Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2005 11
Óvíst er hvenær ráðist verð-
ur í síðasta hluta gatnafram-
kvæmda sem hófust með
hellulögn Hafnarstrætis að
Austurvegi og var síðan fram
haldið með endurbyggingu
Silfurtorgs fyrir nokkrum ár-
um. Áformað var á sínum tíma
að klára hellulögn frá Silfur-
torgi suður Aðalstræti að gam-
la pósthúsinu.
„Þegar núverandi meirihluti
tók við árið 1998 var forgangs-
röðuninni breytt. Þá var fjár-
hagsstaða bæjarins mjög veik.
Við byrjuðum á að skera niður
og lögðum í nýrri forgangsröð-
un áherslu á snjóflóðavörn fyr-
ir ofan Funa til að verja þann
mannskap sem þar er“, segir
Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar.
„Þar að auki var á sínum
tíma bullandi óánægja meðal
verslunareigenda á svæðinu
með hinar fyrirhuguðu fram-
kvæmdir í Aðalstræti, aðallega
vegna þess að í þeim tillögum
var bara gert ráð fyrir örfáum
bílastæðum. Þegar allt var tek-
ið með í reikninginn sáum við
að það þarf að hugsa þetta allt
upp á nýtt áður en nokkuð er
gert. Það er reiknað með tölu-
verðu fjármagni til gatnafram-
kvæmda á þessu ári, en hvern-
ig verkefnum verður forgangs-
raðað er ekki enn ljóst“, segir
Halldór. – halfdan@bb.is
Gatnaframkvæmdir í miðbæ Ísafjarðar
Óljóst hvenær ráðist verð-
ur í síðasta áfangann
Sveitarstjórn Súðavíkur-
hrepps samþykkti samhljóða
fyrir áramótin, reglur sem lagt
er til að gildi við úthlutun 150
þorskígildistonna byggða-
kvóta er kom í hlut sveitarfé-
lagsins á dögunum. Í reglunum
segir að úthlutað skuli til afla-
marksskipa og krókaafla-
marksbáta. Þeim sé skylt að
leggja til aflaheimildir í bol-
fiski til jafns við úthlutaðan
byggðakvóta.
Til þess að eiga rétt á
byggðakvóta skulu bátar og
skip hafa verið skráð og hafa
átt heimahöfn í Súðavík þann
1. september 2004. Einnig
skulu útgerðirnar hafa átt lög-
heimili í Súðavíkurhreppi á
sama tíma. Þá er einnig gert
að skilyrði að afla sem nemi
úthlutuðum byggðakvóta sé
landað í Súðavík og hámarks-
úthlutun sé 80 tonn. Þá segir
einnig að byggðakvótinn og
mótframlag útgerðar skuli
unnið í Súðavík og verða um-
sækjendur að gera grein fyrir
því í umsókn hvernig staðið
verður að vinnslunni.
Þá er einnig í reglum Súða-
víkurhrepps sagt að tekið skuli
tillit til úthlutaðra aflaheimilda
og bóta vegna rækju fyrir fisk-
veiðiárið 2004/2005. Fylgi út-
gerð ekki þeim skilyrðum sem
sett eru varðandi vinnslu afla í
Súðavík fyrirgerir hún rétti
sínum til hugsanlegrar úthlut-
unar á næsta ári, að óbreyttum
reglum. – hj@bb.is
Setur reglur um út-
hlutun byggðakvóta
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps
Hætt við gjaldtöku af einkaþvotti vistmanna
öldrunardeildar HSÍ um ótilgreindan tíma
Heilbrigðisstofnunin Ísa-
fjarðarbæ hefur hætt við þau
áform að innheimta gjald fyrir
þvott á fötum vistmanna á
öldrunardeild stofnunarinnar.
Sú gjaldtaka var ákveðin fyrir
skömmu og átti að innheimta
5.500 krónur á mánuði. Þessi
ákvörðun vakti töluverða
óánægju og meðal annars
gagnrýndi Jón Fanndal Þórð-
arson formaður félags aldraðra
á Ísafirði þessa ákvörðun
harkalega í viðtali við bb.is á
dögunum. Ákvörðun um þessa
gjaldtöku var tekin eftir að
þvottahús stofnunarinnar var
lagt niður í sumar.
Í frétt á vef Heilbrigðisstofn-
unarinnar sem birt var þann
31.12 var þessi ákvörðun til-
kynnt. Þar segir að stofnunin
hafi ákveðið að falla frá áform-
um um innheimtu gjalds fyrir
þvott á einkafatnaði vistmanna
öldrunarlækningadeildar um
ótilgreindan tíma eins og segir
í fréttinni.
Í fréttinni segir einnig:
„Varðandi einkaþvott vist-
manna þá segir í reglugerð nr.
422/1992 að öldrunarstofnun-
um sé ekki skylt að kosta per-
sónulega muni eða aukaþjón-
ustu sem talin er upp. Í ljósi
þessa þá telur stofnunin að sér
sé ekki skylt að standa straum
af kostnaði við áðurnefndan
þvott. Hins vegar þá hefur ver-
ið ákveðið að stofnunin muni
áfram kosta þvott á persónu-
legum flíkum vistmanna öldr-
unarlækningardeildar FSÍ um
ótilgreindan tíma þrátt fyrir
að henni sé það ekki skylt.“
Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði.
01.PM5 6.4.2017, 09:1911