Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 19 MENNING Í LISTASAFNI Reykjavíkur, Hafn- arhúsi, stendur nú yfir sýning á inn- setningu Steingríms Eyfjörð sem var framlag Íslendinga á Feneyja- tvíæringnum síðastliðið sumar. Stein- grímur er þjóðinni vel kunnur enda verið ötull og áberandi í íslensku lista- lífi í meira en þrjátíu ár. Hann er þekktur fyrir verk í anda kons- eptlistar sem lagði meiri áherslu á hugmyndina sjálfa í formi texta, út- skýringa, ljósmynda, teikninga og verkferla en hefðbundin endanlega útfærð myndverk. Aðferðafræði konseptlistarinnar er í útvíkkaðri mynd orðin eitt helsta einkenni sam- tímamyndlistarinnar þar sem hún hefur blandast áherslum póstmódern- ismans. Til dæmis áherslum á kenni- mörk sjálfsmynda, hvort heldur sem einblínt er á þjóðir, kynþætti, kyn- ferði, kyngervi, eða annarra þátta sem byggja upp samsemd. Sýning Steingríms ber hinn bjart- sýna titil „Lóan er komin“ og inni- heldur margvísleg verk sem virðast innbyrðis óskyld en tengjast þó öll einhverjum mýtum sem eiga þátt í sameiginlegri sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar. Þótt þrívíddarmyndverk á borð við risavaxna lóu, heldur minni spóa steyptan í brons og stíu fyrir ósýnilega álfakind virðist vera í aðal- hlutverki á sýningunni þá eru þau frekar eins og sjónrænn viðbótar- lúxus við alla handskrifuðu textana, prentuðu sögurnar, ljósmyndir og út- skýringar sem eru burðarásinn í sýn- ingunni. Þjóðarsálin íslenska sem hér birtist er málum blandin, gefur sig út fyrir að vera rannsakandi og gagnrýnin á sjálfa sig um leið og sjálfsupphafn- ingin skín í gegn. Eins og þegar yf- irsjálfið lekur yfir í gyllisjálf. Þótt áherslan sé á að áhorfandinn lesi sýn- inguna vitsmunalega samkvæmt konseptlistahefðinni sem leggur mest í orð og texta þá felur hún einnig í sér sjónrænar fagurfræðilegar skírskot- anir sem krefjast tilfinningalegrar skynjunar. Þessi samsláttur hins rökrétta og órökrétta, texta og myndar er áber- andi og meðvitaður þáttur í sýning- unni. Hugmyndin um Lógosið sem mystískt samband orðs og myndar er það leiðarstef sem sýningin hverfist um. Hvernig á að lesa mynd og hvern- ig á að sjá orð. Lógó á morgunkorns- pökkum leika stórt sjónrænt hlutverk um leið og pakkarnir sjálfir eru not- aðir sem Camera Obscura myndavél til að soga í sig ímyndir af Þingvöllum. Broddur pólitískrar gagnrýni litaður samsæriskenningum gefur ákveðinn tón. Sýningin sem heild gefur í skyn að hún búi yfir einhverju meiru held- ur en samanlögð einstök verk hennar fela í sér. Upphafinn gregorískur söngur sem heyra má á myndbandi ýtir undir hugleiðsluástand og gerir áhorfandanum kleift að dvelja lengur og lesa meira í von um að finna ein- hvern sannleikskjarna sem verkin öll virðast gefa fyrirheit um. Tilfinning fæst fyrir því að dulin skilaboð leynist í sýningunni, einhver samnefnari, einhver kenning eða heimspeki eða trú. Þetta er eins og að vera eða horfa á alkemista sigta hverja sandhrúguna á fætur annarri í leit að gullkorni eða reyna að skapa það með því að eima eða blanda sam- an ódýrum málmum. Sýningin er ákaflega flókin um leið og ekkert krefst þess að maður skilji hana því það er í sjálfu sér nóg að undrast eða brosa. Eða samsama sig hinni meðvituðu bernsku nálgun listamannsins sem setur sig í stell- ingar þess sem spyr og lærir af öðr- um í hinum fjölmörgu viðtölum sýn- ingarinnar. Það vísar í hið hreina hjarta sem er forsenda þess að fá að sjá inn í hina huldu heima. Trúarleg stef eru áberandi, jatan, vatnið, saltið af veginum, ósýnilega kindin, fisk- urinn og leynda vopnið gætu falið í sér vísun um yfirnáttúrulega eða fag- urfræðilega útvalningu þjóðarinnar eða fulltrúa hennar. Steingrímur hefur í samvinnu við fjölmarga aðila náð að skapa einstaka og eftirminnilega sýningu sem snert- ir nauðsynlega tilurð óra fyrir sjálfs- mynd, hvort heldur er einstaklings eða þjóðar. Ágætri sýningarskrá hefði þó mátt fylgja stækkunargler. Fagurfræðileg skák MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús Opið alla daga vikunnar 10:00 – 17:00. Aðgangur ókeypis. Sýningin stendur til 2. mars. Steingrímur Eyfjörð – Lóan er komin Þóra Þórisdóttir Lóan „Sýning Steingríms ber hinn bjartsýna titil „Lóan er komin“.“ VOLDUGIR tónar orgelsins í Hall- grímskirkju sköpuðu málverkunum í anddyrinu dramatískan bakgrunn þegar undirrituð var þar á ferð, en þar sýnir Arngunnur Ýr myndir sínar. Arngunnur hefur um árabil þróað margræð málverk sem hafa skýjafar að myndefni. Í því trúarlega samhengi sem kirkjan skapar verkum hennar verða þau dálítið upphafin og skýin sem sum eru bleikrauð, fjólublá eða gullin, auðveldlega séð sem hluti af þróun málverksins allt frá miðöldum, þegar listin tengdist kirkjunni hvað mest, manni detta t.d. í hug kandíflos- legir skýjabólstrar umhverfis bústna engla. Skýjafarið á málverkum Jacob van Ruysdael á 17. öld kemur einnig upp í hugann en ekki síst rómantík 19. aldar sem er uppfull af alls kyns birt- ingarmyndum himinsins með Turner í fararbroddi. Impressionistarnir leit- uðust líka við að fanga hverfula birtu. Það er eðlileg þróun að málarar haldi áfram að horfa til himins, og á hverj- um tíma er það sem þeir sjá og sýna háð heimsmynd okkar og tíðaranda. Í Gallerí Turpentine sýnir Arn- gunnur sömuleiðis stór málverk, einn- ig minni myndir sem gætu verið skiss- ur en eru þó fullunnin verk. Skýjamyndir hennar hafa undantekn- ingarlaust jarðtengingu, fjallatoppa eða eyjar. Bestu myndirnar eru marg- ræðar og áleitnar, þegar horft er á þær er eins og fótunum sé kippt und- an manni og himinn og jörð verða eitt, forgrunnur og bakgrunnur, hvað snýr upp og hvað niður brenglast, ef til vill í samræmi við rómantíska hugmynd um smæð mannsins gagnvart hinni stóru náttúru. Á móti þessari róm- antísku hugmynd kemur síðan gagn- rýnin og nútímaleg vinnuaðferð mál- ara sem tekst á við myndflötinn af vísindalegri nákvæmni, rífur svolitla skænu af hér, leyfir litunum að bland- ast þar, setur saman fínlegar og flæð- andi litasamsetningar sem koma stöð- ugt á óvart. Arngunnur hefur ekki haft sig mjög í frammi hérlendis enda lengst af ver- ið og er enn búsett erlendis. Hún á þó fullt erindi inn í íslensku listasöguna með sérstakan myndheim sinn, þar sem á stundum nær sykursætt yf- irborðið leynir töluvert á sér. Huliðsbirta MYNDLIST Forkirkja Hallgrímskirkju og Gallerí Turpentine Sýningin í Hallgrímskirkju stendur til 29. feb. Opið er alla daga 9–17. Sýningin í Gallerí Turpentine stendur til 19. jan. Opið mán. til fös. frá kl. 12–18 og 12–17 lau. Arngunnur Ýr Gylfadóttir Ragna Sigurðardóttir Skýjafar „Arngunnur hefur um árabil þróað margræð málverk...“ AÐSÓKNIN að fyrstu sinfóníutón- leikum ársins í rauðu röðinni var mjög góð og furðuóháð fannferginu er gerði smábílaeigendum úthverf- anna örðugt um vik. Í tilefni af sextugsafmæli hins ást- sæla konsertmeistara SÍ, Guðnýjar Guðmundsdóttur, hófst dagskráin á verki Þorkels Sigurbjörnssonar Ljósbogar (11’), samið til fimmtugs- afmælis hennar 1997, og flutt af sameinuðum fiðlarahópum hljóm- sveitarinnar eða um 27 manns. Pip- armyntuferskt þrástefjaskotið en kliðfagurt verkið ku öðrum þræði hafa verið hugsað fyrir sístækkandi nemendaskara Guðnýjar, enda sló það mann við fyrstu heyrn sem fyr- irtaks upphitunaretýða fyrir jafnt langt komna nemendur sem at- vinnumenn. Í því sambandi væri kannski athugunarvert fyrir verk- efnavalsnefnd að grennslast eftir gagngerum „æfingum“ fyrir sinfón- íuhljómsveit, ef einhverjar bitastæð- ar fyrirfyndust í heimstónbók- menntum, og bera á borð fyrir tónleikagesti. A.m.k. kom þessi bráðfallega út í vel samstilltum leik 1. og 2. fiðluleikara SÍ undir innblás- inni stjórn Rumons Gamba. Rannveig Fríða Bragadóttir var greinilega á heimavelli í fimm Rüc- kert-ljóðum Gustavs Mahlers frá 1902, jafnvel þótt neðra tónsvið hennar lyti stundum í lægra haldi fyrir hljóðfæramargnum í afleitum sönghljómburði Háskólabíós. Þó að síðustu og lengstu tvö ljóðin héldu varla sömu athygli og fyrri þrjú (du- lítið a la „Wagner á valíum“ eins og gárungi orðaði það), var leikurinn í jafnháum klassa og fyrr, og Rann- veig fór með alinlöngu úthaldskrefj- andi hendingarnar af fagmannlegri innlifun. Látlaus andi þjóðlagsins er sjald- an langt undan hjá brezka tónskáld- inu Ralph Vaughan-Williams (1872- 1958), og fjórþætt 5. sinfónía hans frá 1938-43 er þar engin undantekn- ing. Að friðsælu og heiðtæru heild- aryfirbragði viðbættu er ekki laust við að líta megi á verkið sem frið- arákall á viðsjárverðum tímum. Ljóst var frá upphafi að stjórn- andinn þekkti ópusinn í bak og fyrir, enda leikurinn afbragðsgóður, styrkbrigðaramminn míluvíður (pppp niðurlag Rómönzunnar (III) var t.a.m. engu líkt), og náttúrulýr- ísk litbrigði tréblásturs og viðhafn- arglampi látúnsins veittu hlust- endum unað af því hríslandi tagi er réttlætir til fullnustu ómakið við að bregða sér burt frá hljómflutnings- tækjum heimilisins á vettvang lif- andi spilamennsku. Og hafi höf- undur ekki alveg haldið sambærilegum dampi til enda í síð- ustu þáttum, þá má samt óhætt flokka þessa tónleika meðal hinna betri á hálfliðinni vertíð. Hríslandi unaður TÓNLIST Háskólabíó Þorkell Sigurbjörnsson: Ljósbogar. Mahl- er: Rückert-Lieder. Vaughan-Williams: Sinfónía nr. 5. Einsöngur: Rannveig Fríða Bragadóttir. Sinfóníuhljómsveit Íslands u. stj. Rumons Gamba. Fimmtudaginn 17. janúar kl. 19:30. Sinfóníutónleikarbbbmn Ríkarður Ö. Pálsson KAMMERKÓR Langholtskirkju fær til liðs við sig suma af þekktustu djasstónlistarmönnum landsins á tónleikum annað kvöld. Þekkt söng- lög eftir Jónas og Jón Múla Árna- syni, vinsælir erlendir djassslagarar á borð við „Route 66“ og Bítlalög eru meðal þess sem kórinn hefur verið að æfa að undarförnu. Píanóleik- arinn Davíð Þór Jónsson, trommu- leikarinn Einar Valur Jónsson, saxó- fónleikarinn Sigurður Flosason og kontrabassaleikarinn Valdimar Kol- beinn Sigurjónsson spila bæði undir hjá kórnum og leika tónlist án söngs. Jón Stefánsson stjórnandi kórsins segir tónleikana verða þrískipta, fyrsti hluti þeirra verði helgaður ís- lensku efni en síðan taka við verk eftir sænska tónskáldið Nils Lind- berg. „Í síðasta hlutanum syngur kórinn svo flóknar útsendingar á vin- sælum lögum sem voru gerðar fyrir sænsku hljómsveitina Real Group. Það sem er mest spennandi er verk sem heitir Chili Con Carne sem er algjör sprengja. Við höfum verið að berjast við þetta, þetta er mjög krefjandi og spennandi,“ segir Jón. Listafélag Langholtskirkju stendur fyrir tónleikunum, en það var stofnað í haust til þess að halda utan um menningarstarfið í kirkj- unni. Björn Jónsson, talsmaður fé- lagsins, segir starfið hafa farið vel af stað og að um tvö hundruð manns séu skráð í félagið. „Við erum með fimmtán tónleika á starfsárinu og þeir sem hafa verið haldnir hingað til hafa heppnast mjög vel. Það hef- ur verið bryddað upp á nýjungum í hvert sinn og nú er komið að Kammerkórnum og kirkjudjass- inum.“ Tónleikarnir hefjast klukkan átta í Langholtskirkju. Almennt miða- verð er 2.500 krónur, en kórfélagar og félagar í Listafélagi Langholts- kirkju njóta afsláttarkjara. Kórsöngur og kirkjudjass Árvakur/Brynjar Gauti Sveifla Kammerkór Langholtskirkju og nokkrir af helstu djasstónlistar- mönnum landsins leika létta tónlist með djassívafi á sunnudagskvöld.             Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Rvk. www.lso.is - lso@lso.is SUMARTÓNLEIKAR LISTASAFNS SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR 2007 Listasafn Sigurjóns Ólafssonar býður tónlistarfólki að sækja um þátttöku í þriðjudagstónleikum sumarið 2008 sem verða haldnir vikulega frá miðjum júlí til ágústloka. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 12. febrúar nk. með drögum að efnisskrá, upplýsingum um flytjendur (CV) og kjörtíma tónleika. Valið verður úr umsóknum og öllum svarað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.