Úti - 15.12.1928, Blaðsíða 11

Úti - 15.12.1928, Blaðsíða 11
ÚTI 9 hafa komið þangað; en hitt vita menn, hvers vegna þeir hafa komið. Höfuðsmaðurinn hefir sjeð um, að menn fengju að vita það. Menn kæra sig ekkert um, að fá slíka karla, og þess vegna vanda þeir meðferð fánanna sinna, svo að meira að segja höfuðsmaðurinn er ánægður. En við erum hásetar á besta vjelbátnum, sem flotið hefir á fersku vatni. (Hjer er nefnilega eklcert saltvatn!) Aðalsteinn Sigmundsson þýddi. Jamboree. 1929. Þriðja alsherjarmót skáta — Jamboree — verð- ur háð dagana frá 30. júlí til 14. ágúst að sumri komandi. Það fer fram skamt frá Liverpool á Englandi. Arrowe Park, en svo heitir staðurinn, þar sem mótið verður, tilheyrði áður fornu aðaissetri, en verður eftirleiðis notaður sem almennur skemti- garður. Þar er fagurt um að litast. Útsýni ágætt og gróður fjölbreyttur og fagur. Á rennur þar skamt frá og á bakka hennar stendur gamia að- alssetrið Arrowe Hall. í garðinum eru grasflatir miklar, þar sem skátabúðirnar eiga að standa. Hjer skal i fáum dráttum skýrt frá því, hvernig mótinu verður hagað. Þriðjudaginn þ. 30. júlí eiga allir að vera mættir í Arrowe I’ark. Þann dag verður mótið opnað með sjerstakri athöfn. Næstu dögum, miðvikud., fimtud., föstud. og iaugardegi, verður varið til ýmsra sýninga og leikja, sem hver þjóð sýnir fyrir sig. Á sunnudaginn verður meðal annars haldin sameiginleg skáta-guðsþjónusta á staðnum. Mánudag og þriðjudag sýna hinar ýmsu þjóðir enn það, sem þær hafa að bjóða. En svo verður miðvikudegi, fimtudegi og föstudegi varið til að sýna erlendum skátum ýmsa merka staði í nágrenninu. Á laugardaginn verða allskonar sam- komur og þjóðdansasýningar. Á sunnudaginn verð- ur enn sameiginleg skáta-guðsþjónusta, en þá i dómkirkjunni i Liverpool. Mánudegi og þriðjudegi verða svo enn varið til að ferðast um. En á mið- vikudegi, þ. 14. ágúst, verður mótinu slitið. í fljótu bragði virðist þetta ekki vera fjölbreytt nje mikil dagskrá, en hún inniheldur þó geysimörg og góð atriði, sem ekki er hægt að lýsa nákvæm- iega í stuttri blaðagrein, en þó skal þetta skýrt nokkuð nánar hjer. Einhver þessa daga verður t. d. helgaður sæ-skátunum. Sýna þeir þá ýmsar listir sínar. Sundsýningar fara og fram þennan dag. Á hverjum degi verða þar að auki hafðir varðeldar, sýndar kvikmyndir, sungið saman og ýmsar skemtilegar sýningar hafðar á kveldin. Vandað leiksvið verður reist á víðavangi, fyrir allar hinar mörgu sýningar, svo sem þjóðdansa, glímur, skátalíf ýmsra þjóða og fleira og fleira. Það er einnig í hyggju, að reisa þar kvikmynda- skála. Ætlast er til, að hver þjóð komi þá með sina filmu, sem sje fræðandi um land og þjóð. Gefst nú ísl. skátum gott tækifæri til að kynna æskulýð ótal margra þjóða, sitt einkennilega og afskekta land. Sölubúð fyrir skáta og önnur fjölda mörg þægindi verða einnig á staðnum. Fimrn dögum mótsins verður varið til að ferð- ast um nágrannahjeruðin, eins og fyr segir. Þá verða meðal annars skoðaðar skipasmiðastöðvarn- ar í Birkenhead, hinn frægi sápuiðnaðarbær Port Sunlight, járnbrautaverksmiðjur, norðurhluti Wales, höfnin í Liverpool og vefnaðarverksmiðjurnar í Manchester. Það var fyrst í hyggju, að láta seinni hluta mótsins fara fram í London, en því hefir nú verið breytt, og í stað þess ferðast skátarnir um, eins og fyr segir. Þeir, sem mótinu stjórna, hafa hagað þvi þannig, að samkepni verður þar engin, því að þetta mót á að verða til þess, að kynna og þroska æskulýð þjóðanna í anda samvinnu og friðar, en ekki í samkepni og metorðagirnd. Mót þetta sækja um 30 þúsundir skáta viðsveg- ar að. ísl. skátar munu gera sitt ítrasta til að fjöl- menna og vera þjóð sinni til sórna á mótinu. Nú þegar er vissa fengin fyrir því, að um 20 ísh skát- ar fari ulan og þeir eru vist rnargir enn, sem fylla munu hópinn. Ómetanlega gott hafa allir af slíkum förum, sem þessum. Þekking þeirra eykst og víðsýnið vex.— Fjórða hvert ár stofnar Alþjóðabandalag skáta til þessara móta. Þeim er ætlað að auka samúð og bræðraþel milli þjóðanna, og munu eflaust vinna meir á í þeim efnum en rnargar hinar svonefndu friðarráðstefnur undanfarinna ára. O. J. Móðurástin. [Oscar Wilde fæddist i Dublin á írlandi árið 1856. Var hann af góðu bergi brotinn, móðir hans merk skáldkona. Sjálfur var hann glæsi- legum hæfileikum búinn, tignaður og dáður af öllum, sem kyntust honum. Þegar hann var 25 ára gamall, kom út fyrsta kvæðasafn hans, en siðan hvert ritverkið á fætur öðru. Voru það aðallega leikrit, kvæði og smásögur. Hlaut skáldið mikla frægð fyrir og vinsældir. En

x

Úti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.