Tíminn - 10.05.1942, Síða 4
176
TlMDfiy, smimndagimi 10. mai 1642
45. bla»
Stjórnarskrárfrumv. Alþýðufl. er óundírbú-
ið og vanhugsað og leysir enga ágalla
kosníngaskipulagsins
Stöðvunarval d
Alþbl. segir, að Sjálfstæðis-
menn, Alþfl., Bændaflokkurinn
og kommúnistar hafi myndað
bandalag til að koma á stjórn-
arskiptum, kosningum í vor,
sumarþingi, kosningum í haust
og öðru þingi fyrir jól. Alþfl.,
sem til skamms tíma hefir ekki
átt nógu ill orð til um Sjálf-
stæðismenn og leiðtoga þeirra,
segjist nú ætla að styðja ráðu-
neyti Sjálfstæðismanna, og
bætir við, að kommúnistar verði
að gera það líka. Kommúnist-
ar segja í sínu blaði, að nú sé
vel farið. Framsóknarmenn og
Sjálfstæðismenn skilji, og ekki
með sérstakri vinsemd. Stjórn-
in verði veik og vanmáttug.
Það er auðséð, að kommún-
istar búast við góðu, vaxandi
upplausn í landinu, hraðvax-
andi dýrtíð, verðfalli peninga,
hruni atvinnufyrirtækja og
stórfelldu atvinnuleysi.
Tveir stærstu flokkar þings-
ins höfðu gert með sér sátt-
mála um að verjast gegn dýr-
tíðinni. Gerðardómurinn hefir
stöðvað hækkun vísitölunnar.
Skattalög, ' sem núverandi
stjórnarflokkar standa saman
um, tryggja þjóðfélaginu mikl-
ar tekjur af stríðsgróðanum til
viðréttingar atvinnulifinu.
Alþýðufl. bauð nú Sjálfstæð-
isflokknum góð boð. Sex kjör-
dæmi skyldu tekin með laga-
breytingu af Framsóknarmönn-
um og gefin Sjálfstæðisflokkn-
um. Héðinn Valdimarsson ætl-
aði eitt sinn að leggja Kveldúlf
að velli með alþingisdómi. Sú
framkvæmd var stöðvuð í það
sinn af Framsóknarmönnum.
En Alþfl. selur kjördæmin dýrt.
Sjálfstæðisflokkurinn verðúr að
ganga úr stjórnarsamvinnunni,
standa einn síns liðs með stjórn
landsins, og tvo mjög ótrygga
og ófriðarfíkna stuðningsflokka
sér við hlið. Meginhluti þjóð-
arinnar er algerlega mótfallinn
öllu brölti með stjórnarlög
landsins. Þjóðin vill samstarf
allra ábyrgra manna í landinu,
sterka stjórn og samhenta.
Enn má rétta málið við. Kjós-
endur geta borið vit fyrir þeim,
sem standa að sundrung þings
og þjóðar. Það má stöðva upp-
lausnina í landinu með því að
Framsóknarflokkurinn fái
stöðvunarvald á Alþingi í sum-
ar. Framsóknarmenn eru nú 19
á þingi. Ef þeir hafa 24 þing-
menn, þá verður stjórnarskrár-
breytingin felld. Þjóðin hefir þá
kveðið upp sinn dóm. Aðalflokk-
ar Iandsins myndu þá taka upp
samstarf að nýju. Kommúnist-
um yrði ekki að von sinni, um
vaxandi upplausn, aukna dýr-
tíð, verðfall peninganna o. s.
frv. Næstu vikur hafa borgarar
landsins gott tóm til að velja
milli stjórnlaga Ásgeirs Ás-
geirssonar eins og þau eru úr
garði gerð, — eða samstarfs og
viðreisnar í landinu. J. J.
tn BÆNUM *
Skotæfingar.
Setuliðsstjórnin tilkynnir: Skotæf-
ingar fara fram nálægt daglega kl.
8—16, 10. maí — 16. maí.
Ferðafélagið
efnir til farar suður á Reykjanes í
dag. Farið verður kl. 9 f. h. frá af-
greiðslu Sameinaða. Farið verður alla
leið út að Reykjanesvita. Útsýni úr
vitanum er mjög fagurt og á leiðinni
suðureftír gefur að líta stórbrotið og
facrurt landslag með hrikalegum hell-
um og giósandi hverum. Brimið við
Reykjanes er annálað fyrir stórfeng-
leik og fegurð.
Snæfellingafélagið
hélt skemmtifund í Oddfellowhúsinu
í fyrrakvöld. Var það síðasti skemmti-
fundur félagsins á árinu. Meðal
skemmtiatriða var, að I. O. G. T. kór-
inn ,sem er blandaður kór, söng und-
ir stjórn Jóhanns Tryggvasonar. Róbert
Abraham aðstoðaði með undirleik í
nokkrum lögum. Kórinn söng mörg lög
og vakti mikla hrifningu samkomu-
gestanna. Eftir að kórinn lauk söng
sínum vár dans stíginn langt fram á
nótt.
Knattspyrnumótin í sumar.
Þessi knattspyrnumót hafa verið
ákveðin í Reykjavik á sumrinu: 3. fl.
mót hefst 18. maí. 2. fl. mót hefst 26.
maí. 1. fl. mót hefst 10. júní. Reykja-
vikurmót (meistaraflokkur) hefst 6.
ágúst. 4. fl. mót hefst 30. ágúst.
Walterskeppnin hefst 6. september.
Sfcrifstofa
Framsóknarflokksins
er á Llndargötu 9A
(Framh. af 1. siBu)
En sé gengið inn á slíka braut,
er hér raunverulega ekki um
kosninga- eða kjördæmaskipun
að ræða, heldur pólitiska verzl-
un milli flokka í hvert sinn að
afstöðnum kosningum, þar sem
sérstök fríðindi eru boðin öðr-
um flokknum gegn von hins um
ríflegan skerf af uppbótarsæt-
um. Er hér sýnilega stefnt til
upplausnar á allri kjördæma-
skipun landsins og varanlegri
ójafnaðar milli flokka en áður
hefir þekkzt. Getur þetta á-
stand leitt til þess, að litlu máli
skipti að vinna meirihluta í
kjördæmum, heldur aðallega
hitt, að vinna sem flest atkvæði,
hvar sem er, til að geta stundað
slíka verzlun með sæmilegum
árangri. Er þá gildi kjördæm-
anna þurrkað út. Þar sem at-
kvæðamagnið eitt ræður í slíkri
verzlun, og það breytist frá ein-
um kosningum til annarra,
verður jafnan möguleiki til
slíkra samninga um breytingar
á stjórnarskrá ríkisins að hverj-
um kosningum afstöðnum. Má
það vera öllum augljóst, hver
upplausn og spilling stafar af
slíku fyrirkomulagi á einu við-
kvsemasta atriði stjórnarskrár-
innar.
Eftir að þetta er samið, hefir
komið 1 ljós, að aðstandendur
frv. hafa hætt við að stofna ný
kjördæmi á Akranesi og í Nes-
kaupstað. Ber það vitni um, að
jafnvel þeim hefir skilizt, að
þau rök, sem felast í gagnrýn-
inni á frv. hér að framan, eru
óvéfengjanleg. Hitt hefir þó ef
til vill ráðið meir, að þeir hafa
séð flokkum sínum litils ávinn-
ings von við stofnun þessara
tveggja kjördæma, þar eð mikl-
ar líkur voru til, að Framsókn-
arflokkurinn gæti þá unnið
Borgarfjarðarsýslu og bæði sæt-
in í Suður-Múlasýslu, þrátt fyr-
ir hlutfallskosningu í síðar-
nefnda kjördæminu. Fyrir þeim
rökum mun meirihlutinn haga
beygt sig. En það sýnir þá jafn-
framt, hversu mjög þetta frum-
varp er miðað við augnabliks-
ástand og togstreituna milli
flokka.
Fleirí smáflokkar.
Á það er einnig rétt að benda
hér, að ef þessi breyting á
stjórnarskránni nær fram aö
ganga, eru mjög auknir mögu-
leikar til að stofna nýja smá-
flokka og ýta undir hvers kon-
ar spákaupmennsku í sambandi
við kosningar til Alþingis. Hægt
væri t. d. fyrir þá flokka, sem
leggja einhliða rækt við að fá
kjósendafylgi í þéttbýlinu, að
stofna sérstakan flokk eða
bjóða fram utanflokka í tví-
menningskjördæmunum, og f&
þannig stuðning sinn frá minni
hluta dreifbýlisins, án þess að
það dragi neitt frá atkvæða-
magni þeirra í þéttbýlinu og
rétti til uppbótarsæta. Er þá
opin leið fyrir þéttbýlisflokk-
ana til að nota minnihluta-
stuðning sinn í dreifbýlinu til
að fá þar þingmenn kosna með
minna atkvæðamagni en aðal-
dreifb'ýlisflokkurinn hefir eða
kann að hafa á hvern kosinn
þingmann sinn og þá jafn-
framt til að hlaða undir kröf-
una um auknar uppbætur fyrir
þéttbýlið. Hægt er að koma
þingmanni að og mynda þann-
ig þingflokk án þess að ná
meirihlutakosningu í nokkru
kjördæmi landsins. Er augljóst,
hve mjög slíkt hvetur til nýrr-
ar flokkamyndunar í landinu.
Flokkur, sem fær y3 hluta at-
kvæða, eða jafnvel mun minna,
í einu tvímenningkjördæmanna,
er þar með orðinn þingflokkur,
og hlýtur það að lækka mjög
hlutfallstölu kosninganna frá
því, sem nú er.
Reynsla er fengin fyrir því
erlendis, að fátt er styrkleika
lýðræðisins jafnhættulegt eins
og mjög margir þingflokkar. Má
þar vitna til Þýzkalands, þar
sem smáflokkar þutu upp í kjöl-
far hlutfallskosninganna, en
stjórnarfar þess lands og fleiri
slíkra segir til um það, hve hollt
þetta reyndist lýðræði og mann-
réttindum.
Hins vegar standa England
og Bandaríki Norður-Ameríku
nú í fylkingarbrjósti þeirra
þjóða, sem enn þá verja og
vernda lýðræðið og hvers kon-
ar mannréttindi, en þau hafa
aldrei tekið upp hlutfallskosn-
ingar eða uppbótarfyrirkomu-
lag í stjórnarskrá sina eða
kosningalög, og hafa þar af
leiðandi fáa þingflokka.
Hefndarverk
Alþýðuflokksins.
Þá er ekki síður athyglisvert,
hvernig frumvarp þetta er fram
komið. Alþýðuflokkurinn, sem
ber það fram, hefir svo að segja
óslitið staðið að stjórn lands-
ins frá 1934, þegar siðasta kjör-
dæmabreyting kom til fram-
kvæmda. Á þeim tíma hefir
hann aldrei lagt neina áherzlu
á það, að nauðsyn væri breyt-
ingar á kjördæmaskipun lands-
ins. En nú í vetur, er hann taldi
sér heppilegt við bæjarstjórn-
arkoshingar þær, er fram fóru,
að vera laus við stjórnarábyrgð,
setur hann þessar breytingar
fram á kosningadegi, að þvi er
virðist með öllu óathugað og ó-
undirbúið. Jafnframt mun hafa
verið svo til ætlazt, að þetta
mál mætti nota til að rjúfa
stjórnarsamvinnu þá, sem nú
er, og kippa þannig fótunum
undan framkvæmd dýrtíðar-
málanna, sem samkomulag
hafði náðst um milli núverandi
stjórnarflokka.
Öll nauðsynleg og aðkallandi
mál eiga að víkja og bíða úr-
lausnar á þessum hættulegu
tímum fyrir þessum óskapnaði,
sem allir viðurkenna, að sé eng-
in framtíðarlausn, og margir
telja, að sé spor aftur á bak um
réttláta skipun kosninga til Al-
þingis. Er undarlegt, ef Sjálf-
stæðisflokkurinn, sem ekki hef-
ir, fremur en Alþýðuflokkurinn,
krafizt breytinga þegar hægt
var um vik, tekur þátt í frum-
hlaupi þessu.
Af því, sem þegar er sagt, er
það ljóst, að frumvarp þetta er
mjög vanhugsað, eða þá vill-
andi sagt til um tilgang þess,
enda, eins og fyrr var sagt, und-
irbúningur þess lítill sem eng-
inn.
HluÉfallskosningar í
tvímeiiningskjördæm-
um gera áhrif þeirra
að engu.
Hlutfallskosningar í tví-
menningskjördæmum skapa á-
kaflega fráleitar niðurstöður,
þegar margir flokkar keppa um
aðeins tvö þingsæti. Munu þess
heldur engin dæmi í neinu
iandi, að hlutfallskosning til
löggjafarþings sé viðhöfð í tví-
menningskjördæmi. En það
veikir eða jafnvel eyðir áhrif-
um kjósenda þessara kjördæma,
eða meirihluta þeirra, til að
ráða lausn ágreiningsmála á
þingi, og flokkarnir einir fá þar
öll tök. Léttir þetta mjög undir
myndun smáflokka, eins og þeg-
ar er að vikið.
Strjálbýlið fær að vísu að
halda sinum þingmönnum flest-
um að nafni til, en séð verður
fyrir þvi um leið, að svo fjöl-
mennur og sterkur meirihluti
myndist gegn þeim, að þau
verði áhrifalaus eða áhrifalítil.
Það á að auka áhrif þéttbýlis-
ins eða flokka þess með þvi að
tryggja þeim, sem leiðitamastir
eru í dreifbýlinu, meiri rétt en
hinum, sem vilja styðja flokk
og samtök dreifbýlisins og vinna
sérstaklega að málum þess.
Hér getur enginn villzt um
tilganginn, sóknina á hendur
dreifbýlinu. Einn af þingmönn-
um Reykjavíkur lét svo um
mælt við 1. umræðu þessa máls,
að fé ríkissjóðs væri notað til
að afla kjörfylgis í sveitakjör-
dæmum, með framlögum og
styrkjum til ýmisskonar fram-
kvæmda í dreifbýlinu. Virtist
hann gera sér vonir um, að með
frumvarpinu yrði bót á þessu
ráðin, frá hans sjónarmiði. Er
hér gefin eigi ófróðleg bending
um það, sem koma skal. Minnir
þetta glögglega á ummæli
sumra Reykjavíkurblaðanna ár-
ið 1931 um það, sem þau köll-
uðu óhæfilegan fjáraustur í
þágu hinna dreifðu byggða
landsins.
Hér að framan hafa verið
raktir nokkrir höfuðgallar
þeirra breytinga á kjördæma-
skipuninni, sem í frumvarpinu
felast. Slíkum breytingum get-
um vér ekki mælt með. En jafn-
vel þótt gallarnir hefðu ekki
verið svo augljósir og áberandi
sem raun ber vitni, mundum
vér eigi að síður hafa verið mót-
fallnir hvers konar breytingu á
stjórnarskrá ríkisins, eins og nú
er ástatt. Af þeirri ástæðu út
af fyrir sig, og alveg sérstak-
lega, hljótum vér að mæla gegn
því, að þetta frumvarp nái fram
að ganga á Alþingi.
Hringlið með
sífóriinrskrána.
Eins og áður var fram tekið,
stendur fyrir dyrum að breyta
stjórnarskránni af ástæðum,
sem þessu frumvarpi eru óvið-
komandi (þ. e. vegna utanrikis-
mála, æðstu stjórnar ríkisins o.
fl.). Breytingar þær, sem þar
er um að ræða, eru enn engan
veginn svo undirbúnar sem þarf,
enda samráð manna.að rétt væri
að fresta þeim fyrst um sinn.
Virðist þá einsætt að hrófla
ekki við stjórnarskránni fyrr en
að því kemur, heldur sameina
það tvennt, að gera þessa óhjá-
kvæmilegu breytingu og taka
upp þau önnur nýmæli, sem
þjóðin kynni að hafa hug á, t.
d. breytingu á skipan Alþingis
og kosningum til þess. Hitt nær
engri átt, að rótað sé við grund-
velli stjórnskipulagsins sí og æ
með fárra ára millibili, og ætti
Alþingi ekki að leyfa slík vinnu-
brögð.
Enn fremur skal á ný á það
minnzt, að breyting sú, sem hér
er farið fram á, myndi hafa i
för með sér tvennar kosningar,
enda beinlínis ákveðið í frum-
varpinu, að svo skuli vera. Skal
nú að því atriði málsins nánar
vikið.
Kosniiijgafrestim í
fyrra. — Tvennar
kosningar í sumar.
í fyrravor samþykkti Alþingi,
með tilliti til hins alvarlega út-
lits af völdum styrjaldarinnar,
að fresta almennum kosning-
um til Alþingis, sem fram áttu
að fara á árinu 1941. Var þá gert
ráð fyrir, að kosningar færu
ekki fram fyrr en eitthvað drægi
úr þeim hættum, sem yfir þjóð-
inni vofðu vegna ríkjandi á-
stands í heiminum. Slík kosn-
ingafrestun átti sér ekki for-
dæmi í sögu landsins, en nauð-
syn hennar var almennt viður-
kennd, og hún reyndist fram-
kvæmanleg vegna þess, að allur
þorri alþingismanna stóð sam-
an um þessa ráðstöfun og studdi
þá ríkisstjórn, sem tókst á
hendur að láta niður falla boð-
un kosninganna. Nú eru þeir
möguleikar til kosningafrestun-
ar, sem þá var um að ræða, að
vísu ekki lengur fyrir hendi.
Þau skilyrði, sem nauðsynleg
voru til áframhaldandi kosn-
ingafrestunar, voru ekki haldin,
svo sem þurfti. Um það náðist
ekki samkomulag, að „friðar-
kosning" færi fram í kjördæm-
um, sem urðu þingmannslaus.
Varð þá annaðhvort að stofna
til kosningabaráttu milli aðal-
flokka eða láta viðkomandi hér-
öð vera án fulltrúa, og var sú
leið valin, en eigi getur svo lengi
staðið. Eftir þetta voru kosn-
ingar til bæjarstjórna og
hreppsnefnda í kauptúnum
látnar fara fram. Þá hefir nú
sú breyting á orðið, að ekki er
lengur „þjóðstjórn“ í landinu
og rofnað hefir sú samvinna,
er áður var milli aðalþingflokk-
anna þriggja, og sýnt, að nú eru
margir alþingísmenn frekari
-----OAMTJ> BtO ---i
Smith hjónin
(Mr. & Mrs. Smith)
CAROLE LOMBARD
ROBERT MONTGOMERY
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
(Barnasýning kl. 3)
Gulliver í Putalandi
sýningunum seldir frá kl.
11 f. h.
tJA mtó.
Karlmenni
Og
kvennatöfrar
(This Woman is mine).
Aðalhlutv. leika:
FRANCHOT TONE,
JOHN CARROLL,
CAROL BRUCE.
Sýnd kL 5, 7 og 9.
Börn innan 16 ára fá ekkí
aðgang.
Barnasýning kl. 3
ARGEINTÍSKAR NÆTUR
með Ritz bræðrum og
Andrews systrum.
The World’s News Seen Through
The Christian Science Monitor
An Intemational Daily Newsþaþer
ú Trutbful—Coxutrtictivc—Unbúutd—Frm fron SenMtional*
urn — EditoriaLs Are Timely and In.truotíve euad Iu Daily
Features, Together with the Weeltly Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspaper for the Home.
The Ghristian Science Publishing Sociecy
One, Nerway Streec, Boston, Massachusetts
Price Í12.00 Yearly, or #1.00 a Month.
Saturday Issue, induding Magaztne Sechon, #2.60 a Year.
Incroductory Offer, 6 Issues 23 Cents.
SAMPLB COPY ON RHQUBST
kosningafrestun mótfallnir.
Enda virðist nú almennt gert
ráð fyrir kosningum á næsta
sumri. En þótt möguleikarnir
til kosningafrestunar séu eigi
fyrir hendi nú, má fullyrða; að
þörfin fyrir hana sé hin sama
nú og i fyrra, svo að ekki sé
meira sagt. Af því leiðir aftur,
að óverjandi má telja að stofna
til fleiri kosninga en nauðsyn-
legt er, meðan ástandið ekki
þreytist. Þó að það reynist nú
óhjákvæmilegt að stofna til
kosninga á þessu sumri, til að
koma umboðum alþingismanna
á venjulegan grundvöll, nær hitt
engri átt, að knýja fram við-
bótarkosningar eftír nokkra
mánuði og ætla ríkisstjórn,
þingmönnum og alþjóð manna
að eyða kröf-tum til slíkra átaka,
til að koma fram stjórnarskrár-
breytingum, sem ekki styðja
þjóðina á neinn hátt í erfið-
leikum yfirstandandi tíma og
ekki geta verið til frambúðar.
En það hyggjum vér almennt
viðurkennt, jafnvel af fylgjend-
um frumvarpsins, að kjördæma-
skipun sú, sem þar er gert ráð
fyrir, mundi eigi eiga sér lang-
an aldur.
Vér getum heldur ekki komizt
hjá að benda á það, að kosn-
ingabaráttan á næsta sumri
hlýtur að verða með allt öðrum
hætti, ef frumvarp þetta verð-
ur samþykkt, en hún ella mundi
verða. Ef deilan um kjprdæma-
skipunina verður aðalmál kosn-
inganna, hlýtur það að leiða til
mjög harðra átaka milli flokk-
anna, sem þar standa á önd-
verðum meið, og milli hags-
muna dreifbýlisins og þéttbýl-
isins í landinu. Þessu til sönn-
unar nægir að benda á kosn-
ingabaráttuna 1931, eins og
réttilega var minnt á af Jakobi
Möller fjármálaráðherra við 1.
umræðu þessa máls. Það er allt
annað að ganga til kosninga í
sumar um hin almennu við-
fangsefni, sem nú eru til úr-
lausnar, eða hitt, að láta kosn-
ingar aðallega snúast um hið
viðkvæmasta allra þjóðmála,
réttinn til áhrifa á skipan Al-
þingis.
Vanhugsað glapræði.
Vér getum ekki komizt hjá
að lýsa undrun vorri yfir því,
ef verulegur hluti þingmanna
hugsar til þess, að vel athug-
uðu máli, að knýja þetta frum-
varp fram á Alþingi. Vér vilj-
um minna á það, sem fyrr var
nefnt, að málið virðist fram
borið af stjórnarandstæðingum
til pólitísks stundarávinnings
fyrst og fremst. Frumvarpið var
birt opinberlega daginn sem
kosning til bæjarstjórnar fór
fram í Reykjavík. En hart er
það, ef stuðningsmenn rikis-
stjórnarinnar gera þann óvina-
fagnað að láta það verða til að
torvelda störf stjórnarinnar að
hinum þýðingarmestu viðfangs-
efnum og gína við því, sem er
tálbeita ein. Þær liklegu und-
irtektir, sem frumvarp þetta
hefir hlotið hjá mörgum stuðn-
ingsmönnum ríkisstjórnarinn-
ar, m. a. í stjórnarskrárnefnd-
inni, hefir þegar seinkað störf-
um Alþingis og teflt í tvísýnu
framgangi sumra mikilvægra
mála, sem þurftu bráðrar úr-
lausnar. Hyggjum vér mál til
komið, að hér verði reynt að
snúa til betri vegar.
Þrátt fyrir atkvæðagreiðslu
þá, sem fram hefir farið í
stjórnarskrárnefnd, viljum vér
ekki trúa því fyrr en i lengstu
lög, að meirihluti Alþingis ger-
ist svo sljóskyggn á skyldur sin-
ar og alvöru komandi tíma, að
hann hætti því samstarfi, sem
verið hefir á þingi og í rikis-
stjórn, og þeim málum, sem
þjóðinni eru mikilsverðust, til
þess að gera ónauðsynlega, óat-
hugaða bráðabirgðabreytingu á
stjórnarskrá ríkisins, og vinni
það til ofan á allt annað að
hrinda þjóðinni út í tvennar
kosningar í stað einna, og þá
sérstaklega með það í huga, að
þessar tvennar kosningar muriu,
ef þannig er til stofnað, verða
til óvenjumikillar sundrungar
með þjóðinni, og það út af máli,
sem ekki getur talizt sérstak-
lega aðkallandi einmitt nú,
heldur þvert á móti. En ef svo
ólíklega fer, munium vér, og
Framsóknarflokkurinn í heild,
frábiðja oss alla ábyrgð á því-
líkum tiltektum.
Á það má benda, að þing-
meirihluti sá, sem skapast
mundi um framkvæmd þessa
máls og eðlilega færi með stjórn
landsins fyrst um sinn, hlyti,
ef af líkum ræður, að verða
næsta ósamstæður í flestum
öðrum málum, og er þá auð-
sætt, hversu stefnir um úrræði
af ríkisvaldsins hálfu.
Framsóknarflokkurinn mun,
með tilvísun til þess, sem að
framan er sagt, flytja á Alþingi
tillögu til þingsályktunar um
kosningu milliþinganefndar til
að endurskoða stjórnarskrá
ríkisins. Jafnframt leggjum vér
til, að þetta frumvarp verði af-
greitt með svo hljóðandi rök-
studdri dagsskrá:
Með því að með frumvarpi
þessu er stofnað til vanhugs-
aðrar, óundirbúinnar og ófull-
nægjandi breytingar á stjórn-
skipun ríkisins og þjóðinni
þannig hrundið út í tvennar al-
þingiskosningar, með stuttu
millibili, um viðkvæmt deilu-
mál, á hinum mestu háska- og
alvörutímum, þegar brýn nauð-
syn er á einingu og samstarfi,
telur deildin rétt, að hafizt
verði handa um ítarlegan und-
irbúning vandaðrar endurskoð-
unar á stjórnskipun ríkisins,
sem leiða megi til varanlegrar
stjórnarskrár, er fullnægi ósk-
um þjóðarinnar um fullvalda
lýðveldi, á traustum lýðræðis-
og þingræðisgrundvelli, og tek-
ur því fyrir næsta mál á dag-
ksrá.
Alþingi, 8. maí 1942.
Sveinbjörn Högnason, frsm.
Gísli Guðmundsson,
Jörundur Brynjólfsson,
Bergur Jónsson.