Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 1
Fyrsta barn ársins fæddist á Ísafirði Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk Miðvikudagur 5. janúar 2005 · 1. tbl. · 22. árg. Ísafjarðarbær greiðir út laun samkvæmt nýju starfsmati Nær 300 starfsmenn sveitarfé- lagsins fengu 31 milljón króna Ísafjarðarbær greiddi út laun samkvæmt nýju starfsmati á fimmtudag og er þar með eitt fyrsta stærri sveitarfélaga til að ganga frá uppgjöri launa á grundvelli hins nýja starfs- mats. Alls námu launagreiðsl- urnar 31 millj.kr. án launa- tengdra gjalda sem greiddar voru til nærri 300 starfsmanna. Í kjarasamningum 2001 var samið um innleiðingu á nýju starfsmatskerfi sem gildir frá 1. desember 2002 og átti að geta leitt til 2-4% hækkunar launa. Launin hækka mjög misjafnt eftir einstökum störf- um. Mörg störf hækka meira en 4%, önnur störf minna en 2% og enn önnur standa í stað eða lækka jafnvel. Þó er tryggt samkvæmt kjarasamningum að enginn starfsmaður, sem nú er í starfi, lækkar í launum við innleiðingu starfsmatsins. Innleiðing starfsmatsins er í um 100 sveitarfélögum og félagar í um 50 stéttarfélögum eiga þar hlut að máli. Búið er að meta störf sem um 90% starfsmanna sveitarfélaganna gegna. Það var mat samnings- aðila er að starfsmatinu standa, að ekki væri rétt að bíða lengur með framkvæmdina, þar sem nægjanlegur fjöldi starfa hafi verið metinn svo innleiða megi matið gagnvart meginþorra starfsmanna. Samráð hefur verið haft við fulltrúa stéttarfé- laganna, FOS-Vest og Verk- Vest, um innleiðinguna og þær niðurstöður, sem lagðar voru til grundvallar endanlegum út- reikningum. Ísafjarðarbær fékk upplýs- ingar um hið nýja starfsmat um mánaðarmótin nóvember- desember s.l. og þá fyrst var grundvöllur fyrir að hefja vinnu við útreikninga og að yfirfara hvort starfsmenn væru rétt staðsettir í því starfsmati sem nú liggur fyrir, miðað við störf og starfsheiti þeirra. Mestu launabæturnar fá starfs- menn sem starfa við umönnun ungra sem aldraðra s.s. ófag- lærðir á leikskólum, deildar- stjórar á leikskólum, matráðar, starfsmenn íþróttamiðstöðva og starfsmenn sem sinna fé- lagslegri liðveislu. – bb@bb.is Fyrsta barn ársins 2005 fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði kl. 7:49 á nýársdagsmorgunn. Þetta er stúlkubarn sem vó 3370 grömm við fæðingu, eða rúmar 13 merkur og mældist 51 sentimetri. Foreldrar nýársbarnsins heita Anna Lára Guðmundsdóttir og Árni Víðir Alfreðsson. Þetta er fyrsta barn Önnu en fjórða barn Árna. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar heimsótti foreldrana og færði þeim kort frá bæjarfélaginu og gjafabréf til nýfæddrar dótt- ur þeirra með 20 þúsund króna framlagi. „Barnsfæðing er stórkostlegur viðburður og sérstaklega ánægjulegt að fyrsti Íslendingur ársins skuli vera Ísfirðingur. Vonandi er fæðingin táknræn um framtíð þessa svæðis með von um eflingu og aukna bjartsýni sem við öll höfum orðið vitni að á liðnum misserum,“ sagði Halldór í samtali við blaðið. Anna Lára Guðmundsdóttir með dóttur sína, fyrsta barn ársins 2005. Nýja árinu var fagnað með látum og litadýrð flugelda í byggðum Vestfjarða þrátt fyrir að veður hafi sett strik í reikn- inginn og mikil ofankoma byrgt mönnum sýn. Víða var áramótabrennum frestað vegna veðurs. Þá var brennt á Hauganesi í Skutulsfirði á sunnudag og haldin mikilfengleg flugelda- sýning Björgunarfélags Ísa- fjarðar. Rólegt var hjá lög- reglunni á Ísafirði en tilkynnt var um eina líkamsárás á veit- ingastaðnum Tóka munk á Þingeyri. Ekki hafa borist neinar fréttir af slysum af völd- um flugelda eða blysa. – thelma@bb.is Nýju ári fagnað Missti stjórn á bifreiðinni Bíll fór útaf veginum við Kvíar í Súgandafirði í síðustu viku. Ung stúlka ók bílnum og mun ekki hafa verið á mik- illi ferð þegar hún missti stjórn á honum með þeim afleiðing- um að hann endaði ofan vegar. Bíllinn skemmdist lítið en stúlkan kenndi sér meins í baki og hálsi. 01.PM5 6.4.2017, 09:191

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.