Kvennablaðið - 01.01.1897, Page 1

Kvennablaðið - 01.01.1897, Page 1
Kvennablaðið. 3. ár. Reykjavík, janúar 1897. Nr. 1. Frú Þóra Melsteð, forstöðukona kvennaskólans í Eeykjavík, er fædd 18. des. 1823 og dóttir Gríms Jónssonar etazráðs, sem síðar varð amt- maður Norðlendinga og Austfirðinga. — Kvennabl. flytur nú mynd af henni, og hefði gjört það miklu fyrri, ef ekki hefði vantað mynd, sem likaði. Það var árið 1871, aðtuttugu og fimm frúr í Reykja- vík sendu út áskor- un til landsmanna um að skjóta fje saman til að stofna kvennaskólaí Rvík. Það voru konnr eða ekkjur embættis- manna og kaup- manna og eru nokk- rar þeirra enn á lífi. Ein af þeim, sem undir áskoruninni stóðu, var frú Þóra Melsteð, og mun hún hafa átt langmest- an þátt í þessu fyrirtæki. Á fundi, sem þessar frúr hjeldu með sjer, kusu þær forstöðunefnd til að gangast fyrir frek- ari aðgerðum í máli þessu, og voru þær kosnar í nefndina: frú Olufa Finsen (kona Hilmars Finsens landshöfðingja), frú Ingi- leif Melsteð (amtmannsekkja), frú Hólm- fríður Þorvaldsdóttir (kona Jóns ritstjóra Guðmundssonar), frú Guðl. Guttormsdótt- ir (ekkja Gisla læknis Hjálmarssonar) og frú Þóra Melsteð. Auk þess var Páll Melsteð, maður frú Þóru, kosinn í nefndina sem skrif- ari, en H. Th. A. Thomsen kaupmað- ur var gjaldkeri. Samskotanna var einnig leitað er- lendis, og safnað- ist þannig saman á fám árum talsvert fje, og meðal ann- ars gafst mikið af munum, bæði utan- lands og innan, er seldir voru til á- góða fyrir skóla- stofnunina. Það voru þau hjón, Páll Melsteð og frú Þóra, sem mest og bezt gengust fyrir öllu þessu. Haustið 1874 var málefni þetta komið svo á veg, að skólinn var settur 1. okt. í litlu íbúðarhúsi þeirra hjóná við Aust- urvöll, en vegna húsrúmsleysis varð þá eigi hægt að taka fleiri en 10 stúlkur til kennslu. Þannig var það fyrstu 5

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.