Tíminn - 12.09.1941, Side 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLADSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR
AFGREIÐSLA
AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
INNHEIMTA
1ASKRIFST
Lindargötu
25. ár.
Reykjavík, föstndaglim 12. sept. 1941
91. blað
SamiiÉn<rai*iiii* um kolin
Bretar lofa okkur 90 þús.
smál. af kolum næstu 12
mánuðína
Viðtal við viðskiptamálaráðherra
W
Ognarstjórnin í Noregi
Herlög gengin í gíldi í Osió
Á víðavangi
Afdrif ,Sessa‘
Tveir íslendingar voru
á skípinu
Það er nú kunnugt orðið, að
leiguskipi Eimskipafélags ís-
lands, Sessa, sem saknað hafði
verið um skeið, hefir verið sökkt
300 km. suðvestur af íslandi 17.
ágúst síðastliðinn.
Þremur skipverjum var bjarg-
að fyrir nokkru og voru þeir
fluttir hingað til Reykjavíkur.
Höfðu þeir verið 19 daga á fleka
og voru orðnir mjög aðþrengd-
ir, þegar þeim var bjargað.
Ekki hefir verið upplýst, hvar
þeim var bjargað eða hverjir
hafi gert það.
Á Sessa var 27 manna áhöfn.
Meðal þeirra voru tveir íslend-
ingar, Þorvaldur Aðils og S.
Wendel.
Sessa var hlaðin ýmsum vör-
um, sem áttu að fara hingað.
Það var eitt af dönsku skipun-
um, sem Bandaríkjastjórn hafði
lagt löghald á og sigldi það
undir Panamafána.
Tilkynnt hefir verið í Wash-
ington, að fyrst hafi verið skot-
ið tundurskeyti á skipið, en síð-
an hafi verið skotið á það úr
fallbyssum.
Bókaúfgáfa Menníng
arsjóðs og ÞjóðvJél.
- Sjö bækur fyrir 10 kr.-
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
og Þj óðvinafélagsins gefur út
sjö bækur í ár og fá áskrifend-
ur þær fyrir 10 kr. árgjald.
Verða þetta þvi langódýrustu
bókakaupin, enda er það til-
gangur bókaútgáfunnar, að ná
sem víðast og mynda vísi að
bókasafni á sem flestum heim-
ilum landsins. Áskrifendur
munu nú vera um 14 þús.
Bækurnar, sem gefnar verða
út í ár, eru þessar:
Úrval af ljóðiun og sögum
Jónasar Hallgrímssonar með
formála eftir Jónas Jónsson. —
Gert er ráð fyrir að gefa þannig
út á næstu árum i samstæðum
bindum úrvalsrit helztu ís-
lenzkra skálda að fornu og
nýju.
Mannfélagsfræði eftir J.
Rumney, enskan nútímarit-
höfund. Bókin er íslenzkuð af
Guðmundi Finnbogasyni.
Uppreisnin í eyðimörkinni,
síðara bindi. Þar er kort af Ara-
bíu ásamt myndum af höfund-
inum og fleiri sögupersónum.
Ágrip af sögu síðustu áratuga,
eftir Skúla Þórðarson sagn-
fræðing. Bókin byrjar með yfir-
liti um orsakir og helztu at-
burði fyrri heimsstyrjaldarinn-
ar. Annars fjallar bókin um
helztu heimsviðburði og stefnur
tveggja síðustu áratuga, eins
og til dæmis byltinguna í Rúss-
landi, Versalasamningana,
Þjóðabandalagið, einræðis-
stefnurnar, valdabaráttu heims-
veldanna, stjórnarstefnu Roose-
velts forseta og þingræði Ev-
rópulandanna. í bókinni verð-
ur uppdráttur og margar mynd-
ir.
Anna Karenina, eftir Leo
Tolstoy, fyrsta bindi. Þessi
heimsfræga skáldsaga er þýdd
af Magnúsi Ásgeirssyni.
Almanak Þjóðvinafélagsins
1942. í því birtist m. a. grein um
fjármál íslands 1874—1940 eftir
Gylfa Þ. Gíslason hagfræðing,
hliðstæð yfirlitinu, sem birt var
í síðasta almanaki um valda-
menn á íslandi, greinar um
Roosevelt og Churchill og ár-
bók 1940.
Andvari 1941. Hann flytur
(Framh. á 4. sUSuJ
Tíminn hefir snúið sér
til Eysteins Jónssonar við-
skiptamálaráðherra og innt
hann eftir samningunum
við Breta um kolainnflutn-
inginn til landsins. Valda
þessi mál mönnum miklum
áhyggjum,því ýmsir staðir á
landinu eru alveg kolalausir
og annarsstaðar eru birgðir
mjög litlar.
— Eins og áður hefir verið
skýrt frá hér í blaðinu, sagði
viðskiptamálaráðherra, var ís-
lenzku ríkisstjórninni tilkynnt
það í júlímán. síðastl., að Bret-
ar myndu ekki geta séð íslandi
fyrir öllum þeim kolum, sem
það þarfnaðist. Þetta kom rík-
isstjórninn mjög á óvart, því að
fastlega hafði verið gert ráð
fyrir, að okkur yrði séð fyrir
nægum kolum frá Bretlandi. í
innflutningsáætlun þeirri, sem
gerð var í byrjun þessa árs í
samráði við fulltrúa Breta hér,
var reiknað með 170 þús. smál.
innfluttra kola á árinu, og var
það sem næst meðalinnflutnng-
ur undanfarinna ára.
Þær ástæður voru færðar
fram af Breta hálfu, að þeir
yrðu mjög að takmarka kola-
notkunina heima fyrir, sökum
skorts á kolum.
Síðan í júlí hafa staðið yfir
samningar um þetta mál milli
ríkisstjórna íslands og Bret-
lands. Af hálfu íslenzku ríkis-
stjórnarinnar hefir verið hald-
ið fram þeirri kröfu, að þörf-
um landsmanna yrði fullnægt
með kolainnflutningi frá Bret-
landi eða að Bretar sæju okk-
ur fyrir kolum frá Ameríku
með sama verði á íslenzkri höfn
Samkvæmt bráðabirgðayfirliti hag-
stofunnar nam innflutningurinn í
ágústmánuði síðastl. um 10,9 milljón-
um króna, en útflutningurinn 16,7
millj. kr. Fyrstu átta mánuði ársins
hefir innflutningurinn numið alls um
71,5 milljónum króna, en útflutning-
urinn um 127,7 milljónum króna. Hefir
hagstæður verzlunarjöfnuður því num-
ið það sem af er árinu rúmlega 56
milljónum króna.
t t t
Páll Aðalsteinsson, skipstjóri, sonur
Aðalsteins Pálssonar, skipstjóra á Bel-
gaum, hefir verið sæmdur heiðurs-
merkinu M. B. E. (Member of the
British Empire) fyrir að bjarga mönn-
um úr sjávarháska. Var togari Páls í
skipalest, er þýzkar flugvélar gerðu
árás á hann. Varð skip Páls fyrir
sprengju og laskaðist nokkuð, og ann-
ar togari, sem var í lestinni, varð einn-
ig fyrir sprengju og tók að sökkva. Var
þá settur út bátur frá flutningaskipi, í
því skyni, að bjarga mönnunum á tog-
aranum, en veður var svo vont, að
bátsverjar, 7 að tölu, urðu að forða sér
um borð í togarann. Voru þá 23 menn
um borð í sökkvandi skipinu. Páll lagði
þá skipi sínu fast að því, og tókst að
bjarga öllum mönnunum, áður en það
sökk. Páll er komungur, rúmlega tví-
tugur.
t t t
Guðmundur Hannesson fyrv. pró-
fessor var kjörinn heiðursdoktor af
Læknadeild Háskólans 9. þ. m., en þá
og kolin frá Bretlandi kosta.
Er þessi krafa byggð á því, að
íslendingar ættu rétt á því að
fá kol eftir þörfum í skiptum
fyrir sjávarafurðir, sem Bret-
um eru seldar.
Nú hefir borist bráðabirgða-
svar brezku stjórnarinnar við
þessari kröfu. Samkvæmt því
skuldbinda Bretar sig til þess
að selja íslendingum 90 þús.
smál. af kolum frá Bretlandi á
næstu 12 mánuðum, er skipt-
ist sem jafnast niður á mán-
uðina. Ennfremur lofa þeir að
vinna að því, að við fáum kol
frá Bandaríkj unum til viðbót-
ar, ef þörf krefur. Hins vegar
hafa þeir engu svarað þeirri
kröfu okkar, að þeir sjái til
þess, að kolin frá Bandaríkjun-
um verði okkur ekki dýrari en
brezku kolin.
Það hafði verið áætlað, að á
tímabilinu júlí 1941—apríl 1942
þyrfti að flytja inn 150 þús.
smál. kola til að fullnægja allri
þörfinni. Er þá reiknað með
sæmilegum birgðum 1. apríl
1942 og að togararnir taki öll
kol til veiða hér heima, eins og
tíðkaðist fyrir stríð. Sigli tog-
ararnir með fisk til Englands
minnkar innflutningsþörfin
verulega. Er því á þessu stigi
málsins ekki hægt að segja,
hversu langt þessar 90 þús.
smál. muni hrökkva. Reynt
verður að fá sem mest af hinu
lofaða magni flutt hingað á
næstu mánuðum.
— Liggja hér ekki norsk skip
með kol, sem hægt væri að fá
keypt?
— Jú, hér eru þrjú norsk
kolaskip, sem hafa komið hing-
að frá Spitsbergen, og munu
þau vera með 8—9 þús. smál.
af kolum. Hefir verið unnið að
(Framh. á 4. siðu)
átti hann 75 ára afmæli. Var tekið
fram að þetta væri gert með sérstöku
tilliti til þess, að Guðmundur hefði lagt
grundvöllinn að vísindalegri mann-
fræði íslendinga.
r r r
Þrjú ný frystihús er nú verið að
byggja á Snæfellsnesi. Á Sandi stend-
ur hlutafélag fyrir byggingunni og hef-
ir það fengið 40 þús. kr. lán úr Fiski-
málasjóði. í Grundarfirði stendur
hlutafélag fyrir byggingunni og hefir
það fengið 20 þús. kr. lán úr Fiski-
málasjóði. í Stykkishólmi er Sigurður
Ágústsson kaupmaður að byggja
frystihús og hefir fengið til þess 35
þús. kr. lán úr Fiskimálasjóði. Tvö
frystihús voru fyrir á Snæfellsnesi, í
Stykkishólmi, eign Kaupfélags Stykk-
ishólms, og í Ólafsvík, eign hlutafélags.
r t r
Samkvæmt símtali við Ólafsvík hef-
ir verið unnið óvenjulega mikið að
framkvæmdum þar vestra í sumar. í
þorpinu sjálfu hefir verið unnið að
lengingu brimbrjóts og ný steinbrú
hefir verið sett á gilið, sem rennur
gegnum kauptúnið. Nú er unnið að því
að stækka frystihúsið þar. Laxá á Ingj-
aldshólsbreið, sem oft hefir verið mik-
ill farartálmi milli Ólafsvíkur og
Sands, hefir verið brúuð í sumar, og
ennfremur tvær smáár í Fróðárhreppi,
Bugsgilið og Staðarbergsá. Afli á
dragnótabóta hefir verið sæmilegur
undanfarið, og hefir verið mikil vinna
við frystihúsið i Ólafsvík.
Hin hörmulegustu tíðindi
hafa borizt frá Noregi seinustu
dagana. Þýzka herstjórnin hef-
ir gripið til þess örþrifaráðs að
reyna að bæla niður vaxandi
frelsisþrá þjóðarinnar með
blóðugu ofbeldi og beitir líf-
látsdómum og fangelsunum í
ríkum mæli.
Síðastl. miðvikudag var Oslo
lýst í hernaðarástand. Öll um-
ferð var bönnuð í borginni frá
kl. 8 að kvöldi til kl. 5 að
morgni. Sýningum í leikhúsum
og kvikmyndahúsum hefir ver-
ið aflýst og útvarpstæki gerð
upptæk.
í Oslóarútvarpinu var þessi
ráðstöfun réttlætt með því, að
undanfarið hafi verið unnin
ýms glæpsamleg skemmdarverk
af Marxistum og kommúnist-
um.
Fregnir hafa borizt um upp-
sögn opinberra starfsmanna í
stórum stíl og er sagt að megn-
asta óreiða sé komin á af-
greiðslu pósts og síma af þess-
um ástæðum.
Þá hefir öll stjórn norska Al-
þýðusambandsins verð hand-
sömuð, tver meðlimir hennar,
Viggo Hansteen, þekktur lög-
fræðingur, og Vikström,
dæmdir til dauða af herrétti og
skotnir, aðrir tveir meðlimir
hennar dæmdir í æfilangt
fangelsi, en ýmsir hinna í
meira og minna langvarandi
fangelsi.
í Oslóarútvarpinu var þessum
mönnum gefið að sök, að þeir
hefðu ætlað að stofna til alls-
herj arverkfalls. Annars benda
fregnir frá Osló til þess, að
víðtækt verkfall sé nú í borg-
inni og fáist verkamenn ekki
til að hverfa til vinnu sinnar,
þótt þeir séu beittir hótunum.
Hafa ráðherrar úr Quslings-
stjórninni haldið ræður og
hótað verkamönnum öllu illu,
ef þeir væru ekki kyrrir við
vinnu sína.
Fangelsanir, auk þeirra, sem
að framan greinir, hafa átt sér
stað í stórum stíl.
Þeir Hansteen og Vikström
eru ekki fyrstu Norðmennirnir,
sem hafa verið dæmdir til dauða
Jón Sigurðsson kaupfélagsstjóri á
Djúpavogi var staddur hér í bænum
á dögunum. Tíðindamaður blaðsins
náði tali af honum og spurði hann
frétta þaðan að austan. Fórust hon-
um meðal annars orð á þessa leið:
Tvö undanfarin ár hefir lítið land
verið ræktað á Djúpavogi, þó varla
minna en annarsstaðar. En nú á næst-
unni verður hafizt handa um áfram-
haldandi ræktunarstarfsemi á hverju,
sem veltur, því það er .þorpsbúum hið
mesta nauðsynjamál að eiga sem mest
af ræktuðu landi. Garðrækt er það
langt komið að hvert heimili hefir
nægilegt fyrir sig af kartöflum og öðr-
um nauðsynlegustu garðávöxtum. Hvert
heimili hefir eina eða tvær kýr eftir
fólksfjölda heimilanna. Er það mikill
búbætir og hefir yfirleitt gefizt vel.
í kauptúninu er ræktunarfélag, sem
veitir þorpsbúum margháttaðan stuðn-
ing við jarðræktina. Á þess vegum er
dráttarvél starfandi. Hefir hún gengið
á milli manna og unnið nýræktina. í
fyrstu var mjög mikið verk að ræsa
ræktunarlandið fram. En það hefir
tekizt svo vel að vel má við una. Nú
þegar er lokið við að rækta þriðjung
þess lands, sem heppilegast er talið til
ræktunar. Er mjög mikill áhugi og
skilningur ríkjandi meðal þorpsbúa um
ræktunarmálin. — Á flestum heim-
ilum eru frá 20 til 40 ær. En hingað
til hefir ekki fengizt viðunandi arður
af þeim. Stafar það mest af vöntun á
(Framh. á 4. siðu)
af þýzkum herrétti. í vetur
voru nokkrir menn dæmdir til
lífláts fyrir aðstoð við Breta,
þar á meðal Oftedal ritstjóri,
einn af glæsilegustu foringja-
efnum vinstri flokksins. í byrj-
un ágústmánaðar voru þrír
menn dæmdir til lífláts af
þýzkum herrétti í Bergen og
skotnir nokkru síðar. Einn
þeirra, Melankton Rasmussen,
var þekktur iþróttamaðu'r og
einn vinsælasti leiðtogi íþrótta-
félaganna í Bergen. Þjóðverjar
hafa reynt eftir megni að gera
íþróttafélögin nazistisk en
mætt þar mjög harðri mót-
spyrnu. Meðal þeirra, sem fast-
ast hafa haldið fram sjálfsfor-
ræði íþróttafélaganna og að
þau myndu aldrei láta stjórn-
ast af flokki Quslings, er skíða-
kappinn heimsfrægi, Birgir
Ruud. Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir nazista, fékkst enginn
af þekktari skíðamönnum
Norðmanna til þess að taka
þátt í skíðamótum í vetur.
Fregnirnar um herlögin í
Oslo og fangelsanir verkalýðs-
foringjanna, bera það ótvírætt
með sér, að mótspyrnan gegn
Þjóðverjum er að harðna.
Hingað til virðist mótspyrnan
hafa verið einna öflugust vest-
anfjalls. í strandhéruðunum
þar hafa herlög gilt síðan í
sumar og búið er fyrir nokkru
að taka öll útvarpstæki af fólki
þar.
Svo alvarlegt er ástandið í
Noregi, að norska stjórnin í
London hefir talið rétt að ráða
þjóðinni til að fara gætilega í
sakirnar. Tryggve Lie, utan-
ríkismálaráðherra Norðmanna,
fluti ræðu í norska Londonar-
útvarpið í gær, þar sem hann
bað þjóðina að vera rólega og
rasa ekki um ráð fram. Hann
sagði að gefið yrði greinilegt
merki um innrásina í Noreg,
þegar réttur tími væri kominn.
Þangað til yrði að vinna í kyr-
þey.
Á þingi sænsku verkalýðsfé-
laganna, sem nú stendur yfir í
Stokkhólmi, var hinna líflátnu
norsku verkalýðsf oringj a
minnzt með einnar mínútu
þögn. Forseti verkalýðssam-
takanna, August Lindbergh, lét
m. a. svo ummælt: Aldrei, ald-
rei munum við gleyma Aiinum
norsku félögum okkar.
Aðrar fréttir.
Roosevelt forseti flutti í nótt
ræðu þá, sem hafði verið til-
kynnt fyrir nokkrum dögum að
hann myndi flytja, og beðið
hafði verið með mikilli eftir-
væntingu. Þýðingarmesta atriði
hennar var það, að hann hefði
fyrirskipað Bandaríkjaflotanum
að vera fyrri til að skjóta á öll
skip, sem væru líkleg til að vilja
trufla siglingar á hagsmuna-
svæði Bandaríkjanna. Rök-
studdi forsetinn þessa ákvörðun
með árásinni á Greer og Sessa.
Yfirlýsing þessi hefir fengið
góðar undirtektir í Ameríku og
Bretlandi.
í Rússlandsstyrjöldinni hefir
gagnsókn Timosjenkos á mið-
vígstöðvunum vakið mesta at-
hygli seinustu dagana. Sækir
hann fram á 300 km. breiðri
víglínu, aðallega milli Smolensk
og Leningrad, og hefir orðið
talsvert ágengt. Hafa Þjóðverj-
ar orðið að láta talsvert lands-
svæði af hendi og orðið fyrir
miklu skriðdreka- og manntjóni.
Við Murmansk hefir Þjóðverj-
um orðið nokkuð ágengt sein-
ustu dagana. — Við Leningrad
hafa engar breytingar orðið
seinustu dagana, en Þjóðverjar
draga að sér steypiflugvélar á
þessum slóðum og munu ætla
að auka loftárásir á borgina. —
Við Odessa og Kiev hefir Þjóð-
(Framh. á 4. siðu)
SLÚÐURSÖGURNAR.
Slúðursögurnar, sem ganga
manna á milli, eru að verða
hreinasta plága. Einna leiðin-
legasta dæmið um þetta í seinni
tíð er nauðungarmálið svo-
nefnda. Það hefir t. d. verið
sagt á víxl, að búið væri að
sýkna sökudólgana eða dæma
þá til lífláts. Fyrir hvorugu var
minnsti fótur. Auk þess hefir
verið dreift út hinum ógeðsleg-
ustu frásögnum um þennan at-
burð. Þá má nefna Sessumálið
sem eitt dæmið. Það var t. d.
altalað um skeið, að skipið hefði
farið til Danmerkur. Það mega
sannarlega heita skrítnar
mannkindur, sem hafa gaman
af að koma slíkum kviksögum
á kreik, og veitti ekki af að
lögreglan reyndi að gefa þeirri
manntegund vissar gætur.
KALDAR KVEÐJUR TIL
BÆNDASTÉTTARINNAR.
í síðasta tbl. sjómannablaðs-
ins „Víkingur" andar meira en
köldu í garð bændastéttarinn-
ar. Þar er m. a. sagt, að betra
hefði verið að verja brezku
verðuppbótinni til „meðlags með
ófeðruðum Bretabörnum“ en til
uppbótar á afurðir landbúnað-
arins. Þá er mjög bölsótast út
af háu verðlagi á afurðum
bænda. Bændur munu síður en
svo sjá öfundaraugum yfir
þeirri velgengni, sem megin-
þorri sjómanna hefir notið
undanfarið. En það mun þeim
þykja lítt skiljanlegt né við-
unandi, að sjómenn, sem vissu-
lega hafa borið meira úr býtum
en bændur, skuli sýna hags-
munamálum þeirra megnustu
óvild og reyna að níða niður af
þeim skóinn. Sjómannastétt
landsins mun áreiðanlega geta
valið sér viðfangsefni, sem hæf-
ir henni betur, enda munu
þessar árásir stafa meira af þvi,
að sjómenn hafa hér óheppileg-
um forsvarsmönnum á að skipa
heldur en að þær séu sjómönn-
um yfirleitt að skapi.
HEIMSKULEG OG TILEFNIS-
LAUS ÁRÁS.
í gær birtist í Vísi einhver
allra aumagta grein, sem lengi
hefir sést á prenti. Greinin á
að vera árás á kennslumálaráð-
herra fyrir veitingu skólastjóra-
embættisins við Flensborg. Er
safnað saman flestum helztu
fúkyrðum málsins, en alveg
gengið fram hjá, að færa nokk-
ur rök því til sönnunar, að hæf-
asti maðurinn hafi ekki verið
valinn í stöðuna. Það er t. d.
ekkert minnst á það, að öll
skólanefndin og fræðslumála-
stjóri mælti einróma með
manninum, sem hlaut stöðuna.
Það er heldur ekki nóg með það,
að Vísisritstjórinn reyni, án
minnstu röksemda, að deila á
þessa embættisveitingu, heldur
segir hann að allar eða flestar
embættaveitingar kennslumála-
ráðherra hafi verið óverjandi.
En ekki nefnir hann eitt dæmi
máli sínu til sönnunar. Slíkur
málflutningur dæmis sig sjálf-
ur. Hann sýnir bezt, að árásin
er algerlega tilefnislaus. Hún á
rætur sínar í gáfnatregðu og
sjúklegu ástandi manns, sem
vill svívirða andstæðinga sína,
en hefir ekkert annað fram að
færa gegn þeim en órökstuddar
fullyrðingar og illyrði.
ÚTGÁFA Á VERKUM
GUNNARS GUNNARSSONAR.
Ekki alls fyrir löngu var ein-
um ötulasta og bezta forleggj-
ara landsins, Þorsteini M. Jóns-
syni, hallmælt fyrir að hafa
leyft sér að bjóða Gunnari
Gunnarssyni bónda og rithöf-
undi í Skriðuklaustri, að gefa
út verk hans á Akureyri. Sá
bær átti ekki að vera nógu göf-
ugur fyrir útgáfuna. Síðan fór
Gunnar í einhvern félagsskap
í Reykjavik, og átti að gefa verk
(Framh. á 4. siðu)
A k^osso-ötttim:
Verzlunarjöfnuðurinn. — Skipstjóri heiðraður. — Heiðursdoktor. — Ný frysti-
hús á Snæfellsnesi. — Frá Ólafsvík. — Ræktun á Djúpavogi.