Milli mála - 01.01.2011, Blaðsíða 155
155
Birna Arnbjörnsdóttir
Háskóla Íslands
Stefna og framkvæmd símenntunar
og aðlögun innflytjenda á Íslandi
og öðrum Norðurlöndum
1. Inngangur
Á haustmánuðum 2008 leitaði Norræna ráðherranefndin til Danmarks Pedagogiske Universitetsskole um að stýra sam-
norrænni rannsókn á þætti símenntunar og fullorðinsfræðslu í
aðlögun1 innflytjenda og afkomenda þeirra á Norðurlöndum. Mark-
mið rannsóknarinnar var að gera samanburð á opinberri stefnu í
menntunarmálum fullorðinna innflytjenda, bera saman framkvæmd
slíkrar stefnu á Norðurlöndunum fimm og lýsa sérstaklega þeim
símenntunarúrræðum sem í boði eru í hverju landi og hvernig þau
hafa gagnast innflytjendum.2 Helstu niðurstöður rannsóknarinnar
1 Orðið aðlögun er notað í greininni en þá er ekki átt við að innflytjendur einir eigi að aðlaga sig að
samfélaginu heldur þvert á móti, það er trú höfundar að farsæl aðlögun sé ólíkleg nema að þjóð-
félagið í heild aðlagi sig að fjölmenningarlegri samsetningu íbúanna. Tilgangur rannsóknarinnar
var einmitt að skoða hvernig símenntun kemur til móts við þarfir innflytjenda.
2 Birna Arnbjörnsdóttir og Ingibjörg Hafstað, Integration af indvandrere gennem voksen- og efterud-
dannelse. En nordisk komparativ undersøgelse. Island, Kaupmannahöfn: Nationalt Center for
Kompetenceudvikling, 2010; Perly Folstad Norberg, Integration af indvandrere gennem voksen- og
efteruddannelse. En nordisk komparativ undersøgelse. Norge, Kaupmannahöfn: Nationalt Center for
Kompetenceudvikling, 2010; Tinne Geiger og Karen Lund, Integration af indvandrere gennem voksen-
og efteruddannelse. En nordisk komparativ undersøgelse. Danmark, Kaupmannahöfn: Nationalt Center
for Kompetenceudvikling, 2010; Petri Salo, og Pia-Stina Sarin, Integration af indvandrere gennem
voksen- og efteruddannelse. En nordisk komparativ undersøgelse. Finland, Kaupmannahöfn: Nationalt
Center for Kompetenceudvikling, 2010; Per Olof Thång, og Monica Larson, Integration af indvan-
drere gennem voksen- og efteruddannelse. En nordisk komparativ undersøgelse. Sverige, Kaupmannahöfn:
Nationalt Center for Kompetenceudvikling, 2010; Bjarne Wahlgren, Karen Lund og Tinne
Geiger, Integration af indvandrere gennem voksen- og efteruddannelse. En nordisk komparativ under-
søgelse. Tværgående analyser og sammenfatninger, Kaupmannahöfn: Nationalt Center for
Kompetence udvikling, 2010.