Morgunblaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 6. F E B R Ú A R 2 0 1 2  Stofnað 1913  30. tölublað  100. árgangur  FEÐGAR OPNA VEITINGASTAÐ VIÐ BORGARTÚN JÓN ARNÓR MIKILVÆGUR HJÁ ZARAGOZA ARTÓTEK LEIGIR OG SELUR LISTAVERK SÁTTUR ÍÞRÓTTIR MYNDLIST ALLA ÆVI 26FÉLAGSMIÐSTÖÐ 10 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Menn vilja halda vel utan um er- lendu eignina sína. Hún er nú komin niður í 24% en talið hefur verið æski- legt að hún sé vel yfir 30%,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, um er- lendar eignir íslensku lífeyrissjóð- anna. Hann segir að innlendi fjár- málamarkaðurinn sé enn grynnri en hann var fyrir efnahagshrun. Þá er ekki hægt að stofna til nýrra við- skipta erlendis vegna gjaldeyrishaft- anna. Eina undantekningin er end- urgreiðslur úr erlendum framtaks- sjóðum sem lífeyrissjóðirnir keyptu í fyrir hrun. Þær má nota til að standa við gerða samninga um greiðslur í erlenda framtakssjóði. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, benti á það í samtali við mbl.is að þrátt fyrir mikið tap lífeyrissjóðanna hefðu erlendar eignir þeirra virkað til mótvægis. Hann teldi nauðsynlegt að horfa heildstætt á fjárfestinga- stefnu sjóðanna. Helgi Magnússon, stjórnarfor- maður Lífeyrissjóðs verzlunar- manna, segir ástæðu til að hafa áhyggjur af þrengri fjárfestinga- möguleikum lífeyrissjóðanna. Gjald- eyrishöftin þrengi þá og tækifærin hafi minnkað. Hins vegar hafi tals- vert fé verið bundið í ríkistengdum fjárfestingum. „Við erum alla daga að leita að tækifærum á öðrum sviðum. Eftir því sem betur gengur að endurreisa atvinnulífið og koma af stað fjárfest- ingum, þess betri horfur eru fyrir líf- eyrissjóðina,“ sagði Helgi. Hann benti á að lífeyrissjóðir hefðu keypt þriðjung í HS Orku og nefnd hefði verið hugmynd um fjár- festingu í Landsvirkjun og fleiri rík- isfyrirtækjum. Þá hefði Framtaks- sjóður verið settur af stað, en að honum koma lífeyrissjóðirnir ásamt fleirum. Hann myndi hjálpa fyrir- tækjum, sem strönduðu í hruninu, aftur af stað. Þá yrði farið að selja hlutabréf í Landsbankanum og þetta yrði allt skoðað. Minna ávaxtað erlendis  Erlend eign lífeyrissjóða er komin niður í 24% en æskilegt þykir að hún sé yfir 30%  Gjaldeyrishöft þrengja kostina en nýrra fjárfestinga er leitað innanlands MTap lífeyrissjóðanna »12 Fyrstu einleikstónleikarnir á píanó í Hamraborg, stóra salnum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri, fóru fram í gærdag að viðstöddu fjölmenni. Þar sýndi listir sínar Víkingur Heiðar Ólafsson; lék margvíslega tónlist, inn- lenda sem erlenda, og frumflutti til dæmis sex stutt verk eftir Jón Hlöðver Áskelsson, tónskáld og fyrrver- andi skólastjóra Tónlistarskólans á Akureyri. Fimm af sex verkum Jóns Hlöðvers eru glæný. Hann færði skólanum þau að gjöf og þau voru formlega gefin út í gær. Tónskáldið tileinkaði verkin Víkingi Heiðari og framsæknum píanónemendum við gamla skólann sinn. Verk Jóns Hlöðvers voru þau síðustu á dagskrá fyrir hlé og að flutningi loknum kom tónskáldið á svið. Jón Hlöðver, sem fatlaðist við heilagerð þegar hann var rúmlega rúmlega fertugur, var greinilega hrærður og þeim Víkingi Heiðari báðum ákaft fagnað. Píanist- inn sagðist telja það mjög vel við hæfi að frumflytja verk eftir Jón Hlöðver á fyrstu einleikstónleikunum á píanó í Hofi og sagðist hugsa tónleikana honum til heið- urs. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tónskáldi og einleikara vel fagnað Eitt þungt hnefa- högg getur dregið mann til dauða. Líkamlegir áverkar eftir al- varlega líkams- árás eða nauðgun geta gróið en mis- jafnt er hvernig fólki tekst að tak- ast á við hið sál- ræna áfall sem þeim fylgir. Sumir þróa með sér áfallastreituröskun sem getur haft gríðarleg áhrif á líf viðkomandi. Í síðustu viku voru kveðnir upp tveir dómar þar sem áfallastreitu- röskun kom við sögu. Annars vegar í dómi vegna nauðgunar sumarið 2010 en hins vegar í dómi vegna alvar- legrar líkamsárásar árið 2006. Bæði fórnarlömbin fengu áfallastreitu- röskun í kjölfar árásanna. Unga kon- an sem áður hafði verið opin og skemmtileg varð grátgjörn og fékkst ekki út úr herbergi sínu. Ungi karl- maðurinn sem ráðist var á þjáist af ýmsum andlegum kvillum og er árásin talin hafa verið kveikjan að erfiðleikum hans. „Áföll geta haft hræðilegar afleið- ingar,“ segir dr. Berglind Guð- mundsdóttir sem er sérfræðingur í greiningu og meðferð við áfalla- streitu. Hún segir að meiri harka sé í ofbeldisverkum en áður og að fleiri mál komi því inn á borð hjá áfalla- teymi Landspítalans. »4 Valda sálar- kvölum  Árásir leiða til sálrænna erfiðleika Berglind Guðmundsdóttir  Gatnakerfi höfuðborgarsvæð- isins stækkar sífellt og sömuleiðis lengjast göngu- og hjólastígar. Þetta hefur meðal annars í för með sér að erfiðara verður um vik fyrir snjómokstursmenn að sinna starfi sínu. Árið 1980 var samanlögð lengd gatna í Reykjavík 277,7 km en 515 km árið 2011. Göngu- og hjólastígar með bundnu slitlagi voru 269 km árið 1980 en 768 km í fyrra og hefur áþekk þróun orðið víðar á höfuðborgarsvæðinu. »2 Gatnakerfið hefur víða þanist út Hjólreiðar Fólk nýtur útiveru. Morgunblaðið/Kristinn  Fyrir Alþingi liggur nú þings- ályktunartil- laga þess efnis að hér verði tekið upp hið norræna holl- ustumerki Skráargatið en það gefur til kynna að vara merkt því sé sú holl- asta í sínum flokki. Fjölmargir hafa talað fyrir innleiðingu Skráargats- ins en meðal þeirra má nefna Neyt- endasamtökin og Landlæknisemb- ættið. „Markmið Skráargatsins er að leiða neytendur að hollum mat- vælum. Þetta er gæðastimpill og matvælaiðnaður þarf að aðlagast skilyrðum en ekki öfugt,“ segir Zul- ema Sullca, sérfræðingur hjá Mat- vælastofnun. »16 Alþingi fjallar um Skráargatið „Ég veit ekki til þess nú að sjóð- ir þurfi að skerða réttindi, en ég veit heldur ekki hver niðurstað- an er hjá hverjum og einum vegna ársins 2011. Við höldum að meðalraunávöxtun verði 1,5-2%. Það er nokkuð ljóst að árið í fyrra verður undir 3,5% viðmiðuninni um raunávöxtun á allar fjárfestingar,“ sagði Arnar Sigurmundsson. Undir viðmiðun NIÐURSTAÐA ÁRSINS 2011 EKKI ENN ORÐIN LJÓSÞyrlan TF-SYN, sem Landhelg- isgæslan hefur tekið á leigu út árið, kom til landsins um kl. 21 í gærkvöldi. Gera þurfti við þyrluna í Færeyjum eftir að leka varð vart í vökvakerfi á aðalgírboxi þegar hún lenti þar á fimmtudag til að taka eldsneyti á leið sinni til Íslands frá Noregi. Að sögn Hrafnhildar Brynju Stef- ánsdóttur, upplýsingafulltrúa Land- helgisgæslunnar, þurfti að panta varahlut í þyrluna frá Noregi og því seinkaði komu hennar. Á myndinni eru Benóný Ásgríms- son flugstjóri, Brynhildur Ásta Bjart- marz flugmaður og Daníel Hjaltason flugvirki við þyrluna í gærkvöldi. Leiguþyrlan loks komin Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.