Tíminn - 05.08.1942, Blaðsíða 2

Tíminn - 05.08.1942, Blaðsíða 2
334 TfMrVT*, mi<Vvikinla»inii 5. ágiist 1942 85. blatS Halldór Efríksson, forsffóri Ekkl er það nýtt, að bæjar- blöðin ræði um hinn „óhæfilega háa“ kostnað við dreifingu mjólkurinnar og mjólkurafurð- anna, en sjaldan mun þó skýr- ar hafa verið að þessu vikið en í Þjóðviljanum 26. þ.m., en þar er m. a. svo að orði komizt: „Það er óþolandi ástand, bæði fyrir sveitafólkið og kaupstaðabúa, að 30—40% af mjólkurverðinu, sem fólkið í bæjunum greiðir, skuli fara í dreifingarkostnað, ekki sízt þegar tillit er tekið til þess, að laun alls starfsfólks í mjólkurbúðunum í Reykja- vík fást bara af prósentunum á brauðsölu og öðru en mjólk, sem selt er í búðunum.... “ 2. Að gefnu tilefni hefir áður nokkuð verið um þetta rætt hér í blaðinu, sérstaklega að því er dreifingarkostnað Mjólkursam- sölunnar snertir, og verður því sá kostnaður, út af fyrir sig, ekki gerður hér að umræðuefni. Hins vegar fer hér á eftir sam- andregið yfirlit um ráðstöfun á heildartekjum Samsölunnar og allra mjólkurbúanna á verð- jöfnunarsvæðinu — þ. e. Mjólk- urstöðvarinnar í Reykjavík, Mjólkurbús Hafnarfjarðar, Mjólkurbús Flóamanna og Mjólkursamlags Borgfirðinga — eftir því,-sem mér virðast reikn- ingar þessara fyrirtækja, fy-rir síðastliðið reikningsár (1941), segja til um: Á lítra 1. Meðalverð, greitt bændum fyrir mjólkina, komna til búanna, að meðtöldum stofnsjóðsgjöldum .... kr. 0.53,423 Mjólkursamsalan lagði í byggingarsjóð, afskrifaði aukalega af mjólkurstöðinni og yfirf. til næsta árs Vinnslubúin lögðu í varasjóði, verðfellingarsjóð og xjuku yfirfærslur sínar til næsta árs ............ Samanlagður almennur reksturskostnaður (þ. e. gerilseyðingar-, vinnslu- og dreifingarkostnaður) mjólkurbúanna og Mjólkursamsölunnar, að með- töldum venjulegum afskriftum, nettó ............. Aukakostnaður Borgarnesbúsins vegna framleiðslu dósamjólkur í stað alm. vinnsluvara (dósir o. fl. — 0.02,002 Flutningskostnaður frá vinnslubúunum til sölu- staða ........................................ 4. — 0.01,458 — 0.00,653 0.07,905 C. 0.01,712 Samtals kr. 0.67,153 Af þessu nam innborgað verðjöfnunargjald frá svo- nefndum undanþágumönnum ..................... — 0.00.461 sem ætti þá að vera það verð, sem fengizt hefir að meðaltali á árinu fyrir hvern mjólkurlítra, unninn og óunninn, þar með taldar dósir o. fl. vegna dósa- mjólkurinnar. Útsöluverð mjólkur i Reykja- vík var á árinu 1941 frá 56 til 92 aura lítrinn, (hið síðar- nefnda verð þó aðeins um þriggja vikna tíma í desember). Meðalverð það, sem Samsalan fékk fyrir mjólk þá, sem hún seldi, var eins og Tíminn hefir áður skýrt frá, 70,641 aura á lítra. En hér ber á það að líta, að samanlagt seldu mjólkurbú- in og Samsalan, sem óunna eða neyzlumjólk, aðeins um helm- ing þeirrar mjólkur, sem búun- um barst á árinu. Hitt fór í vinnsluvörur. s. s. rjóma, skyr, óhindrað. Krónan fær að falla óhindrað. Kaupgjaldið verður margfalt hærra en framleiðslan fær risið undir á venjulegum tímum. Má þjóðin ekki vera þakklát Sjálfstæðisflokknum og hróðug yfir sigrum hans? Þ. Þ. Eftir verða kr. 0.66,692, smjör, osta o. fl. En þetta ár, eins og ávallt áður, skiluðu vinnsluvörurnar að meðaltali mun lægra verði fyrir hvern mjólkurlítra en fyrir neyzlu- mjólkina fékkst, en fyrir því er ógerlegt að gera bændum grein fyrir 70,641 aurum, eða neyzlu- mjólkurverði fyrir hvern mjólk- urlítra, er þeir skíluðu búunum, heldur aðeins fyrir því verði, sem fékkst fyrir neyzlumjólk- ina og vinnsluvörurnar til sam- an, en svo sem að framan er greint, ætti það að hafa verið 66,692 au. á lítra, og þó að með- töldum umbúðum um dósa- mjólkina, eins og áður segir. Eins og sjá má af fyrirgreindu yfirliti, er þar ekki um dreif- ingarkostnaðinn einan að ræða, heldur einnig allan gerilsneyð- ingar- og vinnslukostnað bú- anna, og vantar þó mikið á, að allur kostnaðurinn saman- lagður nemi 30—40% af meðal- söluverði varanna, hvað þá heldur, ef reiknað er af neyzlu- mjólkurverðinu einu, eins og Þjóðviljinn ræðir um. En hvers vegna er þvi þá haldið fram, að dreifingarkostnaðurinn einn nemi 30—40% af mjólkurverð- inu? Það sýnist ekki úr vegi, að það væri upplýst áður en til kemur að framkvæma rann- sókn þá, sem blaðið segir að hér þurfi við. Hvort framangreindur kostn- aöur getur talizt mikill eða lít- ill skal hér ekkert um sagt. En það virðist liggja i augum uppi, að því aðeins verður hann með réttu tálinn hár, að vitað sé þá um annan sambærilegan kostn- að, er sé lægri, en ekki er um neitt slíkt getið í áðurnefndri blaðagrein. Og ekki hefi ég heldur heyrt eða séð á slíkan samanburð minnst annars staðar, þar sem rætt hefir verið eða ritað um þetta atriði á svip- aðan hátt og Þjóðviljinn gerir. Þá segir ennfremur svo, í áð- urnefndri grein Þjóðviljans: „Sama máli gildir um, hve seint bændur fá borgað fyrir mjólkurafurðir sínar. Kaup- staðabúarnir greiða þó út í hönd. Því geta bændur ekki fengið svo að segja stað- greiðslu líka?“ Sjálfsagt veit Þjóðviljinn það, eins og aðrir, að Samsalan hefir ávallt greitt langsamlega mesta hlutann af mjólkurand- virðinu mánaðarlega. Þar sem hér mun því átt við, eru verð- uppbætur þær, sem, vegna verð- jöfnunarákvæða mjólkurlag- anna, samfara hinu mjög breytilega verðlagi og tilkostn- aði, aðeins er talið fært að greiða eftir því, sem séð verður um afkomu búanna i heild. En uppbætur þessar hefir, af nefndum ástæðum, orðið að greiða 1—2 mánuðum síðar en aðal-mjólkurverðið, auk þess, sem endanleg verðjöfnun getur fyrst orðið framkvæmd að reikningsárinu liðnu. Væri það svo, að Mjólkursam- sölunni væri heimilt að greiða þeim, sem vörurnar leggja inn, fullt útsöluverð, að frádregnum sölukostnaði, fyrir mjólk þá og mjólkurafurðir, er hún selur, og þyrfti ekkert tillit að taka til neins annars, gegndi hér allt öðru máli. En slikt er Samsöl- unni algerlega óheimilt, eins og sjá má af 2. gr. mjólkurlaganna, en þar er öllum mjólkurfram- leiðendum á verðjöfnunarsvæð- inu ákveðið sama verð fyrir mjólk þá, er þeir framleiða, hvort sem mjólkin er seld sem neyzlumjólk, eða t. d. notuð til framleiðslu á ostum, sem skila miklu lægra verði miðað við mjólkurlítra. Þetta lagaákvæði, ásamt því, Landher Bandaríkjanna II. Hlntverk hinna ýmsu herilokka ‘jpmirot Wiðvikudaginn 5. ágúst Þrjár tilraunir Þriðja tilraunin, sem gerð hefir verið til að halda dýrtíð- inni í skefjum, er úr sögunni eins og hinar fyrri. Ríkisstjórn Ólafs Thors hefir ákveðið að beitast fyrir afnámi gerðar- dómslaganna. Hún mun áreið- anlega njóta til þess stuðnings Alþýðuflokksins og kommún- ista. Það er ekki úr vegi að rifja það upp nú, hversvegna þær til- raunir, sem hafa verið gerðar til að halda dýrtíðinni niðri, hafa misheppnast. Fyrsta tilraunin var gerð á vorþinginu 1941. Eysteinn Jóns- son fékk þá sett sérstök lög um hömlur gegn dýrtíðinni. Aðal,- atriði þeirra laga var að inn- heimta sérstakt gjald af and- virði útflutningsvara, sem seld- ar voru háu verði, og nota það til verðlækkunar á neyzluvör- um almennings. Hefði þetta verið gert, myndi dýrtíðin ekki hafa aukist og hinar miklu kaupkröfur, sem rekja rætur sínar til vaxandi dýrtíðar, hefðu þá minni byr fengið. En þessar dýrtíðarráðstafanir komu aldrei til framkvæmda. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í þjóð- stjórninni neituðu að fram- kvæma dýrtíðarlögin, þótt þeir hefðu greitt atkvæði með þeim í þinginu. Megin ógæfuna i dýr- tíðarmálunum er að rekja til þessarar mótstöðu Ólafs Thors og Jakobs Möllers gegn fram- kvæmd dýrtíðarlaganna. Önnur tilraunin var gerð á haustþinginu 1941. Þegar dýr- tíðarlögin fengust ekki fram- kvæmd, bar Framsóknarflokk- urinn fram nýjar, víðtæk- arl tillögur, þar sem gert var ráð fyrir algerri festingu á verð- lagi og kaupgjaldi í landinu, á- samt nauðsynlegum viðbótar- ráðstöfunum. Ráðherrar Sjálf- stæðisflokksins lýstu sig fylgj- andi þessum ráðstöfunum og því mátti telja víst, að þingið samþykkti þær. En á seinustu stundu snérist allur Sjálfstæð- isflokkurinn gegn þeim og hjálpaði kommúnistum og jafn- aðarmönnum til að fella þær. — Hefði Sjálfstæðisflokkurinn samþykkt þessar tillögur í fyrra haust, myndi aldrei hafa skap- ast sú óánægja, sem reis gegn gerðardómslögunum, því að verkfallsdeilurnar, sem urðu hér um áramótin, hefðu þá aldrei komið til sögunnar. Þriðja tilraunin var setning gerðardómslaganna. Sú tilraun gaf góða von fyrstu mánuðina. Kaupgjaldið hækkaði ekki. Verðlagið hækkaði ekki. Dýr- tiðin var stöðvuð. Traustið á lögunum fór vaxandi. Hefði sterk stjórn haldið áfram að annast framkvæmd þeirra, myndi á,rangurinn hafa orðið glæsilegur. En fimm mánuðir voru ekki liðnir frá setningu laganna, þegar Sjálfstæðisflokk- urinn skarst úr leik. Hann hafn- aði samstarfi við Framsókn- arflokkinn og lét kommúnista og jafnaðarmenn ginna sig til að reyna að klófesta „gæsir“, sem hann aldrei fær. Veikasta og getulausasta ríkisstjórn, sem ísland hefir nokkru sinni haft, var sett á laggirnar. Stríðs- gróðamenn og kommúnistar fengu frjálsar hendur til að brjóta lögin. Þau urðu „dauður bókstafur" í höndum hinnar nýju stjórnar og hún ætlar nú sjálf að gangast fyrir afnámi þeirra, þótt forsætisráðherra hafi oft kallað þau „merkustu lög“ þessarar aldar! Þannig hafa þrjár tilraunir, sem hafa verið gerðar tll að stöðva dýrtíðina, misheppnast. Framsóknarflokkurinn hefir átt frumkvæðið að öllum þess- um tilraunum. Sjálfstæðisflokkurlnn hefir átt aðal þáttinn í því að allar þessar tilraunir hafa misheppn- ast. Þetta er lærdómsrik staðreynd um vinnubrögð þessara flokka. Niðurrifsstarf Sjálfstæðis- flokksins hefir reynst sigursælla en viðreisnarstarf Framsóknar- flokksins. Dýrtíðin fær að vaxa Arnaldur Jónsson: Á þessu ári, 1942, mun Banda- ríkjaherinn vera orðinn ein- hver margbrotnasta skipulags- deild, sem til er í veröldinni. í grein, sem birtist fyrir nokkru hér í blaðinu um landher Bandaríkjanna, var skýrt frá því, að herinn skiptist aðallega í tvær meginheildir, bardaga- sveitír og þjónustusveitir. í orr- ustum er skiptingin margfalt flóknari. Þar er sérhver her- maður, af hvaða sveit sem hann er, raunverulega orðinn bar- dagamaður, sem vinnur sam- kvæmt fyrirskipunum George Catlett Marshall’s, yfirhers- höfðingja Bandaríkjanna. í grein þeirri, sem hér fer á eftir, verður í stuttu máli gerð grein fyrir hlutverki og vinnu- brögðum sérhverrar deildar innan aðalhersins. Fótgönguliðið. Bandaríkjamenn kalla fót- gönguliðsdeildina „drottningu orrustunnar“, enda mun hún vera sú deild landhersins, sem er einna þýðingarmest, þegar á hólminn er komið. Þessi liðs- sveit berst ýmisst fótgangandi eða í skriðdrekum og notar hverskonar farartækl, sem unnt er að ná í til liðs- og vopna- flutninga. Aðalvopn fótgöngu- liðsins eru riffillinn með hinum ægilega byssusting, skriðdrekar og vélbyssur. Auk þess notar fótgönguliðið handsprengjur, hríðskotariffil með um 30 mm. hlaupvídd, skammbyssur með 3.7—5.0 mm. hlaupvídd og byss- ur til varnar skriðdrekum. Enn fremur svokallaðar sprengju- vörpur (mortars), sem notaðir eru til að kasta þungum sprengjum langar vegalengdir. Riddaraliðið. Hið svokallaða riddaralið er tvennskonar: Ríðandi hersveit- ir og vélahersveitir, sem berj- ast á brynvörðum vögnum og bílum, sem líkjast mjög skrið- drekum. Sá hluti riddaraliðs- ins, sem er á hestum, fer venju- lega af baki, þegar óvinaher- inn er kominn í skotfæri, og berst þá á fæti eins og fót- gönguliðið. Riddaraliðið hefir það hlutverk m. a., að fara á undan meginhernum til land- könnunar og til að njósna um, hvar óvinurinn sé sterkastur. Ennfremur til að hrekja aftur framvarðasveitir óvinarins. Riddaraliðið notar flest sömu vopnin og fótgönguliðið, og auk þess vélbyssutegund með um 45 mm. hlaupvídd. Stórskotaliðið. Þegar orrustur geysa, heldur stórskotaliðið uppi látlausri skothríð til aðstoðar fótgöngu- Iðinu og riddaraliðinu, sem eru fjölmennustu liðsveitirnar í orr- ustunum. Stórskotaliðinu er sjaldan teflt fram eingöngu, þannig, að það berjist eitt síns liðs. Þó hefir það varnartæki gegn óvinaárásum á landi og úr lofti. Fallbyssur þess skjóta ekki mjög hátt og kúlum þeirra er vanalega miðað á eitthvert á- kveðið mark í víglínu óvinar- ins. En auk hinna venjulegu fallbyssna, hefir stórskotaliðið í fórum sínum. svokallaðar há- skeytlur (howitzers), sem skjóta stórum kúlum, er fara í löngum boga hátt yfir jörðu. Með þess- um byssum er hægt að hitta í mark, sem er í vari bak við hæðir eða víggirðingar, og ekki er hægt að ná til með venju- legum fallbyssum. Stórskota- liðið skiptist innbyrðis í deildir eftir hlaupvídd byssanna og fleiru. Er vanalega talað um deildirnar sem létt, meðalþungt eða þungt stórskotalið. Hið létta stórskotalið Bandaríkjahersins Hvar á lýsísherzlu- stðð að vera? í sunnudagsútgáfu Morgun- blaðsins 26. júlí, er grein um rafveitumálin, Er þar rætt um, að byggja þurfi rafveitur víðs vegar vegna sveita og kaup- túna. Eg sé ekki Morgunblaðið nema við og við .En ég minnist heldur ekki að hafa séð þar fyrr svo mikinn áhuga fyrir raf- veitumálum sveitanna. Er þetta kosningabeita fyrir væntanlegar haustkosningar? En niðurlag greinarinnar er mjög eftirtektarvert. Þar stend- ur: „Hér í nágrenni Reykjavíkur þurfa m. a. að rísa upp áburðar- verksmiðja, sementsverksmiðja og lýsisherzlustöð.“ Jú, það er sama sagan og vant er, að vilja draga alla framleiðslu og atvinnu . til Reykjavíkur, þar sem dýrara er að lifa en nokkurs staðar ann- ars staðar á landinu. Ég hefi frá því fyrsta að tal- að var um að koma á fót lýsis- herzlustöð hér á landi, talið einn stað sjálfkj'rinn fyrir slíka verksmiðju, og ég held, að varla geti annar staður komið til greina. Það er Svalbarðseyri við Eyjafjörð. Þar er landrými yfir- fljótanlegt. Og þar er ágæt höfn. Og þar er hægt að fá nægilegt rafmagn frá Laxárstöðinni, þegar búið er að auka hana með vélasamstæðu þeirri, sem fyrirhuguð er. Þangað er ódýr- astur flutningur á lýsinu frá öllum síldarverksmiðjum lands- ins. Verksmiðjan þarf að eiga tankbát, sem getur flutt 70— 100 smál. Má þá dæla lýsinu úr honum upp í verksmiðjuna, og frá henni aftur í skip til út- flutnings. Það yrði alltaf dýrt að flytja allt lýsið fyrst til Reykjavikur. Enda veit ég ekki, hvar slík verksmiðja gæti verið þar, án þess að það þyrfti að flytja lýs- ið líka á landi að og frá skipi, því að sennilega yrði verk- smiðjan ekki byggð við Reykja- víkurhöfn. Um hinar verksmiðjurnar, sem blaðið talar um, ætla ég ekki að ræða í þetta sinn. En sennilega ættu þær sízt að vera settar við Reykjavík. Kr. S. Sig. sem segir í sömu lagagrein um stöðvargjöld búanna, gerir því það að verkum: í fyrsta lagi, að aðeins er hægt að gera bændum grein fyrir verði, sem fæst fyrir mjólkina, unna og óunna, og getur því enginn bóndi reikn- að með neyzlumjólkurverðinu eingöngu. Og í öðru lagi, að Samsalan verður ávallt, er hún greiðir einu af mjólkurbúunum, að hafa hliðsjón af afkomu allra (Framh. á 3. síðu) Dwight Eísenhower Ylirforingi ameíska hersins í Bretlandi Fyrir fáeinum dögum var skýrt frá því, að fjölmennt ame- ríkst herlið hefði nýlega komið til Norður-írlands og væru nú allmörg herfylki úr Bandaríkja- hernum komin til Bretlands- eyja. Nokkrum vikum áður hafði verið sklpaður sérstakur yfir- foringi yfir her Bandaríkja- manna á Bretlandseyjum. Það fylgdi sögunni, að þessum manni væri jafnframt ætlað að stjórna hinni fyrirhuguðu innrás á meginlandið. Það var Dwight Eisenhower, sem var settur í þetta vanda- mikla embætti. Eisenhower er 51 árs að aldri. Hann er sveitamaður að upp- runa. Strax og aldur leyfði var hann sendur á herforingjaskól- ann í West Point, sem er fræg- asti herskóli Bandaríkjanna. Hann hlaut þar þann vitnis- burð, að vera framúrskarandi knattspyrnumaður og sérstakur námshestur á allt, sem laut að verkfræðilegum og stærðfræði- legum efnum. í heimsstyrjöldinni barðist hann í skriðdrekadeild Banda- ríkjahersins og var kominn of- arlega í metorðastiganum, þeg- ar styrjöldinni lauk. Fyrstu árin eftir styrjöldina aflaði hann sér fullkominnar herfræðilegrar menntunar. Hann kynnti sér sérstaklega allt, sem að vélahernaði laut. Um skeið var hann aðstoðar- maður McArthurs á Filippseyj- um og skipulagði með honum varnir eýjanna. Eisenhower er talinn einn sér- fróðasti maður Bandaríkjahers- ins um allt, sem að vélahernaði lýtur. Hann er mikill vinnu- þjarkur og líka sagður kröfu- harður við undirmenn sína. — Bandaríkjablöð telja hanna (Framh. á 3. síöu) hefir fallbyssur með 75 mm. hlaupvídd, og háskeytlur með 75 mm. og 105 mm. hlaupvídd. Þessi vopn er mjög auðvelt að flytja á milli staða 1 skyndi og hægt að setja þau uþp til notk- unar á minna en einni mínútu. Hið meðalþunga stórskotalið hefir 155 mm. háskeytlur. Eru þær næstum eins auðveldar og fljótlegt að flytja þær eins og tséki létta stórskotaliðsins. Þungt er stórskotaliðið kallað, þegar það hefir 155 mm, 140 mm. eða 8 þumlunga háskeytl- ur. Hin þungu stórskotatæki eru dregin af aflmiklum drátt- arvélum og þarf frá 1—6 klukku- stundir til að koma þeim fyrir til notkunar. Strandvarnarliðið. Hlutverk strandvarnarliðsins, (Coast Artillery Corps), er þrennskonar: Að hafa á hendi loftvarnir fyrir bæi og heri á landi og að verja mikilvægar hafnir fyrir árásum af sjó. Enn- fremur að leggja tundurduflum nálægt ströndum. Vopn strand- varnarliðsins eru aðallega fall- byssur og hríðskotabyssur af ýmsum stærðum. Minnstu byss- urnar eru hríðskotabyssur, sem hafa 3 þumlunga hlaupvídd. Þær skjóta 15 punda kúlum margra mílna vegalengd. Þá notar það ýmsar stærðir af fallbyssum allt upp í hinar geysistóru strandvarnarbyssur, sem skjóta kúlum, er vega melr en ein smálest yfir 20 mílna vegalengd. Sumar af fallbyss- um strandvarnaliðsins verður flytja á járnbrautarvögnum, vegna þess hversu þungar þær eru. Samt eru þær alls ekki svo mjög erfiðar í flutningi, sem ætla mætti, eftir útliti þeirra að dæma. Loftvarnabyssur strandvarnaliðsins hafa mjög sterka ljóskastara, með um 800 miljón kerta Ijósmagni. Ljós- kastarar þessir eru notaðir til að varpa ljósi á óvinaflugvélar að nóttu til. Flugsveitir landhersins. Flugliðið hefir það hlutverk, að berjast við óvinaherinn í lofti, ráðast á stöðvar hans, birgðir hans, verksmiðjur og hervirki. Flugliðið skiptist í deildir eftir fjölda flugvéla á þessa leið: Sub-flight (hópur) 3—5 flugvélar, flight (flokkur) 6—8 flugvélar, squadron (sveit) 13—28 flugvélar, group (deild) 61—121 flugvél, wing (fylki) 125—250 flugvélar. V erkf ræðingadeildin. í Bandaríkjahernum eru deildir, sem eingöngu eru skip- aðar mjög vel menntum verk- fræðingum(Corps of Engineers). Þessar deildir sjá um hina fag- legu hlið á öllum bygginga- framkvæmdum, sem Banda- ríkjaherinn lætur gera. Helztu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.