Morgunblaðið - 25.10.1914, Qupperneq 8
1642
MORGUNBLAÐIÐ
100 Tófuskmn, íslenzk,
Sláturpottar,
vantar mig. Verða borguð hér á staðnum með peningum út í hönd.
G. Eiríkss, Reykjavík.
Piano-hljómleikar.
Haraldur Sigurðsson hóf hljóm-
leika sína í fyrrakvöld í »Gamla
Bio«. Hdsið var troðfult og óhætt
að segja, að hann með leik sínum
hreif hvern einasta áheyranda; mátti
marka j>að bezt á lófatakinu, ánægju-
svipnum á andliti ýmsra »kritiskra«
sérfræðinga vorra og síðast en ekki
sízt á hinni einkennilegu kyrð og
þögn, t. d. á milli smálaganna,
Intermesso, eftir Brahms; var þar
líkast sem hver áheyrandi héldi
niðri í sér andanum og þyrði ekk-
ert að aðhafast sem truflað gæti
’framhald lagsins — ef það væri
nokkuð.
Haraldur Sigurðsson hefir þrosk-
ast ótrúlega á þeim stutta tíma sem
liðinn er frá því hann lék hér síð-
ast. Þótti hann mörgum þá ágætur,
en nú má leita lengi eftir þeim,
sem ekki finst hann vera hreinasta
afbragð i list sinni. Margir muna
hérna enn eftir Arthur Shattuck —
það var nú pianoleikari í lagi — sem
fyrir nokkurum árum setti Reykja-
vík á annan endann og fylti Báru-
búð kvöld eftir kvöld, mér datt hann
ósjálfrátt í hug þegar eg heyrði
Harald leika — en þarna var nú
kominn ungur landi okkar, sem frá-
leitt gaf hinum neitt eftir, gott ef
Haraldur hefði ekki algjörlega »stung
ið hann út« ef haft hefði jafngott
hljóðfæri í höndum og hinn.
Leikur Haraldar er nú orðinn svo
fullkominn í alla staði, að lengra
virðist ekki hægt að komast. Lip-
nrðin framúrskarandi, skilningur á
hverju hlutverki fyrirtak og það
bezta af öllu er þó, að nú skín
hans eigin persóna út úr
leiknum og fegrar með því sjálfa
tónsmíðina.
Hér er ekki rúm til að lýsa hin-
um dillandi tónum, sem kitlað gátu
hin ósöngnæmustu eyru, hinum hár-
fínu »pianissimo« — tónum eða
karlmannlega leik listamannsins;
verður því að nægja sú yfirlýsing,
að Haraldur töfraði úr hljóðfærinu
þann óm og það tónskraut, sem
lengi mun geymast í minni áheyr-
anda hans. Mikið afbragð verður
næsti listamaðurinn að vera, sem
hingað kemur, ef hann jafnast á við
Harald.
Á köflum var leikurinn i vinstri
hendi ekki vel greinilegur og heyrð-
ist ekki greinileg tónaskil á dýpri
bassatónum, en ekki má þar Har-
aldi um kenna, heldur hljóðfærinu,
stofu-Piano, sem að visu var mjög
gott, en ekki svo hljómmikið að
fullnaegt gæti þeim kröfum, sem
gera verður til hljómleika, tónamir
of mjúkir, einkum »bassaregistrið«,
•og þvi hætt við að þeir renni of
mikið saman þegar »pedal« er not-
aður og sterkt leikið. Sumt af því
sem leikið var á og betur heima
á »flygeli«, t. d. Sonate Beethov-
ens, Rhapsodia L'szt’s og hin afar-
tilkomumikla Ballade Brahm’s i G-
moll. En engu að slður var þó á-
nægja að heyra þessi lög. Hefði
Haraldur haft gott »flygel» mundu
hinir miklu yfirburðir hans hafa enn
betur komið í ljós. En hér verður
að sniða sér stalck eftir vexti og
láta duga almenn Piano við hljóm-
leika, þar sem ekki eru tök á öðru
betra. Það er til töluverðrar hneisu
fyrir höfuðborg landsins að geta
ekki haft neitt hljómleikahljóðfæri
til taks begar svo ber undir, að á-
gætir listamenn heimsækja okkur,
en þeim fer óðum fjölgandi og ó-
hikað má segja, að koma þeirra
hingað hefir mjög örvandi og þýð-
iugarmikil áhrif á listnæmi og skiln-
ing almennings á sönglist og hljóð-
færaslætti.
Óþarfi þykir mér að geta sérstak-
lega um hin einstöku atriði efnis-
skrárinnar, þar sem meðferðin og
snildin var hin sama á öllu, en Har-
aldur endurtekur hljómleik sinn í
dag og mega þá þeir hlakka til, sem
ekki hafa áður heyrt leik hans.
a. n.
«*——« DAÖBÓFflN. =3
Allir drengir 10—14 ára eru
beönir að muna eftir Y.-D. fundi í
dag í K. F. U. M. kl. 4.
Columbus er enn ófarinn og
kvað ekki fara fyr en á morgun.
M a f fór á fiskveiðar f gær.
H e r m ó ð fer hóðan f dag beina
leið til Færeyja. Flytur skipið þangað
190 smálestir af kornvöru og verður
skipinu skilað þar. Færeyingar hafa
boðist til þess að taka við skipinu og
mun það eiga að flytja vörur þaðan
til útlanda.
Vesta fór frá Akureyri kl. 12
á. bádegi í gær.
Leikfólag Reykjavíkur
hefir nú byrjað æfingar aftur. Fyrsta
leikritið, sem það hefir í hyggju. að
s/na á þessum vetri, heitir ^Drengur-
inn minn« og hefir verið s/nt hór
áður.
ViÐ dauRans dyr heitir myndin í
Gamla Bio. Efnið er tekið úr Hfi
verksmiðjueiganda og verkamanns
hans. Verksmiðjueigandinn krefst
engu minna af öðrum en sjálfum
sér. Verkamennimir heimta hærra
kaup, en hann rekur þá á dyr. En
gjarðalausir balar o. m. fl.
nýkomið í
verzl. Jóns Þórðarsonar.
Iðunnardúkar
seljast með verksmiðjuverði í
Vörufjúsinu.
^Hjinna
S t ú 1 k n vantar nú þegar.
Rokstad. Sími 392.
J£
Jóhanna
^ cJiaupsRapur ^
F æ ð i fæst á Laugavegi 23.
Kristin Dahlstedt.
Ágæt sanmaraaskína til sölu með gjaf-
verði á Laufásvegi 45.
Ágætt islenzkt smjör fæst á Hofi
U n g, snemmbær k/r, til sölu. Uppl. á
Frakkastig 9.
Ágætur hjólhestur til sölu fyrir40
kr. R. v. á.
^ cKapaé ^
N ý barnaskóhlif tapaðist föstudag 23.
þ. m., merkt: »A«. Skilist á Hverfisg. 53.
Biðjið ætíð um hina
heimsfrægu
Mustad öngla.
irO
Búnir til ai
O. Mustad & Sön.
Kristjaníu.
hann er í klípu. Skrifari hans ráð-
leggur honum að giftast dóttur vin-
ar síns og kveður það eina ráðið til
þess að losna úr vandræðunum. En
hjónaband, sem þannig er stofnað
verður sjaldan til gæfu og svo fer
hér.
Myndin er ágætlega leikin. Frú
Ellen Price leikur aðalhlutverkið og
þeir verksmiðjueigandinn og þjónn
hans eru einnig vel leiknir.
Myndin er tekin á fögrum stöð-
um. Til dæmis er þar sýnd brúð-
kaupsför verksmiðjueigandans þangaÖ
er sól sezt aldrei- X.
38 V* cm. fallbyssur segja ensk
blöð að eigi að vera á brezku bryn-
dreknnnm (Super-Dreadnoughts), sem
lokið verður að smiða i ár.
Utanríkisráðherra Italíu
látinn.
Marquis di San Giuliano utanríkis-
ráðherra Ítalíu lézt í Rómaborg 16.
þ. m. Hann hafði tvívegis sótt um
lausn síðan ófriðurinn byrjaði vegna
heilsubrests, en fyrir bænastað for-
sætisráðherrans hafði hann tekið lausn-
arbeiðni sína aftur.
Salandra forsætisráðherra hefir tek-
ið við stjórn utanríkismálanna til
bráðabirgða.
Giuliano var fæddur 1852. Hann
var talinn einn af merkustu núlif-
andi stjórnmálamönnum ítaliu í
seinni tíð. Um eitt skeið var hann
sendiherra Ítalíu í London og siðar
í París. Hann varð utanrikisráð-
herra í annað sinn 1910 og hélt
því embætti til dauðadags.
Giuliano var einhver öflugasti
styrktarmaður þriveldasambandsins,
og er mælt að sendiherra Þjóðverja
í Rómaborg hafi sagt þegar hann
frétti lát utanríkisráðherrans, að það
væri hið mesta óhapp sem Þýzka-
land hefði hent siðan ófriðurinn
byrjaði.
Herskipatjón ófriðar-
þjóðanna.
Bandamenn. Lestir
Aboukir (n) 12.000
Cressy (n) 12.000
Hogue (n) 12.000
Hawke (n) 7-3SO
Amphion (td) 3.440
Pathfinder (n) . . . . . 2.940
Speedy (td) 810
Pegasus (s) ..... 2.135
Pallada (n) 8000
A. E. 1 725
Samtals 61,400
Þjóðverjar og Austríkism. Lestir.
Magdeburg (strandaði s) . 4,55o
Köln (s) 4,350
Mainz (s) 4,3 50
Ariadne (s) 2,660
Hela (n) 2,040
Mowe (s) 650
Zentu (s) 2.350
V. 187 (s) 650
S. 126 (n) 000
Samtals 22,390
S = skotinn í kaf; n = sökt af
neðansjávarbát; td = rakst á tundur-
dufl.
Auk þess hafa Þjóðverjar mist
nýskeð 4 tundurbátaspilla. í byrj-
un ófriðarins flýðu og Goeben
(23.000 tonn) og Breslau (4550
tonn) til Tyrklands og voru seld
Tyrkjum.
'c»m
Eugenie keisaradrotning heflr búið
i Englandi siðan hún flúði úr Frakk-
landi 1870. Hún hefir nú breytt
húsi sínu í spitala og tekur á móti
særðum mönnum til hjúkrunar.
..... 1 -»8<3»-..