Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 93

Fréttatíminn - 10.12.2010, Blaðsíða 93
Á hljómgrunnur.is er að finna aðgengilegt yfirlit yfir tónlistarviðburði sem eru fram undan. Rokk, djass, popp, klassík og allt þar á milli. N ú er aðventan og við bíðum jólanna. Aðventan er tími íhygli og samveru en líka tími anna og brjál- æðis af ýmsu tagi. Í Borgarleikhús- inu er verið að sýna sérstaka sögu sem að sumu leyti er afar jólaleg en að öllu leyti algjörlega tímalaus. Jesús litli er leiksýning sem borin er uppi af þremur stórkostleg- um trúðum, tveimur kunnuglegum og einum nýrri. Trúðarnir Barbara (Halldóra Geir- harðsdóttir), Bella (Kristjana Stef- ánsdóttir) og Úlfar (Bergur Þór Ing- ólfsson) miðla jólaguðspjallinu með yndislegri blöndu af umhyggju og ósvífni. Þeim leyfist allt, enda er ekk- ert heilagt í þeirra augum nema þá ef vera kynni trúðsreglurnar. Trúð- arnir kalla ekki aðeins fram hlátur og bros heldur vekur barnslegt sakleysi þeirra, og úrræðagleðin, líka önnur hugrenningatengsl hjá leikhúsgest- um, t.d. við kærleikann og vonina. Og ekki er það verra á aðventunni. Trúin sjálf kemur málinu minnst við; sagan sem allt hverfist um er af fólki í afar sjaldgæfum og ótrúlegum aðstæðum sem nútímaáhorfandi á samt afar auðvelt með að tengja við þegar trúðarnir hjálpa upp á sam- hengið. Söguþráðurinn er flestum kunnugur svo að ekki verður eytt púðri í það hér að rekja framvinduna, né þær krókaleiðir og útúrsnúninga sem trúðarnir leiða gesti í. Það er undravert hvernig svo margmiðluð saga getur hreyft við fólki á alveg nýjan hátt. Að sjá þessa sýningu nú, þegar hún hefur verið þrautreynd á fjölunum, var eins og að horfa á heimsmeist- ara í samhæfðri sundfimi. Samleikur listamannanna þriggja, samsöngur og metnaðurinn sem þau svo aug- ljóslega hafa fyrir því að koma sög- unni og boðskap hennar til skila, var afar heillandi og til fyrirmyndar í alla staði. Heildarbragurinn er skýr og hugvitssamlegur, leikmyndin mögn- uð, lýsingin flott og tónlist og hljóð eins tipp topp og hægt er, alltaf við hæfi og aldrei yfir strikið. Leikstjórinn Benedikt Erlingsson og hópurinn í heild má vera stoltur af þessu afkvæmi sínu langt fram eftir öldinni og ég vona að Jesús litli verði að- ventusýning sem sjá má á hverju ári. Svona upp- færsla er hrein dásemd fyrir leikhús- unnendur og kærkomin gátt fyrir alla þá sem ekki hætta sér oft á þvílíka menningarviðburði. Sjáið hana, hríf- ist, hlæið, grátið og passið svo upp á ljósið hvert í öðru. Kristrún Heiða Hauksdóttir  Jesús litli Leikstjóri: Benedikt Erlingsson Borgarleikhúsið Eins og heimsmeistarar í samhæfðri sundfimi  leikdómur Jesús litli Föstudagur 10. desember Tríó Reykjavíkur Kjarvalsstaðir kl 12.15 Hádegistónleikar þar sem verða flutt verk eftir Shostakovich, Katsaturian, Mendelsohn og Schumann. Aðgangur ókeypis. Jólatónleikar Melchior Landnámssetrið Borgarnesi kl. 20.30 Helstu lög sveitarinnar verða leikin í huggulegri jólastemningu í bland við ný lög og eitt jólalag eða svo. Sérstakur heiðursgestur er Ólafur Flosason sem lék á óbó með Melchior fyrir 30 árum. Dikta græni hatturinn Akureyri kl. 22 Ein vinsælasta hljómsveit landsins á einum vinsælasta tónleikastað landsins. Myrká + Porquesi sódóma kl. 22 Hljómsveitin Myrká frá Akureyri kemur suður með sitt kraftmikla og drungalega dauðapopp. Hljómsveitin PORQUESI flytur epískt instrumental rokk, ólgandi af lífskrafti. Laugardagur 11. desember Hátíð fer að höndum ein Hallgrímskirkja kl. 14 til 17 Listvinafélag Hallgrímskirkju og tónlistarfólk Hallgrímskirkju býður til tónlistarveislu í kirkjunni. Í boði er samfelld aðventu- og jóladagskrá með kórsöng og orgeltónlist þar sem kirkju- gestir fá einnig að syngja með í þekktum söngvum. Fram koma Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar, Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar. Báðir organistar kirkjunnar, Björn Steinar Sólbergsson og Hörður Áskelsson, leika aðventu- og jólatónlist á Klais-orgelið. Aðgangur kr. 1.000 en ókeypis fyrir yngri en 16 ára. Berndsen & Valdimar sódóma kl. 22 Hljómsveitin Berndsen & The Young Boys, með rauðhærða ofurtöffarann Davíð Berndsen í fararbroddi, leikur synthapopp undir sterkum 80’s áhrifum. Óhætt er að lofa líflegri sviðsframkomu en ungu drengirnir veigra sér ekki við að fækka fötum ef svo ber undir. Hljómsveitin Valdimar hitar upp. Tónlist sveitarinnar spannar allan tilfinn- ingaskalann og eru blásturshljóðfæri áberandi í lögum hennar. sunnudagur 12. desember Ástvaldur Zenki Traustason – Hymnasýn Fríkirkjan í Reykjavík kl. 17 Á efnisskránni eru aldagömul sálmalög í bland við nýrri sálma. Sálmarnir hafa verið færðir í nýjan búning þar sem Ástvaldur Zenki opnar á þá nýja sýn og fangar fegurðina sem felst í einfaldleika þeirra og einlægni. Meðreiðarsveinar eru Scott McLemore á trommur og Þor- grímur Jónsson á bassa. Aðgangur 1.500 kr. Jóel Pálsson – HORN útgáfutónleikar rosenberg kl. 21 Jóel Pálsson og félagar flytja tónlist af glænýjum geisladiski Jóels - HORN. dægurmál 93 Helgin 10.-12. desember 2010 Þú færð e-kortið í Arion banka. Farðu á arionbanki.is og kynntu þér kosti e-kortsins. Viðskiptavinir e-kortsins fá samtals rúmlega 98 milljónir í endurgreiðslu í desember. Hvernig greiðslu færð þú? Alltaf í desember. Á hverju ári fá handhafar e-korta endurgreiðslu í beinhörðum peningum. Sæktu um e-kort í næsta útibúi Arion banka eða á arionbanki.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.