Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 15

Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2005 15 ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Uppáhalds borgin mín · Inga S. Ólafsdóttir, ferðafræðingur Ummæli vikunnar Brennslan mín! ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ New York og París „Ég á svo margar uppá- halds borgir að erfitt er að gera upp á milli en helst myndi ég segja New York í Bandaríkjunum og París í Evrópu. Mannlífið í New York er svo öðruvísi og skemmtilegt. Þar er allt til alls og stórglæsileg óperu- hús, Metropolitan og flottir veitingastaðir. Í París aftur á móti er menningin svo sérstök og á sér mikla sögu. Það er svo gaman að fara á söfnin og margir veitingastaðir þar bjóða rétti sem kitla bragð- laukana. Þar er svo margt sem hægt er að gera og yndislegt að vera“.París. Bíllinn skoðaður á sjúkrahúsi? Þrír bílar áttu aðild að sama árekstrinum í Önundar- firði nú síðdegis. Einn var fluttur til skoðunar á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Ísafirði, en farþegar munu hafa sloppið ómeiddir. Svæðisútvarpið – 23. desember. Það var erfitt að velja aðeins 10 lög af þeim fjölmörgu sem eru í uppáhaldi hjá mér en það tókst á endanum. Auka- lagið á disknum verður svo Kattadúettinn. Það þýðir svo ekkert að hlusta á diskinn í lélegum græjum og ekki vera feimin við að hækka. 1. The Weight – The Band. Ég hef haldið lengi upp á þetta lag, það er eitthvað svo Gumma Hjalta legt. 2. Wish you were here – Pink Floyd. Ég væri til í ferðalag aftur í tímann til að skella mér á tónleika með þeim. 3. Friday I´m In Love – the Cure. Góð regla sem ég reyni að fara eftir. 4 .What´s the frequency Kenneth – REM. Það gerist varla betra,rödd Stipes og þetta óviðjafnan- lega gítarsánd, ég fæ aldrei leið á þessu lagi. 5. Psyco Killer – Talking Heads. Þetta lag er af fyrstu plötu þeirra ´77. Ég heyrði það fyrst fyrir nokkrum árum og fannst það vera ferskt og ég er ekki frá því að það sé enn ferskt. 6. One of us – Jaguar. Ég fékk þetta lag strax á heilann og þeir eru líklega langbesta hljómsveit Íslands í dag. 7. Dead Man Walking – Quarashi. Þeir sameina rokk og rapp á mjög sannfærandi hátt og verða betri með hverjum diski. 8. Sunday Bloody Sunday – U2. Það jafnast fátt á við að spila þetta lag í botni, nú og syngja með auðvitað. 9. London Calling – The Clash. Þegar þeir komu til Íslands og tóku þetta lag var ég of ung til að fá að fara. Þá tíðkaðist því miður ekki að foreldrar færu með börnin á rokktónleika. 10. Back in Black – AC/DC Það hefur einfaldlega engum tekist að toppa þetta rokklag. Ferðalag aftur í tímann á tónleika með Pink Floyd Matthildur Helgadóttir, framkvæmdastjóri Snerpu Innlit til Kristínar Hálfdánsdóttur og Gunnars Þórðarsonar 101 Ísafjörður Hjónin Kristín Hálfdáns- dóttir og Gunnar Þórðarson búa í hjarta Ísafjarðar að Silf- urtorgi 1 á efstu hæð. BB kíkti í heimsókn til þeirra og fékk að litast um íbúðina. Hún er á tveimur hæðum með risi og út um svaladyrnar er útsýni yfir Silfurtorgið sjálft. Húsið var byggt fyrir Matthías Sveinsson og tengdaföður hans Árna Gíslason og þeirra fjölskyldu 1930. Þess má til gamans geta að það er hinn sami Árni Gísla- son og stóð fyrir vélvæðingu íslenskra fiskibáta er hann setti vél í bátinn Stanley á Ísafirði árið 1902. Húsið hefur haldið glæsi- legu ytra útliti sínu frá upphafi og er eitt af þeim húsum sem setja vinalegan svip á miðbæ- inn. Arkitekt og bygginga- meistari hússins var Jón H. Sigmundsson. Greinilegt er að engu var til sparað við bygg- inguna, til dæmis voru í upp- hafi tveir stigar upp í íbúðina og var sá minni eingöngu ætl- aður fyrir þjónustufólk íbú- anna. Gunnar og Kristín fluttu inn í lok október og hafa gert mikl- ar breytingar á íbúðinni. „Við rifum allt úr eldhúsinu og sett- um nýja eldhúsinnréttingu með öllu tilheyrandi. Við tók- um burt eina ofninn sem var í eldhúsinu og létum því setja hita í gólfin. Ég er sérstaklega hrifin af flísunum sem við völdum á eldhúsveggina þær eru úr ítölskum marmara og engar tvær eru eins“, segir Kristín. Þrátt fyrir breytingarnar hefur íbúðin fengið að halda sínum upprunalega glæsi- leika. „Allar innihurðir og skrár eru upprunalegar, við skröpuðum alla málningu af og létum handlakka þær upp á nýtt. Það gerði Guðmundur Níelsson og hans menn. Allt Borðstofan var gerð úr stóru herbergi og borðstofuborðið og skápurinn voru keypt í Mexíkó er fjölskyldan bjó þar. annað máluðum við sjálf. Vestfirskir verktakar sáu um flísalagnir, það var þeirra maður Jón Þorláksson sem sá um verkið. En Arnór Magnús- son sá um uppsetningu á inn- réttingum. Hluta stofunnar breyttum við í svefnherbergi en öðru herbergi skiptum við í tvennt og gerðum að borðstofu og svefnherbergi sem yngsti sonur okkar býr í nú. Ágúst og Flosi ehf. sá um færslu á veggjum og parketlagnir en öll gólfefni eru úr olíuborinni massífri eik“. Fjölmörg og litrík listaverk vekja athygli á hvítmáluðum veggjunum. „Grafíkmyndirnar eru eftir Silviu Outkeerk vinkonu mína í Hollandi, ullarmyndin í borðstofunni eftir Huldu Leifs og klippimyndin eftir Árna Guðmundsson. Svo eru nokkrar myndir eftir Söru Vil- bergs og Guðrúnu Svövu. Þegar farið er upp á loft blasir við mynd sem er frá Sri Lanka, keypt af Hafdísi, dótt- ur okkar, þegar hún var þar stödd. Okkur líður mjög vel hér og staðsetning íbúðarinnar er alveg frábær. Segja má að við búum í 101 Ísafjörður“. Dökklituð innréttingin er frá Innex og fer vel saman fallegu marmaraflísarnar en þær voru fengnar í versluninni Vídd. Heimilistækin eru frá Einari Farestveit hf. Granítborðplötur eru á eldhúsbekknum en þær koma frá S. Helgasyni. Stofan ber dálítinn keim af Mið-Ameríku en þaðan hafa hjónin fengið marga muni. Stóra myndin yfir sófasettinu er frá Mexíkó og hún er unnin úr lamaull. Sófasettið er frá Valhúsgögnum. Gardínur eru saumaðar af Agnesi Aspelund og gluggastangir smíðaðar af 3X stál. Sneggri, stærri og sterkari! Foreman var rúmlega miðaldra, skreið með liðagigtarveik hné sín inn í hringinn. Í dag skyldi barinn 18 ára fagriblakkur, höfðinu hærri en Foreman, með upphandleggsvöðva af hrossi og sixpakk sem hefði mátt slægja fisk á, án þess að sæi á því. Hann var sneggri, stærri, sterkari, og fallegri en Foreman. Eiríkur Örn Norðdahl á bloggsíðu sinni www.blog.central.is/amen/ 01.PM5 6.4.2017, 09:1915

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.