Kirkjuritið - 01.08.1955, Blaðsíða 48

Kirkjuritið - 01.08.1955, Blaðsíða 48
40 ára afmœli Hafnarfjarðarkirkju. Nýtt orgel vígt vi& það tœkifœri. Hafnarfjarðarkirkja var vígð 20. desember 1914, og voru því 40 ár liðin frá vígsludegi hennar 20. desember s.l. Frestað var að minnast þessara tímamóta í sögu kirkjunnar, þar til lokið væri að setja í hana nýtt orgel, sem afhent var við hátíðarguðsþjónustu 3. júlí. Rögnvaldur Ólafsson húsameistari gerði uppdrátt að Hafn- arfjarðarkirkju, en sóknarmenn lögðu sig almennt mjög fram um að gera hana sem veglegasta, og höfðu útgerðarmennimir Ágúst Flygenring og Einar Þorgilsson forgöngu í því. Ýmsir af munum Hafnarfjarðarkirkju eru úr Garðakirkju, en hún var lögð niður, þegar Hafnarfjarðarkirkja var fullgerð, en margt hefir kirkjunni verið gefið síðan af fögrum búnaði og munum, bæði frá einstökum mönnum, en þó sérstaklega frá kvenfélagi kirkjunnar, sem var stofnað árið 1930. Hefir það unnið ómetanlegt starf kirkjunni til fegurðarauka og prýði þau 25 ár, sem það hefir starfað. Meðal annars gaf kvenfélagið kirkjunni forkunnar fagra altarisgripi á 20 ára afmæli hennar og nú hefir það gefið gólfábreiður á allt gólf kirkjunnar og á söngloft og dregla á stiga og minnzt á þann hátt fertugsafmælis hennar. Seinasta gjöf kvenfélagsins til kirkjunnar voru 50 ferm- ingarkyrtlar, sem voru- teknir í notkun á þessu vori. í stjórn kvenfélagsins eru frú Margrét Gísladóttir, form., frú Guðfinna Sigurðardóttir, ritari, og frú Ingileif Sigurðardóttir, gjaldkeri. Á síðastliðnu ári fóru fram miklar breytingar og umbætur á kirkjunni. Söngloft var stækkað og styrktarstoðir settar í orgelstæði, kirkjan var máluð að innan hátt og lágt og kórloft og veggfletir skrautmálað. Eiríkur Einarsson arkitekt hafði yfirumsjón með öllum breytingum, en hjónin Gréta og Jón Björnsson skrautmáluðu og leiðbeindu um litaval. Þá hefir Jón Gíslason útgerðarmaður gefið kirkjunni forkunnar fagran ljósa- hjálm til viðbótar tveimur, er fyrir voru. Hafnarfjarðarkirkja eignaðist þegar í upphafi pípuorgel, og

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.