Tíminn - 11.04.1942, Page 4
113
TÍMINN, laMgardaginn 11. apríl 1942
29. blað
tiK BÆNUM
Maður bíður bana í Hafnarfirði.
í gærmorgun féll aldraður maður,
Jóhannes Elnarsson að nafni, út af
bryggju í Hafnarfirðl ofan á þilfar á
bátinn Garðar, sem þar lá. Maðurinn
beið bána af byltunni. Jóhannes var
vatnsvörður við höfnina og var hann
við starf sitt, er slysið bar að höndum.
Norsk guðsþjónusta í tilefni af
hernámi Noregs.
í tilefni af því að tvö át eru liðin
síðan Þjóðverjar réðust inn í Noreg
var haldin guðsþjónusta í Dómkirkj-
unni kl. 7 í fyrrakvöld, sem Norð-
menn, sem nú dvelja hér i bænum,
stóðu fyrir. Kirkjan var fullskipuð
fólki, þar á meðal allmörgum íslend-
ingum. Þegar allir voru komnir í sæti
sín gengu norskir hermenn með norska
fánann inn í kirkjuna, alla leið inn í
kór. Kirkjugestir risu úr sætum sín-
um og söngflokkur hóf að syngja sálm-
inn „Vor guð er borg á bjargi traust“.
Þar á eftir gekk norski klerkurinn
Kruse í kórdyr. Flutti hann kvæði,
sem fjallaði um hernám Noregs og
hörmungar norsku þjóðarinnar, um
trú hennar á því, að andi frelsislns,
sem aldrei yrði sigraður með vopnum
verðl ráðandi i heiminum á ný. Eftir
að kvæðið hafðí verið flutt var tveggja
mínútna þögn 1 kirkjunni til bæna
gerðar. Síðan bað sr. Kruse fyrir
velferð norsku þjóðarinnar. Athöfn-
inni, sem var mjög hátíðleg, lauk með
því, að allur söfnuðurinn söng norska
þjóðsönginn.
Nýr lögTeglubíll.
Lögreglan hefir tekið nýja bifreið i
notkun í stað bifreiðarinnar R. 1166,
sem lögreglan hefir notað undanfarið
við störf sín.. Er þessi bifreið mun
rúmmeiri en gamla bifreiðin, sem oft
reyndist of lítil.
Norrænir hljómleikar.
Norræna félagið i Reykjavik efnir til
mjög fjölbreyttra hljómleika í Gamla
Bló sunnudaginn 12. apr-fl fyrir félags-
menn og gesti þeirra. Er aðgangur
ókeypis. Þama koma fram ýmsir beztu
hljómlistarkraftar í bænum. Ámi
Kristjánsson og BJörn Ólafsson leika
á fiðlu og píanó ýmis fræg verk, Þor-
steinn Hannesson frá Siglufirði syngur
einsöng og Karlakór Reykjavíkur
syngur undir stjóm Sigurðar Þórðar-
sonar. Tónleikar þessir eru hinir
fyrstu, sem Norræna félagið efnir til
hér í bænum og verða því vafalaust
fjölsóttir.
Aðalfuudur Norrænafélagsins
verður í Odfellowhúsinu (niðri)
þriðjud. 21. apríl, kl. 8,30 e. h. Fyrst
verða venjuleg aðalfundarstörf, en síð-
an verður dansað fram á nótt. Félags-
menn mega taka með sér gesti.
Kylfingur,
blað Golfklúbbs íslands er fyrir
skömmu komið út. í blaðinu er m. a.
þetta efni: Golfklúbbur Vestmanna-
eyja, Golfvísindi í alþýðubúningi og
gi-ein um Golfklúbb íslands. Auk þess
flytur blaðið mynd af ríkisstjóranum,
ásamt flelra efni.
Erlendar fréttir.
(Framh. af 1. slSu)
ustumenn norsku kirkjunnar
hafa verið fangelsaðir.
Amerískur tundurskeytabátur
hefir sökkt japönsku beitiskipi
við Filippseyjar.
Mandalay, hin helga borg
Burma, varð fyrir ógurlegri
loftárás Japana á föstudaginn
langa. Um 2000 manns fórust i
árásinni. Borgin hafði verið
auglýst óvíggírt.
Skipatjón við Ameríku af
völdum þýzkra kafbáta fer nú
minnkandi. Þakka Bandarikja-
menn það bættum vörnum.
Auknar varnir . . .
(Framh. af 1. siðu)
Tillögunni fylgir svohlpóð-
andi greinargerð:
„Þvi var mjög fagnað af öll-
um almenningi í landinu, þeg-
ar ríkisstjórnin sýndi þá rögg
af sér á s. 1. ári að loka vín-
búðum ríkisins. Sú ákvörðun er
talandi vottur um gerhygli
hennar á þeim háska, sem
þjóðinni er búinn af vínflóð-
inu, hún ber og vott um ein-
læga viðleitni til þess að bægja
þessari hættu frá bæjardyrum
hennar. Allir velunnarar bind-
indis og hvers konar öryggis-
varðveizlu í landisu hljóta að
færa ríkisstjórninni þakkir og
viðurkenningu fyrir þá stefnu
í þessum málum, ' sem hún
markaði með lokuninni. En svo
sem af líkum má ráða, hefir
það valdið sárum vonbrigðum,
að ríkisstjórnina skuli nú upp
á síðkastið hafa hrakið nokkuð
af leið þeirrar göfugu og giftu-
sömu ákvörðunar, sem lýst er
hér að framan. Það var strax
upp úr áramótunum síðustu,
sem fyrsta ógæfusporið var
stigið.
Síðan hefir i gegnum bakdyr
vínbúðanna, sem áður var hespa
og lás fyrir, runnið með vaxandi
fallþunga allstríður vínstraum-
ur inn í samkvæmislíf höfuð-
staðarins og víðar. Þetta hefir
skeð með þeim sorglega hætti,
að ríkisstjórnina, sem hér hef-
ir glapizt sýn hefir hent það
slys að veita undanþágur um
vínútlát til notkunar í sam-
kvæmum. Með þessu byrjar
undanhaldið, og svo tekur
flóttinn við frá hinum góða og
hrósverða ásetningi. Nú er sem
sé svo komið, samkvæmt skýrsl-
um, sem við flutningsmenn
þessarar tillögu höfum í hönd-
um, að í viðbót við strauminn,
sem flýtur inn í samkvæmislíf-
ið, þá hafa ýmsir meiri háttar
broddborgarar k-omizt upp á
það krambúðarloftið hjá ríkis-
stjórninni að fá bakdyra megin
vín til eigin neyzlu á heimil-
um sínum og til risnu þar.
Þessum málum er því þannig
komið nú, að Alþingi ber skylda
til að leggja fram lið sitt og
krafta til þess að hið góða og
lofsverða áform ríkisstjórnar-
innar, sem lýsti sér í algerrl lok-
un vínbúðanna, fái aftur að
njóta sín. Útrétt hönd Alþingis,
hófleg og vinsamleg bending og
aðvörun úr þeirri átt ætti að
geta læknað og upprætt þá
veilu í skapgerð ríkisstj órnar-
innar, sem hefir valdið þessari
undanlátssemi. Að þessu lýtur
fyrri liður tillögunnar.
Um síðari liðinn er það að
segja, að það er vitað, að ein-
stakir menn í setuliðinu fá flutt
til landsins með íslenzkum skip-
um og skipum, sem eru á veg-
um íslenzkra skipafélaga, mikl-
ar vínbirgðir og, að því er talið
er, að meira eða minna leyti
keypt fyrir milligöngu íslenzks
manns eða manna í verzlunar-
stétt. Grunur liggur á, — og i
sumum tilfellum eru fyrir sann-
Askornn
frá ríkisst|órniniii.
Ríkisstjórnin skorar hér með á almenning að kaupa nú þeg-
ar, svo mikið sem hægt er, út á matvælaseðla þá, sem nú hefir
verið úthlutað fyrir timabilið apríl til júlí.
Þetta er nauðsynlegt til dreifingar á blrgðum og vegna tak-
markaðs geymslupláss fyrir vörur, sem til landsins eru fluttar.
Þó skal fólki, sem kaupir brauð sín í brauðgerðarhúsum,
bent á, að halda eftir kornvöruseðlum til venjulegra brauð-
kaupa, ennfremur þarf að taka frá seðla handa börnum, sem
fara eiga í sveit og öðrum heimilismönnum, sem á skömmtunar-
tímabilinu kunna að fara til dvalar utan heimilis.
Viðskiptamálaráðuneytið, 9. apríl 1942.
Tilkynning
frá loftvarnanefitd Hafnarfjarðar.
Þegar loftárásarmerki var gefið síðast hér, voru nokkur brögð
að því, að fólk, sem var á ferli um götur bæjarins, leitaði ekki
skýlis í loftvarnabyrgjum og húsum, heldur héldi áfram leíðar
sinnar, eins og ekkert væri um að vera, þrátt fyrir fyrirmæli lög-
reglunnar um að leita skýlis.
Með því að hér er um að ræða mjög varhugavert athæfi, til-
kynnist hér með, að framvegis verða allir sektaðir, sem þrjózk-
ast við að fara eftir fyrirmælum lögreglunnar, þegar yfir stend-
ur loftvarnaæfing eða gefið hefir verið merki um, að hætta sé
á loftárás.
anir —, að frá þessum flutn-
ingum stafi vínútlát til íslend-
inga.
Það er til þess ætlazt, að rík-
isstjórnin gangi vasklega fram
í því og geri til þess allt, sem
unnt er, að komið verði í veg
fyrir þetta ósæmilega og hættu-
lega hátterni.“
Varúðarráðstafanir ..
(Framh. af 1. síðu)
mælt, að fólk skuli hafa á tak-
teinum í húsakynnum sínum
böggul með hlýjum fatnaði og
sængurbúnaði og matvælum,
sem geymast, til dæmis niður-
suðuvörur og rúgkex. Mun fólk
þegar hafa keypt mest, sem fá-
anlegt er af niðursuðuvörum í
bænum í bili. Þessar matar-
birgðir eru ekki einungis gágn-
legar, ef skyndibrottflutning
ber að höndum, heldur líka, ef
bærinn yrði rafmagnslaus, gas-
laus eða vatnslaus um skeið, til
dæmis af völdum loftárásar,
eða dreifing matvæla úr búðum
brigðist úm stundarsakir.
En eitt vill ríkisstjórnin og
þeir, sem að þessum málum
hafa unnið fyrir hennar hönd,
leggja áherzlu á: Hér er aðeins
um varúðarráðstafanir að ræða,
og það er allra von, að hér komi
aldrei til átaka millx fjandsam-
legra herja, þótt hitt væri ó-
hyggilegt og óverjandi, að búa
sig ekki undir að mæta slíku á
rólegan og skynsamlegan hátt,
þegar veður öll eru svo válynd
sem nú er.
Þakkaroið^
Innilegt þakklæti vott^ ég
sveitungum mínum, sem færðu
mér á síðastliðnu hausti rausn-
arlega peningagjöf upp
sjúkrahússkuld.
Ennfremur færi ég hugheil-
ar þakkir öllum þeim mörgu,
sem á margvíslegan hátt veittu
mér styrk í langvarandi van-
heilsu. Ég bið guð að blessa
ykkur öll og launa, er mest á
liggur.
Höll, í desember 1941.
Ragnheiður Einarsson.
Sendisveinn
óskast strax.
Umsókn sendist skrifstofu-
stjóranum fyrir hádegi á mánu-
dag 13. þ. m.
Landsbanki Islands.
Á víðavangi.
426
Victor Huco:
Esmeralda
427
þeirra og látbragð .ástúðlegt. Þungur
grunur vaknaði I huga hans og styrkt-
ist smám saman, ■ grunur, sem fyllti
hann skömm og reiði.
Liðsforingjanum gat hann rutt úr
vegi — en þessum manni!
Þessar hugsanir gerðu hann ringlað-
an.
Næturnar voru hræðilegar. Hann var
að vísu hætt að dreyma dauða og aftur-
gengna, en Iroldsfýsnin var á nýjan leik
tekin að þjá hann. Hann vissi af stúlk-
unni, ungri og hörundsbrúnni, í ná-
munda við sig og bylti sér friðlaus í
rúmi sínu. Þá þóttist hann sjá Esmer-
öldu fyrir framan sig í þeim stellingum,
er vöktu honum mesta æsingu: Hann sá
hana lúta yfir liðsforingj ann, sem lá
helsærður með lokuð augu; brjóst henn-
ar var atað blóði liðsforingjans — og í
þeim svifum kyssti hann, sjálfur erki-
djákninn, fölar varir hennar. Enn fann
hann, hve sá koss brann á vörum sínum.
Hann sá hana líka rifna úr fötunum af
klunnalegum höndum böðlanna og
smáa, yndisfagra fætur hennar setta í
„spönsku skóna.“ Loks sá hann hana
nær klæðlausa með snöruna um háls-
inn. Axlir hennar eru naktar, fætur
hennar eru naktir, öll er hún nær nak-
in. Þannig hafði hann séð hana síðast.
Hann skalf allur og nötraði.
Nótt eina kvöldu hugsanir hans hann
svo geipilega, að hann rauk fram úr
fleti sínu, brá um sig kápu og fór út með
ljós í hendinni. Hann var lítt klæddur
og augnaráðið villimannlegt.
Hann vissi, hvar lykillinn að rauða
kirkjuhliðinu var geymdur, en lykil að
turnstiganum bar hann ávalt á sér.
ELLEFTA BÓK.
I. KAFLI.
Björgun.
Ssmeralda hafði gengið vonglöð til
náða um kvöldið. Allt hið liðna var í
fyrnsku fallið. Hún hafði notið svefns
um stund og dreymt Föbus að vanda,
þegar óvænt háreysti barst að eyrum
hennar. Hún svaf léttum svefni eins
og fugl. Hið minnsta hljóð grandaði
svefnfriði hennar. Hún opnaði augun
og skyggndíst um. Það var myrkt að
nótt, en eigi að síður sá hún, úti við
gluggann, andlit sem starði á hana.
Klefalampinn bar daufa birtu. í sama
mund og vera þessi varð þess vör, að
Esmeralda hafði gefið henni gætur,
slýkkti hún ljósið. Unga stúlkan hafði
samt sem áður borið kennsl á gest
þennan. Hún lagði augun aftur, altekin
ógn.
(Framh. af 1. síðu)
Lögðu margir ágætir menn þar
skerf til, enda var kvöldavaka
þessi hin myndarlegasta. .
Sérstaka athygli vakti hin
snjalla og hispurslausa ræða
Benedikts Sveinssonar um
verndun islenzkrar tungu og
þjóðlegra verðmæta. Fletti hann
ofan af úrkynjunarstefnu þeirri
í bókmenntum og rithætti, sem
talsvert hefir gert vart við sig
á síðari árum og gerir jafnvel
kröfu til að taka forustuna í
andlegu lífi íslendinga. Þessi
stefna dregur bókmennta-
smekk og málsmekk þjóðarinn-
ar niður í svaðið. í henni er allt
leyfilegt og hún er svo lítilsigld,
að hver bögubósi og hermi-
kráka þykist þar hlutgengur til
rithöfundarframa.
Þegar svo er komið, verða þeir
íslendingar, sem er annt um
sjálfstæði og virðing þjóðarinn-
ar, að stinga við fótum og gera
slíka fúlmennsku óalandi og ó-
ferjandi. — Það er léttara að
gera órímað en rímað kvæði.
Skussarnír, sem hvorki þekkja
bragreglur né hafa brageyra,
taka því feginshendi erlendum
sem íslenzkum fyrirmyndum að
rímlausri ljóðagerð.
Kom Benedikt víða við í
stuttu máli og var ræða hans
öll þrungin þeirri glóð, sem
vermdi hugi Hafnarstúdent-
anna gömlu, þegar sjálfstæðis-
mál íslendinga voru innsta
hjartans tilfinningamál þeirra,
en ekki tildursorð innan um fá-
nýtt pex með eða móti erlend-
um öfgastefnum.
Vinnið ötullega fyrir
Títnann.
~~~——NÝJA BÍÓ------
Á suðrænum
slóðum
. (Down Argentine Way).
Fögur og skemmtileg
stórmynd tekin í eðlileg-
um litum.
Aðalhlutverkin leika:
DON AMECHE
og
BETTY GRABL. ..
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Lægra verð kl. 5.
Tilkynning
Srá ríkisstj órninni
Vegna hættu þeirrar, sem af ófriðnum leiðir, vill ríkisstjórnin
benda á eftirfarandi:
1) Þeir sem geta farið burt úr Reykjavík atvinnu sinnar
vegna, ættu að dvelja utan bæjarins í sumar, ef þeir eiga
þess kost.
2) Ef hér kemur til hernaðaraðgerða er bæjarbúum þeim,
sem þá eru í bænum, ráðlagt að dvelja í bænum, frekar
en að leita burtu á skipulagslausan hátt.
3) Engu að síöur hefir þótt rétt að gera áætlanir um, hvernig
hópferðum úr bænum yrði fyrir komið, ef óhjákvæmilegt
þætti að stofna til þeirra. Munu þær áætlanir birtar, ef
nauðsyn krefur.
4) Ub skyndibrottflutning barna hefir verið gerð áætlun,
sem nauðsynlegt er að almenningur kynni sér nú þegar:
Höfuðatriði hennar eru þessi:
Skyndibrottflutningur barna myndi fara fram sem hópferð,
og yrði hann auglýstur fyrirvaralaust, ef til hans kæmi.
Lagt yrði upp frá nokkrum stöðum í bænum, og þau börn,
sem ekki kæmu á tilsettum tíma gætu ekki orðið brottflutnings-
ins aðnjótandi.
Börnin yrðu fyrst flutt i stórum hópum til einhverra staða
i fárra stunda ferð frá bænum, þar sem hægt er að koma þeim
í húsaskjól og sjá þeim fyrir mat, en síðan dreift um sveitirnar,
jafnskjótt og æskilegt þykir, eða möguleikar eru fyrir hendi.
Vegna skorts á farartækjum og húsaskjóli verður að gera ráð
fyrir verri aðbúð barnanna en á venjulegu ferðalagi, og verri að-
búð á dvalarstaðnum.
Fyrsta skilyrðið til þess, að brottflutningur sem þessi geti
farið vel fram, er það, að börnin séu vel búin að klæðum og hafi
nokkurt nesti. Annan farangur mættu börnin ekki hafa með sér.
Ferðaútbúnaður verður ávallt að ver til tks, svo ð hægt sé
að grípa til hans.
Brottför verður tilkynnt með um tveggja klukkustunda fyr-
irvara, ef til kemur, og verður að vera hægt að útbúa börnin á
þeim tíma, ef þau eiga ekki að missa af ferðinni.
Börn þau, sem taka þátt í brottflutningnum, eiga/ að klæð-
ast fatnaði þeim og hafa meðferðis nestispakka þann og teppi
(sæng) sem um getur 1 auglýsingu hér í blaðinu um varúðar-
ráðstafanir vegna ófriðarhættu.
Farangurinn verður að vera sem fyrirferðarminnstur, og á
hvert barn að hafa sinn farangur bundinn í böggul, merktan
nafni og heimilisfangi, og verður barnið eða fylgdarmaður þess,
að geta haldið á honum á leiðinni. Pakkar þyngri en 10 kg.
verða ekki leyfðir, og þau börn gerð afturreka. sem hafa of mik-
inn farangur.
Skilyrði til þátttöku eru að öðru leyti þau, að börnin séu 14
ára eða yngri. 12—14 ára börn eiga að hafa meðferðis vegabréf
sitt. Æskilegt er, að yngri börn hafi einnig meðferðis miða með
áletruðu nafni sinu og heimilisfangi.
Börn, sem eru 7 ára eða yngri, verða að vera í fylgd með
einhverjum (fullorðnum eða stálpuðum börnum), sem getur séð
um þau.
Til þess að forðast óþarfa troðning, mega ekki aðrir en
samferðafólk fylgja börnunum á sjálfa brottfararstaðina. Full-
orðið fólk, sem verður í fylgd með smábörnum, verður að vera
búið undir brottförina á svipaðan hátt og börnin.
Foreldrar verða að ákveða sjálfir hvort þeir vilja senda börn
sín burt úr bænum undir þeim skilyrðum, sem að ofan greinir
og hafa þau þá útbúin samkvæmt ofanskráðu.
__——GAMLA BÍÓ--
PYGMALION
eftiT Bernard Shaw.
Aðalhlutv. leika:
LESLIE HOWARD
Og
WENDY HILLER.
Sýnd kl. 7 og9.
Framhaldssýning 3/4-6Í4:
OFSÓTT
með
BUSTER KEATON 0. fl.
Bannað fyrir börn
innan 12 ára.