Tíminn - 19.03.1942, Side 4
76
TÍMI\.\, fimmtndagiim 19. marz 1942
20. Mað
ÚR B/EIVUIH
10 daga varðhald.
í fyradag var bifreiðarstjóri dæmd-
ur í 10 daga varðhald og sviftur öku-
leyfi æfilangt. Þetta var ítrekað brot og
er dómurinn óskilorðsbundinn.
Ölvaður við næturvörzlu.
Þann 16. þ. m. var lyfjafræðingur
hér í bænum dæmdur í 200 króna sekt
fyrir að vera ölvaður við næturvörzlu
i lyfjabúð.
Stal reiðhjóli.
Síðastliðinn mánudag var maður
dæmdur í 30 daga varðhald óskilorðs-
bundíð og sviftur kosningarétti og
kjörgengi æfilangt fyrir að stela reið-
hjóli.
Þingeyingamót
var í fyrrakvöld að Hótel Borg.
Hófst það með borðhaldi kl. 8 síð-
degis. Ennfremur' var Eyfirðingamót,
þetta sama kvöld í Oddfellowhúsinu.
Voru komnir upp f flugvél.
Á mánudaginn voru tveir íslending-
ar handteknir suður á flugvelli. Voru
þeir komnir upp í flugvél, er þeir voru
teknir fastir. Þessir menn eru báðir
verkamenn og er annar þeirra til heim-
ilis í Hafnarfirði en hinn hér í bæn-
um. Mál þeirra var í rannsókn hjá
brezku lögreglunni síðast er blaðið
frétti.
Handknattleiksmót íslands
hófst á mánudagskvöldið í íþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar við Lindar-
götu. Keppendur eru: Knattspyrnu-
félagið Víkingur, Knattspyrnufélag
Reykjavíkur, íþróttafélag Reykjavíkur,
Glímufélagið Ármann, Knattspyrnufél.
Fram, Knattspyrnufél. Valur og Hauk-
ar frá Hafnarfirði. Á mánudagskvöld-
ið fóru leikar þannig: í meistara-
flokki vann Víkingur K.R. með 21
marki gegn 17. í 1. fl. vann Í.R. Ár-
mann með 34:22 og í 2. fl. vann Valur
F.H. með 22:13. Á þriðjudagskvöldið
fóru leikar þannig: í 1. fl. vann Fram
K.R. með 24:17 og í 2. fl. varð jafn-
tefli miili Víkings og Í.R. 13:13. Mótið
heldur áfram næstu kvöld. Kven-
flokkar taka einnig þátt í keppninni.
Sund- og skíðanám-
skeið í Sælingsdals-
laug
Þann 15. f. m. lauk sund- og
skíðanámskeiði í Sælingsdals-
laug, sem hafði staðið yfir í
mánuð. Námskeiðið var haldið
á vegum Ungmennasambands
Dalamanna.
Ungmennasambandið hafði
fyrir nokkru keypt 10 pör af
skíðum, og voru þau nú í fyrsta'
sinn til ókeypis afnota fyrir
skíðakennslu hjá sundnemun-
um.
Snjór var mjög lítill mestan
hluta tímans, en nemendur not-
uðu kappsamlega skíðin þegar
færi gafst.
í þessum mánuði voru liðin 10
ár síðan sundkennsla hófst í
Sælingsdalslaug, og hafa alls
verið haldin 14 námskeið á þvi
tímabili með hálft fjórða
hundrað þátttakenda.
Þátttakendur á þessu nám-
skeiði voru alls 25. Kennari var
Matthías Jónsson frá Kolla-
fjarðarnesi í Strandasýslu.
Skotið á bifreíð
Á mánudagskvöldið síðastlið-
ið var bifreiðarstjóri að koma
sunnan úr Hafnarfirði í bifreið-
inni R 1790. Einn farþegi var í
bifreiðinni.
Er komið var í Fossvog, mættu
þeir ameríkskri bifreið, er var
á suðurleið. Var henni ekið mjög
hratt. Um leið og hún þaut
framhjá, heyrðu íslendingarnir
hvell mikinn, og telja þeir, að
skotið hafi verið á bifreið sína.
Skýrðu þeir þegar frá þessu í
næstu herbúðum. Var skjótt
brugðið við til að rannsaka
málið.
Kosnlngfavísa
Tíminn hefir frétt, að eftir-
farandi vísa hafi komið upp úr
einum atkvæðakassanum í bæj-
arstj órnarkosningunum:
Þeim hefir hlýnað helzt á því
að halda á króknum beitunni,
því það er lítill ylur í
ÍHALDS-hitaveitunni.
Kaupendur Tímans
Tilkynnið afgr. blaðsins tafar-
laust, ef vanskil verða á blaðinu.
Mun hún grera allt, sem i hennar
valdi stendur, til þess að bæta
úr því.
Frá Búnaðarpingt
Verndun þjóð-
legra verðmæta
Á fundi Búnaðarþings síðast-
liðinn þriðjudag var samþykkt
svohljóðandi tillaga:
„Búnaðarþing ákveður, að
ráðinn sé maður í þjónustu
Búnaðarfélags íslands, er leið-
beini bændum, í samráði við
teiknistofu landbúnaðarins, um
húsbúnað og híbýlaprýði í þjóð-
legum stíl, og undirbúi og
skipuleggi væntanleg byggða-
söfn þar sem þess er óskað. —
Leggur Búnaðarþingið til, að
Ragnar Ásgeirsson ráðunautur
sé ráðinn til þessa samhliða því
starfi, sem hann hefir nú hjá
Búnaðarfélaginu og væntir
þess, að Alþingi og ríkisstjórn
leggi árlega fram nokkurt fé
til stuðningi þessara mála.
Stjórn Búnaðarfélags íslands
setur starfsmanni þessum er-
indisbréf."
í greinargerð, sem fylgir til-
lögunni, benda flutningsmenn
á nauðsyn þess, að reynt verði
að bjarga frá glötun og endur-
reisa ýmis gömul þjóðleg
verðmæti í sveitum lands-
ins. — Hafði Búnaðarþingi
borizt bréf frá landbúnaðar-
ráðuneytinu, þar sem þessu
máli var heitið fjárhagslegum
stuðningi frá ríkinu. — Lagði
landbúnaðarmálaráðherrann
til, að Ragnari Ásgeirssyni
ráðunaut verði falið að hafa
umsjón með framkvæmd þessa
máls.
Auglýsið I Tímannm!
P A L
rœstiduit
er fyrir nokkru komið á
markaðinn og hefir þegar
hlotið hið mesta lofsorð, enda
vel til þess vandað á allan
hátt. Opal ræstiduft hefir
alla þá kosti, er ræstiduft
þarf að hafa, — það hreinsar
án þess að rispa, er mjög
drjúgt, og er nothæft á allar
tegundir búsáhalda og eld-
húsáhalda.
Notið
O P A L rœstiduft
4 víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
standa af sér boðaföllin, er nú-
verandi spilaborg hrynur, eða
halda áfram sama dansinum og
hingað til með huggun efst í
huga, að enn þá sé dagur til
stefnu, þar til er syndaflóðið
kemur.
Eiga Islendingar . . .
(Framh. af 1. siðu)
lendingar, sem sækjast persónu-
lega eftir þessari húsgjöf, auka
engan veginn hróður landsins
með áleitni sinni við væntan-
legan gefanda. Þessir menn
gæta þess ekki, að Reykjavík
er þannig sett, að mjög vafa-
samt er, hve mikið yrði eftir
af þvílíku húsi að stríðinu
loknu. Þeir gæta þess ekki, að
dagleg reynsla sýnir, að það fer
bezt á að herinn og íbúar
Reykjavíkur hafi sem minnst
skipti saman, nema það sem er
beinlínis viðskiptalegs eðlis.
Og allra minnst virðast hinir
áköfu þiggjendur hafa leitt
hugann að því, hvort Reykja—
vík vanti sína eigin Trocadero.
J. J.
Lesendur!
Vekjið athygli kunningja yð-
ar á, að hverjum þeim manni,
sem vill fylgjast vel með al-
mennum málum, er nauðsyn-
legt að lesa Tímann.
Skrifið eða símið til Tímans
og tilkynnið honum nýja áskrif-
endur. Sími 2323.
Vinnið ötullcga fyrir
Tímann,
394
Victor Hugo:
Esmeralda
395
Svo sparkaði hann í Claude.
— Steindauður, sagði Jóhann. —
Dauðadrukkinn. Hann hefir skreiðst
hingað og oltið hér út af. Hann er
sköllóttur, mannskrattinn, bætti hann
við og laut niður að honum. Þetta er
gamalmenni.
Loks heyrði erkidjákninn að hann
hvarflaði brott og tautaði við sjálfan
sig:
— Allt er í lagi! Vitið er dásamleg
gjöf. Og erkidjákninn bróðir minn er
bæði vitur og ríkur.
Nú reis erkidjákninn á fætur og
hljóp eins og fætur toguðu í áttina til
Frúarkirkjunnar. Háir turnar hennar
gnæfðu við myrkan himin.
Erkidjákninn kom fyrst að luktum
dyrum, en lykilinn að turndyrunum bar
hann ávallt á sér, og þar komst hann
inn. Hann staldraði hvergi við, heldur
æddi gegn um kirkjuhvelfingarnar.
Bak við hinar miklu súlur brann Ijós.
Það ljós brennur ávallt í Frúarkirkj-
unni hjá bænabókinni.
Erkidjákninn horfði gráðugum aug-
um á hina heilögu bók. Þar vænti hann
sér nokkurs trausts og huggunar. Bók-
in var opin. Fyrst varð honum litið á
þessi orð Jobsbókar:
„Og andi leið fram hjá mér, og
vindgustur straukst framhjá andliti
mínu, hárin risu á líkama mínum.“
Honum fór eins og blindum manni
er tekur upp prik af vegi sínum og
stingur sig á því. Honum fundust fæt-
ur sínir missa allan þrótt, og svo hneig
hann niður á gólfið. Hið síðasta, sem
hann mundi eftir, var hún, sem dáið
hafði á þessum degi.
Líklega hefir hann legið alllengi í
öngviti. En loks vaknaði hann þó til
lífsins, og að hugsuðu máli þótti hon-
um tryggast að leita athvarfs hjá vin-
inum dygga, Kvasimodo. Hann brölti á
fætur og var ótérlegur á að líta. En
hann óttaðist myrkrið og tók hann því
lampann, sem brann yfir bænabók-
inni, sér til öryggis. Það var að sönnu
kirkjusaurgun og rán, en nú var slíkt
hégómi, sem hann kærði sig kollóttan
um.
Hann ambraði upp stigann og var
lengi á leiðinni. Hann var hræddur um,
að einhver, sem af tilviljun væri stadd-
ur í kirkjunni, myndi sjá ljósglætuna
og koma á vettvang.
Von bráðar fann hann svalan gust
leika um andlit sér. Hann var að kom-
ast upp á efsta þrepið. Það var kalt í
veðri og skýjahrannir á lofti, en á milli
dökkra bólstranna skein tunglið öðru
hvoru. Klukkan tók að slá. Það var lcom-
ið tíiiðnætti. Prestinum varð hugsað til
„Dettifoss"
fer vestur og norður i byrjun
næstu viku.
Við'komustaðir:
Patreksfjörður,
ísafjörður,
Siglufjörður og
Akureyri.
Komið verður við á Siglufirði
og ísafirði í suðurleið.
Alþingi
(Framh. af 1. siðu)
semi og hag síldarverksmiðja
rikisins næsta ár á undan.
Skýrslu þessa skal meðal ann-
ars senda þeim útgerðarmönn-
um, er selt hafa verksmiðjunni
síld á ári þvi, sem skýrslan
fjallar um. í greinargerðinni er
vakin athygli á því, að óeðli-
legt sé, að jafn stórt ríkisfyrir-
tæki og síldarverksmiðjurnar
eru, skuli ekki gefa út opinbera
skýrslu um rekstur sinn og
þeim mönnum, sem mestu varð-
ar starf þeirra, sé þvi erfitt að
fylgjast með rekstri þeirra og
afkomu.
Frv. til laga um breytingu á
lögum um Háskóla íslands. —
Flutningsmaður Páll Zophóní-
asson.
Frv. þetta gerir ráð fyrir
tveimur breytingum á háskóla-
lögunum. Fyrri breytingin er
sú, að hagfræðideildin verði að-
skilin frá lagadeildinni. Síðari
breytingin er sú, að til þess að
stunda nám og ljúka prófi í
heimspekideild, hagfræðideild
og guðfræðideild, þurfi nem-
andi ekki að hafa lokið stúd-
ent§prófi áður, ef hann stenzt
inntökupróf, sem sé nánar á-
kveðið í reglugerð.
Frv. til laga um rafveitu rík-
isins. Flutningsmenn: Jörund-
ur Brynjólfsson og Bjarni
Bjarnason.
Samkv. frv. er ríkisstjórn-
inni heimilt að stofna og starf-
rækja rafveitur, er vera skulu
eign ríkisins og reknar sem
fjárhagslega sjálfstæð fyrir-
tæki. Verkefni slíkra rafveita
er að afla almenningi í landinu
raforku með því að vinna hana
sjálfa, kaupa eða taka við henni
frá öðrum orkuveitum og veita
orkunni um hreppa, sýslur eða
stærri landshluta eða selja
hana raforkuveitum í kaup-
stöðum og kauptúnum eða öðr-
um innanhéraðs orkuveitum.
Ríkið má þá ekki reisa, kaupa
eða taka á leigu orkuver eða
orkuveitu, nema undangengnar
rannsóknir sýni, að nægjan-
legar tekjur muni fást til að
mæta öllum rekstrarkostnaði.
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir 1 LANDSSMIÐ.TUNNI.
IJlIireiðiö Tímaim!
-GAMLA BlÓ .
Stríðsfréttarit-
arinn.
(ARISE MY LOVE)
með
CLAUDETTE COLBERT
Og RAY MILLAND.
Sýnd kl. 7 og 9.
Framhaldssýning 3 V%—6V2
JÁTNING
AFBROTAMANNSINS
með Victor McLaglen.
Börn fá ekki aðgang.
-NÝJA Bió.
Merkí Zorros
(The Mark of Zorro).
Aðalhlutv. leika:
TYRONE POWER,
LINDA DARNETT,
BASIL RATHBONE.
Aukamynd:
FRÉTTAMYND
er sýnir meðal annars árás
Japana á Pearl Harbour.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
(Lægra verð kl. 5).
Tllkyniiiiig.
TIL NÁTTÚRUGRIPASAFNSINS f
REYKJAVÍK OG SKÓLASTJÓRA
ÚTI UM LAND.
Samkvæmt úthlutun styrkja frá
II ríkisstjórninni, er mér veittur
> styrkur til þess að setja upp dýr
og fugla, fyrir Náttúrugripasafnið
í Reykjavík. og skólasöfn út um
land, fyrir lægra gjald en nú tíðk-
ast í þessari iðn. Einnig hefir mér
verið veitt leyfi til að útvega flesta
þá fugla, sem kynni að verða ósk-
að eftir. — Bið ég því hlutaðeig-
endur, sem þessu vilja sinna, að
senda mér pantanir sínar sem
fyrst, til þess að ég geti aflað mér
þeirra fugla, sem um væri beðið,
í réttum búningi, og haft þá- til-
'búna fyrir næsta skólaár.
Akureyri, 10. marz 1942.
KRISTJÁN GEIRMUNDSSON,
. Aðalstræti 36, Akureyri.
M. A. kvartettinn
syngur í Gamla Bíó föstudaginn 20. þ. m. kl.
11.30 síðdegis.
BJARNI ÞÓRÐARSON við hljóðfærið.
Aðgöngumiðar í Bókaverzlun Sigf. Eymundssonar og Bóka-
verzlun ísafoldar.
Pantaðir aðgöngumiðar sækist fyrir kl. 4 á morgun, annars
seidir öðrum.
SÍÐASTA SIW.
Litlir rennibekkir eru handhægir á hverju verkstæði.
Athugið hvort þér hafið ekki þörf fyrir slíkan rennibekk.
Dragið ekki ákvarðanir yðar og forðist frekari innkaups-
erfiðleika og verðhækkanir.
Einkaumboð fyrir
Edwin D. Allmendinger,
15 Moore Street,
New York.
R RIJ
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
SlMNEFNl : „FERRUM" SlML 5296 P. O. BOX í 681
Hafnarstræti.
Ert þú kaupandi Dvalar?
Tímaritið Dvöl kemur út fjórum sinnum á ári, hvert
hefti að minnsta kosti 80 lesmálssíður. Dvöl flytur úr-
vals sögur í góðri þýðingu, ferðasögur, greinar um
margvísleg efni, ljóð og íslenzkar sögur, bókmennta-
pistla og margt fleira. Margir þekktir menntamenn og
og sum beztu skáld og rithofundar þjóðarinnar hafa
heitið ritinu stuðningi sínum í framtíðinni.
Gerizt þegar kaupendur DVALAR. Hún kostar aðeins 10 kr. á ári.
Sími 2353.
TÍMARITIÐ DVÖL.
Pósthólf 1044. Lindargötu 9 A. Reykjavík.
Bóndi - Kaupir þú búnaöarblaðið FREY?