Spássían - 2012, Síða 45

Spássían - 2012, Síða 45
45 viðburðum sem eru í gangi í Reykjavík, RIFF og Airwaves til dæmis, en Norræna húsið er sterkur vettvangur í þessum stóru borgarhátíðum. Svo erum við í tónlistarsamstarfi ýmiss konar. „Klassík í Vatnsmýrinni“ er eitt dæmi og tónleikasyrpan 15:15 hefur verið árlegur viðburður í áratug. Við fáum inn myndlistarsýningar og setjum þær stundum í samband við stærri viðburði. En við erum líka með okkar eigin verkefni. Vatnsmýrarverkefnið var okkar hugarsmíð; við réðumst í að endurbæta fuglafriðlandið í túnfætinum hjá okkur og það er orðið að margra ára samstarfsverkefni með Háskóla Íslands og Reykjavíkurborg.“ Auk hins árlega jóladagatals verður ýmislegt annað um að vera í Norræna húsinu í desember. Nýlega var opnuð þar sýningin „Gierdu“ þar sem líta má samíska nýlist, en Ilmur segir orðið „gierdu“ vera miðlægt tákn í samískri menningu og tákna hreyfingar, kraft og fjölbreytni. Ýmsir viðburðir verða tengdir þeirri sýningu. Í byrjun næsta árs verður svo þverevrópskt ljósmyndaverkefni til sýningar; „European Borderline“, sem ber undirtitilinn „Sjónrænar sögur á landamærum Evrópu“. Þar heimsóttu ljósmyndarar eitt af hinum þátttökulöndunum í því skyni að taka þar myndir, auk þess að vera með myndverk frá sínu eigin landi. Ilmur bætir því við í lokin að næsta sumar verði mikið um dýrðir í Vatnsmýrinni því þá verði boðið upp á nýnorrænan sirkus án dýra. „Við setjum upp fjögur sirkustjöld, verðum með lifandi atriði og margt nýstárlegt. Vatnsmýrin mun umturnast.“ „Jóladagatal Norræna hússins er hugsað sem gjöf til almennings. Klukkan 12:34 á hverjum degi í desember eru flutt atriði úr hinum ýmsu listgreinum, með þekktum eða óþekktum listamönnum. Þú veist ekki fyrirfram hvað þú kemur til að sjá heldur tekur bara á móti gjöfinni. Þannig fær hið óvenjulega meiri séns og fólk er ótrúlega jákvætt. Hugleikur Dagsson teiknaði dagatalið sjálft að þessu sinni en við fáum alltaf listamann til verksins. Hugmyndin er sú að efla unga listamenn og vera um leið með mótvægi við hefðbundið auglýsingaskrum. Dagatal Hugleiks Dagssonar er í raun myndasaga. Það er hægt að klippa hverja mynd út, safna þeim öllum og púsla saman.“

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.