Tíminn - 11.04.1942, Síða 1
RITSTJÓRI: \
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON: ;
!
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: \
JÓNAS JÓNSSON
ÚTGEFANDI: • j
FRAMSÓKNARFLOKKURINN. i
RITST J ÓRN ARS KRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Símar 2353 og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Simi 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
26. ár.
Reykjavík, langardagiim 11. aprO 1942
29. blað
Auknar varnír gegn áfengi
i
Sehiliðsstjórnírnar verða að koma í veg fyrir, að þeírra menn
útvegi Islendíngum áfengi
Ríkissijórnín verður að hætta að veita
undanpágurnar
— Þingsályktunartillaga í sameinuðu pingi —
Fyrir nokkru síðan er komin fram á Alþingi þingsá-
lyktunartillaga, sem mun vafalaust vekja talsverðar deil-
ur. Fjallar hún um lokun vínbúðanna og auknar aðgerð-
ir til að koma í veg fyrir áfengisneyzlu í landinu. Er það
alkunnugt mál, að lokunin hefir ekki náð tilgangi sín-
um, nema að takmörkuðu leyti, þar sem mörgum hefir
virzt auðvelt að fá áfengi hjá setuliðinu. Vilja ýmsir
telja það sönnun þess, að lokun áfengisbúðana sé að-
eins til hins verra, því að hún skapi þannig meiri um-
gengni íslendinga við setuliðin. En þessu er því m. a. að
svara, að ekkert hefir verið gert af opinberri hálfu til
að stöðva þessa nýju vínelfu, og meðan það hefir ekki
verið gert, verður enginn dómur á það lagður, hvort
ekki sé hægt að ná stórum betra árangri í þessum efn-
um.
Rússar súpa seyðið aI
árásinni á Finna 1939
Samvinna kommúnista og SreIsisunnandi
manna getur ekki kaldízt eltir að nazism-
inn er sigraður
Varúðarráðstafanir
vegna hugsanlegra
hernaðarátaka hér
— Tilkynníngar rikis-
stjórnarinnar —
Ríkisstjórnin lætur birta i
blaðinu í dag tilkynningar og
auglýsingar um varúðarráðstaf-
anir ýmsar, sem hyggilegt þyk-
ir að gera vegna hugsanlegs
hernaðar hér á landi. Felast í
þeim ráðleggingar til almenn-
ings, hvernig skynsamlegt sé að
búa sig undir slíka atburði, þótt
allir voni, að þá beri aldrei að
höndum. En því aðeins gæti
undirbúningur sá, sem gerður er
af hálfu hins opinbera, komið
að fullu haldi, að einstakling-
arnir sjálfir séu við öllu búnir.
Veigamestu ráðstafanír, sem
gerðar hafa verið, lúta að
skyndibrottflutningi barna og
annarra, er leita vildu brott úr
bænum, ef sýnilegt þætti, að
innrás eða innrásartilraun væri
yfirvofandi. Þenna brottflutn-
ing þyrfti að vera hægt að
framkvæma fyrirvaralaust á ör-
fáum klukkustundum. Fyrir því
hefir verið út gefin tilskipun
um leigunám bifreiða og skyld-
ur bifreiðaeigenda um að sjá
fyrir bifreiðastjórum á bifreið-
ar sínar til brottflutningsins.
Mundi vera hægt að flytja 15000
manns á brott á bifreiðakosti
bæjarmanna, ef hann væri nýtt-
ur til hlítar á skipulegan hátt.
Fyrst og fremst er gert ráð
fyrir brottflutningi barna. Til
hans myndi koma fyrirvaralaust
og verður fólk að vera við slíku
búið og hafa á reiðum höndum
nesti til tveggja daga eða svo
handa börnunum, hlý föt og
sæng. En engan annan farang-
ur mætti vera um að ræða, þar
eð til slíks myndi eigi bifreiða-
kostur. Börn yngri en sjö ára
skulu vera í fylgd með fullorðn-
um eða stálpuðum börnum.
Sjálfir verða foreldrar eða for-
ráðendur barnanna að ákveða,
hvort þeir vilja láta börn sín
leita á brott.
Til brottflutnings fullorðins
fólks yrði ekki gripið nema inn-
rás væri fyrirsjáanleg. Slíkt
kæmi ekki til greina, þótt um
einstakar loftárásir á bæinn
kynni að vera að ræða. En um-
fram allt er fólki ráðlagt og
grípa aldrei til skipulagslauss
flótta úr bænum eftir að til
hernaðarátaka væri komið, því
að slíkt ferðalag væri margfalt
hættulegra en kyrrseta í bæn-
um.
í varúðarskyni er svo fyrir-
(Framh. á 4. siðu)
NÝ FLUGVÉL
Örn Johnson flugmaður festi
kaup fyrir Flugfélag íslands á
stórri farþegaflugvél vestan
hafs í vetur. Nú er þetta nýja
flugfar komið hingað.til lands.
Þetta er landflugvél, sem hef-
ir tvo hreyfla, og á að fljúga 315
kílómetra á klukkustund. Hún
er ætluð til flugferða milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur, og verð-
ur ekki nema stundarflug milli
þeirra staða.
Eigi er enn vitað til hlítar,
hve dýr flugvélin er. Munu
landflugvélar nokkru ódýrari
en sjóflugvélar, bæði í kaupum
og rekstri.
Vonazt er til, að flugvélin
verði búin til flugs eftir einn
mánuð.
Til þess að hægt sé að ná
betra árangri, virðist óhjá-
kvæmilegt að gera tvennt:
Semja við setuliðsstjórnirnar
um, að þeirra menn útvegi ekki
íslendingum áfengi og að
auka löggæzluna. Einnig myndi
það geta haft veruleg áhrif, ef
vinnusektir væru látnar koma
í stað fjársekta fyrir áfengis-
brot.
Því mun ekki trúað að ó-
reyndu, að setu’/ðsstj órnirnar
myndu ekkí taka fullt tillit til
óska íslendinga í þessum efn-
um, ef þær kæmu fram. Allar
herstj órnirnar óttast áfengis-
nautn og vilja gera sitt til að
halda henni í skefjum. Amer-
íska blaðið „The Christian
Science Monitor" bendir nýlega
á þrjár athyglisverðar stað-
reyndir í þessum efnum:
Þjóðverjar telja sig hafa tap-
að fyrstu Marneorustunni í
seinustu heimsstyrjöld, vegna
þess, að þýzku hermennirnir
náðu í vínbirgðir franska hers-
ins.
Vichystjórnin telur í einu á-
litsskjali sínu um orsakirnar
til ósigurs Frakka 1940, að mik-
il vínnautn í franska hernum
hafi verið ein orsök ósigursins.
Áfengisnautn átti verulegan
i þátt í því, að Bandaríkjamenn
voru ekki nægjanlega viðbúnir
hinni skyndilegu árás Japana á
Pearl Harbour.
Rookefeller-stoínun í Vesturheimi
hefir boðizt til að útvega fjórum ís-
lenzkum læknakandidötum starf í
sjúkrahúsum þar. Myndu þeir dvelja
ár fyrir vestan. Fá þeir ókeypis uppi-
hald meðan þeir dvelja þar og að auki
40 dollara í vasapeninga. En þeir
mundu verða að kosta ferðimar sjálfir.
r t t
Mikil ótíð hefir verið á Norðurlandi
síðastliðna viku. Á Akureyri varð að
fresta sumum greínum skiðamótsins,
sem þar var háð, vegna óveðurs. —
Mjólkurbáturimi, sem flytur mjólk frá
Sáuðárkróki til Siglufjarðar, varð að
helia allri mjólkinni í sjóinn í einni
ferðinni um síðustu helgi vegna óveð-
urs. Mikiíl snjór er norðanlands og
kuldar allmiklir.
t t t
Frá Sauðárkróki er blaðinu skrifað:
Sæluvika Skagfirðinga hófst þann 22.
marz með frumsýningu á sjónleiknum
Nýársnóttin eftir Indriða Einarsson.
Leikritið var sýnt 8 sinnum við góðar
undirtektir áhorfenda og telur fólk
þetta leikrit umfangsmesta og einn
hinn skemmtilegasta sjónleik, sem hér
Jafnvel þótt ekki næðist al-
veg fullnægjandi samkomulag
við herstjórnirnar um þessi mál,
væri samt farið úr öskunni í
eldinn, ef vínbúðirnar væru
opnaðar. Öllum löggæzlumönn-
um ber saman um, að ástandið
í vínmálunum hafi stórum batn-
að síðan búðunum var lokað.
Þeir menn, sem fá vín hjá setu-
liðinu, sækjast eftir samneyt-
inu við það, hvort sem er. Það
myndi aðeins auka samskiptin
við setuliðið, ef enn auðveld-
ara yrði að ná í áfengi en nú er.
Þingsályktunartillagan, sem
áður er getið um, er fiutt af
Pétri Ottesen, Ingvari Pálma-
syni, Sigurjóni Á. Ólafssyni og
Þorsteini Briem. Hún er svo-
hljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisst.iórnina:
1. Að hvika í engu frá þeirri
ákvörðun, sem ríkisstjórnin tók
á s. 1. ári um lokun áfengis-
verzlana ríkisins, og láta nú
þegar niður falla allar þær til-
slakanir, sem gerðar hafa verlð
í þessu efni, og verði þeirri
framkvæmd eigi breytt án sam-
þykkis Alþingis, meðan erlent
herlið dvelur í landinu.
2. Að vinna að því við stjórnir
þeirra rikja, sem herlið er kom-
ið frá hingað til lands, að kom-
ið verði í veg fyrir öll vínútlát
til fslendinga frá herliðniu."
(Framh. á 4. sí8u)
hefir verið sýndur. Leikstjóri var Ey-
þór Stefánsson, en Leikfélag Sauðár-
króks sá um leiksýningarnar. Þá sýndi
Kvenfélag Sauðárkróks leikritið
„Happíð“ tvisvar sinnum. Leikfimi-
flokkur undir stjórn Guðjóns Ingi-
mundarsonar fimleikakennara sýndi
leikfimi og nokkrir piltar sýndu glímu
undir stjórn Sigurðar Brynjólfssonar
lögregluþjóns. Auk þess voru danssýn-
ingar, málfundir og svo dansleikir
flestar næstur.
t t r
Frá Blönduósi er skrifað í lok marz-
mánaðar: Tíðarfar hefir verið svo fá-
dæma gott í vetur hér um slóðir, að
elztu menn muna engan vetur slíkan.
Mikinn hluta vetrarins hefir verið stöð-
ugt þíðviðri, aðeins komið vægir frost-
kaflar við og við, og aldrei haldizt
nema fáa daga í einu. Jörð er klaka-
laus að kalla. Á milli jóla og nýárs
var rist torf í mýrum hér fram í döl-
um. Varla er hægt að segja, að fallið
hafi snjór í lágsveitum, aðeins fölvað
stöku sinnum. Tvisvar hefir noklcur
snjór fallið til fjalla, en hann hefir
þiðnað fljótlega aftur.
Rússneskar fregnir bera þess
merki, að Rússar búast við
miklum bardögum í Norður-
Rússlandi á sumri komanda.
Þykir þeim líklegt, að Þjóð-
verjar muni reyna að taka
Murmansk og Arkangelsk og
stöðva þannig vopnaflutning-
ana frá Bretlandi og Banda-
ríkjunum um norðurleiðina.
Hafa' Rússar mikinn her i
Norður-Rússlandi til þess að
mæta þessari yfirvofandi árás.
Rússar óttast einnig, að
Þjóðverjar muni reyna að ráð-
ast á Leningrad að norðan, þ.
e. frá Finnlandi. Hafa þeir stór-
an her til varnar á þessum slóð-
um.
Það veldur Rússum þannig
stórkostlegum erfiðleikum, að
Finnar eru samherjar Þjóð-
verja í styrjöldinni og Þjóð-
verjar geta því sótt Rússa frá
Finnlandi. En Rússar mega sér
einum um það kenna, að Finn-
ar eru þátttakendur í styrjöld-
inni. Ef Rússar hefðu ekki ráð-
izt á Finna haustið 1939, myndu
Finnar ekki síður hafa fylgt
hlutleysisstefnunni en Svíar.
Sú árás sýndi Finnum að mark-
mið Rússa var að undiroka þá.
Þeir urðu þess vegna að velja á
milli slíkrar undirokunar eða
verndar Þjóðverja, sem fæstum
beirra þótti góður kostur, en
töldu þó langtum skárri af
tvennu illu. Þýzkt herlið kom
bví strax til Finnlands á árinu
1940 og eftir það gátu Finnar
°kki annáð en fylgt Þjóðverjum,
ef til styrjaldar kæmi milli
beirra og Rússa.
Rússar súpa þannig seiðið af
hinni svívirðilegu og óréttlæt-
anlegu árás sinni á Finna haust-
ið 1939. Vegna hennar verða
beir nú að hafa stórkostlegan
herafla í Norður-Rússlandi, sem
beir .hefðu annars getað notað
á öðrum vígstöðvum gegn Þjóð-
verjum.
Ýmsir lýðræðissinnar hafa um
stund látið blindast af því, að
Rússar berjast nú með lýðræð-
isríkjunum gegn Þjóðverjum,
og telja þá þess vegna betri af
tvennu illu. En framferði Rússa
við Finna og baltisku þjóðirn-
ar haustið 1939 sannar fullkom-
lega, að svo er ekki. Ensku
blöðin skýrðu nýlega frá at-
burðum, sem sýna vel meðferð
Rússa á hernumdum þjóðum.
Á þeim tæpum tveimur árum,
sem Rússar höfðu nokkurn
hluta Póllands á valdi sínu.
fluttu þeir þaðan um tvær
milj. manna til ýmsra fjarlægra
staða í Rússlandi. Þetta fólk var
rifið fyrirvaralítið úr átthögum
sínum, svift nær öllum eignum
sínum og bjó við hinn lökustu
kjör á hinum nýju dvalarstöð-
um. Fyrir tilstilli Bandamanna
hefir þetta fólk nú fengið
frelsi og hafa herfærustu karl-
mennirnir verið valdir til að
ganga I sérstakan pólskan her
i Rússlandi. Þessi her telur nú
um 200 þús manns og sézt
gleggst á því, hversu stórfelldir
bessir fólksflutningar hafa
verið.
Eistlendingar, Lettlendingar
og Litháar sættu sömu með-
ferð og Pólverjar meðan Rússar
réðu ríkjum í löndum þeirra.
Menntamenn, óðalsbændur og
aðrir þeir, sem voru Uklegir til
forustu gegn ofbeldisstjórn
Rússa, voru fluttir til fjarlæg-
ustu staða í Rússlandi og sættu
bar hinum hörmulegasta að-
búnaði. Reynsla Finna hefði
orðið hin sama, ef þeim hefði
ekki tekizt með hinn vasklegu
vörn veturnn 1940 að hrkida
hinni fyrirhuguðu ofbeldisstjórn
Kuusinen af höndum sér.
Þótt rússnesku kommúnist-
arnir séu bandamenn lýðræðis-
þjóðanna um stund, er síður en
svo, að þaðan sé nokkurs góðs
að vænta, ef sigurinn fellur
Bandamönnum í skaut og
Rússar verða þá einhvers meg-
andi. Þeir munu þó reyna að
halda áfram þeirri fyrri iðju
sinni, að reyna að ná smáþjóð-
unum undir yfirráð sín. Þeir
munu þá halda áfram þeim
fyrri- tilraunum sínum, að
steypa lýðræðinu af stóli og
koma á kommúnistisku ein-
ræð í þess stað. Lýðræðisþjóð-
irnar þurfa þá ekki að standa
síður á verði gegri kommúnism-
anum en gegn nazismanum.
Það eru gerólík framtíðar-
markmið, sem um stund hafa
sameinað forráðamenn Rússa
og lýðræðisþjóðanna. Forvígis-
menn Rússa stefna að því að
sigra nazismann, til að útbreiða
hið kommúnistiska einræði á
eftir. Forvígismenn lýðræðis-
þjóðanna stefna að því að sigra
nazismann til þess að treysta
frelsið og mannréttindin í
sessi. Meðan nazisminn er öfl-
ugur og hættulegur andstæð-
ingur, getur bandalag Rússa og
lýðræðisþjóðanna staðizt. En
hverfi hann úr sögunni, er
jafnframt kippt grunninum
undan þessu bandalagi. Á
venjulegum tímum er banda-
lag milli kommúnista og frels-
isunnandi manna ekki hugsan-
legt.
Erlendar fréttir
Batanskaginn er nú allur á
valdi Japana. í lokahríðinni,
sem stóð í nær viku, tefldu
Japanir fram 130 þús. manna
liði gegn 36 þús. manna liði
Bandarikjamanna og Fálipps-
eyinga, þar af voru % Filipps-
eyingar. Japanir voru auk þess
stórum betur vopnum búnir.
Wainwright yfirforingi, ásamt
nokkrum hermönnum, komst
til Corrigidor, eyvirkjanna, sem
Bandaríkjamenn halda enn á
Manilaflóa. Her Bandaríkja-
manna og Filippseyinga var
brotinn að vistum og vopnum
og er fjögra mánaða vörn hans
talin hin frækilegasta.
Stafford Cripps heldur enn
áfram samkomulagsumleitun-
um og er ekki talið útilokað, að
samkomulag náist.
Japanskar flugvélar hafa ný-
^ega sökkt á Bengalflóa tveim-
ur 10 þús. smál. brezkum beiti-
skipum (Cornwall og Dorset-
shire) og einu 11 þús. smál
brezku flugvélaskipi (Hermes)
Næstum allar áhafnirnar björg-
uðust. Flugvélarnar voru fró
mpanskri flotadeild, sem held-
ur til á Bengalflóa, og hafa þær
°nnfremur sökkt flutningaskip-
um fyrir Bretum og gert áráslr
á staði á Ceylon og í Madras-
fylki. Brezkar flugvélar hafa
fundið japönsku flotadeildina
og gert árásir á hana. Ókunn-
ugt er um árangur.
Marshall, yfirhershöfðingi
Bandaríkjahersins, er nú stadd-
ur í London og ræðir þar við
helztu herforingja Breta.
Brezkur kafbátur hefir ný-
lega sökkt 10 þús. smál. ítölsku
beitiskipi á Miðjarðarhafi.
Brezkir kafbátar hafa sökkt
mörgum Itölskum flutninga-
skipum á sömu slóðum.
Bergrav biskup og fleiri for-
(Framh. á 4. síðu)
A víðavangi
DEILUR UM LISTASTEFNUR.
Deila sú, sem Bandalag ísl.
listamanna hefir hleypt af
stokkunum með hinni frekju-
legu og ærumeiðandi árás sinni
á menntamálaráð, getur fengið
gagnlegar afleiðingar. Hún mun
verða til þess að strjúka rykið
af augum margra, svo að þeir
átti sig á því, sem um er deilt.
Kjarni málsíns er í því fólg-
inn, hvort við eigum að taka
opnum örmum hnignunarstefn-
um, sem hingað berast í bók-
menntum og listum og setja
boðbera þeirra á hinn æðsta
bekk, — eða halda áfram að
hlynna að þeirri list, sem á
hljómgrunn í sál þjóðarinnar,
á stoð í þeirri menningu, sem
hún hefir þegið i arf og vill
vernda og fullkomna.
Listamennirnir eru frjálsir
sinna gerða. Þeir geta farið um
öll lönd, numið hinar margvís-
legustu listir og haft heim með
sér. En list þeirra er sömu lög-
málum háð og fræ jurtanna.
Þau bera ekki ávöxt nema þau
fái jarðveg og vaxtarskilyrði við
sitt hæfi. Við getum flutt fræ
hitabeltisjurta rjorður hingað,
en þau dafna ekki, þótt þau
séu gróðursett af ágætum garð-
yrkjumanni.
Hið sama gildir og á að gilda
um framandi hnignunarstefn-
ur, sem reynt er að gróðursetja
hér. Það er ekki nema að litlu
leyti sök listamannsins, sem
hefir þær með sér út hingað.
Hann getur haft prýðileg vott-
orð upp á vasann úr þeim skóla,
sem hann lærði, jafnvel bunka
af lofsamlegum ummælum úr
erlendum blöðum. Sök hans er
aðeins fólgin í þeim misskiln-
ingi, að verk hans muni stand-
ast „íslenzkt veður“ eða ger-
hygli íslendinga sé réttur
iarðvegur fyrir þau, meðan ekki
hefir tekizt að rugla þá til
blindrar aðdáunar á hverjum
lággróðri hinnar merglausu
múgmenningar, sem nagar lífs-
tré hinna ógæfusömu stórþjóða
á meginlandi Evrópu.
SKILNINGSTRÉ GÓÐS
OG ILLS.
íslendingar verða að gera sér
Ijóst, hvaða ávextir eru hollir
á skllningstré listanna og
hverjum beri að skirpa frá sér.
Annars vegar sækja komm-
únistar fram í skipulagðri
herferð til að rugla dómgreind
og mat þjóðarinnar á bók-
menntum og listum, til þess
síðan að geta verið þar einráð-
ir. Geti þeir fengið þjóðina til
að falla fram og tilbiðja allt,
sem Kiljan, Þorbergi og eftir-
öpum þeirra þóknast að bjóða
henni af andlegu ómeti og
rugli, er björninn unninn. Þar
mega menn ekki láta blekkj-
sst af því, að þessir menn hafa
gert og geta gert betur en þeir
gera nú.
Hins vegar standa ýmsir
’istamenn og hversdagslegir
borgarar, sem vitandi vits
mundu aldrei veita kommún-
'stum brautargengi en eru
haldnir þeirri villu, að ekki sé
”étt að blaka við neinu, sem
fram er boðið I nafni bók-
mennta eða lista.
Þeir verða stórreiðir, ef þeir
°ru til hægðarauka nefndir
kommúnistar, í sambandi við
’iðveizlu, sem þeir veita út-
gáfufyrirtækjum og öðrum and-
'egum vopnum kommúnista.
En atburðir síðustu dága
munu hafa gagnlegar afleið-
'ngar. Þeir munu opna augu
bjóðarinnar, svo að hún skilji
um hvað er barizt í raun og
veru.
KVÖLDVAKA
STÚDENTAFÉLAGSINS.
Stúdentafélag Reykjavíkur
efndi til þjóðrækniskvölds í út-
varpinu á miðvikudaginn var.
(Framh. & 4. síðu)
r
A.
kie^ossoottjm
Rockefellerstofnunin styrkir ísl. lækna. — Harðindi
norðanlands. — Sæluvika Skagfirðinga. — Vetr-
arveðráttan í Austur-Húnavatnssýslu.