Alþýðublaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 1
Grein á 4. s:íðu:
Ljóð Páls Ólafss.
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
XXXVI. árgangur
Fimmtudagur 1. desember 1955
Grein á 5. síðu:
Hvað kostar að
lækna magasár?
255. tbl.
Tónlistarháfíðinni f resfað, af
;veiiin starfar ekki
Mefnc8 faefur nú veriS skipuð til að
unciirbúa fjárfíag hl|émsveitarinnar
NÝLEGA var skýrt frá því, að í tilefni af 10 ára afmæli
Tór.skáldafélags íslands yrði haldin íslenzk tónlistarhátið í
byrjun desember, hin fyrsta tónlistahátíð með íslenzkum verk-
um, sem nokkru sinni hefur verið haldin. Nú hefur komið i
Ijós, að vegna hljómsveitarmála ríkisútvarpsins og annarra
örðugleika verður ekki hægt að halda þessa hátíð á tilteknum
tíma. Nú hefur verið skipuð nefnd tii að reyna að finna fjár-
hagslegan grundvöll, svo Sinfóníuhljómsveitin geti aftur tekið
til starfa.
Stjórn Tónskáldafélagsins og
aðrir tónlistarmenn, sem unnið
hafa að undirbúningi hátíðar-
innar, áttu tal við blaðamenn í
gær út af þessum efnum.
Skúli Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri hátðarinnar,
skýrði svo frá, að hann hefði
seinustu mánuðina unnið ræki-
lega að málum þessum: Dagskrá
hátðarinnar væri tilbúin með
tiliiti til þess, hvaða verk væri
hægt að flytja hér, en megnið
af íslenzkum tónverkum hafi
aldrei heyrzt á íslandi, þar sem
túlkunarmöguleikar eru svo fá
ir. Enda þótt á þessari hátíð
verði ekki flutt nema mjög lít-
ill hluti af ókunnum íslenzkum
tónverkum og ekki þau um-
fangsmeiri eða veigamestu, þá
eru vonbrigðin mikil út af
frestun hátíðarinnar. Vona
\
menn, að í miðjum febrúar
verði málum svo komið, að
hægt verði að halda hátíðina. ;
TÓNSKÁLDIN FÁ EKKI
AÐ KYNNA VERK SÍN
Jón Leifs, formaður Tóii'
skáldafélagsins, sagði að hann
hefði áður varla gert sér vonir
um að hægt vrði að halda þessa J
hátíð né heldui', að hann mundi
sjálfur lifa það, að eitthvert af
hans helztu verkum heyrðist:
hér á landi ,,í óbjöguðum bún- !
ingi“, en bjartsýni meðstjórn-1
enda hans væri honum gleði-'
efni, ekki sízt þó hin augljósa '
leikgleði túlkendanna, sem I
vildu taka að sér að æfa erfið
verk og margbrotin fyrir þessa
hátíð.
Hins vegar hef ég, segir Jón
Leifs, tjáð mig fúsan á að falla
frá því að láta flytja nokkurt
verk eftir mig á þessari hátð,
þar sem þau eru flest erfið,
enda ekki vel til fallið að for-
maðurinn láfi mjög á sér bera
á dagskrá slíkrar hátíðar, þeg-
ar allir félagsmenn eiga til svo
mörg verk og óflutt. Auk þess
virðist vel viðeigandi að taka
eitthvert tillit til utanfélags-
manna og látinna tónskálda ís-
lenzkra.
Aðspurður um helztu at-
vinnuerfiðleika íslenzkra tón-
skálda sagði Jón Leifs:
Fyrstu örðugleikarnir eru
skortur á fjölrituðum eintökum
tónverkanna. þótt ekki sé hugs
að um prentun, sem er mjög
dýr og borgar sig ekki þegar
um ný og umfangsmikil tón-'
verk er að ræða. ,,Sögusinfón(a“
mín er t. d. aðeins til í einu
afriti og það kostaði tugi þús- '
unda að láta gera það ásamt
öllum röddum til flutnings.
Þegar eintök tónverkanna eru
fengin kemur að því að fá þau
æfð og flutt, en síðan tekin upp
á plötur eða bönd, sem er þó
aldrei nema eins og ljósmynd
af málverki, — en þannig er ^
fyrst hægt að byrja að kynna .
verkin. Menn geta því ekki met j
ið ný tónverk til fulls fyrr en
Hér sjást þeir Bulganin og Krúséff, er þeir ræða við for-
seta Indlands í Nýju Dehli.
Fagurí skaS mæla en flátt hyggja:
heíminum ern nú senn á enda
Skömm fyrir Portúgala að vilja halda
yfirráðym sínum yfir Goa.
BÚLGANIN, forsætisráðherra Rússa, réðist harkalega á ný-
lendustefnu Vesturveldanna í ræðu, sem hann hélt í Madras,
og sagði, að það væri siðuðu fólki til smánar, að Portúgalar skuli
enn halda fast við yfirráð sín yfir nýlendunni Goa á vestur-
strönd Indlands.
Háskólastúdentar minnasf í
dag fullveldisins hátíðlega
Halldór K. Laxness flytur ræðu kl. 1,30
HÁSKÓLASTÚDENTAR efna til liátíðahalda í dag, 1. des-
embre eins og undanfarin ár. Aðalræðu dagsins flytur Nóbeh-
verðlaunaskáldið Halldór Kiljan Laxncss. Flytur hann ræðuna
kl. 1,30 úr útvarpssal en ekki kl. 2 eins og áður hafði verið
frá skýrt.
* Klukkan 11 f. h. hefst messa
í kapellu háskólans. Sr. Sigurð
ur Pálsson prédikar.
Kl. 15.30 hefst samkoma í há
tíðasal Háskólans. Formaður
«j I jr •Sf/ stúden.taráðs, Björgvin Guð-
OIK " ne ur L ^ V munc*sson stu<i- oecon., flytur
(Frh. á 2. síðu.)
Kosningar í
Frakklandi eftir
hálfan mánuð
Á RÁÐUNEYTISFUNDI í
gærkveldi samþykkti franska |
stjórnin að rjúfa þing og efna |
til nýrra kosninga. Samkvæmt
frönsku stjórnarskránni eiga
kosningar að fara fram hálfum
mánuði eftir að þing er rofið.
Sagði Bulganin, að Asíuþjóð-
irnar hefðu öldum saman orðið
að þola nýlendustefnu Vestur-
veldanna, en dagar hennar
væru nú senn á enda og myndu
aldrei koma aftur. Enn eru
nokkur Evrópulönd, sem virð-
ast ekki skilja þetta, sagði
Bulganin. I þetta sinn vék Bul-
ganin frá veniu sinni og hélt nú
í fyrsta sinn lengri ræðu en
Krúséff síðan þeir komu til
Indlands. Bulganin ásakaði
Vesturveldin fyrir að reyna að
þvinga Asíulöndin og löndin
fyrir botni Miðjarðarhafsins til
að gerast aðilar að hernaðar-
bandalagi. Það væru hin sömu
ríki, er áður voru helztu ný-
lenduveldin, sem nú reyndu að
fá þessi lönd til að ganga í hern
aðarvarnarbandalög. Það hefði
verið viturleg ráðstöfun hjá
Indverjum, er þeir undir for-
ustu Nehrus afréðu að standa
utan við öll hernaðarbandalög.
Þetta sannaði það, að indverska
stjórnin hefði gert sér það
ljóst, að slík hernaðarbandalög
væru andstæðingar þeirra,
sem berðust fyrir friðinn.
Churchill krossaður.
Eisenhower, forseti Banda-
ríkjanna, sæmdi Churchill
fyrrverandi forsætisráðherra
Breta sérstöku heiðursmerki
sem þakklætistákn bandarísku
þjóðarinnar í tilefni af 81. árs
afmælisdegi hans, sem var í
gær.
Friðrik vann Pi
ÚRSLIT í þriðju skákinni,
sem þeir Friðrik Ólafsson og
Hermann Pilnik tefla í skákein-
vígi sínu fór á þá leið að Pilnik
gaf skákina. Eftir þessar þrjár
skákir hefur Friðrik vinn-
ing, en Pilnik V2 vinning. Eiga
þeir nú eftir að tefla þrjár
skákir.
Veðrið í dag
Hvass sunnan;
rigning með kvöltlinu.
ávarp, Sigurkarl Stefánsson
menntaskólakennari flytur
ræðu, Ásgeir Beinteinsson leik
ur einleik á panó, dr. Björn Sig'
fússon flytur ræðu og Jón Sig-
urbjörnsson syngur einsöng.
HÓF AÐ HÓTEL BORG
Kl. 18.30 hefst hóf að Hótel
Borg. Dr. Sigurður Þórarinsson
flytur þar ræðu, Ivarl Guð-
mundsson skemmtir og Smára-
kvartettinn syngur. — Ósóttar
pantanir aðgöngumiða að hóf-
inu skulu sækjast kl. 10—12 f.
h. í dag. Einnig verða miðar
seldir í suðurdyrum Hótel
Borgar kl. 2—3 e. h. verði eitt-
hvað eftir.
Mið-Asíu „lýðveldum" Rússaveldis
er ríkjandi algeri nýlenduásland
BANDARÍS^I hæstaréttar
dómarinn William O. Douglas
ferðaðist um Rússaveldi á síð
ast liðnu sumri. Hefur hann
ritað grein um ferðalag sitt í
bandaríska tímaritið „Look“
og segir hann þar frá því, er
hann varð áskynja í Mið-Asíu
„lýðveldum“ Rússaveldis. —
Douglas heldur því fram í
grein þessari, að í löndum
þessum sé sams konar ástand
ríkjandi og í frönsku nýlend-
unni Maroltko í Norður-Af-
ríku, og að ástandið í þessum
rússnesku „lýðveldum“ sé
verra en nýlendur Breta hafi
orðið að búa við.
Douglas lýsir hinum stófu
iðnaðarborgum, sem risið hafa
upp í löndum þessum og þar
eru það Rússarnir, sem eru
herraþjóðin, þeir hafa sér
dómstóla og hafa reist sér-
staka skóla fyrir sig og sína
og launakjör þeirra eru stór-
um betri en íbúanna.
Hin fimm rússncsku lýð-
veldi, sem hér er rætt um, eru
Tnrkmenistan, Tadsjikistan,
Uzbekistan, Kirgisia og Kaz-
akstan. Lönd þessi byggja um
16 milljónir manna og er ein
ungis lítill hluti þcirra af rúss
ncsku þjóðerni.
Er sérhver þjóðernishreyf-
ing bæld niður með glæpsam-
legri valdbeitingu. Hver sá,
sem nefnir orðið frelsi, þarf
ekki að kemba hærurnar.
Þannig lýsir hinn bandaríski
hæstaréttardómari ástandinu
í löndum þessum.
40 ÁRA KÚGUN
Þrátt fyrir 40 ára kúgun, er
þjóðerniskennd þessara þjóða
mjög sterk, en möguleikar íil
að brjóta niður þessa kúgun
eru útilokaðir með öllu vegna
þess, að rússneska leynilög-
reglan er snuðrandi um allt
og lieldur öllu í járngrcipum.