Morgunblaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Opið fyrir umsóknir á www.ru.is Allar nánari upplýsingar á www.ru.is og hjá námsráðgjöfum í síma 599 6200. OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 599 6200 www.ru.is F A B R IK A N 2 0 0 6 KRAFTMIKIL ÍÞRÓTTAFRÆÐI Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK Háskólinn í Reykjavík býður upp á fyrsta flokks nám í íþróttafræði til B.S. gráðu, í samstarfi við Íþrótta- akademíuna Reykjanesbæ. Gráðan veitir réttindi til starfa við íþróttakennslu á öllum skólastigum. Nemendur öðlast einnig færni til að starfa með ólíkum aldurshópum við hvers konar þjálfun og stjórnun á sviði íþrótta og heilsuræktar. STEFÁN Karlsson, handritafræðingur, er látinn. Hann lést í Kaupmannahöfn, 77 ára að aldri. Stefán fæddist 2. desember 1928 að Belgsá í Fnjóskadal í Suður-Þingeyjarsýslu. Foreldrar hans voru Jónasína Soffía Sigurð- ardóttir húsmóðir og Karl Kristjánsson bóndi. Stefán lauk stúdents- prófi frá Menntaskólan- um á Akureyri 1948 og magisterprófi í nor- rænni textafræði frá Kaupmanna- hafnarháskóla 1961. Hann var stundakennari við MA 1951–1952, Samvinnuskóla Íslands 1954–1955, Kaupmannahafnarháskóla 1961– 1969 og við HÍ 1981– 1994. Stefán var laus- ráðinn starfsmaður á Stofnun Árna Magnús- sonar í Kaupmanna- höfn 1957–1962 og sér- fræðingur á sömu stofnun 1962–1970. Hann var sérfræðing- ur og fræðimaður á Stofnun Árna Magnús- sonar á Íslandi 1970– 1994 og forstöðumaður sömu stofnunar og prófessor við heim- spekideild HÍ 1994– 1998. Stefán tók virkan þátt í fé- lagsstörfum og var meðal annars formaður Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn 1963–67 og formað- ur Félags íslenskra fræða 1971– 1975. Þá var Stefán varaformaður útvarpsráðs 1972–1975 og varafor- maður Örnefnanefndar 1998–2002. Stefán skrifaði fjölda ritgerða og greina í bækur og tímarit, einkum um íslensk handrit, málsögu og texta. Þá ritaði hann Islandske orig- inaldiplomer indtil 1450 (Editiones Arnamagnæanæ A 7), 1963. Saga of Icelandic Bishops. Fragments of Eight Manuscripts in Facsimile VII), 1967. Guðmundarsögur bisk- ups I (Editiones Arnamagnæanæ B 6), 1983. Stefán var heiðursdoktor við Kaupmannahafnarháskóla og við Háskóla Íslands. Eiginkona Stefáns var Helga Ólafsdóttir, forstöðumaður Blindra- bókasafns Íslands. Þau skildu. Stef- án og Helga eignuðust dótturina Steinunni. Andlát STEFÁN KARLSSON FORMLEGT erindi varðandi mögulegan flutning Árbæjar- safns til Viðeyjar hefur borist Reykjavíkurborg og verður rætt á fundi borgarráðs í dag. Gert er ráð fyrir að torfbærinn og kirkjan verði áfram á sínum stað, en að öðru leyti verði byggt upp sérbýlishverfi þar sem safnið stendur nú í stíl við það hverfi sem fyrir er í Ártúns- holtinu. Dagur B. Eggertsson, for- maður skipulagsnefndar, sagði að þetta væri ekki alveg ný hug- mynd en spennandi. Hún sner- ist um það að þau hús sem nú væru staðsett í Árbæjarsafni verði flutt út í austurenda Við- eyjar, þar sem gamla þorpið stóð og myndi þar nýtt safn um sögu Reykjavíkur. Á svæðinu þar sem safnið standi nú megi sjá fyrir sér sérbýlishúsabyggð í anda þeirrar byggðar sem fyr- ir sé í Ártúnsholtinu. Erindið er frá Minjavernd, sem er fyrirtæki í sameiginlegri eigu ríkis og borgar, í samstarfi við þróunarfélagið Þyrpingu. Dagur sagði að fara þyrfti yfir hvort þessar hugmyndir væru áfangastaður bæði fyrir borg- arbúa og einnig fyrir ört vax- andi hóp ferðamanna sem sækir borgina heim,“ sagði Dagur. Hann sagði að eitt af því sem þetta myndi kalla á ef af yrði væri miklu tíðari siglingar út í eyna og það þyrfti að skoða en „auðvitað er spennandi að sjá fyrir sér að lagt væri upp frá nýja tónlistar- og ráðstefnuhús- inu við höfnina og þetta jafnvel tengt starfsemi nýja sjóminja- safnsins, þannig að það væri meira líf út á Sundunum í tengslum við þetta.“ Dagur sagði að Viðey hefði dálítið átt undir högg að sækja. Þarna yrði byggt á þeim grunni sem þegar væri til staðar, þ.e.a.s. gömlu byggðinni sem verið hefði í eyjunni. Gert væri ráð fyrir að komið yrði upp bryggju í gömlum stíl og að ekki yrði brúað til lands. Að sama skapi hefði aðsókn að Ár- bæjarsafni aðeins dregist sam- an og það væri dálítið aðkreppt vegna umferðarinnar um Höfðabakkann. Mörg húsin sem þar væru og tengdust sjó- sókn og hafnarbænum Reykja- vík ættu kannski miklu betur heima við bryggju og höfn af gamla taginu. komið upp áður. Þeim fyndist hins vegar ástæða til að full- kanna hugmyndina og það þyrfti auðvitað að gera í sam- ráði við þá sem hefðu látið mál- efni Viðeyjar og Árbæjarsafns til sín taka. Vagga sögu Reykjavíkur „Viðey er vagga sögu Reykjavíkur og hefur í raun alla burði til þess að vera ómissandi raunhæfar og hvaða kostnaður væri samfara þessum flutningi, þar sem meðal annars þyrfti að taka til athugunar þætti eins og fyrirkomulag, ferjusiglingar, skipulag í Viðey og í Ártúns- holtinu og rekstur. Það væru þannig mjög margir þættir sem þyrftu að ganga upp, sem skýrði kannski hvers vegna ekki hefði orðið af framkvæmd- um, því þessi hugmynd hefði Formlegt erindi hefur borist Reykjavíkurborg frá Minja- vernd og Þyrpingu um flutning Árbæjarsafns til Viðeyjar Sérbýlishúsabyggð þar sem safnið stendur nú Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is                HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær tæplega þrítugan karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart stjúpdóttur sinni og vinkonu hennar. Brot ákærða voru hegningarauki við tvo dóma frá árinu 2005, sem hann hlaut fyrir ítrekaðan akstur án öku- réttinda. Ákærði var einnig dæmdur til að greiða stjúp- dóttur sinni 1,5 milljónir króna í miskabætur og hinni stúlkunni 1 milljón króna. Brotin gegn stjúpdótturinni voru framin á tímabilinu frá miðju ári 2000 fram til októberloka 2004. Brotin gegn hinni stúlkunni voru samkvæmt ákæru framin á tíma- bilinu júní til október 2004 en dómurinn taldi með hliðsjón af framburði telpunnar, að þau hefðu öll verið framin í september 2004. Báðar eru stúlkurnar fæddar árið 1994. Ákærði neitaði sök, en dómurinn taldi framburð hans ótrúverðugan en framburð stjúpdótturinnar afar trúverð- ugan. Varðandi hina stúlkuna taldi dómurinn hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði væri sekur að öðru leyti en varðar tímasetningu. Átti sér engar málsbætur Dómurinn taldi ákærða ekki eiga sér neinar málsbætur og við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot hans voru ítrekuð og alvarleg og beindust annars vegar að stjúpdóttur hans og hins vegar að vinkonu hennar. Með brotum sínum gagnvart stjúpdóttur sinni, sem var aðeins 6 ára gömul þegar brotin hófust, hefði ákærði brotið gróf- lega gegn uppeldis- og trúnaðarskyldum sínum gagnvart barninu. Með brotum sínum gagnvart vinkonu hennar hefði hann einnig brotið trúnað og traust sem barnið sýndi honum. Í skýrslu sálfræðings kom fram að ætla megi að telp- urnar báðar, þó sérstaklega stjúpdóttirin, muni um langt skeið glíma við afleiðingar hins kynferðislega ofbeldis og að afleiðingarnar séu mjög alvarlegar. Málið dæmdu héraðsdómararnir Ingveldur Einarsdótt- ir sem dómsformaður, Helgi I. Jónsson og Hervör Þorvaldsdóttir. Verjandi ákærða var Sigurður Júlíusson hdl. og sækjandi Kolbrún Sævarsdóttir sak- sóknari hjá ríkissaksóknara. 3½ árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveim barn- ungum telpum GRÍÐARLEG stemmning myndaðist í Listasafni Reykja- víkur í Hafnarhúsinu í gær þegar bandaríski tónlist- armaðurinn Iggy Pop kom þar fram á tónleikum. Eins og sjá má hélt Iggy uppi góðri stemmningu og að sjálfsögðu var hann ber að ofan, enda vel þekkt vörumerki hans. Morgunblaðið/Ómar Góð stemmning hjá Iggy Pop

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.