Tíminn - 19.03.1942, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON:
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITST JÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Símar 2353 og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA ll.f.
Símar 3948 og 3720.
26. ár.
Reykjavík, fimintudagiun 19. marz 1942
20. blað
Eiga íslendingar að píggja
stórhýsi af erlendri þjóð ?
A 1 ]i i n g i
Ný frumvörp
Þessi frumvörp og þingsálykt-
unartillögur hafa verið lagðar
fram í þinginu, auk þeirra, sem
áður hefir verið sagt frá:
Frumvarp til laga um sérieyfi
til þess að veita raforku frá
Sogsvirkjuninni til Selfoss, Eyr-
arbakka og Stokkseyrar.
Flutningsmenn eru: Jörund-
ur Brynjólfsso'n og Bjarni
Bjarnason. í frv. er m. a. sett
það skilyrði fyrir sérleyfisveit-
ingunni, að stofnað verði félag
til að annast þessa rafvirkjun
og skal það ekki hafa minna en
9000 kr. stofnfé. Sérleyfistim-
inn sé 20 ár og skal ríkið eiga
kauprétt á veitunni fyrir mats-
verð, þegar sá tími er liðinn.
í greinargerðinni er vakin at-
hygli á því, að Árnesingar hafi
enn ekki nein not af Sogsvirkj-
uninni, þótt aðstaðan sé hin
bezta í þeim efnum. Iðnaður í
umræddum kaupstöðum sé nú
í kalda koli vegna skorts á raf-
magni. Peningar manna á milli
séu nú meiri en venjulega og
mundu því vafalaust margir
framtakssamir menn fást til að
hrinda þessu nauðsynjamáli í
framkvæmd, ef þeim væri veitt
sæmileg aðstaða til þess með
þessari lagasetningu.
Tillaga til þingsályktunar um
verksmiðju til að hreinsa og
lierða síldarlýsi.
Flutningsm.: Ingvar Pálma-
son, Gísli Guðmunlsson og
Skúli Guðmundsson. Tillagan er
svohljóðandi: „Alþingi ályktar
að skora á ríkisstjórnina að
láta rannsaka möguleika til og
kostnað við, að koma upp verk-
smiðju til að hreinsa og herða
síldarlýsi. Ennfremur markaðs-
möguleika fyrir hert síldarlýsi.
Séu niðurstöður rannsóknar-
innar lagðar fyrir næsta Al-
þingi. Kostnaðurinn við rann-
sóknina greiðist úr ríkissjóði."
í greinargerðinni eru færð
rök að því, að okkur muni miklu
hagkvæmara að flytja síldar-
lýsið út fullunnið en hálfunnið,
eins og nú er gert, en til þess
að það sé hægt, verður að reisa
slíka verksmiðju.
Tillaga til þingsályktunar um
ársskýrslu síldarverksmiðju rík-
isins. Flutningsmenn: Skúli
Guðmundsson og Gísli Guð-
mundsson. í tillögunni er skor-
að á ríkisstjórnina að hlutast
tií um það, að prentuð verði ár
hvert glögg skýrsla um starf-
(Framh. á 4. síðu)
Rauði kross Bandaríkjanna vill byggja
stórhýsi í miðbænum
Fyrir alllöngu var byggður í
París mikill sýningarskáli, sem
hét Trocadero. Það var mikið
hús, reist fyrir augnablikstil-
efni. En það átti ekki vel við
umhverfið, og að lokum fór svo,
að þetta stóra hús var rifið í
því skyni, að þar yrðu byggð
hús, sem væru í samræmi við
Parísarborg.
Nú er það enganveginn ætlan
mín, að halda því fram, að
Reykjavík sé pokkur París, um
skipulag eða útlit. En þó hefir
Reykjavík sinn svip. Hún er
dóttir íslands. Þar endurspegl-
ast á margan hátt styrkur og
vanmáttur þjóðarinnar.
Blöðin hafa undanfarna daga
sagt frá því, að ameríski Rauði
krossinn hefði í huga að reisa
hér allmikla byggingu, vegna
hersins. Það hús mun eiga að
vera mjög tilbreytingarmikill
skemmtistaður fyrir hina að-
komnu menn, sem vafalaust
þykir dvölin hér á landi ekki til-
takanlega skemmtileg.
Blöðin hafa ennfremur getið
þess, að hinir amerísku eig-
endur þessa virðulega húss ætl-
uðu að gefa bygginguna ís-
lenzka Rauða krossinum, að
stríðinu loknu.
Hér lýkur frásögnum blað-
anna. En i viðbót mun frá því
að segja, að erfiðlega hefir
gengið að finna stað handa
þessu nýja húsi, og koma þá til
greina íslenzkir sérhagsmunir.
Til voru þeir menn, sem drógu
í efa, að stór kvikmyndasalur
færi vel í nánd við hin eldri
kvikmyndafyrirtæki. Þá kom
veiðihugur í Alexander Jóhann-
esson, sem allt af hefir langað
til að reka „bíó“ til að styðja
„vísindastarfsemi" sína. Þá
munu eitt eða tvö lokuð og
virðuleg félög hafa látið á sér
skilja, að þau gætu þegið að fá
stórbygginguna géfins, til sinna
þarfa. Að lokum kom til greina
sá erfiðleiki, að Rauði krossinn
íslenzki hefir bókstaflega ekk-
ert með stórhýsi að gera, ann-
að en að lána það öðrum fyrir
peninga.
Ég hygg, að það sé kominn
tími til, fyrir venjulega borg-
ara í landinu, að segja eitt orð
um þetta gjafamál, sem er að
verða til leiðinda fyrir okkur ís-
lendinga, og sennilega ekki
heldur að öllu leyti að skapi
þeirra, sem ætla að byggja
þetta hús. Vil ég færa fyrir því
nokkur rök.
1. Það er engin ástæða fyrir
íslendinga að sækjast eftir
gjöfum frá útlendum þjóðum.
Það er jafnvel allraminnst á-
stæða til þess að óska eftir
gjöfum í sambandi við núver-
andi ófriðarástand, sem vel
getur lyktað þannig, að mikill
hluti sumra íslenzku kaupstað-
anna verði brunarústir, þegar
friður er saminn.
2. Gefendurnir hafa vafa-
laust ekki athugað, að slík
gjafavon er i eðli sínu vel fallin
til að særa réttmætan þjóðar-
metnað íslendinga.
3. Vonin um þetta gjafahús
hefir nú þegar orðið til minnk-
unar ýmsum fslendingum, sem
af eiginhagsmunahvöt hafa ým-
ist reynt að torvelda. fram
kvæmdir, eða koma ár sinni bet-
ur fyrir borð.
4. Ég vil vissulega ekki gera
lítið úr húsgerðarlist Banda'
ríkjamanna, sem ég hygg vera
einhverja hina fullkomnustu í
heimi. En ég efa mjög, að
skyndibygging, sem her þeirra
reisti hér, vegna sinna þarfa
myndi til lengdar fara betur í
Reykjavík, heldur en Trocadero
í París.
5. Ég vildi leyfa mér að gefa
forráðamönnum ameríska
Ráuða krossins eitt velviljað
og algerlega hlutlaust ráð:
Byggið nógu mikil og nógu
hentug bráðabirgðaskýli fyrir
íþróttir og skemmtanir liðs-
manna ykkar, en byggið það
utan við bæinn, og án allrar
umhyggju um, að slíkt húsnæði
verði nokkurntíma íslending
um til nota. Nú sem stendur er
stórlega þrengt að íslenzku
fólki í þess eigin fáu og fátæk
legu skemmtistöðum, af er
lendum gestum. Slík aðþreng-
ing er vægast sagt óviðkunnan
leg. Það er endurtekin dæmi-
sagan um'lamb fátæka manns-
ins.
Það er sýnilegt, að þeir ís
(Framh. á 4. síðu)
Guðjón Jónsson, bóndi í Tungu í
Fljótshlíð, verður sjötugur 20. marz-
mánaðar. Sjá grein á 3. síðu.
A. KZROSSCa-OTTJM
Varnir gegn sauðfjársjúkdómunum.
— Siglufirði. —
Róstur í
Ýmsar raddir og kröfur eru uppi
um nýjar varnargirðingar i þeim hér-
öðum landsins, sem enn eru laus við
hina skæðu fjársjúkdóma, sem herjað
hefir bústofn bænda mörg síðustu
árin og valdið glfurlegu tjóni. Er það
mjög að vonum, að menn vilji leita
allra bragða til þess að firra sig slík-
um vágesti sem mæðiveikin, garna-
veikin og þingeyska mæðiveikin eru.
Á sýslunefndarfundi Eyfirðinga, sem
haldinn var fyrir skömmu, var meðal
annars rætt um þessi mál. Samþykkti
sýslunefndin áskorun til þeirra, er
ráða fram úr þessum málum, að láta
gera varnargirðingu meðfram Eyja-
fjarðará til þess að hefta útbreiðslu
þingeysku mæðiveikinnar vestur á
bóginn. Bændur í Grýtubakkahreppi
hafa og farið þess á leit, að girðing
verði sett á Flateyjardalsheiði milli
Skjálfanda og Eyjafjarðar til að
hindra, að þingeyska mæðiveikin ber-
ist út skagann, með þeim afleiðingum,
er það myndi hafa fyrir búskap allan
á þessum slóðum.
r r r
í fregnum frá Siglufirði er frá því
sagt, að þar hafi orðið skærur af völd-
um brezkra setuliðsmanna á mánu-
dagskvöldið. Þær áttu upphaf sitt að
rekja til deilu, er varð milli hermanns
og íslenzks piits á billiardstofu þar í
bænum. Er út kom úr billiardstofunni
réðist hermaðurinn á pilt þenna, sem
sagður er bæklaður og aðeins 18 ára
gamall, og reyndi að berja hann,
Urðu af sviptingar nokkrar og kom
pilturinn útlendingnum undir. Skyldu
þeir við svo búið. Stundu síðar komu
hermenn aftur á vettvang við fjöl
menni og kom þá til viðureignar við
Siglfirðinga, er þeir hittu fyrir. Hlutu
einhverjir meiðsl í skærum þessum,
en þó ekki mikil. Bæjarfógetinn í
Sigltifirðl er að rannsaka málavöxtu.
Viðbúnaðurinn í Ástralíu
Margt þykir til þess benda, að
Japanir ætli sér að láta til
skarar skríða gegn Ástralíu-
mönnum mjög bráðlega. Hafa
loftárásir verið gerðar á nokkr-
ar herstöðvar þar að undan-
förnu, og þrálátur orðrómur er
uppi um liðsflutninga Japana
og anrian undirbúning, er ber-
sýnilega miðar að árás á Ástr-
alíu.
Bandamenn búast hins vegar
um af kappi, og gera sér góðar
vonir um, að landgangan muni
hvorki verða Japönum svo
greið né happadrjúg, sem þeir
ætla. Allt það lið, sem Ástral-
íumenn sjálfir hafa að tjalda,
hefir verið vígbúið. Mun það
vera vaskt lið, því að Ástralíu-
hermenn hafa hvarvetna getið
sér góðan orðstír, þar sem þeir
hafa tekið þátt í bardögum.
Óbreyttir borgarar vinna af
miklu kappi að því að treysta
varnarvirki svo vel sem auðið
er. Einnig er þegar komið her-
lið til Ástralíu frá Bandaríkj-
unum. Að vonum hefir eigi ver-
ið frá því skýrt, hversu fjöl-
mennt það sé. En vist er, að hér
er um að ræða stórskotalið,
fótgöngulið og fluglið. Er það
vel búið að vopnum og útbún-
aði, nýjum flugvélum, skrið-
drekum og svo framvegis. Loks
komst nokkuð af hollenzka
hernum, sem varði Jövu, undan,
þegar Japanir hertóku eyna, og
er það lið endurskipulagt i
Ástralíu og verður skipað þar
til landvarna.
Mac Arthur, hershöfðinginnn
amerikski, sem lengst hefir
barizt á Bataanskaga á Filipps-
eyjum, hefir verið skipaður yf-
ir þetta herlið allt og reyndar
allan her Bandamanna í Kyrra-
hafi suðvestanverðu. Bera menn
mikið traust til hans eftir hina
frækilegu vörn í Filippseyjum
og binda miklar vonir við her-
kænsku hans. Þykir enda mik-
ið við liggja að verja Ástralíu,
svo að Bandaríkj amenn fái
tóm til þess að senda þangað
gnægð hergagna og her-
manna, er fái ráðrúm til þess
að búa um sig i landinu.
Takist þeim það, þykir mun
betur horfa um að takast megi
að verja Ástralíu til langframa
Handíðaskólinn
Þar sem hvatningarorð Tím-
ans til almennings um að efla
Handíðaskólann hafa vakið
nokkurn misskilning og orðið
Morgunblaðinu, og ef til vill
einhverjum fleirum, tilefni til
bollalegginga um skólann og af-
stöðu hans til iðnaðarmanna,
skal hér tekið fram, að hvorki
skólastjóri Handíðaskólans, né
neinn annar af starfsmönnum
skólans, átti neina hlutdeild í
framkomu nefndra hvatninga-
orða. Ástæðan til þeirra var
singöngu nauðsyn sú, er blað-
ið telur vera á þvi, að skóli þessi,
sem frá stofndegi sínum hefir
markvisst unnið að eflingu
verklegs náms I barna- og
unglingaskólum landsins og að
auknum heimilisiðnaði í land-
inu, njóti verðskuldaðs stuðn-
ings almennings og valdhafa.
Handíðaskólinn er sjálfstæð
stofnun, sem stendur algerlega
utan við allar pólitískar flokka-
deilur og eru í skólaráði hans,
og meðal nánustu stuðnings-
manna, menn úr öllum pólitisk-
um flokkum.
í vetur hafa á þriðja hundrað
manns stundað nám í skólan-
um. Kennsludeildir hans eru:
kennaradeildin, listnámsdeild
og öryrkjadeild. Ennfremur
heldur skólinn uppi síðdegis-
og kvöldnámsskeiðum fyrir al-
menning í ýmsum greinum m.
a. teikningu, tréskurði, bók-
bandi o. fl.
og hefja þaðan nýja sókn á
hendur Japönum, þegar her-
styrkur verður til.
Hershöfðingi á Filippseyjum
hefir Jonathan M. Wainwright
verið skipaður í stað Mac Art-
hurs. Hefir hann þegar átt í
bardögum við Japani og heppn-
azt að reka árásarlið þeirra af
höndum sér og halda stöðvum
sínum öllum. En sjálfsagt munu
Japanir leggja kapp á að buga
mótstöðu Bandaríkjamanna
þar á eyjunum sem bráðast. Og
i rauninni er mjög hæpið, að
þeir fái mjög lengi staðizt um-
sátur þeirra og áhlaup.
Erlendar fréttir
Bretar hafa gert ráðstafanir
til þess að spara meira en
hingað til. Sérstaklega á að
spara kol, rafmagn, gas og
vefnaðarvörur. Framvegis fá
menn aðeins þrjá fjórðu hluta
þeirra skömmtunarseðla, vegna
fatnaðar, móts við það er hing-
að til hafa verið látnir I té.
Sérstakur stríðsfatnaður verð-
ur tekinn upp. Verður gerð hans
einfaldari en áður var títt um
karlmannaföt, vasar færri og
engin uppbrot o. s. frv. Þetta
sparar efni og vinnu mörg þús-
und manna.
Bússar gera enn mikil áhlaup
víða á herstöðvunum og munu
vera í þann veginn að taka
Kharkov. Þar hafa miklir bar-
dagar verið að undanförnu og
Þjóðverjar neyðst til að láta
undan síga. Við Donetz sækir
her Timosjenkós einnig fast
fram, en Þjóðverjar hafa sent
þangað mikinn liðsauka til þess
að sporna við því, að her þeirra
þar verði króaður inni. Við
Smolensk hafa Rússar sett nið-
ur fallhlífarhermenn, sem gert
hafa usla bak við víglínu Þjóð-
verja. Á Kerschskaga hafa og
verið harðir bardagar, og gerðu
Rússar árás á hafnarborg eina
og settu lið á land eftir mikla
skothríð.
Brezkt herlið, sjólið og flug-
sveitir, gerðu árás á eyjuna
Rhodos við strendur Litlu-
Asíu nýlega og gerðu þar mik-
inn usla. Þarna hafði italskt
herlið aðsetur sitt. Árásin var
svo óvænt, að drjúg stund leið,
þar til ítalir brugðust til varn-
ar.
Frá Vestur-
tslendingum
Hið yngra Þjóðræknisfélag
(Junior Icelandic League) í
Winnipeg hefir fundi sína á
ensku, en reynir að efla sam-
tök yngri íslendinga í borg-
inni. Er það m. a. að koma upp
safni af enskum bókum um ís-
land og íslenzk efni og þýðing-
um íslenzkra bóka. Nýlega hélt
félag þetta aðalfund sinn. Með-
al þess, sem það hefir gert á
liðnu starfsári, var að halda
uppi nokkrum fræðslufundum,
sýna kvikmyndina „ísland á
Sléttunum" og standa fyrir veg-
legu samsæti til heiðurs Maríu
Markan.
Fullveldisdagur íslands var
haldinn hátíðlegur með sam-
komu og dansleik 1 einu af
helztu hótelum borgarinnar. —
Núverandi forseti félagsins er
Árni G. Eggertsson lögfræðing-
ur í Winnipeg, sonur Árna heit-
ins Eggertssonar fasteignasala.
Blaðið Heimskringla hefir í
vetur tekið upp þá nýbreytni,
að hafa deild i blaðinu á ensku,
og er sú deild undir umsjón
hins yngra Þjóðræknisfélags.
(Frá Þjóðræknisfélaginu).
Á víðavangi
SYNDAKVITTUN —
EKKI TRAUSTSYFIRLÝSING.
Enginn skyldi lá blöðum Sjálf-
stæðisflokksins, þótt nokkurr-
ar stundarkæti gæti í skrifum
aeirra um bæjarstjórnarkosn-
ingarnar. Flokkurinn heldur
hreinum meirihluta bæjarfull-
trúa, þótt hann skorti talsvert
til að hafa helming greiddra
atkvæða og hafi misst einn
fulltrúa til kommúnista.
Flokkurinn hefir því fengið
einskonar syndakvittun hjá
bæjarbúum, þótt einkunn hans
sé miklu lakari en hún var fyr-
ir fjórum árum.
Og væru bæjarbúar beðnir
um traustsyfirlýsingu til handa
bæj arstj órnarmeirahlutanum,
mundu fleiri neita en játa.
„MAÐKAR í MYSUNNI.“
Sjálfstæðisblöðin fara ekki
heldur dult með það, að óheilla-
vænleg teikn hafa birzt við
þessar kosningar, sem geta boð-
að feigð fyrir flokkseinræði
Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
málum Reykjavíkur.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
glatað fylgi, — kommúnistar
hafa eflzt.
Menn spyrja um orsökina.
Gerðardómslögin segja sum-
ir. Samvinna í ríkisstjórn við
Framsóknarflokkinn segja aðrir.
Móti slíkum getgátum mæla
úrslit kosninganna utan Reykja-
víkur. Flokkurinn beið ekki af-
hroð í þeim kosningum, þótt
þær færu fram rétt eftir að
gerðardómslögin voru sett og
ráðherra Alþýðuflokksins „dreg-
inn út“ úr ríkisstjórninni.
Þar sem Sjálfstæðisflokkur-
inn tapaði i kosningunum utan
Reykjavíkur, var það af völdum
sprengilista, sem voru komnir
fram áður en gerðardómslögin
komu til sögunnar.
Sprengilistarnir stöfuðu af ó-
ánægju með stefnu flokksins í
atvinnumálum og aðgerðarleysi
í dýrtíðarmálum, áður en þeir
voru bornir fram.
Stefnubreyting flokksins eft-
ir áramótin nægði ekki til að
drepa niður fylgi sprengilist-
anna, en hefir efalaust dregið
úr því.
Hér í bænum var enginn
sprengilisti, en samt gerast hér
óheillavænlegir fyrirboðar um
gengi flokksins í framtiðinni.
Sjálfstæðisflokkurinn á nú
fyrir hendi baráttu við einræð-
is- og upplausnaröflin hér 1
bænum. Hann má sjálfum sér
og vinnubrögðum sínum á und-
anförnum árum um kenna.
FLOKKSEINRÆÐI
í BÆJARMÁLUM.
Sjálfstæðismenn í bæjar-
stjórn Reykjavíkur hafa í orði
og verki hafnað samvinnu um
bæjarmál við þá flokka, sem
þeir hafa á sama tíma haft
samstarf við um ríkisstjórn.
Útkoman verður svo þessi:
í bæjarfélagi, sem Sjálfstæð-
ismenn ráða algerlega og hafa
ráðið um langa hríð, vex kom-
múnistum stórlega fylgi.
í öðrum bæjarfélögum, sem
Sjálfstæóismenn hafa lítt ráð-
ið stendur fylgi kommúnista í
stað eða fer minnkandi.
Þetta eru hin óheillavænlegu
teikn á framtíðarhimni Sjálf-
stæðisflokksins.
HRUNADANSINN.
Eins og sakir standa dansar
flokkurinn hér á eldfjalli, sem
getur gosið þá og þegar. Þetta
eldfjall er stríffsgróði og Breta-
vinna. Bæjarstjórn Sjálfstæð-
ismanna þarf ekki að ætla sér
að blekkja nokkurn skyni bor-
inn mann með því, að slíkt
stundargengi sé stjórnvizku
þeirra að þakka.
Hún á nú um tvennt að velja:
Aff snúa sér af alefli að því að
reisa við atvinnuvegi bæjarns
á þeim stoðum, sem megna að
(Framh. á 4. síðu)