Tíminn - 13.12.1941, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÓSI, Llndargötu 9 A.
Símar 2353 og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚ8I, Llndargötu 9 A.
Siml 2323.
PRENTSMIÐJAN KDDA hJ.
Símar 3948 og 3720.
25. ár
Reykjavík, laugardagmn 13. des. 1941
129. blað
Hversvegna revnir ekki stjórnin
að framkvæma „frjálsu leiiina"?
Misheppnuð til-
raun til að verða
pjóðhetja
Menn munu enn minnast
þess mikla auglýsingaskrums,
sem Gísli Jónsson vélstjóri
þyrlaði upp í íhaldsblöðunum,
þegar hann kom frá Danmörku
um hásumarið í fyrra á góðu
og traustu skipi og naut leyfis
Þjóðverja til að fara frjáls ferða
sinna. Gísli ætlaðist auðsjáan-
lega til þess, að hann yrði dýrk-
aður sem þjóðhetja íyrir þetta
og ætti þvi orðið vissa kosn-
ingu í Barðastrandarsýslu!
Hér í blaðinu var strax á það
bent, að ferðalag dísla væri
næsta smávaxið í samanburöi
við siglingar íslenzkra sjó-
manna til Bretlands um hávet-
urinn á meira og minna lélegri
skipum en Frekjunni og eiga
stöðugt yfir höfði sér hin ægi-
legu drápstæki Þjóðverja.
Þegar íhaldsblöðunum hafði
verið bent á þetta, sáu þau, að
þetta ferðalag gæti aldrei gert
Gísla að afreksmanni og þjóð-
hetju og þótti gott, ef hægt
væri að láta málið falla niður,
svo að Gísli yrði ekki að meira
athlægi fyrir skrum sitt. Hættu
þau því að skrifa um ferðalag-
ið og hafa vandlega gætt þess
að minnast ekki á það síðan.
En Gísli, sem hafði verið að-
(Framh.. á 4. síðui
Atvínmimálaráðh. og
símastúlkan
Árni frá Múla býr til þá sögu
í Vísi í gær, að maður, sem
sagði upp starfi sínu hjá Mjólk-
ursamsölunni, hafi verið rek-
inn þaðan vegna þess, að hann
hafi gefið Ólafi Thors upplýs-
ingar um rekstur fyrirtækisins.
Virðist Árni nú kominn á sama
stig og I Amerikuförinni, þar
sem hann telur, að þeir menn
séu reknir, er sjálfir segja stöðu
sinni lausri.
En fyrst Árni er farinn að
minnast á atvinnumálaráð-
herra í sambandi við ofstopa
og uppsagnir, þykir rétt að
segja smásögu, sem gerðist
vestur á Snæfellsnesi síðastlið-
ið sumar. Ólafur Thors hélt þá
til í „villum“ Jensenssona við
Haffjarðará. Eru Jensenssynir
oft freklr í símanotkun sinni,
þegar þeir eru þar vestra, og
hafa lítt skilning á því, að
fleiri þurfa að nota símann en
þeir. Eitt sinn hafði Ólafur tal-
að í simann mjög langan tima,
en óvenjulega margt manna
beið eftir áriðandi samtölum.
Það er vitanlega hlutverk
símastúlkna að koma í veg fyrir
að einstakir menn geti hindrað
afnot almennings af simanum
með miklu málæði, og greip því
ein símastúlkan inn i samtal
Ólafs og spurði kurteislega,'
hvort þvi væri ekki lokið. Ólaf-
ur brást hið versta víð og lét
sem hann einn hefði rétt til
símans. Þótti honum stúlkan
hafa móðgað sig svo gífurlega
með því að álíta hann ekki
langtum rétthærri til símans en
Snæfellinga, að hann kærði til
landsímastjóra og mun hafa
krafizt þess að stúlkan yrði
rekin.
Sú krafa var vitanlega ekki
tekin til greina, þvl að stúlka
þessi er viðurkennd fyrir kur-
teisi, reglusemi og dugnað í
starfi sinu.
Hversvegna semja ekki Olaíur Thors og
Stefán Jáhann við verkalýðsfélögin og
verðlagsnefndirnar
Bráðabirgðalög um eítirlit
með unglingum
Klelmilað er að úrskurða unglinga, sem komn-
ir ern á glapstigu, til dvalar á betrunarhæli
og að banna unglingum að vinna við störf, sem
geta skaðað siðfcrði þeirra.
Síðan dýrtíðarfrv. Fram-
sóknarflokksins var flutt,
hefir vísitalan hækkað um
þrjú stig og mun áreiðan-
lega hækka um mörg stig í
næsta mánuði. Þannig mun
dýrtíðin halda áfram að
aukast, ef ekkert verður
gert af hálfu hins opinbera
til að stöðva hana.
Þegar Framsóknarflokkurinn
sá, að lögfestingin yrði ekki
samþykkt og flokkarnir, sem
felldu frv., treystu sér ekki til
að mynda nýja stjórn, er fram-
kvæmdi „frjálsu leiðina", setti
flokkurlnn það skilyrði fyrir
þátttöku í bráðabirgðaráðu-
neyti, „að dýrtíðinni yrði til
næsta þings haldið niðri í
októbervisitölu, með því að
nota heimildir gildandi laga“,
þ. e. að greitt yrði fé úr dýrtíð-
arsjóði til að halda verðlag-
inu niðri. Hinir stjórnarflokk-
arnir „tjáðu sig í meginatriff-
um samþykka þessu, og aff þeir
vildu gera þaff, sem unnt væri í
þessu skyni.‘“
Af hálfu Framsóknarflokks-
ins var að vísu litið á þetta sem
bráðabirgðaúrræði, sem ekki
myndi verða gerlegt til fram-
búðar, ef grunnkaupið hækk-
aði verulega, en myndi þó verða
að talsverðu gagni og gera
næsta Alþingi auðveldara að
taka á málinu, ef það hefði
skilning og áhuga til að gera
nauðsynlegar ráðstafanir.
Þótt alllangur tími sé liðinn
síðan aukaþinginu lauk, hefir
ríkisstjórnin ekkert gert til að
fullnægja þessari kröfu Fram-
sóknarflokksins. Aðalástæðan
er sú, að fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins
hafa enn ekki svarað því, hvað
þeir álíta „að unnt sé“ að gera
í þessum efnum, en Framsókn-
arflokkurinn er enn sem fyrr
reiðubúinn til að gera það víð-
tækar ráðstafanir, að dýrtíð-
inni verði haldið niðri í októ-
bervísitölu.
En jafnhliða því, sem ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins höfðu lofað að
gera það, sem „unnt væri“ í
þessum efnum, höfðu þeir hald-
ið því fram, að ríkisstjórnin
gæti samið um það við verka-
lýðsfélögin og verðlagsnefnd-
irnar, að kaupgjaldið og verð-
lagið væri ekki hækkað. Þessir
samningar, sem ríkisstjórnin
átti að annast, var einmitt að-
alatriði hinnar „frjálsu leiðar.“
Atvinnumálaráðherra hélt þvi
t. d. fram, að með þessum móti
mætti ná sama árangri og með
lögfestingunni.
En þrátt fyrir þessar yfirlýs-
ingar ráðherranna, sem ábyrgð
bera á „frjálsu leiðinni," hefir
ekkert verið reynt, af hálfu rík-
isstjórnarinnar, til að hafa á-
hrif á verkalýðsfélögin og verð-
lagsnefndirnar. Þaff stafar af
þeirri einföldu ástæffu, aff þess-
ir sömu ráffherrar, ráffherrar
Sjálfstæffisflokksins og Alþýffu-
flokksins, hafa ekki ympraff á
því einu orffi, aff ríkisstjórnin
þyrfti eitthvaff aff affhafast í
þessum efnum. Þeir hafa ekki
gert hiff a'lra minnsta til aff
fullnægja þyí, sem þeir töldu
(Framh. á 4. síðu)
Þann 9. þ. m. undlrritaðl rík-
isstjóri íslands bráðabirgðalög
um eftirlit með ungmennum. í
formála þeirra segir, að vegna
ástands þess, sem nú ríkir í
lahdinu, þykir nauðsyn til bera
að sérstakt eftirlit sé haft með
ungmennum innan 20 ára ald-
urs.
Eins og áður hefir verið getið
um hér í blaðinu hefir ríkis-
stjórnin haft lengi í undirbún-
ingi löggjöf vegna þeirra sið-
ferðisvandamála, sem hernám-
ið hefir skapað, og var ætlunin
að leggja það fyrir næsta þing.
En öllum undirbúningi var þá
ekki lokið og hefir frv. því ver-
ið gert nú að bráðabirgðalög-
um.
Samkvæmt lögunum skulu
barnaverndarnefndir og skóla-
nefndir hafa eftirlit með hegð-
un ungmenna innan 20 ára ald-
urs og njóta til þess aðstoðar
löggæzlumanna og kennara.
Verði það uppvíst, að hegðun
einhvers ungmennis sé ábóta-
vant skulu nefndirnar gera for-
eldrum eða lögráðamönnum að-
vart, reyna eftir föngum að
koma því á rétta braut og útvega
því vist á góðu heimili, ef því er
að skipta.
Ef úrræði þessi koma ekki að
haldi eða telja má þau ófram-
kvæmanleg, má beita hæfileg-
um uppeldisráðstöfunum og ör-
yggis, t. d. vistun ungmennis
á góðu heimili, hæli eða skóla.
Vist á slíkum stöðum má koma
í stað refsivistar, ef framferði
ungmennis er refsivert. Veitist
rikíisstjórninni heimild til að
koma upp stofnunum í nefndu
skyni og setja reglugerð um
framkvæmd uppeldis þar.
Kostnaður við vist ungmennis
samkvæmt þessum ráðstöfun-
um greiðist úr ríkissjóði.
Héraðsdómari fer ásamt
A. KROSSGÖTTJM
Öxnadalsheiði ófær. — Kornrækt á Austurlandi. — Höfðingleg gjöf. —
víkingar búa skip sín á vetrarvertíð.
Kefl-
Kristján Kristjánsson, forstjóri bif-
reiðarstöðvar Akureyrar, tjáði blaðinu
þetta f símtali f gær: Siðasta
ferð frá Reykjavfk til Akureyrar var
farin á bifreiðum stöðvarinnar í fyrra-
dag. Öxnadalsheiðin er nú ófær
bifreiðum. Sérstaklega er það kaflinn
frá Bakkaseli að Grjótá, sem er slæm
ur farartálmi. Hann verður alltaf fyrst
ófær á haustin og síðast fær á vorin
á veginum á milli Akureyrar og Rvk.
Daglegar ferðir voru á milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur frá miðjum júní
til 10. nóvember. Frá 10. nóv. til 1. des.
hafa verið 3 ferðir í viku, en frá 1.
des. hafa verið tvær ferðir vikulega.
Hér eftir verður farið tvisvar í viku
úr Borgarnesi til Blönduóss og Skaga-
fjarðar, eftir því sem ástæður leyfa.
Leiðin til Austfjarða er lokuð austan
Húsavíkur, en þangað var íarið i dag.
í sumar var í fyrsta skiptl farið á ein-
um degi á milliReyðarfjarðarog Akur-
eyrar. Gekk yfirleitt mjög vel á þelrri
leið og einnig á suðurleiðinni. Leiðin
frá Akureyri til Reyðarfjarðar myndi
styttast um allt að því 100 km.,
ef brú kæmi á Jökulsá hjá Grímsstöð-
um Með því móti væri hægt að fara
um Mývatnssveit. En eins og nú háttar
verða bifreiðarnar að krækja til Húsa-
víkur, en það er mikill krókur á leið.
/ t t
Edvald B. Malmquist, ráðunautur
Búnaðarsambands Austurlands, er
meðal gesta í bænum. Hann hefir sagt
blaðinu þessi tíðindi úr umdæmi
sínu: Síðan styrjöldin hófst hef-
ir vinna við jarðabætur minnkað all-
mikið í Múlasýslum og Austur-Skafta-
fellssýslu. Þó voru tún aukin á þessu
svæði um 35—40 ha. síðastliðið ár.
Garðrækt eykst stöðugt þrátt fyrir
hörgul á útsæði. í vor sem leið, voru
kartöflur settar niður í 6—7 ha. stærra
land en árið þar á undan. Lítið ber
á sýki í görðum á Austurlandi. Veit
ég ekki til þess, að „myglan" sé þekkt
norðan Fáskrúðsfjarðar. Eru kart-
öflur af svæðinu þar fyrir norðan ein-
hverjar hinar beztu útsæðiskartöflur,
sem völ er á, á landinu. Áhuginn fyrir
kornrækt er mikið að aukast hjá
bændum austanlands. Sú korntegund,
sem aðallega er ræktuð, er bygg. Mun
vera ræktað korn á nær 2 hektörum
lands á sambandssvæðinu. Jón G. Hér-
úlf, bóndi að Hafursá á Fljótsdalshér-
aði ræktar mest af komi af bænd-
um þar eystra. Jafnframt annast hann
tilraunir á þessu sviði fyrir Búnaðar-
samband Austurlands og leggur bænd-
um til sáðkorn eftir því, sem ástæður
leyfa. Það hefir mikla þýðingu fyrir
bændur Austanlands, að tilraunir i
kornrækt séu gerðar þar á fjörðunum,
og á Jón þakklæti skllið fyrir áhuga
sinn í þeim efnum.
/ / /
Nýlega færðu þeir prófessor Ás-
mundur Guðmundsson og SkúlijÁgústs-
son frá Birtingaholtl Landsspítal
anum veglega gjöf. Var það dánargjöf
að upphæð 20 þúsund krónur, sem
séra Magnús heitinn Helgason hafði
ánafnað styrktarsjóði, er hann lagði
fyrir að skyldi bera nafnið „Sjúkra-
sjóður Móeiðarhvols". Segir svo í
erfðaskrá séra Magnúsar: „Þá hefi ég
einnig stofnað annan sjóð, sem kennd-
ur er við Móeiðarhvol, æskuheimili
konunnar minnar, þar sem hún drakk
inn hjartagæzku slna með móður-
mjólkinni og nam þá ljúfu list að
hlynna að sjúkum og hjúkra". Eigin-
kona séra Magnúsar var frú Stein-
unn Skúladóttir frá Móeiðarhvoli.
Séra Magnús leggur svo fyrlr i erfða-
skrá sinni, að „Sjúkrasjóður Móeiðar-
hvols“ skuli vera undir umsjá yfir-
lækna Landsspítalans. Forgangsrétt
til styrks úr sjóðnum hafa systkyni
hinna látnu hjóna og síðan afkomend-
ur þeirra. Innan skamms verður sam-
in skipulagsskrá fyrir sjóðinn og leit-
að staðfestingar á henni.
/ / /
Fréttaritari blaðsins í Keflavik sím-
ar. Um þessar mundir eru útgerðar-
menn hér að búa sklp sín undir vetr-
arvertíðina, sem hefst upp úr áramót-
unum. Langflestir bátamir eru i
þurkví og er unnið að því af miklu
kappi að gera þá sem bezt úr garði, áð-
ur en vertíðin hefst. í haust og vetur
hafa tvö skip bætzt við sklpakostinn
hér. Er annað þessara skipa „Græðir"
20—30 smálestir, eign Steindórs Pét-
urssonar, en hitt skipið keypti Finn-
bogi Guðmundsson útgerðarmaður.
Mun það vera rúmar 40 smálestir.
tveimur samdómendum, er við-
komandl sveitar- eða bæjar-
stjórn velur til 4 ára í senn,
með slík mál, svo og með refsi-
mál ungmenna innan 20 ára
aldur. Skal dómur þessi halda
réttarrannsókn um mál og kveða
upp í þeim rökstuddan úrskurð,
ef ungmenni er úrskurðað í
hælisvist eða helmilis, og dóm
í refsimálum, er til málshöfð-
unar leiða. Héraðsdómari hefir
forsæti í dómnum. Dómsmála-
ráðherra ákveður þóknun með-
dómenda, er greiðist úr rikis-
sjóði.
Úrskurður um vistun ung-
mennís á betrunarstofnun
skal gilda um ótiltekinn tíma.
Greind vist má þó ekki fara
fram úr þremur árum, nema nýr
úrskurður sé upp kveðinn. Að-
ili eða lögráðamaður hans getur
og krafizt nýs úrskurðar, þegar
eitt ár er liðið frá uppkvaðningu
síðasta úrskurðar.
Úrskurðum um hælisvist eða
heimilis samkvæmt 3. gr. má
áfrýja til hæstaréttar innan
fjögra vikna frá birtingu þeirra,
að fengnu leyfi dómsmálaráðu-
neytisins eða af þess hálfu.
Áfrýjun frestar ekki fram-
kvæmd úrskurðar.
Nú telur ríkisstjórnin, að
fengnum tillögum barnavernda-
nefndar eða ungmennadóms,
hættu á því, að tilgreind störf
séu, miðað við aðstæður á til-
teknum stað, skaðsamleg þroska
eða siðferði ungmenna, og get-
ur hún þá bannað ungmennum
innan tilgreinds aldurs að
stunda þar slík störf. Ef fyrir-
svarsmenn brjóta gegn banni
þessu, varðar það refsingu og
réttindamissi.
Ef maður leiðir ungmenni
innan 21 árs í siðferðislega
glapstigu eða lætur saurlifi við-
gangast í húsum sínum, bif-
reiðum eða öðrum þeim stöðum,
sem hann ræður yfir, varðar
það sektum, varðhaldi eða fang-
elsi allt að fjórum árum. Auk
refsingar má svipta hann rétt-
indum samkvæmt 68. gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19/
1940.
Þá hefir rlkisstjórnin vali
sérstaka nefnd til að ræða ur
þessi vandamál við fulltrú
hernaðaryfirvaldanna. Eig
sæti í henni: Jónas Jónssor
Sigfús Halldórs frá Höfnum o
Vilhjálmur Þ. Gíslason.
Erlendar firéttir
Bandaríkjaþing hefir me’
samhljóða atkvæðum samþykk
að segja Þýzkalandi og Ítalíi
stríð á hendur. Var tillaga þes
efnis samþykkt sama dagini
og Bandarlkjunum bars
stríðsyfirlýsing Þjóðverja oi
ítala.
Japanir halda áfram ai
styrkja aðstöðu sína á Mal
akkaskaga og Filippseyjunurr
Bandaríkjamenn tilkynna, a;
þeir hafa á ný eyðilagt eð;
stórskemmt j apanskt orustuskif
— Við Hongkong hefir Japön
um orðið nokkuð ágengt, en þa
í nánd eru Kínverjar að hefj;
sókn til að dreifa kröftur
Japana.
Mexikó hefir sagt Japönur
stríð á hendur og slitið stjórn
málasambandinu við Þýzka
land og Ítalíu.
Hervæffingu er lokið á Aust-
ur-Indíum Hollendinga, og eru
Á víðavangi
„TVÍSÖNGURINN“ ÚT AF
MJÓLKURHÆKKUNINNI.
Morgunblaðið heldur áfram
„tvísöngnum“ í mjólkurhækk-
unarmálinu. Aðra stundina
skammar það mjólkurverðlags-
nefnd fyrir ósanngjarna hækk-
un og talar um óbilgirni, sem
neytendur séu beittir, en hina
stundina telur það mjólkur-
hækkunina sjálfsagða og segir,
að bændur geti séð á henni, að
Framsóknarflokkurinn hafi
ætlað að svíkjast aftan að þeim
með lögfestingunni! Einu sinni
töldu íhaldsmenn lögfesting-
una launráð við launastéttirn-
ar til að tryggja hag bænda,
en samkvæmt þessum síðara
málflutningi ætti hún að hafa
verið launráð við bændur til að
tryggja hag launastéttanna!
Það vantar ekki samræmið hjá
íhaldsblöðunum frekar en fyrri
daginn. — Annars mun „tví-
söngurinn“, sem bændum er
ætlað að hlusta á, engin áhrif
á þá hafa, því að þeim er ljóst,
að orsakirnar, sem lágu til
mjólkurhækkunarinnar, hefðu
horfið úr sögunni, ef dýrtíðar-
frumvarpið hefði verið sam-
þykkt. Þá hefði vísitalan og
grunnkaupið ekki hækkað og
heldur ekki fóðurbætisvörurn-
ar, því að verðlagi þeirra hefði
verið haldið niðri með framlagi
úr dýrtíðarsjóði. — Áhrif „tvl-
söngsins", sem bæjarmönnum
er ætlaður, mun líka hverfa
fljótt, þegar þeir gera sér þess
grein, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefir nýlega fellt frv., sem kom
í veg fyrir mjólkurhækkanir og
þær orsakir, sem valda þeim.
„LEYNDIN".
Árni frá Múla er að reyna að
búa til þá sögu, að einhver
,,leynd“ sé ríkjandi um reikn-
inga og sjóði Mjólkursamsöl-
unnar. Þessi „leynd“ er t. d.
fólgin í því; að tveir góðir
flokksmenn Árna, Jakob Möller
og Magnús á Blikastöðum, eíga
sæti í mjólkursölunefnd og hafa
því hina beztu aðstöðu til að
fylgjast með rekstri samsölunn'-
ar og myndu gefa Árna allar
upplýsingar, sem hann óskaði,
ef hann hefði löngun til að
spyrja þá. En sannleikurinn er
sá, að Árna langar ekkert til
að vita það, sem rétt er, heldur
er tilgangur hans að reyna að
þyrla upp sem mestu moldviðri
um samsöluna, og þess vegna
býr hann til þessa skröksögu
um „leyndina".
KÖGURSVEINNINN
ÚR VIGUR.
Bóndi úr N.-ísafjarðarsýslu
var ekki alls fyrir löngu spurð-
ur, hvernig þeir yndu þing-
mannsleysinu þar nyrðra.
„Þingmaðurinn okkar dó snögg-
lega,“ sagði hann ,,og nú trúi
ég við eigum að fá kögursvein
í staðinn."
varnir þeirra taldar góðar. Þar
eru miklar olíulindir, sem
Japanir girnast. Hollenzkir kaf-
bátar hafa sökkt fjórum jap-
önskum herflutningaskipum við
Malakkaskaga.
Á miffvígstöðvunum hafa
Rússar unnið á og tekið aftur
nokkra þýðingarmikla staði.
Jafnframt telja þeir, að Þjóð-
verjar hafi orðið fyrir miklu
tjóni á mönnum og hergögnum.
Almennt er álitið, að Þjóðverjar
treysti sér ekki til að taka
Moskva i vetur og séu að búast
fyrir til vetrarsetu.
í Libyu hafa Bretar haldið
uppi sókn með góðum árangri.
Hafa þeir aftur náð sambandi
við Tobruk og sótt langt þaðan
vestur eftir ströndinni. Virðast
Þjóðverjar ekki ætla að veita
þeim verulega mótstöðu fyr en
við Derna.
Búlgaría hefir sagt Bretlandi
stríð á hendur.
*
i