Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2005 9
auglýsingaleikur minn var
mjög skemmtilegur en ég hef
nú reyndar engin tilboð fengið
í kjölfarið – má ég ekki bara
birta símanúmerið mitt með
viðtalinu...?!
Ég var nú að rifja það upp
þegar ég var á leiðinni til þín,
að við mig var tekið viðtal í
BB fyrir tíu árum og hafði ég
þá hátt um að ég ætlaði mér að
verða leikari. Ég reyndi einu
sinni og var hársbreidd frá að
skrifa í umsóknina að ég væri
sonur Jóns Baldvins og Bryn-
dísar, taldi víst að það myndi
fleyta mér alla leið. En ég
strokaði það út og ekkert gekk.
Ég held að mig hafi ekki lang-
að nógu mikið að verða leikari.
Ef maður virkilega ætlar sér
eitthvað, þá gerist það.“
Bóksalinn spilandi
– Að tónlistinni. Þú varst
fyrst þekktur sem meðlimur í
Geirfuglunum.
„Já, það er rétt. Ég er nú
reyndar hættur í þeirri ágætu
hljómsveit. Ég byrjaði minn
feril hér fyrir vestan eiginlega
sem uppfylling hjá mér reynd-
ari hljóðfæraleikurum. Ég
bæði græddi og tapaði á því
að elta þá mín fyrstu spor. Ég
var nú sá eini vina minna sem
var ekki í hljómsveit á árum
áður en var svo fyrstur allra til
að verða áberandi í bransan-
um. Ég hef mikið lært af þeim
sem ég hef spilað með enda
margir snillingar í þeim hópi.
Nú er ég að spila í bandi Dr.
Gunna og einnig er ég í hljóm-
sveit sem ber það hógværa
nafn Reykjavík. Við spiluðum
á Airwaves um daginn og það
gekk mjög vel. Þar voru Bretar
staddir sem hafa áhuga að fá
að heyra meira í okkur spila
og kannski kemur eitthvað út
úr því. Við erum ekki þekktir
á nokkurn hátt og tíminn verð-
ur að leiða það í ljós hvernig
gengur.
Í þessari sveit eru fjórir Ís-
firðingar, auk mín þeir Valdi-
mar Jóhannsson, Haukur
Magnússon og Guðmundur
Halldórsson. Síðan er einn
Norðfirðingur í sveitinni en
hann er tengdasonur Brynjars
Viborg kennara í MÍ þannig
að við eigum allir eitthvað hér
vestra. Við stóðum fyrir ís-
firsku nýbylgjuhátíðinni sem
haldin var í Reykjavík í haust.
Hún gekk mjög vel. Þessi inn-
rás okkar Ísfirðinga vakti
mikla athygli. Hátíðin var mik-
ið rædd syðra og ég var mjög
hreykinn af því.
Ísafjarðarbær tók þátt í
þessu með okkur og á skilið
miklar þakkir fyrir. Ég skora á
bæjaryfirvöld um leið að
styðja við bakið á svokölluð-
um bílskúrsgrúskurum – út-
vega húsnæði eða annars kon-
ar styrki. Fordæmi eru fyrir
því í Hafnarfirði. Ég er mjög
upprifinn af þeirri athygli sem
ísfirskir tónlistarmenn fá í
Reykjavík. Ísafjörður hefur
mjög gott orð á sér sem tón-
listar- og menningarbær. Nú
er mikill meðbyr og vona ég
að bæjaryfirvöld og íbúar nýti
sér þau sóknarfæri sem gef-
ast.“
– Hér á árum áður var það
þannig að hér spiluðu menn
lengi á sveitaböllunum og
síðan fóru einn og einn lengra
á framabrautinni. Hins vegar
virðist það vera þannig með
þessa drengi héðan sem eru að
vekja þessa athygli syðra núna,
að þeir hafa ekki farið þessa
hefðbundnu leið gegnum
sveitaböllin.
„Já, það er rétt og við meg-
um ekki gleyma bílskúrunum.
Ég var aldrei í bílskúrsbandi
heldur fór beint í sveitaballa-
bransann hér vestra með Mið-
nesi. Ég hef lært allt sem ég
kann af samherjum mínum í
hljómsveitum. Ég hef því ekki
farið hefðbundna leið og því
síður þeir félagar mínir í
hljómsveitinni Reykjavík.“
Dr. Gunni
– Nú ertu líka að spila með
Dr. Gunna, þeim landsfræga
manni sem nú er orðinn teng-
dasonur Ísafjarðar. Hann er nú
kannski frekar þungur á svip
maðurinn. Hvernig er að vinna
með honum?
„Það er mjög skemmtilegt
og gefandi. Ég skal viðurkenna
það að hér á árum áður þoldi
ég ekki manninn né tónlist
hans. Unnar frændi minn hélt
mikið upp á hann og þegar við
Gummi vinur minn og kollegi
í músíkinni vorum að rúnta
með Unnari hér áður fyrr, þá
reyndum við að fela diskinn
með Dr. Gunna svo Unnar
næði ekki að spila hann.
Dr. Gunni er mikill snilling-
ur og gífurlega hæfileikaríkur.
Hann á mjög auðvelt með að
semja hina fjölbreytilegustu
tónlist. Þú mátt hins vegar ekki
leyfa þér að dæma tónlist hans
eftir eina hlustun. Hann er
kannski ekki með allra ómþýð-
ustu röddina en hann er alls
ekki slæmur söngvari. Sam-
starf mitt við hann hefur verið
mjög lærdómsríkt. Við gáfum
út plötu fyrir ári síðan. Hún
fékk nú reyndar engin verð-
laun. Þetta var hefðbundið og
einfalt rokk sem ætti að eiga
upp á pallborðið hjá flestum.
Flestir gagnrýnendur völdu
hana sem eina af bestu plötum
ársins og það vorum við mjög
ánægðir með, þrátt fyrir að
platan seldist ekki mikið. Dr.
Gunni hefur verið mjög heill í
því sem hann hefur verið að
gera. Hann er öðruvísi en flest-
ir aðrir og leyfir sér það. Hann
hefur ekki látið fólk breyta sér
og það kann ég vel að meta.“
Finnskur tangó
„Fyrir utan þessar tvær
rokksveitir spila ég einnig
finnskan tangó með fyrrum
samstarfskonum mínum úr
bókabúðinni. Við komum ein-
mitt vestur í haust og spiluðum
í Edinborg, fengum frábærar
viðtökur. Finnski tangóinn
hentar okkur Íslendingum mun
betur en sá suðræni. Þar er
önnur hrynjandi í gangi, skan-
dínavískari, hvernig sem það
nú hljómar. Það var mjög gam-
an að spila á Ísafirði og Dóri
Hermanns var ánægður með
okkur, það segir okkur eitt-
hvað. Vonandi komum við
hingað aftur. Við munum
hugsanlega gefa út plötu á ár-
inu, gott að hafa mörg járn í
eldinum.“
– Ferðu ekki að flytja aftur
heim?
„Ísafjörður kallar á börnin
sín. Mér finnst ekki ólíklegt
að maður snúi aftur á heima-
slóðir, verðandi konan mín er
héðan og við eigum nú einn
son. Ég sé birtu yfir Vestfjörð-
um í framtíðinni. Ég sé líka að
hér þarf að bæta aðgengi fólks
að tónlist. Ekkert hefur gerst
síðan við Heiðar Sigurðsson
lokuðum Hljómum 1998.
Kannski ég hringi í Heiðar.
Ég hef nú því miður enga töfra-
lausn á atvinnumálunum eða
byggðaþróuninni en treysti á
það góða fólk sem hér býr, að
horfa í aðrar áttir og breyta
um sjónarhorn, það kemur
alltaf nýtt út úr því. Ég segi að
lykillinn að uppgangi sé mark-
aðssetning. Okkur vantar öfl-
ugan markaðsfulltrúa sem bá-
súnar í fjölmiðlum og víðar að
hér sé allt í blóma en ekki allt
á kafi snjó og kvótaleysi. Ef
neikvæðu fréttirnar eru sífellt
ofan á sér fólk svart en ef það
jákvæða er í hávegum smitast
það út.“
– Halldór Jónsson.
01.PM5 6.4.2017, 09:199