Iðjuþjálfinn - 01.12.1996, Blaðsíða 20
18
Kristín Sigursveinsdóttir
Iðjuþjálfi í heimaþjónustu
Reynslusveitarfélagíð
Akureyri
Um þessar mundir er verið að hrinda í fram-
kvæmd ýmsum tilraunaverkefnum víða um
land sem eiga það sameiginlegt að tengjast
breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveit-
arféiaga. Sveitarfélögum stóð til boða að
sækja um að gerast „reynslusveitarfélög" og
fengu 12 sveitarfélög jákvæð svör við um-
sóknum sínum. Akureyri er eitt þessara
sveitarfélaga. Verkefni þau sem Akureyrar-
bær yfirtekur eru margvísleg en meðal
þeirra er þjónusta við fatlaða, heilsugæsla
og rekstur öldrunarstofnanna. Þetta þýðir
að bærinn yfirtekur rekstur Svæðisskrif-
stofu um málefni fatlaðra, Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri og tekur að sér að
reka öldrunarstofnanir gegn rammafjárveit-
ingu í stað daggjalda.
í tengslum við þessar breytingar er nú
verið að undirbúa ýmsar breytingar á
deildaskiptingu bæjarkerfisins og laga það
að breyttri starfsemi. Það á nefnilega ekki að
„innlima" nýja starfsmenn sveitarfélagsins í
gamla kerfið heldur búa til nýjar starfsein-
ingar sem gera ráð fyrir öllum þessu nýju
verkefnum. Þannig á að verða til deild sem
hefur vinnuheitið búsetudeild. Búsetudeild
á að sinna þjónustu við alla Akureyringa
sem þurfa aðstoð til þess að geta búið
heima. Innan búsetudeildar verður því
heimilisþjónusta, heimahjúkrun, liðveisla,
frekari liðveisla,
þjónusta við sam-
býli, skammtíma-
vistun fyrir fatl-
aða og skamm-
tímavistun fyrir
aldraða. Auk þess
er gert ráð fyrir að
rekstur dvalar- og
hjúkrunarheimila
verði innan bú-
setudeildar. Gert
er ráð íyrir að þetta nýja fyrirkomulag komi
til framkvæmda um næstu áramót.
Markmið breytinganna
Meginmarkmið reynslusveitarfélagaverk-
efnanna er að auka sjálfstjórn sveitarfélags-
ins, laga stjórnsýslu betur að staðbundnum
aðstæðum, bæta þjónustu við íbúana og
nýta betur fjármagn hins opinbera. Með
þessu er verið að leggja grunn að framtíðar-
skipan verkaskiptingar ríkis og sveitarfé-
lags.
Sérgreind markmið Akureyrarbæjar eru
að samhæfa framkvæmd heilsugæslu og
öldrunarþjónustu og efla heilsuvernd í um-
dæminu. Jafnframt að draga úr stofnana-
dvöl aldraðra með eflingu og samhæfingu
allrar heimaþjónustu.