda þegar
Galíleó beitti fyrstur manna sjón-
auka til rannsókna í stjörnufræði.
Er það talið upphaf 400 ára sögu
mikilla uppgötvana í stjörnufræði
og vísindabyltingar sem hafði
djúpstæð áhrif á hugmyndir
manna um alheiminn.
Segir í tilkynningu að alþjóða-
árið IYA2009 sé friðsamleg sam-
vinna þjóða þar sem leitað sé
svara við spurningunni um rætur
okkar og upphaf í alheimi, sam-
eigin lega arfleið jarðarbúa.
Einar H. Guðmundsson, próf-
essor í stjarneðlisfræði og for-
maður íslensku IYA2009-nefndar-
innar, segir haldið upp á viðburðinn
með margvíslegum hætti, meðal
annars með fyrirlestrum, fræðslu
um stjörnusjónauka og þátttöku í
stjörnuteitum þar sem stjörnu-
himininn verður skoðaður. Einnig
munu stjarnvísinda- og stjörnu-
áhugamenn vinna með kennurum
og nemendum í skólum landsins.
Þá er ætlunin að fræða landsmenn
um sögu stjarnvísinda á Íslandi.
- ovd
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna:
Árið 2009 verður ár
stjörnufræðinnar
STJÖRNUÞOKUR Í GEIMNUM Eitt af undrum alheimsins. MYND/NASA
KJÖRKASSINN