Tíminn - 29.09.1942, Qupperneq 4
428
TÍMBVM, þriðjwdaglim 29. sept. 1942
108. blað
t R BÆNBM
Á víðavangi.
Skemmtikvöld
Blaðamannafélagsins.
Blaðamannafélag íslands efnir til
fjölbreyttrar kvöldvöku í Oddfellow-
húsinu í' kvöld og hefst hún kl. 9
stundvíslega. Nú er orðið nokkuð um-
liðið síðan félagið hefir genglzt fyrir
slikum kvöldvökum, en þær voru á
sínum tíma einhverjar vinsælustu
skemmtanir, sem bæjarbúar áttu völ
á. Vafalaust fagna margir yfir því, að
Blaðamannafélagið hefur nú kvöld-
vökuna á ný. Á kvöldvökunni í kvöld
verður Skúli Skúlason formaður B. í.
þulur og jafnframt flytur hann ávarp,
Þorsteinn Hannesson syngur, Ragnar
Jóhannesson blaðamaður les upp. Þá
verður píanósóló, Hallgrímur Helga-
son tónskáld leikur, Ámi Jónsson frá
Múla talar um daginn og Laugaveginn
og Ámi Óla blaðamáður segir drauga-
sögu í myrkrinu. Ýmis fleiri atriði, og
sum mjög eftirsóknarverð, verða þarna
til skemmtunar og að lokum verður
dansað. Ef einhverjir miðar em ó-
seldir enn, þá fást þeir á aígreiðslu
Fálkans og Morgunblaðsins eða í Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar. Borð
verða ekki tekin frá.
(Framh. af 1. siðu)
ganga inn á þessa braut, því að
það skapar hættulegt fordæmi.“
Þetta var orð í tíma talað.
Allir ættu að hlíta þessari að-
vörun Gísla og forðast að taka
mark á því, sem hann segir. —
Það skapar hættulegt fordæmi.
Einkum ættu Barðstrendingar
að láta sér þetta að kenningu
verða!
Lesendur!
Vekið athygli kunningja yð-
ar á, að hverjum þéim manni,
sem vill fylgjast vel með ai-
mennum málum, er nauðsyn-
legt að lesa Timann.
Btbretðið Tímann!
Starfsskrá Framsóknarilokksins
ÞARK4RÁVARP.
Innilegustu þakldr færi ég ykkur öllum, er, sýnt hafið
samúð og einlægan vinarhug, við fráfali og útför manns-
ins míns,
Hannesar Jónssonar dýralæknis.
Fyrir mína hönd og sona okkar.
JÚLÍANA M. JÓNSDÓTTIR.
Tilkyiiiiiiig
uiii skotæfingar.
Á tímabilinu frá 26. september til 31. desember 1942, mun
setulið Bandaríkjanna við og við hafa skotæfingar á skotmörk,
sem dregin verða af flugvélum. Æfingastaðir og hættusvæði
verða sem hér segir:
ÆFINGASTAÐUR: HÆTTUSVÆÐI:
(Framh. af 1. síöu)
skipulegur undirbúningur að endurreisn Skálholtsskóla, þar
sem piltar stundi menntaskólanám, og athugaður möguleiki
á því að gera Kvennaskólann í Reykjavík svo úr garði, að
hann geti orðið menntaskóli og vönduð uppeldisstofnun fyrir
stúlkur. Lögð verði áhersla á það að koma á fót húsmæðra-
skólum, þar sem þess er brýnust þörf, svo og að efia búnaðar-
fræðsluna svo sem nauðsyn krefur. Veitt verði á fjárlögum
það rifleg framlög til skólahúsa í sveitahéruðum, að þegar
verði hægt að leggja móti framlögum héraðanna til skóla-
húsa, sem byggð hafa verið, og þá jafnframt safnað í sjóð
með það fyrir augum, að hægt sé að verða við óskum hér-
aðanna í þessu efni að stríðinú loknu.
Engey
Grótta
Keflavík
Keflavík
Kaldaðarnes
Grótta
Breiðabólsstaður
Bjarnastaðir
Flóinn vestur af Engey.
Flóinn norðvestur af Gróttu.
Flóinn austur af Keflavík.
Flóinn • vestur af Ósum á Reykjanesi.
Ölfusá og mýrarnar rétt sunnan við Kald-
aðarnes.
Flóinn suðvestur af Gróttu.
Flóinn vestur af Breiðabólsstað.
Flóinn vestur af Bjarnarstöðum.
Varðmemt verða látnir gæta alls öryggis
GAMLA BÍÓ--------
WaterloO’bráín
(Waterloo Bridge).!
Amerísk stórmynd. Að-
alhlutverkin leika.
VIVIEN LEIGH,
ROBERT TAYLOR.
Sýnd kl. 7 og 9.
Framhaldssýning 3 V2 -6 V2:
„ L A D D Y “
með TIM HOLT.
———NÝJA BÍÓ
SAADY VELUR
EIGINMMIM
(Sandy gets her Man).
Fjörug íikemmtimynd. Að
alhl itverkin leika.
BABY SANDY,
STUART ERWIN,
UNA MERKEL.
Sýnd ki. 5, 7 og 9.
Börn innan 12 ára
fá ekki aðgang.
Móðir og tengdamóðir okkar,
Guðrún Haimesdóttir,
f. 6. apríl 1848 á Bjólu í Holtum, andaðist í morgun á heim
ili okkar Skólavörðustíg 21.
Reykjavik 28. sept. 1942.
Marta Vaigerður Jónsdóttir
Björn Þorgrímsson
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
Tryggva Guðmundssonar, gjaldkera.
Vandamenn.
11. Alþingi og ríkisstjórn láti einskis ófreistað til þess að forða
ungmennum frá óheppilegum kynnum við erlenda hermenn,
er hér dvelja um stundarsakir.
meðan á æfingum stendur.
Stúlku
Morgunblaðið og síldarmjölið
^ýkomið:
vantar x eldhtisið á Vífilsstöðum.
(Framh. af 1. siöu)
Sambandið pantað hjá verk-
smiðjúnum af þ. á. fyrsta flokks
framleiðslu 1.610 smál. Þann 3.
þ. m. pantar Sambandið 2.000
smál., en fær samþykki fyrir
aðeins 1,670 smál. af fyrsta
flokks mjöli þ. á. framleiðslu.
Hefir þá Sambandið pantað og
keypt þann 4. þ. m. 3,280 smál.,
eða hér um bil sama magn og
árið 1941, og hefir á þeim tíma
enga von um að fá meira síldar-
mjöl afgreitt af fyrsta flokks þ.
á. framleiðslu.
Ég hefi að vísu ekki enn sem
komið er fengið upplýsingar um
það, hve mikið síldarmjöl kaup-
félögin hafa pantað beint frá
Síldarverksmiðjunum nú. Það
þori ég þó að fullyrðá, að um
hreina fjarstæðu er að ræða hjá
Morgunblaðinu, að pantanir
þeirra séu til jafns við pantanir
Sambandsins, enda þótt þarfir
manna fyrir síldarmjöl séu að
miklum mun meiri nú en nokkru
sinni fyrr, og hið tiltölulega
lága verð þess muni sennilega
ýta undir kaup manna.
Ég geri ráð fyrir, að mönn-
um þætti sú ráðstöfun stjórn-
arvaldanna eðlileg, þótt hún
stöðvaði afgreiðslu síldarmjöls
til þeirra einstaklinga eða fé-
laga, sem sannanlega hefðu
fengið meira síldarmjöl afgreitt,
en á þurfi að halda á þessum
vetri. Hitt skilur enginn, að
nauðsynlegt hafi verið að gera
ráðstafanir til þess að stöðva
afgreiðslu til allra undantekn-
ingarlaust, eins og gert hefir
verið. Þann 17. þ. m. tilkynna
Síldarverksmiðjur ríkisins
Kaupfélagi Eyfirðinga, að rík-
isstjórnin hafi stöðvað alla af-
greiðslu síldarmjöls frá síldar-
verksmiðjunum. Kaupfélag Ey-
firðinga hafði þá aðeins fengið
200 sekki, en keypti á fimmta
þúsund sekki síldarmjöls síðast-
liðið ár. Sömu sögu er að segja
af Kaupfélagi Þingeyinga. Það
hafði fengið afgreidda 700
sekki, þegar afgreiðsla frá síld-
arverksmiðjunum var stöðvuð.
Síðastliðið ár keypti félagið
2,300 sekki síldarmjöls.
Ég býst við, að öllum hljóti að
vera ljóst, hvílíkum óþægindum
þetta hefir valdið. Og hvað
snertir þá hneykslunarhellu
Morgunblaðsins, að kaupfélag
hafi stöðvað afhendingu síldar-
mjöls, þá verð ég að segja, að
frá mínu sjónarmiði er slík ráð-
stöfun eðlileg og sjálfsögð frá
þeirra hendi, sem ekki hafa
fengið nema örlítinn hluta
þess mjöls, sem þeir þurftu að
fá, — þar til full vissa var feng-
in um, hvers þeir mættu vænta
um afgreiðslu frá síldarverk-
smiðjunum. Er hér og um ná-
; kvæmlega sömu aðferð að ræða,
jsem Morgunblaðið sjálft mælir
með að sé viðhöfð af hálfu hins
opinbera, tíl þess að tryggja
réttláta dreifingu mjölsins.
Á síðastliðnu ári voru flutn-
ingsskilyrði yfirleitt mjög slæm.
Þó tókst ekki verr en það með
flutning síldarmjöls út um
land, að um miðjan september
var mikill hluti þess, sem
pantað hafði verið, afgreiddur.
Var það til mikilla þæginda fyr-
ir þá, sem áttu erfitt um flutn-
inga heima fyrir. Nú eru flutn-
ingsskilyrði það verri en síðast-
liðið ár, að þegar afgreiðslu-
stöðvunin skall á, hafði ekki
tekizt að fá flutt út um land
nema örlítinn hluta af því, sem
pantað var, og ekki bætir af-
greiðslustöðvunin úr. Virðast
vera ill öfl að verki, ef hin
verstu flutningsskilyrði, sem
þekkzt hafa hér lengi, og af-
greiðslustöðvun síldarmjölsins
ná að taka höndum saman til
þess að tefja dreifingu síldar-
mjölsins út um byggðir land-
sins.
Út af Morgunblaðsgreininni
vil ég að lokum segja þetta:
Orðrómurinn um ónógar síldar-
mjölsbirgðir í landinu er ekki
að kenna starfsliði kaupfélag-
anna. Hann er að kenna öflum
þeim, sem réðu því að afgreiðsla
síldarmjölsins var stöðvuð. Eða
finnst Morgunblaðinu það vera
svo ákaflega furðulegt, þó að t.
d. eyfirzkum bændum kynni að
detta í hug, að síldarmjölsbirgð-
ir landsins væru eitthvað farnar
aö rýrna þegar þeir verða þess
varlr, að kaupfélög þeirra, sem
annast um kaup síldamjöls fyr-
ir um 2000 bændur og aðra
kvikfjáreigendur, fær ekki af-
greidda frá Síldarverksmiðjum
rikisins nema 200 sekki?
Undanfarna daga hefir út-
varpið flutt yfirlýsingu frá
landbúnaðarráðuneytinu sama
efnis og Morgunblaðið skýrði
frá, að nægilegar birgðir væru
til í landinu af síldarmjöli.
Þyrftu menn því ekkert að ótt-
ast í því efni. Þessi fregn mun
vekja almenna ánægju allra,
sem hlut eiga að máli. En jafn-
framt vænta menn þess fast-
lega, að . afgreiðslustöðvuninni
verði aflétt tafarlaust svo að
hún valdi ekki meiri óþægind-
um en orðið er.
22. sept. 1942.
Aðalsteinn Kristinsson.
Euskar döninkápnr og frakkar
(Nýjasta tízka)
Telpaakjólar
Yarley pxíður og krem
Ingólfsbúð
Hafnarstræti 21-Sími 2662.
Gott kaup. — Ákveðiuu vinuutimi.
Upplýsingar lijá ráðskonunni. Sími 5611.
TollgæzlustörÍ
Hvernig Jakob Möiler
beitti FREKJUNKI . . .
(Framh. af 3. síOu)
því aðeins sleppa málinu að
nefndin viðurkennl, að hún sé
honum háð og að hann geti
notað hana sem þýðingarlitla
tillögunefnd, sem raunverulega
hafi ekkert vald. Fyrst átti að
fá nefndina til þess að viður- 1
kena rétt ráðherra til þess að
skipta verkum innan nefndar- ,
innar, svo átti auðvitað að
halda áfram. Nefndin sagði nei,
og kvaðst myndi framkvæma
vilja Alþingis. Þegar svo er
komið er nefndin sniðgengin.
Bifreiðaeinkasölunni eru gefin
fyrirmæli, sem raunverulega, ef
framkvæmd hefðu verið, hefðu
gert starf nefndarinnar að
engu. Forstjóri Bifreiðaeinka-
sölunnar sagði nei, eins og i
nefndin, og vill virða vilja Al- ’
þingis. Nú voru góð ráð dýr.
Hvorki nefndin eða forstjóri
Bifreiðaeinkasölunnar vildu
brjóta vilja Alþingis. Þá er það i
sem ráðherrann sjálfur leggur
mat sitt á þingviljann — og
leggur Bifreiðaeinkasöluna nið-
ur.
Rvík, 26./9.
NimSINS
m
Þormdður
hleður í dag til Stykkishólms,
Gilsfjarffarhafna og Flateyjar.
Vörumóttaka fyrir hádegi.
Kol
Gctum nú ufíur af-
greitt kol í bæinn með
stuttum fyrlrvara.
Pantið í síma 1964 o$g
4017.
Nokkra unga menn vantar til toilskoðunar og
annars tollgæslustarfa. Þeir, sem vildu koma til
greina sem væntanlegir starfsmenn til þessara
starfa, sendi eiginhandar umsóknir til tollstjóra-
skrifstofunnar í Hafnarstræti 5 í síðasta lagi 12.
október þ. á. Umsóknunum skulu fylgja fæðingar-
vottorð, heilbrigðisvottorð, ljósmynd og meðmæli.
Aðeins þeir, sem eru yngri en 25 ára og hafa fulln-
aðarpróf frá verzlunarskóla eða hafa fengið aðra
jafngóða menntun, koma til greina.
Fyrirspurnum ekki svarað í sima.
Tollstjórinn I Reykjavík, 28. scptember 1942.
Hafnfirðingar!
Aðalslátrun
verður næstu viku. Úrvals sauðakjöt og dilkakjöt. Slátrið
eftir því.
Hrossaslátrun byrjar 10. október.
Stefán Jónsson.
Jón Sigurðsson.
Eínræðisverk . . .
(Framh. af 1. siOu)
umræðum í næstu blöðum um
þetta einstaka embættisafbrot
ráðherrans. Mun hann jafn-
framt rekja önnur afskipti ráð-
herrans af bifreiðamálunum,
því að segja má, að þau séu eitt
hneyksli frá upphafi.
Blaðinu hafa þegar borizt
nokkrar skýrslur frá mönnum,
sem hafa slæma reynslu af
skiptum sínum við ráðherrann
út af bílakaupum. Mun verða að
þeim vikið síðar og gerðu menn,
sem svipað er ástatt um, rétt í
því að senda blaðinu skriflegar
skýrslur um slik viðskipti sin og
ráðherrans.
Kolaverzlun
Suðurlands
rækifærisgjaflr,
í góðu úrvali.
Trúlofunarhringar,
Sent gegn póstkröfu.
Guðm. Ándrésson
guUsmiður.
Laugavegi 50. — Sími 3769.
Vinnið ötullega fyrir
Tíntann.
Gerið pantanir sem fyrst.
Verzl. Framtiðin
Kirkjuveg 14. — Sími 9091 og 9199.
Giiðni. Magnússon.
Tilkynníng.
Járniðnaðarpróf í eirsmíði, járnsmíði, plötu- og ketilsmíði,
málmsteypu, rennismíði og vélvirkjun hefst laugardaginn 10.
október næstkomandi.
Þeir, sem réttindi hafa til að ganga undír prófið, sendi skil-
ríki sin til forstjóra Landssmiðjunnar, Ásgeirs Sigurðssonar, eða
tali við hann fyrir föstudaginn 2. október.