Úti - 15.12.1928, Page 22

Úti - 15.12.1928, Page 22
20 Ú.T.1 Snöggvast datt honum í hug að sparka í hurð- ina, en sá strax, að það var ekki rjett. Þetta var seinni hluta aðfangadags. Pjetur var sendisveinn í matvörubúð og hafði nú mikið að gera. En hann flýtti sjer altaf i ferðunum, hve þreyttur, sem hann var orðinn. Hann vissi, að fólkið bað sjaldnast um vörurnar fyr en á síð- ustu stundu. Þótt honum fyndist, að það væri mátulegt á suina, að hann kæmi of seint, þá hafði hann ekki skap þeirra drengja, sem varla dragn- ast úr sporunum. Pjetur var þess vegna vel liðinn. En því sárar fjell honum, ef einhver hreytti í hann ónotum að ástæðulausu. Tvo undanfarna aðfangadaga hafði Pjetur fengið hjálp við sendiferðirnar. Einn af bestu kunningj- um hans, sem var í skóla og vann því hvergi þennan dag, bauðst til þess að vera með honum. Þetta var mikið ljettara fyrir Pjetur og skemtilegra. En nú voru þeir búnir að vera ósáttir rúma þrjá mánuði og höfðu aldrei talast við þann tíma. Friðrik, kunningi Pjeturs, var sonur efnaðra hjóna. Hann skorti hvorki föt nje peninga til skemtana. Fyrst hafði Friðrik viljað gefa Pjetri aura við og við, því að hann vissi, að foreldrar hans áttu við þröngan kost að búa. En hann þáði það aldrei. Þá bauð hann honum á skemtanir. En strax sá Friðrik, að Pjetri fjell illa að þiggja slíkt. Og Pjetur hafði oft sýnt honum fram á, að hægt var að skemta sjer án þess að eyða fje. En þá tók Friðrik upp á því, að gefa honum bækur. Pjetur hafði mjög gaman af að lesa og þessar gjafir voru honum því kærkomnar. Og þeim gat hann ómögulega neitað. Aftur á móti skrifaði hann Friðriki brjef um efni bókanna og sýndi þannig, að hann hafði lesið þær með athygli. Friðrik fann, að þetta dró hann frá ýmsu, sem hafði miður góð áhrif á lærdóm hans, og var því Pjetri þakklátur. Það, sem olli ósáttinni milli þeirra, var deila um jafnaðarstefnuna. Friðrik var henni algerlega frahverfur. Hann ólst upp í þvi umhverfi, þar sem öllu slíku var hallmælt, svo að segja á hverjum degi. Foreldrar hans höfðu talið honum trú um, að forkólfar jafnaðarmanna gerðu ekki annað en skara eld að sinni köku. Og þvi hafði Friðrik ávalt haldið fram, þegar hann lenti i deilum um þetta efni. t skólanum var hann fyrir þeim flokki, sem barðist á móti skoðunum jafnaðarmanna. En Pjetur leit á þetta alt frá öðru sjónarmiði. Aðstæður hans voru ekki líkar þeim, sem Friðrik átti við að búa. Faðir hans hafði í mörg ár unnið hjá útgerðarfjelagi. En nú var hann orðinn gamall og ekki eins liðtækur sem fyr. Honum hafði því verið sagt upp vinnunni og yngri maður tekinn í staðinn. Þetta fjeli föður Pjeturs mjög illa. Auk þess hafði kaupið altaf verið svo lágt, að afgang- ur var enginn, þótt sparlega væri með farið. Móðir Pjeturs hafði því orðið að leggja mikið á sig við vinnu. Hún þvoði föt fyrir frúr, sem ekki gátu eða vildu gera það sjálfar. Og í hreingern- ingar fór hún, þegar hægt var að koma því við. Pjetur byrjaði snemma að bera út blöð. Gerði hann það fram að fermingu. Þá fór hann i versl- un til sendiferða. Mikið hafði hann langað til að komast í skóla. En þess voru engin tök. Oft hafði hann hugsað um aðstæður sínar og borið þær saman við annara drengja, og þá ekki síst Frið- riks. Hafði hann sagt Pjetri, að sig langaði ekkert til að vera í skóla, en yrði að gera það vegna foreldra sinna. En Pjetur hafði sýnt honum fram á, hvað það væri mikils virði að rnega læra. Og það varð umhugsunarefni fyrir Friðrik. Pjetur hafði lítið heyrt um jafnaðarstefnuna fyr en Friðrik fór að tala um hana við hann. Þá lagði Pjetur sig eftir bókum, sem fjölluðu um það efni. Og vegna aðstæðna sinna gat hann ekki orðið sammála Friðrik. Þar kom, að stælur þeirra urðu svo miklar, að þeir skildu. En báðum fjell þetta sárt. Þeir söknuðu fjelags- skapar hvors annars. Hvorugur hafði þó reynt að koma sáttum á. Báðir biðu þess, að hinn byrjaði. Pjetur var að leggja af stað frá versluninni með vagn fullan af vörum. Þetta er mjög þungt og honum sviður i öxlina undan bandinu. Þar að auki er gatan hál og því stundum nokkuð erfitt að ná góðri viðspyrnu. En Pjetur er orðinn þessu vanur og því seigur fyrir. Hann nemur staðar við fyrstu brekkuna til þess að safna kröftum. Þá koma þrír jafnaldrar hans eftir götunni. Þeir eru í sparifötunum og láta frjáls- mannlega. Einn þeirra er Friðrik. Þegar hann sjer Pjetur, kveður hann fjelaga sína og gengur til hans. »Sæli nú«, segir hann. »Á jeg ekki að ýta á eftir vagninum upp brekkuna?« »Jú, þakka þjer fyrir. Hann er nokkuð þungur«. Friðrik ýtti á eftir vagninum og dró ekki af kröftunum. Þegar þeir höfðu farið nokkrar sendiferðir sam- an, barst talið að miskliðinni, sem hafði verið milli þeirra. Sagði Friðrik þá, að hann vildi gjarn- an að þeir færu að verða saman aftur og óþarft væri, að láta þennan skoðanamun skilja þá í sundur. »Við getum talað um ótal málefni önnur og einnig rætt þetta, en bara ekki með sarna hita og áður«, sagði Pjetur. Þeir skildu síðan sáttir og Pjetur þakkaði Frið- riki hjartanlega fyrir hjálpina. Þegar Pjetur hafði lokið sendiferðunum, var klukkan orðin rúmlega átta. Hann var dauðþreytt- ur, en langt frá því að vera leiður. Mörg stór og falleg jólatrje hafði hann sjeð um daginn. En

x

Úti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.