Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 14

Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 200514 mannlífið Ábendingar um efni sendist til Thelmu Hjaltadóttur, thelma@bb.is sími 849 8699 ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Í dag er miðvikudagurinn 5. janúar, 5. dagur ársins 2005 Þennan dag árið1874 var stjórnarskrá um hin sér- stöku málefni Íslands staðfest af konungi. Hún tók gildi 1. ágúst. Alþingi fékk þá löggjafarvald og fjárveitinga- vald. Þetta var fyrsta stjórnarskrá landsins. Henni var breytt 18. maí 1920 og hún gilti að mestu óbreytt fram að lýðveldisstjórnarskránni 17. júní 1944. Þennan dag árið 1931 fæddist fyrsta barnið á Land- spítalanum sem var tekinn í notkun tveimur vikum fyrr. Þennan dag árið 1941 var dreift fjölrituðu bréfi til breskra hermanna og þeir hvattir að ganga ekki í verk Íslendinga sem voru í verkfalli. Breska herstjórnin leit á þetta sem áskorun til hermanna um að efna til upp- reisnar og voru fjórir menn dæmdir fyrir verknaðinn. Heimild: Dagar Íslands. Jónas Ragnarsson tók saman. ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Hvað er að frétta? · Sigmundur Þórðarson, húsasmiður á Þingeyri Á þessum degi fyrir 34 árum Fádæma góð færð Vegir hafa verið með eindæmum góðir í vetur fram undir þetta og lítið þurft að ryðja þá. Aðeins hafa verið ruddir af og til stöku fjallvegir, sem yfirleitt þykir ekki koma til tals að halda opnum á vetrum, að því er Hjörleifur Ólafsson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni tjáði mbl. Nú um helgina kom þó nokkur hríð og lokuðust einstaka fjallvegir. Á Vestfjörðum lokuðust Breiðadalsheiði og Botnsheiði. Einnig Kleifarheiði og Hálfdán. Þó er fært frá Patreksfirði á Rauðasand og til Tálknafjarðar og milli Þingeyrar og Flateyrar. Einnig frá Ísafirði og út í Bolung- arvík. Og vegna mikilla fólksflutninga voru bílar í gær að- stoðaðir yfir Breiðadalsheiði, en ekki var reiknað með að heiðin yrði fær framvegis. ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Helgarveðrið Horfur á fimmtudag: Norðvestan 13-18 m/s og éljagangur norðaustantil, en annars mun hægari og úrkomulítið. Harðandi frost. Horfur á föstudag: Norðaustlæg átt og víða bjart veður, en talsvert frost um land allt. Horfur á laugardag: Norðlæg átt með éljum víða um land, einkum þó norðan til. Kalt í veðri. Horfur á sunnudag: Norðlæg átt með éljum víða um land, einkum þó norðan til. Kalt í veðri. Spurning vikunnar Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Falleg og notaleg jól Það er allt gott að frétta héðan frá Þingeyri. Aldaraf- mæli Höfrungs var haldið þann 20. desember á sjálfan afmælisdaginn. Þá var skrúð- ganga frá sparkvellinum hjá grunnskólanum, þar sem fyrsta æfingin á vegum Höfr- ungs fór fram fyrir 100 árum. Afmælishátíð var í félags- heimilinu þar sem á annað hundrað manns komu sem ég kalla gott miðað hve mikið er að gera um jólin. Bærinn er mjög jólalegur og skemmtilega skreyttur. Þetta voru falleg og notaleg jól í jólasnjónum. Á aðfanga- dag þeystu jólasveinar um bæinn og færðu börnum pakka. Þeir gera það hér á Þingeyri fyrir þá sem vilja. Þingeyringar héldu svo til messu í kirkjunni en lokið var við endurbætur á henni á ný- liðnu ári og er hún nú orðin mjög fín. Þar sungum við sam- an og áttum hátíðlega stund. Mikið var um gestagang hér um jólin og mér finnst það vera að aukast að brottfluttir Vestfirðingar, vinir og vanda- menn komi heim um jólin. Hópurinn tilbúinn fyrir athöfnina, frá vinstri Guðni Einarsson, Sigrún Sigurgeirsdóttir, Guðlaug Björnsdóttir, Hilmar Danielsson og Ijoma Ojiako. Krýndur með húfu og arnarfjöður Guðni Einarsson, fram- kvæmdastjóri fiskhausaverk- unarinnar Klofnings á Suður- eyri, var sæmdur æðstu nafn- bót Konungdæmisins Abríba í Nígeríu við athöfn í bænum Abiriba þann 20. desember og ber nú titilinn „chief Guðni“. „Á Ibo máli er titillinn Chief Nwanne Dinamba no 1 of Abi- riba sem þýðir: Bróðir í útlönd- um. Ég er sá fyrsti sem ber þennan titil og það mun enginn annar bera hann fyrr en eftir minn dag“, segir Guðni. Við sama tilefni fékk Hilm- ar Daníelsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Fiskmiðl- unar Norðurlands titilinn „Sonur rísandi sólar“. Þessi mikli heiður kemur í kjölfar góðrar þjónustu og viðmóts í garð heimamanna en Guðni og Hilmar Daníelsson hafa far- ið fjölmargar ferðir saman til Nígeríu. „Við höfum verið að sinna markaðsmálum í Nígeríu, kynna okkar vöru og hlusta á það sem viðskiptavinir okkar þar hafa að segja. Saman erum við búnir að taka þátt í fjórum til fimm vörusýningum víðs vegar í Nígeríu og það er eitt- hvað sem ekki hefur gert af Íslendinga hálfu fyrr þrátt fyrir að Nígería sé eitt af okkar mik- ilvægustu viðskiptalöndum”. Ég held að engum Íslendingi hafi áður hlotnast þessi heiður og mjög fáir hvítir menn hafa fengið þennan titil. Athöfnin fór þannig fram að við Hilmar vorum fyrst gerðir að borgur- um í bænum Abiriba og síðan færðir fyrir konunginn í Abr- iba konungdæmi að viðstöddu höfðingjaráði sem krýndi okk- ur með prjónahúfu og arnar- fjöður. Þar með vorum við orðnir Chiefs. Eiginkonur okkar fengu sjálfkrafa titilinn „lolo“, sem þýðir einfaldlega kona Chief. Með þessu eru íbúar Abríba að sýna í verki þakklæti sitt fyrir þá góðvild og virðingu sem við höfum sýnt þeim.“ Guðni segir það óvíst hve- nær hann ferðast aftur til Abríba. „Líklega fer ég aðra ferð á vordögunum og að sjálf- sögðu mun ég þá heimsækja Abiriba “, segir Guðni sem fær höfðinglegar móttökur er hann fer til Nígeríu. – thelma@bb.is Guðni krýndur chief Nwonne Dinamba, sem þýðir bróðir í útlöndum. Chief Guðni í fullum skrúða. Alls svöruðu 694. – 0-10 þús. sögðu 496 eða 71% – 11-20 þús. sögðu 81 eða 13% – 21-40 þús. sögðu 38 eða 5% – 41-100 þús. sögðu 23 eða 3% – Meira en 100 þús. sögðu 56 eða 8% Hversu miklu eyðir þú í kaup á flugeldum? 01.PM5 6.4.2017, 09:1914

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.