Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Page 14

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Page 14
172 Sigurður Nordal: t iðunn Varið ykkur veslingar varið ykkur veslingar á Abba-labba-lá. Brot. Weston-super-Mare, 24. mar/. 1918. Pósturinn færði mér í morgun bréf frá Sigmundi vini mínum. Óvænt, eins og alt af. Sigmundur skrifar ekki eins og annað fólk, af skyldu eða vana, til þess að svara bréfi, eða af því »skipið er á förum«. En einn góðan veðurdag situr hann við skrifborðið, eitthvað sem hann er að hugsa eða skrifa minnir hann á þig, einhver gömul samveru- stund rifjast upp, hann sér þig og finnur til þín. Hann grípur fyrsta pappírsmiðann, sem fyrir hon- um verður, rispar á hann nokkrar línur, sem eru eins og þétt og snögt handlak manns, sem þú mætir á götu, er að flýta sér, en hefði heldur viljað stað- næmast hjá þér. Smellir bréfinu í umslag, fleygir því í póstkassann, — og dettur þú svo ekki í hug næstu þrjú misserin, án þess þó að gleyma nokkru, eða vera minni vinur þinn eftir en áður. Eg les bréfið. Það er hvorki efnismikið né langt, svolítið út á þriðju blaðsíðuna. Ég lít á fjórðu blað- síðuna, þá auðu — nei, bíddu við, þarna er eitthvað skrifað, stendur á höfði, fyrst ... bak viö malarauðnir svo útstrikaðar línur, og neðar bak við malarauðnir og múrgrá þoka. Það er alt og sumt.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.