Morgunblaðið - 31.01.1915, Blaðsíða 2
2
M OR GUNBLAÐIÐ
SMðsmyndir.
í þessum ófriði sem nú geisar, hafa brynvarðar bifreiðar mjög mikið verið notaðar og hafa þær orðið
til ómetanlegs gagns. Bifreiðar þessar voru með öllu óþcktar til skams tíma. Það var fyrst í Balkan-ófriðuum að
herstjórn Búlgara lét gera nokkra vélvagna brynvarða og notaði þá til flutninga og njósna. Kom þá i Ijós, að
vagnarnir höfðu marga yfitburði fram yfir önnur flutningatæki, einkum þó það, að byssukúlur óvinnanna sökuðu
hvergi mennina, sem i vagninum voru.
Þjóðir þær, sem nú heyja ófrið, nota þessar bifreiðar ákaflega mikið. Eru þær útbútiar með vélbyssum,
sem skjóta bæði hratt og langt.
Myndin hér að ofan er frá Frakklandi. Sýnir hún bifreið Frakka þjótandi fram hjá njósnarmönnum
Þjóðverja — og vélbyssan hefir þegar gert sitt gagn.
ina milli þ. 19. og 20. þ. m. Ekki
er enn fullkunnugt um það, hve
mikill floti það var, en menn vita
með vissu, að það var eitt Zeppe-
linsloftfar og 3 flugvélar. Flugu þau
yfir 8 borgir á austurströnd Eng-
lands og köstuðu sprengikúlum nið-
ur á 7 þeirra. Mestar urðu skemd-
irnar í Yarmouth. Nóttin var nið-
dimm og sáu menn ekkert til ferða
flugmannanna, en glampa brá á loft-
ið af leitarljósum þeirra. En glögt
heyrðist þyturinn í skrúfunum og
hávaðinn í vélunum. Undir eins og
menn urðu varir við loftfarið, voru
öll ljós slökt í borginni, en þá vörp-
uðu flugmennirnir niður 6 sprengi-
kúlum, sem feldu mörg hús, brutu
glugga og gerðu önnur spell, en
urðu þó ekki nema þrem mönnum
að bana. Önnur borgin heitir King’s
Lynne. Þar var kastað niður 4
sprengikúlum og biðu 2 menn bana.
Þar hrundu og nokkur hús og önn-
ur skemdust, en tjónið þó ekki talið
mikið. Sheringham hét þriðja borg-
in. Þar var kastað niður 2 sprengi-
kúlum, en varð af minna tjón en
ætlast var til. Önnur kúlan ienti á
húsþaki. Ruddi hún sér braut gegn-
um þakið og aila leið niður í kjall-
ara, en sprakk eigi að heldur. Hin
kom niður á bersvæði og lá þar eins
og saklaust lamb. Fór þá flugmað-
urinn leiðar sinnar.
Sandringham var fjórða borgin.
Þar hefir konungur Breta aðsetur sitt
stundnm, og hefir stundum haft Þýzka-
landskeisara í heimboði þar. Segja
sum brezk blöð að keisarinn hafi þá
tekið svo ósleitilega til matar síns,
að þótt hann mintist ekki annars
en brauðsins, sem hann át, þá hefði
hann átt að sýna þann þakklætisvott,
að ráðast ekki með ófriði á þá borg.
Það vildi nú einmitt svo til, að
konungshjónin brezku höfðu dvalið
i Sandringham nokkra undanfarna
daga, og voru aðeins nýfarin þegar
Þjóðverjarnir komu. Þykir Bretum
liklegt að Þjóðverjar hafi vitað um
veru þeirra þar, enda telja sumir
þeirra tvímælalaust að þeir hafi haft
njósnarmenn á þessum slóðum, og
þeir jafnvel leiðbeint flugmönnunum
með ljósmerkjum. Ganga einnig
sögur um það, að sést dafi grunsam-
leg bifreið á ferð milli þessara borga
um sama leyti sem loftförin voru
þar á sveimi yfir. Fór hún óvenju-
hratt, og þótti mönnum eftir á sem
loftförin hefðu farið sömu stefnu og
hún. En enginn veit frekari deili á
þeirri bifreið, eða þeim, sem henni
stýrði.
Tveimur sprengikúlum vörpuðu
Þjóðverjar niður í Sandringham, —
féllu þær til jarðar skamt frá höll
konungs, en ekki talið að þær hafi
unnið neitt tjón.
í Grimsdon féll sprengikúla til
jarðar skamt frá skotfærabirgðum
hersveitanna, sem dvelja í þessu hér-
aði, en húti olli engu tjóni. í hin-
um borgunum varð og ekki teljandi
tjón.
Það er sagt að loftför Þjóðveija
hafi verið af nýrri gerð, og þykir
Bretum það alleinkennilegt. Ekki
ber mönnum saman um hvað loft-
förin hafi verið mörg. Sumir segja
þau hafi verið þrjú, og sumir segja
þau hafi verið sex. Hollendingar
sáu fimm loftför stefna til Englands,
en Þjóðverjar geta ekkert um hve
mörg skip þeir hafi sent.
Um þessa herför gáfu Þjóðverjar
út svolátandi’,opinbera skýrslu :
Að kveldi hins 19. janúar gerðu
loftskip vor árás á nokkurar víg-
varðar borgir á austurströnd Eng-»
lands. Þoka var á og súld. Nokkr-
um sprengikúlum var kastað niður
með góðum árangri. Skotið var á
loftförin, en þau komust öll óskemd
heim aftur.
Nýkomið:
Baldvins Epli
á 0.30 pr. Va kg-
og
Appelsínur
ágætar 0.60 pr. 10 stk.
Verzlun
B. H. Bjarnason.
DAÖBÖFflN- ^
Afmæli í dag:
Halldóra Blöndal, húsfrú.
Sigríöur Magnúsdóttir, húsfrú.
Arent Claessen, kaupm.
Bjarni Þorláksson, trósmiður.
Hafliði Hafliðason, steinsmiður.
Bjarni J. Jóhannesson, prentarl.
Magnús Erlendsson, bakari.
Brynjólfur M. Hannesson.
Veðrið í gær:
Vm. logn, hiti 1.5.
Rv. n.v. kaldi, hiti 0.2.
ísaf. n.a'. stormur, frost 1.2.
Ák. logn, snjór, frost 1.3.
Gr. logn, frost 7.5.
Sf. logn, frost 1.3.
Þh., F. logn, frost 0.2.
efff'
Taflfólag Reykjavíkuf ^
ir til fjölbreyttrar skemtunar í ^0.
kl. 8 og hálf í G.-Templarahúsinu- ^
a. leika bræðurnir Þórarinn og
Guðmundssynir nokkur lög, Gunnl’
unn Halldórsdóttir syngur gamanv ^
o. m. fl. Má búast þar viS %
skemtun.
V e s t a fór hóðan í gærkvöldi á ^
til útlanda. Með skipinu fóru
Thors framkvæmdarstjóri, 0g
Ólafur Eyjólfsson, Guðm. KirfksS
Halldór Gunnlaugsson, Einar
sted söngvari og I. C. Nielsen.
E s b j e r g fór til, útlauda f ^ ■
morgun. Með skipinu fóru Jón
ólfsson kaupmaður og jungfr11
Blöndal.
Kong Helge kom í gíer
kol til verzlunar Björns Guðmunds800
Friðarverðlaun Nobel5
Handa Belgum-
Eins og áður hefir verið sky
verður friðarverðlaunum Nobe*5 *
úthlutað á þessu ári, enda vserl^eí(
illa viðeigandi. En nú hafá ^
franskir menn farið fram á Pa
belgísku þjóðinni yrði veitt $
launin. Þeir sýna fram á
Belgir hafi gert sitt til , $
uppi réttlæti og friði með P
neita Þjóðverjum að fara yfif a