Milli mála - 01.01.2011, Blaðsíða 222
222
Um Madame de Lafayette
Marie-Madeleine Pioche de la Vergne fæddist árið 1634. Fjölskylda
hennar tilheyrði lágaðlinum en var auðug og vel menntuð. Marie-
Madeleine var elst þriggja systra úr fyrra hjónabandi móður sinnar;
tuttugu og eins árs gömul giftist hún greifanum François de
Lafayette, sem var ekkjumaður, þrjátíu og átta ára gamall. Lengst af
voru þau aðskilin, hann bjó á landareign sinni í Auvergne, hún í
París þar sem hún verður tíður gestur í konungshöllinni og náin
vinkona Henriette af Englandi. Hún tók mikinn þátt í samkvæmis-
lífi Parísarborgar, ekki síst salónum sem þá nutu mikilla vinsælda.
Þar kynntist hún meðal annars Madame de Sévigné, François de La
Rochefoucauld og Jean Regnault de Segrais, höfundi ritsins Nouvelles
françaises (1656) sem hafði mikil áhrif á mótun klassísku skáld-
sögunnar. Vinir hennar tóku þátt í ritun sumra verka hennar, að
mismiklu leyti þó. Hún sendi fyrst frá sér smásöguna La Princesse de
Montpensier (1662), án höfundarnafns, og er lítið vitað um tilurð
þessa verks. Hetjuskáldsagan Zaïde, sem kom út í tveimur bindum
1669 og 1672, og Princesse de Clèves (1677) eru eignaðar Madame de
Lafayette þótt hún hafi ekki lagt nafn sitt við þessi verk þegar þau
komu út. Sú saga sem hér birtist í íslenskri þýðingu kom fyrst út í
Frakklandi árið 1718, undir heitinu La Comtesse de Tende, tuttugu og
fimm árum eftir lát Madame de Lafayette. Ásamt La Princesse de
Montpensier og La Princesse de Clèves ber hún merki þeirra hugmynda
sem mótuðu klassísku skáldsöguna. Þessi þrjú verk eiga það öll
sameiginlegt að fyrirmyndir sögupersóna eru flestar sóttar í raun-
veruleikann, jafnvel samtímann; stíll þeirra er einfaldur og nákvæm-
ur og viðfangsefnið ástin, óhamingja og vonlítil barátta einstaklings-
ins við tilfinningar sínar. Talið er að Greifynjan af Tende hafi verið
samin um 1658 eða 1660.2 Á henni þykir jafnvel dálítill byrjenda-
2 Mme de Lafayette, Romans et Nouvelles, útg. Alain Niderst, París, Classiques Garnier, bls. xlviii.
Þýðingin fylgir framangreindri útgáfu Alains Niderst á La Comtesse de Tende, bls. 421–433.
GREIFYNJAN AF TENDE