Morgunblaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 347. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is LANGÞRÁÐ FRÍ KRAKKARNIR Í SÆMUNDARSKÓLA TILBÚNIR AÐ FAGNA JÓLUM >> 22 3 dagar til jóla Eftir Andra Karl, Sigurð Jónsson og Skapta Hallgrímsson „ÉG fæ ekki skilið hvernig í ósköp- unum ég komst alveg heill út úr þessu,“ segir Jón Sverrir Sigtryggs- son sem lenti í miklum hrakningum í gærdag þegar bifreið hans hafnaði of- an í Djúpadalsá í Eyjafjarðarsveit. Jóni tókst að komast út úr bílnum af sjálfsdáðum, upp á land og var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Jón var á leið að bænum Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit til björgunarað- gerða þegar hann varð var við bifreið sem stóð fyrir utan Eyjafjarðarbraut og blikkaði ljósunum tvisvar, þrisvar. „Bíllinn stóð alveg utan við veginn þannig að það var ekkert sem benti til annars en þar væru menn aðeins að fylgjast með ánni,“ segir Jón og bætir við að hann hafi talið að verið væri að benda sér á að bíllinn væri ljóslaus. Laust fyrir kl. 11 í gærmorgun brast jarðvegsstífla við uppistöðulón ofan við rafstöð í Djúpadal og flæddi vatn úr lóninu og niður í Eyjafjarðará. Gríðarlegir vatna- vextir voru í Djúpadalsá í gær og beggja vegna brúar yfir ána hafði flóðið rofið veginn. „Um leið og ljóst var að bíllinn væri að fara of- an í vatnið gerði ég þær ráðstafanir sem hægt var, hélt í stýrið, spyrnti mér aftur í sætið til að fá ekki hnykk á mig og setti hina höndina á lásinn á öryggisbeltinu svo ég gæti losað mig um leið og færi gæfist, en væri um leið spenntur þegar höggið kæmi.“ Jón Sverrir hefur starfað í björg- unarsveit í rúman áratug og hefur því töluverða reynslu þegar kemur að því að bjarga fólki úr ám. „Það er oftast þannig þegar bílar fara ofan í að þá skjótast þeir upp aftur áður en þeir sökkva og þá var bara að draga djúpt andann og bíða eftir því andartaki.“ Jóni tókst að komast úr bílnum og upp á þurrt land á tiltölulega stuttum tíma en segir sundið í köldu vatninu með því erfiðara sem hann hefur reynt. Með honum í för var hundur Jóns og tókst honum einnig að kom- ast út úr bílnum og synda á eftir eig- anda sínum. „Ég gaf mér ekki mikið tóm á meðan ég reyndi að fljóta í land innan um stórgrýti og klaka en um leið og ég kom upp á bakkann varð mér litið yfir ána og sá hundinn synda á eftir mér. Hann hafði sig upp á bakkann en stoppaði þar, þá var þrekið búið.“ Þurfti stígvél í eldhúsinu Á bænum Grænuhlíð voru menn við björgunaraðgerðir þar sem aur- skriða ruddi burt útihúsi og bragga og skemmdi íbúðarhúsið töluvert í gærmorgun. Rúmlega tugur kálfa drapst í útihúsinu og aflífa þurfti nokkra til viðbótar. „Það var stígvéla- færi í eldhúsinu. Ég óð drulluna upp undir hné,“ sagði Óskar Kristjánsson bóndi. „Þetta var skelfilegt og það er ömurlegt að líta hér yfir svæðið. Það er ekki jólalegt hér og hefði alveg mátt vera öðruvísi.“ 130 hross í sjálfheldu Ekki aðeins flæddi fyrir norðan, því fyrir sunnan lentu um 130 hross í sjálfheldu vegna vatnavaxta í Hvítá og Stóru- og Litlu-Laxá. Björgunar- sveitin í Hrunamannahreppi var köll- uð út fyrir hádegi í gær og naut hún aðstoðar sveitarinnar á Laugarvatni. Björgunarsveitarmenn fóru að hross- unum á gúmbátum en um var að ræða þrjá hópa sem stóðu á grasböl- um umluktir vatni. Talið er að vatnið í kring hafi verið allt að tveggja til þriggja metra djúpt. Tókst að bjarga nær öllum hross- unum á þurrt en talið er að þrjú hafi drukknað.  Flóð | 14/15 - 30/33 Morgunblaið/RAX „Skil ekki hvernig ég komst heill frá þessu“ Komst með naumindum út úr bíl sínum eftir að hafa hafnað ofan í Djúpadalsá Björgun Um 130 hrossum var bjargað úr sjálfheldu vegna flóða í Hvítá og Stóru- og Litlu-Laxá í gærdag. Björgunarsveitarmenn á gúmbátum ráku hestana á sund og beindu þeim á þurrt land. Jón Sverrir Sigtryggsson Ár flæddu yfir bakka sína og ollu miklum vandræðum og eignatjóni víða um land „ÞAÐ er aðeins að kólna þannig að vonandi sjatna aðeins þessir vatna- vextir,“ segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Ís- lands. „Það ætti að draga mikið úr bráðnuninni og búið er að leysa mjög mikið þannig að útlit er fyrir að dragi úr vatnavöxtum, alla vega á morgun.“ Stöðufundir voru bæði norð- anlands og sunnan í gærkvöldi og var niðurstaðan af þeim sú að mesta hættan væri liðin hjá. Til ör- yggis voru björgunarsveitir með vakt í nótt og verður fundað á ný fyrir hádegi í dag. Útlit er fyrir suðvestanátt í dag með skúrum og jafnvel éljagangi. Síðdegis bætir aftur í vindinn og líklegt er að stormur verði víða um land. Hiti verður víðast hvar á land- inu á bilinu 0–5 stig. Frekari hlýindi framundan Aðspurður hvort útlit sé fyrir frekari hlýindi og þá meiri leys- ingar segir Haraldur að hlýna muni á nýjan leik á föstudag, auk þess sem hlýindunum muni fylgja úr- koma. „Það verða þó ekki jafn mikil hlýindi og verið hefur, auk þess sem búið er að leysa mikið.“ Reikna má með hvassviðri á Þor- láksmessu og aðfangadag. Útlit fyrir að dragi úr vatnavöxtum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.