Tíminn - 26.09.1941, Side 3
95. blað
TÍMIM, föstndagiim 26. sept. 1941
379
B Æ K U R
Theodór Arnbjörnsson:
Sagnir úr Húnaþingi.
Útgefandi ísafoldar-
prentsmiðja, Rvík 1941.
Bls. 133. Verð kr. 12.00.
Theodór Arnbjörnsson, ráðu-
nautur Búnaðarfélags íslands,
var um flesta hluti óvenjulegur
maöur. Ég kynntist honum lít-
ilsháttar á siðustu árum hans
og hafði hann þá lengi kennt
vanheilsu þeirrar, er dró hann
skömmu síðar til dauða, langt
fyrir aldur fram. Mér var ó-
kunnugt um hagi hans áður og
satt að segja vissi ég ekki fyrr
en síðar, hvernig ástatt var um
hann, kom ekki til hugar, að
þessi glaðværi maður byggi yfir
svo þungri raun að vita það, að
heilsan var þrotin með öllu og
dagarnir taldir. Svo æðrulaust
karlmenni í sjón og raun hefi
ég tæplega þekkt fyrr né siðar.
Það veit ég nú. En hitt var mér
strax ljóst, að maðurinn bjó
yfir miklum fróðleik, var gjör-
hugull og stálminnugur, ágæt-
lega orðfær og sagði vel og
skemmtilega frá, hafði líka
gaman af slíku. Hann var að
upplagi vísindamaður og rit-
höfundur, en gerðist bóndi að
loknu stuttu búnaðarnámi, mun
ekki hafa átt annars völ., enda
óvíst, að hugur hans hafi stefnt
annað. Hann var dýravinur mik-
ill, hafði mikinn áhuga á kvik-
f j árrækt, einkum hrossarækt,
og hafði um þessi efni aflað sér
reynslu og þekkingu í óvenju-
lega ríkum mæli, svo að honum
reyndist auðvelt, með lítilshátt-
ar undirbúningi, að takast á
hendur ráðunautsstarf um
þessi efni fyrir Búnaðarfélag
íslands, er hann var til þess
kvaddur frá búi sínu, og fórust
honum þau störf ágætlega úr
hendi. Rækti hann þau af
miklum dugnaði, en vanheilsa
hamlaði honum þó frá miklum
ferðalögum hin síðari ár. Var
þetta afar erfitt starf og þreyt-
andi í byrjun, en honum tókst
að koma drjúgu verki til leiðar,
þrátt .fyrir allt, með persónu-
legum áhrifum sínum á ein-
staka menn, með ritum sínum
og beinum og óbeinum áhrifum
sem hann hafði á lagasetningu
um búfjárræktina. Bók hans
um hestana ber þess vott, að
hún er ekki rituð af venjuleg-
um búfræðikandidat, sem á í
bágindum með að koma
kennslubóka fróðleik á nokkurn
veginn skiljanlegt mál. Hún
ber vott um manninn allan
eins og hann var og vildi vera.
Hjá því gat heldur ekki farið,
svo góð sem honum þóttu
hrossin, meðan hann var hér í
heimi, eins og sagt var um Jón
biskup Ögmundsson. Þá bók
»■
ætti hver maður að lesa vand-
lega, sem hest hefir undir
höndum, svo vel er hún samin,
af svo góðum lærdómi, per-
sónulegri reynslu og athugun,
góðvild og mannviti.
í þáttum Theodórs, sem hér
er í bók safnað, kemur fram
ný hlið í fari hans, sem þeim
var að vísu kunnug, er vel
þekktu hann, en öðrum mátti
lengi sjást yfir. Hann var afar-
glöggur mannþekkjari, kunni
mjög mikið af ýmiskonar fróð-
leik og sögum um menn, er
honum þótti eftirtektarverðir.
Kom honum þar vel að haldi
gerhygli hans og minni. Sögu-
þættir hans um Þingeyrafeðga
og Katadalsfólkið, sem hér eru
prentaðir, munu vera það eina,
sem hann skráði af slíkum
fróðleik, og það er áreiðanlega
brot eitt af því, sem hann
kunni og var til tækt. Var það
mikill skaði fyrir húnvetnsk
fræði, að Theodórs missti svo
snemma við, því að hann var
gjörfróður um menn og hagi
þar í héraði á síðustu öld eink-
' um og lagið að skýra frá öllu
j slíku. Tjáir reyndar ekki um
það að sakast. Er vel farið, að
því, sem hann ritaði þó um þessi
efni, er nú safnað í eina heild.
Hér skal ekki um þætti þessa
dæmt að öðru leyti. En hver
vill nú verða til þess að rita
sögu Jóns á Þingeyrum, þessa
mikla atgerfis manns? Þætt-
irnir sýna okkur aðeins svip-
myndir af honum en nóg til
þess, að við vildum vita miklu
meira um hann. Það er meira
af örlögum íslendingsins í sögu
þessa manns, ef ég skildi hann
rétt, en hundrað annarra, sem
betur hefir tekizt að verja mikl-
um auð og góðum hæfileikum
sjálfum sér til svo kallaðra
mannvirðinga og borgaralegs
gengis.
Arnór Sigur j ónsson hef ir
annazt útgáfu bókarinnar og
ritað prýðilegan formáia um
þættina og höfund þeirra. Er
bókin því vel úr garði gerð,
myndum prýdd og að öllu hin
eigulegasta.
Þorkell Jóhannesson.
Vík I Mýrdal.
(Framh. af 2. síðu)
leyti til upphitunar. Rafmagns-
verð þetta mun vera með því
lægsta á landinu. Fyrir þremur
árum var lögð sameiginleg
vatnsveita fyrir kauptúnið, og
var þess hin mesta þörf.
í sumar hefir verið næg at-
vinna í Vík á vegum brezka
setuliðsins. Vegnar því Víkur-
búum vel eins og er. Þegar sú
vinna er úti,. má búast við að
sæki í sama horfið aftur, um
atvinnuleysi. Sýnist þá sá einn
kostur vera fyrir hendi, að
Víkurbúar snúi sér að jarð-
lítið. Sól sér ekki mánuðum
saman. Út eftir firðinum eygir
langt. Þarna ríkir nú í hárri elli
einhver mesti þingskörungur í
bændastétt á þessari öld,
Sveinn í Firði. Enda þótt
hann sé nú á 79. árinu og sjón
og heyrn farið að förla, fylgist
hánn enn með þeim atburðum,
sem nú gerast, innlendum sem
útlendum, af lifandi áhuga.
Ég hitti Svein um það leyti,
sem Alþingi var að samþykkja
vernd Bandaríkjanna. Og þótt
honum þætti engin ráð væn-
legri, eins og málum var þá
komið, varð honum hugsað til
1918, þegar allir þingmenn og
aðrir landsmenn treystu því, að
hlutleysið væri sterkasta vörn
þjóðarinnar og bægði hættum
hernaðarins í burtu. Á skömm-
um tíma hefði hlutleysið, víg-
orð smáþjóðanna, orðið að
steindauðum bókstaf. Sveinn í
Firði er fróður og minnugur og
kann frá mörgu að segja. Á
yngri árum var hann við nám
á Eiðsvelli í Noregi. Þar kynnt-
ist hann Björnson, er þá var í
blóma lífsins. Seinna kynntist
hann ýmsum norskum atvinnu-
rekendum, og rak einn þeirra
um skeið hvalastöð í Firði.
Sveinn í Firði er kjarnyrtur
og vandar málfar sitt með af-
brigðum. Framsetningin er skýr
og rómurinn karlmannlegur.
Mörg hnyttin og gáfuleg til-
svör hans eru landskunn, eins
og „lýgin verður ekki að sann-
leika, þótt hún sé ljósmynduð“
eða að verkalýðspólitík íhalds-
ins væri ekkert annað en
„gymnastik".
Nafn Sveins í Firði hefir
gert þessa afskekktu og ein-
angruðu byggð kunna og mun
svo verða um langan aldur.
Þar hefir hann starfað með
skörungsskap allt sitt líf og
bundizt þeim átthagaböndum,
sem dauðinn einn fær slitið.
Hátt uppi í brekku fyrir micfi-
um Mjóafirði að norðan stend-
ur öndvegisbýlið Brekka. Sér
þaðan nálega um allan fjörð-
inn.
Þar hefir um langan tíma og
í marga ættliði í beinan karl-
legg búið sama ættin, Hjálmar
og Vilhjálmur á víxl. Nú eru
þar þrír ættliðir: Hjálmar,
Vilhjálmur og Hjálmar, og því
síður en svo, að nokkur dauða-
mörk séu á ættinni.
Bændurnir á Brekku hafa
hver fram af öðrum, bætt og
fegrað jörðina við hin erfiðustu
skilyrði, svo að hún er nú orðin
ein hin snotrasta í sveit á ís-
landi. Umgengni öll ber ein-
kenni smekkvísi og snyrti-
mennsku, hvar sem á er litið,
bæði úti og inni. Húsakynni eru
reisuleg. Rafmagn notað til
ljósa, suðu og hitunar. Sunnan
við húsið kemur fagur trjá-
garður og síðan viðlendir mat-
jurtagarðar. Eru þar ræktaðar
margar tegundir grænmetis með
ágætum árangri. Þann 9. júli
sýndi húsfreyjan mér kartöflu,
sem var á stærð við lítið út-
sæði. Þætti mér trúlegt, að þær
hefðu margar verið blómlegar
í haust. Túnið er stórt og fal-
legt og er það ræktað úr mjög
hrjóstrugri jörð Víða er landið
snarbratt, svo vegfarandinn
Hið íslenzka fornritafélag.
S.XOBIU STIRLUSOIV:
| Heimskringla I.
með 8 myndum og 4 uppdráttum.
Bjami Aðalbjarnarson yaf út.
Er komin út.
Verð heft kr. 13,50. Verð í skinnbandi kr. 26,00.
Fœst hjá bóhsiilum.
Bókaverzlun
SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR.
I
P A L
rœstiduft
er fyrir nokkru komið á
markaðinn og hefir þegar
hlotið hið mesta lofsorð, enda
vel til þess vandað á allan
hátt. Opal ræstiduft hefir
alla þá kosti, er ræstiduft
þarf að hafa, — það hreinsar
án þess að rispa, er mjög
drjúgt, og er nothæft á allar
tegundír búsáhalda og eld-
húsáhalda.
Notið
O P A L
rœstiduft
ræktinni, því að hún virðist
eins og sakir standa, vera eina
varanlega atvinnuúrræði þeirra
til uppbótar þeirri daglauna-
vinnu, sem til fellur í kauptún-
inu ög í grennd við það.Því mið-
ur eru allmiklir örðugleikar á
framkvæmd ræktunarmálanna
vegna fjarlægðar ræktunar-
landsins við kauptúnið, svo
sem fyrr er skýrt frá.
Að lokum get ég ekki stillt
undrast hvað þar er hægt að
hjálpa skaparanum. Við rækt-
unina hefir fiskúrgangur verið
mjög notaður, en útgerð hefir
verið um langan aldur frá
Brekku og næstu bæjum. er
mynda smá þorp, sem nefnt er
Brekkuþorpið. Og raunar
stunda flestir Mjófirðingar
sjóróðra eitthvað með búskapn-
um. Verzlun sína sækja þeir
að mestu til kaupfélagsins á
Seyðisfirði.
Úr Mjóafirði fór ég landveg
til Norðfjarðar. Er þá farið
Drangaskarð, sem er um 900
m. yfir sjávarmál. Lagt er upp
frá Krossi í Mjóafirði. Vil-
hjálmur á Brekku var enn
fylgdarmaður minn og nú hafði
þokuskömmin skyndilega læðst
inn með fjöllunum, svo aðeins
varð séð fáa faðma frá sér. En
síminn vísar leiðina, þar til
efst í fjallinu, að jarðsíminn
tekur við. Reyndi þá á áttvísi
Vilhjálms, sem brást ekki
fremur en áður. Gein hið hrika-
lega Drangaskarð við okkur fyr
en varði, eins og ljómandi
musterisdyr. Svarta þoka var
upp á eggjar að norðan, en að
sunnan flaut sólskinið ofan á
grárri þokunni. Sunnan Norð-
fjarðar stóðu dimmbláir tind-
arnir upp úr henni. Gegnum
þokuna heyrðist vélaskrölt
fiskibátanna og öskur kúnna í
högunum.
Ég skildi við Vilhjálni í hinu
örmjóa skarði og stakk mér
ofan í þokuna, sem náði niður
undir byggð. Brattinn var
mikill, engar götur en trölls-
(Framh. á 4. siSu)
mig um að segja frá ofurlitlu
atviki, sem gerðist, meðan ég
var staddur í Vík, sem sýnir af-
stöðu kvenfólksins þar til
breteka setuliðsins. Laugardags-
kvöldið 13. þ. m. var auglýstur
dansleikur í Vík og var öllum
heimill aðgangur. Þessi dans-
leikur fórst fyrir, af því að eng-
in stúlka mætti þar, og mun
ástæðan fyrir því hafa verið sú,
að stúlkurnar í Vík vildu ekki
taka þátt í dansleik, þar sem
margt kynni að verða erlendra
hermanna. Vel færi á því, ef
kynsystur Víkurkvennanna víðs
vegar um landið, vildu taka
þessa afstöðu þeirra til her-
liðsins til athugunar — og
eftirbreytni.
Hjartanlega pökkum við sveitungum okkar og
öðrum vinum fyrir heimsókn, myndarlegar gjafir,
blóm, skeyti og aöra vináttu okkar auðsýnda á
sextugsafmœlinu. — Guö blessi ykkur öll.
Ingibjörg Þorvaldsdóttir. Friðrik Arnbjamarson.
Stóra Ósi.
Tilkynning
Srá ríkísstjórmxmi.
Samkvæmt ósk brezku hernaðaryfirvaldanna tilkynn-
ist hér með, að ferðaskírteini skipa 10—15 smálestir, sem
um ræðir í tilkynningu ríkisstjórnarinnar, dags. 7. marz
og 5. september 1941, verða afgreidd sem hér segir:
í Reykjavík: hjá brezka aðalkonsúlnum.
Á Akureyri: hjá brezka vice-konsúlnum.
Á Seyðisfirði: hjá brezku flotastjórninni.
í Vestmannaeyjum: hjá brezku hernaðaryfirvöldunum.
Atvinim- og samgöngumálaráðiincytlSIÍ,
23. september 1941.
S A V O N
varðveita hörund yðar
— gera það mjúkt og
heilbrigt og verja það
öllum kvillum. SAVON de PARIS
er mjúk sem rjómi og hefir
yndislegan hressandi rósailm. —
Notið bextu og vönduðustu sápuna!
- Notið SAVON de PARIS -
♦ ÚTBREIÐIÐ TÍMANN ♦
188
Victor Hugo:
Esmeralda
185
auknu afli, ekki heiftarreiði böðulsins,
ekki þytur svipuólarinnar.
Loks ýtti svartklæddur réttarþjónn,
er sat á brúnum hesti rétt við gapa-
stokkinn, við stundaglasinu með íben-
viðarstaf, sem hann hafði í hendi. Böð-
ullinn linnti barsmíðinni og hjólið
hætti að snúast. Kvasimodo opnaði
augun seinlega.
Húðstrýkingunni var lokið. Tveir
þjónustumenn hins eiðsvarna böðuls
þvoðu blóðið af baki mannsins og drápu
á það smyrslum. Síðan lögðu þeir gamla
hempu yfir herðar hans. En Pétur Tor-
terne hristi blóðið af svipu sinni.
En Kvasimodo var samt ekki slopp-.
inn. Hann átti enn eftir að vera eina
klukkustund í gapastokknum. Það var
álag Flóríans Barbedienne á hegningu
þá, sem Róberts d’Estouteville yfirdóm-
ari ákvaö honum.
Því var stundaglasinu snúið við og
krypplingurinn bundið á hjólið að
nýju; réttlætinu varð eigi fullnægt á
annan veg.
Á miðöldunum var múgnum líkt far-
ið innan þjóðfélagsins og barninu í
fjölskyldunni. Og svo lengi sem hann
verður á því stigi að vera ómyndugur
í siðferðilegum og menningarlegum
efnum mun honum eins farið og óvitan-
daufdumbur, en menn héldu, að hann
hefði þó sjón.
Hann var látinn knékrjúpa á hjólið;
hann gerði það mótþróalaust. Síðan
var hann flettur klæðum; hann var
hinn rólegasti. Hann var hlekkjaður
og lagður á hann fjötur; hann lét
binda sig og reyra án mótspyrnu. Að-
eins einu sinni rak hann upp hljóð,
líkast því, sem korraði í hálsskornum
kálfi.
— Þessi þrjótur, sagði Jóhann Frolló
við Róbert Poursepain, því að vitanlega
voru þeir viðstaddir, hann veit ekki
hvað um er að vera.
Allir ráku upp skellihlátur, þegar
þeir sáu nakta hryggkúpuna á Kvasi-
modo, úlfaldabringuna, sem á honum
var, og loðnar axlir.
Mitt í allri þessari glaðværð steig
réttarþjónn í konunglegum einkennis-
búningi, sterklegur og þéttvaxinn mað-
ur, upp á steinþrepið og settist við
hliðina á afbrotamanninum. Nafn hans
var hvíslað frá manni til manns. Þetta
vár Pétur Torterne, eiðsvarinn böðull
við yfirdóminn. Hann lét svart stunda-
glas við gapastokkinn; efri hluti þess
var fylltur rauðum sandi, er hrundi
niður í neðri helminginn. Síðan fór
hann úr yfirhöfn sinni og tók litla
svipu með langri ól sér í hægri hönd.