Sagnir - 01.06.2016, Page 295
Einn bali af baðmull útskýrir
sögu heimskapítalismans
EMI’IRH OF
COTTON
Bókadómur: Sven Beckert,
Empire of Cotton
Tryggvi Brynjarsson
.r/
SVEN BECKERT
Plantan Gossypium hirsutum, betur þekkt á íslensku sem baðmullar- eða
bómullarrunni, er kannski ekki það fyrsta sem við ímyndum okkur þegar við
hugsum til iðnvæðingar og uppgangs kapítalisma á heimsvísu. í hiinni nýju
og metnaðarfullu bók Empire of Cotton: A Global History eftir Sven Beckert, þýskan
sagnfræðing við Harvard háskóla, er leitast við að lagfæra þessa áhersluskekkju.
Með því að nota „ævisögu einnar vöru sem glugga að einhverjum mikilvægustu
spurningum um sögu heimsins okkar“'— hvorki meira né minna — ædar Beckert að
koma baðmull fyrir í þungamiðju sögu sjálfs heims-kapítalismans.
Orðið „skekkja“ dugar þó varla tíl, því Beckert segir að sér virðist sem nútímafólk
„sjái baðmull ekki sem það sem hún er“1 2; skilji ekki fyllilega hvaða hlutverk hún
hefur leikið (og leikur enn) í mótun samfélaga okkar — kaldhæðni þess felst fyrst
og fremst í hve alltumlykjandi baðmullarvörur eru. Því mætti jafnvel halda fram
að kapítalisminn sjálfur hreinsi þessar margvíslegu vörur af því ofbeldi og misrétti
sem skapaði þær og setti á markað. Það hefur m.a. gerst með því að koma á fót og
viðhalda landfræðilegri fjarlægð milli hinna ýmsu framleiðslustíga og sölustaðar.3
Þetta er auðvitað metafórískur þvottur, en hann þjónar mikilvægu pólitísku
hlutverki: hann dylur þann sannleika að velmegun okkar á norðurhveli jarðar er
að verulegu leyti reist á grunni sögulegrar og langærrar fátæktar jaðarsvæðanna
sunnanmegin á plánetunni. Þeirri fátæktar er viðhaldið í krafti kerfisbundins
ofbeldis kjarnans. Verkefni Beckerts mætti því túlka sem einskonar afhjúpun á þætti
baðmullar og kapítalíska batterísins í kringum hana þegar kom að sköpun þessarar
miklu alheimsaðgreiningar, sem þekkist á ensku sem „the Great Divergence“.
Sagnfræðiritið gegnir þá hlutverki verkfæris til að rekja upp í smæstu eindir fötin
sem við klæðumst, sængurverin og lökin sem við sofum með og vefjum nýfædd
börnin okkar í. Sem slíkt getur það verið ansi öflugt.
Heimsveldi badmullarinnar samanstendur af 14 köflum sem fjalla á einn eða annan
hátt um ofbeldið, kúgunina og þá eyðileggingu sem hefur litað heimsveldið frá
1 Sven Beckert, Empire of Cotton: a GlobalHistory (New York 2014), bls. 16.
2 Ernpire of Cotton, bls. 9.
3 Enipire of Cotton, bls. 373-5.
295