Tíminn - 12.09.1941, Síða 4
364
'ÍÍJttlM, föstiidaginn 13. sept. 1941
91. blað
Yfir landamærin
1. Alþbl. hefir að sumu leyti Gyðing-
leg vinnubrögð. Það hefir mjög apað
þann sið frá Gyðingalandi, að smala í
veizlur höltum og vönuðum, ef hinir
eiginlegu boðsgestir komu ekki. Þannig
tók það að sér kommúnistana, sem
gerðu uppreist á Laugarvatni, lét setja
kommúnista í formannssæti í skólaráði
eins héraðsskólans, lagði blessun sína
yfir Einar Olgeirsson og lið hans við
bæjarstjómarkosningar, tók Gísla
Halldórsson upp af götu sinni, eftir að
hann hafði boðizt til að útvega Rvík
nóg rafmagn frá gufuhvemum í Hengl-
inum. Síðasti boðsgesturinn er hinn
nafntogaði Prits, sem er í því áliti, að
stjórn Churchills, hins góða vemdara
lýöræðisins, leyfir honum ekki að ganga
lausum á ættlandi sínu, nema þjóðin
setji tvöfalt 'verð Ölfusárbrúarinnar
fyrir hegðun hans.
2. Alþýðublaðið heldur, að samvinnu-
þroskinn í Þingeyjarsýslu sé því meiri
sem fjær dregur sjó. Þetta hefir ekki
reynzt rétt. Jón á Gautlöndum var að
vísu 1000 fet yfir sjávarmál, en Sigurð-
ur í Yztafelli var í lágsveit, og Einar
í Nesi á sjávarbakkanum. Samvinnu-
þroskinn er yfirleitt jafn um alla sýsl-
una. Og gengi sitt í samvinnumáium
og áhrif á aðra landshluta, eiga Þing-
eyingar að langmestu leyti því að
þakka, að þeir hafa staðið hlið við
hlið móti fjárglæframönnum og spá-
kaupmönnum, en í þess stað alið upp
menn heima fyrir til að gera þau störf,
sem þess háttar menn bjóðast oft til
að vinna, og skammta sér sjálfir laun-
in. —
3. Alþýðublaðið vill.láta Framsókn-
arflokkinn bera ábyrgð á Prits Kjart-
anssyni, af því að jafnan sé einn Fram-
sóknarmaður í síldarútvegsnefnd. En
Finnur Jónsson hefir óskorað vald í
þeirri nefnd, tvo Aiþýðuflokksmenn og
einn — stundum tvo — Sjálfstæðis-
menn. í krafti þess valds sendi Finnur
vin sinn, Erlend Þorsteinsson, til Ame-
ríku í fyrra, þó að Vilhjálmur Þór væri
þar, og hefði skipun stjómarvaidanna
til að vinna fyrir sýningarskrifstofuna
og verzlunarskrifstofuna með umboðs-
sölu. Áreiðanlega hafa það ekki verið
ráð Jakobs Frímannssonar, að trúa
Erlendi betur en Vilhjálmi. Val Jakobs
Frímannssonar í nefndina virðist hafa
verið á milli þriggja „krata“, Finns,
Erlends og Óskars og Frits Kjartans-
sonar. Ef hann hefir valið Frits fyrir
sitt leyti, þá er það ekki hól um „krata-
broddana“. x+y. ■
Gleymska Alþ.bl.
(Framh. af 3. síSu)
gera síldarútveginn öruggan, án
þess að gripa til einkasölu. En
hinir flokkarnir tveir hafa
tvisvar sameinast um einkasölu-
brask. Á sama hátt hafa þeir
tveir flokkar frá upphafi sam-
einast um að gera síldarverk-
smiðjur rikisins að áhættufyr-
irtæki og fá nú í sumar að sjá
árangurinn af stefnu sinni í
þeim málum. X.
Á krossgötiim
(Framh. af 1. síSu)
góðu fóðri. Með aukinni rýrækt og
bættri hlrðingu má telja víst að mikil
umbót fáist í þessum efnum. — Þá
gerir það einnig erfiðara fyrir um
kvikfjárrækt að þorpsbúar eru til-
neyddir að sækja afréttarland lengra
burt. Djúpivogur er ekki í bifreiðasam-
bandi við aðra hluta landsins. Er á að
giska 18—20 km. langur kafli, sem eítir
er að leggja svo bílfært sé í Beru-
fjörð.
T U S K U R.
Kaupum hreinar ullar- og
bómullartuskur hæsta verði.
Húsgagnavinjiustofan,
Baldursgötu 30.
ÍJ R BÆNIJM
Garðyrkjusýningin.
Sýning Garðyrkjufélags íslands er
nú búin að vera opin í viku. Þann tíma
hafa á tíunda þúsund manns skoðað
sýninguna og ljúka allir hinu mesta
lofsorði á hana. í gærdag skoðuðu
nokkrir af brezku blaðamönnunum, er
hér dvelja um stundarsakir, sýninguna,
og voru þeir undrandi yfir, hve fjöl-
breytt og fögur hún er.
Frú Björg Einarsdóttir,
ekkja séra Hjörleifs Einarssonar frá
Undirfelli, verður 90 ára á morgun.
Dvelur hún nú hér i Reykjavík hjá
Guðlaugu dóttur sinni og manni henn-
ár, Sigurði Kristinssyni forstjóra.
Ensku blaffamennirnir,
sem eru hér á vegum herstjórnar-
innar, fóru í morgun í viku ferðalag til
Norður- og Austurlands. í för með
þeim eru fimm menn frá blöðunum
hér og útvarpinu, Sigfús Halldórs frá
Höfnum (Tíminn), ívar Guðmundsson
(Morgunblaðið), Benedikt S. Gröndal
(Alþýðublaðið), Hersteinn Pálsson
(Vísir) og Thorolf Smith (Rikisútvarp-
ið). í gær var ensku blaðamönnunum
haldið samsæti á Hótel Borg, þar sem
mættir voru blaðamenn, ráðherrar, for-
menn þingflokkanna, borgarstjóri og
fleiri gestir. Daginn áður hafði enski
sendiherrann haft boð íyrir íslenzka
blaðamenn og ensku blaðamennina.
Furffuleg bíræfni.
í gær var framin þjófnaður í verzl-
un Halldórs Þórarinssonar á Vestur-
götu 17. Brotizt var inn í ski-ifstofu
bak við verzlunina og tók þjófurinn á
brott með sér 4000 krónur í peningum
og 15—20 dollara. Blaðið átti tal við
sakamáladómara í morgun og hafði
þá ekki tekizt að hafa upp á þjófnum.
Yfirleitt þarf fólk að hafa strangar
gætur á fjármunum sínum á hvaða
tíma sem er.
Aðalfundur Leikfél. Reykjavíkur
var haldinn þann 8. þ. m. í stjórn
félagsins fyrir komandi starfsár hlutu
kosningu: Valur Gíslason formaður,
Brynjólfur Jóhannesson ritari og Hall-
grímur Bachmann gjaldkeri. í vara-
stjórn voru kosin: Alfred Andrésson,
Arndís Bjömsdóttir og Emilía Borg.
Til að vera í ráðum með stjórninni um
leikritaval voru kosnir þeir Gestur
Pálsson og Ævar R. Kvaran. Síðast-
líðið leikár var yfirleitt hagstætt fyrir
félagið. Fjárhagsafkoma var mjög góð
og leiksýningar félagsins þóttu takast
yfirleitt vel. — Alls hafði félagið 47
sýningar; eru það mun færri sýningar
en undanfarin ár. Stafaði það, að
mestu leyti, af því að samvinna tókst
milli Leikfélagsins og Tónlistarfélags-
ins um sýningu óperettunnar Nitouche,
eins og kunnugt er. Voru alls hafðar
40 sýningar á Nitouche í Reykjavík, og
auk þess farin leikför til Norðurlands-
ins í sumar og þar leikið 8 sinnum. Á
leikárinu bættust í leikendahóp félags-
ins 2 ágætir starfskraftar, þau frú
Regína Þórðardóttir og Lárus Pálsson.
Starfssemi félagsins í vetur mun að
öllu forfallalausu, hefjast með sýningu
á mjög eftirtektarverðu leikriti eftir
amerískan höfund, sem heitir Robert
Adrey. Hafði imdirbúningur að þeirri
leiksýningu verið hafin á s. 1. leikári
og æfingar að nokkru leyti verið byrj-
aðar. Leikstjóri mun verða Lárus Páls-
son.
Hjálparsveitir trygg-ffar.
Ákveðið hefir verið að ríkissjóður og
bæjarsjóður Reykjavíkur taki að sér
að sjá um að hjálparsveitir loftvarna-
nefndar verði framvegis tryggðar gegn
líftjóni eða slysum, ef til árása kemur
á bæinn. Hafa að undanförnu gengið
bréfaskriftir um þessi mál, milli ríkis-
stjómarinnar og bæjarstjórnar ann-
arsvegar, en loftvarnamefndar hins-
vegar og samþykktu bæjarsjóður og
ríkissjóður að sjá um þessa trygglngu.
Sæsíminn bilar.
Þau tíðindi gerðust síðastl. mánu-
dagskvöld, að sæsíminn til íslands,
slitnaði rétt við Færeyjar. Árin fyrir
strlðið, voru miklar botnvörpuveiðar á
þessum slóðum og olli það tíðum slitum
á simaþræðinum. En síðan styrjöldin
brauzt út hefir síminn aldrei bilað þar
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. síðu)
verjum orðið nokkuð ágengt, en
mannfall Rúmena við Odessa
er orðið mjög mikið.
Churchill flutti ræðu síðastl.
þriðjudag í brezka þinginu.
Gaf hann yfirlit yfir styrjöld-
ina. Hann sagði m. a., að skipa-
tjón Bandamanna í júlí og ágúst
hefði verið þriðjungi minna en
skipatjón öxulríkjanna, sem
hefðu misst 17 herskip og 105
kaupskip. Hann lofaði mjög
framgöngu Rússa og sagði, að
mannfall Þjóðverja væri orðið
meira í Rússlandsstyrjöldinni
en nokkru sinni á einu ári í
seinustu heimsstyrjöld. Vetrar-
styrjöld í Rússlandi myndi
verða Þjóðverjum mjög erfið.
Hann hét Rússum fyllstu að-
stoð Breta og Bandaríkja-
manna. Hann sagði, að í hin-
um nálægari Austurlöndum, þ.
e. löndunum við Miðjarðarhaf,
hefðu Bretar nú 750 þús. manna
her I stað 80—100 þús. fyrir
ári síðan. Auk þess hefðu þeir
þar nú stærri flugher en
heimaflugher Breta var í byrj-
un styrjaldarinnar. Hann sagði,
að Atlantshafsorústan hefði
gengið Bretum í hag að undan-
förnu, en hættan væri enn
mikil og Þjóðverjar ættu nú
fleiri kafbáta en nokkru sinni
fyrr.
í London hefir verið tilkynnt,
að Bretar ætluðu að láta Rússa
fá flugvélar svo hundruðum
skipti og væru margar þeirra
þegar komnar til ákvörðunar-
staðarins. Er talið, að þær hafi
flogið frá Bretlandi.
Molotoff flutti ræðu 1 gær,
þar sem hann ásakaði Búlgara
fyrir fjandskap við Sovétríkin.
Sagði hann að Þjóðverjar væru
að undirbúa í Búlgaríu árás á
Krímskagann.
Amerísku flutningaskipi, Steel
Seafarer, hefir verið sökkt á
Rauðahafi. Áhöfninni var
bjargað. Skipið sigldi undir
Bandaríkjafána. Atburður þessi
hefir vakið mikla gremju 1
Bandaríkjunum, en Þjóðverjar
segja, áð öxulríkin hafi lýst
Rauðahafið hætusvæði.
Sjóorusta var háð fyrir
nokkru við Norður-Noreg. Bresk
herskip réðust á þýzka kaup-
skipalest. Lítið beitiskip, 1500
smál., réðist gegn brezku her-
skipunum og tókst þeim að
sökkva því, ásamt tundurspilli,
togara og einu öðru skipi. Hin
komust undan meðan sjóorust-
an stóð yfir.
Iranstjórn hefir nú lokið
samningum við Breta og Rússa.
Ræðismannaskrifstofum öxul-
ríkjanna verður lokað, allir
Þjóðverjar og ítalir handsam-
aðir og Bandamenn fá að flytja
hergögn um landið til Rúss-
lands.
til nú. Það er ýmsum getum að því
leitt hvað muni valda þessari símabil-
un, en að sjálfsögðu veit enginn um
það mál með neinni vissu. Fregnir
hrema að hemaðaraðgerðir hafi átt
sér stað fyrir skömmu síðan á þessu
svæði, meðal annars að skipi hafi verið
sökkt. Er leitt getum að þvl að það at-
vik eigi þátt í bilun sæsímans.
Á víðavangl.
(Framh. af 1. siðu)
hans út í útgáfu, sem kostaði
40—50 krónur á ári og standa
yíir í mörg ár. Þá voru Stalin
og Hitler í bandalagi. Þótti því
nazistum og kommúnistum á ís-
landi sem þeim tilheyrði að
vera í flatsæng um málefni hér
á landi. Töldu þeir vænlegt
verkefni að standa að útgáfu á
verkum Gunnars, og tókst að
gera sig þar mjög áberandi. —
Heitið var á Austfirðinga að
standa með. Myndi allur þorri
Múlsýslunga hafa viljað gera
Gunnari Gunnarssyni sæmd og
greiða, en margir betri menn
drógu sig í hlé, er þeir sáu hina
rauðu og brúnu bandamenn.
Kommúnistar vildu setja sitt
mark á útgáfuna, og skyldi
Laxnes þýða úr dönsku. En er
kom til framkvæmda, gekk allt á
tréfójnm, og batnaði sízt eftir að
Hitler brá hælkróki á félaga Sta-
lin.Gunnari mun þykja mál Lax-
ness, eins og það kemur fram í
þýðingunni á „Vopnin kvödd“,
ekki sem ánægjulegast. Heim-
spekisleg ræða, sem Gunnar
hélt í útvarpinu, dró úr vin-
sældum hans. Verðið, 40—50
kr. á ári, þykir nokkuð hátt.
Allt þetta tefur útgáfuna og
sést hvorki á haus eða klaufir
enn. Hins vegar hefir Þorsteinn
M. Jónsson gefið út skáldsögu
Davíðs Stefánssonar við meira
gengi, heldur en nokkur önnur
íslenzk skáldsaga hefir fengið.
Bókaútgáfa Menn-
ingarsj. og Þjóðv.fcl.
(Framh. af 1. siöu)
ævisögu Jóns Ólafssonar
bankastjóra eftir Þorstein Þor-
steinsson sýslumann, ennfrem-
ur ritgerðir um sjálfstæðismál-
ið eftir Bjarna Benediktsson
borgarstjóra, um Baldvin Ein-
arsson eftir Björn Guðfinnsson,
um kommúnistana í Frakklandi
eftir Jónas Jónsson, og margt
fleira.
Tvær fyrstu bækurnar eru
komnar út, og geta þeir, sem
óska, fengið þær innbundnar.
Bandið kostar kr. 2,50 á hvorri
bók. Verða síðari úrvalsritin
bundin í sams konar band og
þetta fyrsta bindi.
Bækurnar hafa þegar verið
sendar til umboðsmanna um
land allt.
Afgreiðslan fyrir Reykjavík
er í anddyri Landsbókasafnsins,
opið kl. 1—7, og í Hafnarfirði í
verzlun Valdimars Long.
Menn eru beðnir að greiða
árgjald sitt, sem er aðeins 10
kr., um leið og þeir vitja fyrstu
bókanna.
Skrifstofa útgáfunnar er við
Hverfisgötu 21, á efri hæð, sími
3652.
Samnmgamir
um kolin
(Framh. af 1. siðu)
því, að við gætum fengið þau
keypt og er von um að þeir
samningar takist.
— Hvað er að frétta að öðru
leyti um samningana við Bret-
land og Bandaríkin? —
— Á þessu stigi er ekki hægt
að segja neitt nánar um önnur
atriði, sem verið er að semja
um við Breta, eða um samn-
ingana við Bandaríkin. En von-
andi verður þess ekki langt að
bíða.
Það er vitanlega talsverð úr-
lausn að fá 90 þús. smál. af
kolum frá Bretlandi, en slíkt
er þó hvergi nærri fullnægj-
andi, einkum ef truflanir verða
á siglingum togaranna. Kol frá
Bandaríkjunum komin á ís-
lenzka höfn eru vitanlega miklu
dýrari en ensku kolin. Myndi
það því geta haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir okkur, ef við
þyrftum að fá mikið af kolum
þaðan, nema því aðeins, að
Bretar verði við þeirri kröfu, að
sjá til þess að þau verði okkur
ekki dýrari. Virðist það sann-
girniskrafa, þegar tekið er til-
lit til loforða þeirra um hag-
kvæm viðskipti og að okkur
skuli séð fyrir helztu nauðsynj-
um.
Kfireiuar
léreftstnsknr
kanpir
Prentemlðjan Edda
170 • Vicfor Hugo:
Við töldum það sönnun þess, að hún
værí dáin, að hún skyldi hafa glatað
krossinum. Samt er það fólk til, sem
telur sig hafa séð hana ganga berfætta
á hörðum steinum vegarins, er liggur
til Parísar. En þá hlýtur hún að hafa
lagt leið sína um Veslehliðið, og það
kemur ekki heim við hinar fyrr gefnu
upplýsingar. Þó er mér næst að halda,
að hún hafi gengið út um Veslehliðið
og þá jafnframt út úr heimi þessum.
— Ég skil ekki, við hvað þér eigið,
mælti Gervaisa.
— Vesla, svaraði Majetta og brosti
hrygg í huga. — Það er nafnið á fljót-
inu.
— Vesalings Chautefleurí, mælti Ov-
durda, og hrollur fór um hana. — Hefir
hún drukknað?
— Það virðast allar líkur hníga að
því, að hún hafi drukknað, hélt Majetta
áfram máli sínu. Sízt myndi faðir Gug-
bertant hafa trúað því, er hann sigldi
bátl sínum undir Tinqueuxbrúna með
söng á vörum, að hún kæra, litla Pak-
vetta myndi berast látin með elfar-
straumnum undir þessa sömu brú.
— En hvað varð um skóinn, sem
barnið hafði átt?
— Hann var einnig horfinn. Pak-
vetta hafði haft hann á braut með sér,
svaraði Majetta.
Esmeralda 171
— Vesalings skórinn! mælti Ov-
darda.
Ovdarda var digurvaxin og tilfininga-
næm kona. Henni var skapi næst að
bresta í grát, eins og Majetta. En Ger-
vaisa, sem var forvitnust þeirra allra,
hafði enn ekki komið öllum spurning-
um sínum á framfæri.
— En vanskapningurinn? spurði hún
Majetta skyndilega.
— Hvaða vanskapnlngur?
— Vanskapaða Tatarabarnið, sem
galdrakvendið hafði skilið eftir. Hvað
var gert af því. Því hefir vonandi ver-
ið drekkt?
— Neí, svaraði Majetfa.
— Nú, hvers vegna ekki. Var það þá
brennt? Raunar hefði það verið öllu
réttara, þar sem hér átti barn galdra-
kvendis í hlut.
— Nei, ekkert þetta var gert, Gerva-
isa. — Öðru nær. Hinn æruverðugi erki-
biskup tók Tatarabarnið, blessaði yfir
því og rak djöfulinn út úr því. Því næst
sendi hann það til Parísar til þess að
það yrði lagt sem óskilabarn á tré-
bekkinn í Frúarkirkjunni.
— Æ, þessir biskupar, tautaði Ger-
vaise fyrir munni sér. — Af því að þeir
eru lærðir gera þeir ekkert, eins og
annað fólk. Ég spyr yður bara í fyllstu
alvöru, Ovdarda. Hvað finnst yður um
---GAMLA BÍÓ------
Ærsladrósín
„Paris Honeymoon“
Aðalhlutv. leika:
BING CROSBY,
FRANCISKA GAAL,
AKIN TAMIROFF
Og
SHIRLEY ROSS.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
■NÝJA BÍÓ
Frægðarbrautin
(ROAD TO GLORY).
Amerísk stórmynd, er
gerist á vígvöllunum í
Frakklandi 1914—’18.
Aðalhlutv. leika:
FREDRIC MARCH,
WARNER BAXTER,
LIONEL BARRYMORE,
JUNE LANG.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn fá ekki affgang.
FJÖLBREYTl' ÚRVAL AF
-->Á+4 f
SKIOM
NÉKOMIÐ.
ENNFREMUR
vinnuskórnir
meff gúmmísólunum — allar stærffir.
GEFJUX — IÐIJM
Aðalstræti.
NÝTT ÚRVAL KOMIÐ AF
Dr eng j aiat aef num
Bandí, Lopa og
Garní.
GEFJUN — IÐUM
Aðalstræti.
T\otið beztu og vönduðustu sápuna!
- ISÍotið SÆVON de PARIS -
Barnaleikföng
Bílar, Flugvélar, Skriffdrekar, Mótorhjól, Járnbrautir, Sparibyss-
ur, Berjadósir, Dúkkur, Endur, Svanir úr celloid, Meccano,
Blöffrur á 25 aura o. fl. nýkomið.
K. Elnarsson & Björnsson
Bankastræti 11.
Kaupum falleg
KÓPASKIM
OG
LAMBSKIM
HÆSTA VERÐI.
MAGNI H.F.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
er á Lindargötu 9 A
Framsóknarmenn! Muniff aff
koma á flokksskrifstofuna á
Lindargötu 9A.
Anglýsið í Tímanum!