Tíminn - 10.10.1942, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.10.1942, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. RITSTJÓRA8KRIFSTGFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A. Símar 2353 og 4373. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSENGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Llndargötu 9A. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. Simar 3948 og 3720. 26. ár. Reykjavík, laugardaginn 10. okt. 1942 117. blað JónasJónsson: Sjálfstæðísmálíð 1942 Svar við útvarpsræðu Olafs Thors Á KROSSGQTUM í fyrri viku fórst vélbáturinn Gandur frá Norðfirði. Hafði í fyrstu eigi verið ætlað, að um slys hefði verið að ræða, því að óveður gat ekki talizt fyrir Aust- fjörðum um þessar mundir. Hins vegar var talið líklegt, að um vélarbilun hefði verið að ræða. Var hafin leit að bátnum af vél- bátum frá Norðfirði og hernað- arflugvélum. Bar leitin þó eng- an árangur, og er báturinn því talinn af. Áhöfn Gands var skipuð fimm mönnum, Valdimar Runólfssyni, formanni, er lét eftir sig ekkju og barn, Birni Vilhelmssyni, kvæntum manni, er átti sjö börn í ómegð, Óskari Svendaas, ungum manni og ó- kvæntum, Sigurði Jónssyni, fimmtán ára unglingi og Herj- ólfi Þorsteinssyni, er lét eftir sig ekkju og barn. / t t í síðustu viku sögðu loft- skeytamenn upp samningum sínum við útgerðarmenn. Var uppsögn þeirra gerð með viku fyrirvara. Munu samkomulags- uppleitanir þegar vera hafnar. Einnig munu vélstjórar hafa farið þess á leit við útgerðar- menn, að viðræður færu fram um launakjör þeirra. t t t Ingimundur Árnason, söng- stjóri Karlakórsins Geysis á Ak- ureyri, hefir nýlega verið kjör- inn heiðursfélagi Sambands ís- lenzkra karlakóra. t r r Nýlátinn er hér í bænum Jón Jónsson, fyrrverandi héraðs- læknir. Hafði hann átt við lang- varandi vanheilsu að búa. Var hann fæddur að Hjarðarholti í Dölum hinn 6. sept. 1868. Hóf hann ungur skólanám, útskrif- aðist sem stúdent 1888, en sem læknir 1892. Jón var héraðs- læknir á Fljótsdalshéraði 1893— 1896, í Vopnafjarðarhéraði 1897 —1906 og í Blönduóshéraði 1906 —1922. Síðustu árin vann hann að tannlækningum í Reykjavík og Hafnarfirði. Jón var maður vinsæll og lipur læknir. Sigldi hann oft, bæði til framhalds- náms og sér til heilsubótar. Voru honum falin ýmis trúnaðarstörf, enda þótti honum farast hver starfi vel úr hendi. Kona hans var Kristjana Sigríður Arnljóts- dóttir, og lifir hún mann sinn. Loftárás á tvö íslenzk sklp Þýzk flugvél ,■ gerði loftárás á tvö íslenzk skip fyrir austur- strönd íslands í gærmorgun. Tveim sprengjum var varpað, en hvorug hæfði í mark. Tjón af völdum árásar þessarar varð ekkert. Ómakleg árás. Ólafur Thors forsætisráð- herra minntist Framsóknar- flokksins í síðustu útvarpsum- ræðum. Hann hafði um Fram- sóknarflokkinn mörg stór og ill orð og gat ekki rökstutt neinn af sleggjudómum sínum. Ég sé enga ástæðu til að láta ómótmælt þessari ómaklegu og ranglátu árás á flokk, sem hefir lagt á sig mesta og seiglátasta vinnu til að skapa og tryggja sjálfstæði þjóðarinnar. Ég mun fyrst leggja fram sýnishorn af orðbragði ráðherrans um Fram- sóknarflokkinn og síðan rekja gang málsins. Mun þá koma í ljós, að málið horfir mjög öðru vísi við heldur en Ólafur Thors vill vera láta. Orðbragð forsætisráðhcrra. Mbl. 7. sept.: „Svo hörmuleg sem framkoma Framsóknar- flokksins í dýrtíðarmálinu hefir verið, er hún þó hálfu verri í sjálfstæðismálinu, einnig vegna þess, að svo mikils metur þjóð- in sjálfstæði sitt, að fram að síðasta þingi hefir enginn flokk - ur haft í senn innræti og dirfsku til þess að reyna að fórna sjálfstæði þjóðarinnar í eigin ávinningsskyni." — „Fram að þessum tíma höfðu nær allir alþingismenn staðið saman um afgreiðslu málsins." „Um aðstöðu Framsóknar- flokksins er það að segja, að hann lét sér sæma í þessu stærsta máli þjóðarinnar, að gera hvort tveggja í senn, að ráðast með fúkyrðum á lausn þá, er samþykkt var, en láta þó undir höfuð leggjast að bera fram aðra tillögu í málinu.“ „Öll framkoma Framsóknar- flokksins í þessu máli er jafn óhyggileg eins og hún er óvirðu- leg. Það út af fyrir sig, er ó- fyrirgefanlegt, að draga af á- settu ráði og gersamlega að nauðsynjalausu þetta friðhelga mál inn í dægurdeilur." Mbl. bætir við orð ráðherrans sama dag í forustugrein: „Fyrir giftusamlega forustu núverandi ríkisstjórnar og dygga aðstoð flokkanna, sem hana studdu í þessu máli á síð- asta þingi, en gegn harðri og IIjólirt snýst Hér fer á eftir samanburður á verðlagi nokkurra vörutegunda í valdatíð Ólafs Thors. Júní 1942 Okt. 1942 Hækkun Kindakjöt 4.10 7.30 78 Mjólk, mæld 0.92 1.50 63 Þorskur,- (nýr) 0.60 0.75 25 Rjómi 9.50 46 Smjör 11.50 18.70 63 Smjörlíki 3.68 4.74 29 Egg 8.40 18.00 114 Molasykur 1.39 1.69 22 Strásykur 1.19 1.47 24 Hrísgrjón 1.39 2.22 60 Hveiti 0.67 0.84 25 Franskbrauð (500 gr.) . .. 0.68 0.82 21 Kartöflur 0.80 1.08 35 Haframjöl 0.82 1.15 40 Er þetta lítið en glöggt sýnishorn þess, hvernig ríkisstjórnin hefir „barizt“ gegn dýrtíðinni. ósvífinni andstöðu Framsóknar- flokksins, hefir sá áfangi náðst í sjálfstæðisbaráttuni" o. s. frv. Hiirn „dyggi44 h j álparf lokkur. Lesendur veita vafalaust eft- irtekt hinum gífuryrtu ásökun- um ráðherrans. Til að réttlæta slíkan dóm um einn af stærstu flokkum þjóðarinnar, sem í ald- arfjórðung hefir haft meiri á- hrif til eflingar framförum og menningu heldur en allir aðrir flokkar til samans, hefði þurít að vera um mjög alvariegar sakargiftir að ræða. En það sýnir bezt veigaleysi stóryröa, að blað Sveins Sveinssonar timbursala bætir við lofgerð um hjálparflokkana í sjálfstæöis- málinu. Þar er Kommúnista- flokkurinn hafinn í æðra veldi með því að Mbl. þakkar honum dygga þjónustu í frelsismáli ís- lendinga. Sömu dagana lýsti Mbl. þessum sama flokki sem auðmjúkum þjóni Rússa, og sagði réttilega, að hann væri að eyðileggja allt fjármálalíf landsins með „fantatökum.“ Stjórnlaus bifreið. Ég vona, að Jakob Möller mis- virði ekki þó að ég leitist við að skýra leiðsögu Sjálfstæðis- flokksins í skilnaðarmálinu í sumar, með dæmi úr bílstjóra- lífinu. Mér finnst að eftir bæj- arstjórnarkosningarnar í Rvik í vetur sem leið, hafi mátt, að því er snertir skilnaðarmálið, líkja Sjálfstæðisflokknum við bifreið, sem skilin hefir verið eftir á vegarstalli uppi í brekku, og liggur þaðan vegur niður á slétta grund. Bifreiðin er í hemlum og á ekki að hreyfast. Allt í einu kemur lævísi götu- strákurinn að bílnum og fellir hemlana niður. Við það byrjar bifreiðin að velta niður brekk- una. Fyrst hægt, síðan með meiri og meiri hraða, og slangrar af tilviljun óreglulega milli vegbrúnanna. Ef blind tilviljun er ekki óhagstæð, álp- ast bifreiðin að lokum niður á jafnsléttu og nemur þar staðar. IV iðin giverkin i Horegi Herlög hafa verið sctt í Þrændalögnm Lr tilkyimiugum norska blaðafulltrúans í Reykjavík 7. okt. Úr tilkynningum norska blaða- i um. Hafa allmargir forsprakk- fulltrúans í Reykjavík 7. okt... Terboven, landsstjóri Þjóð- verja í Noregi, hefir nýlega gef- ið út tilkynningu þess efnis, að vegna mótþróa og skemmdar- verka, skuli herlög gilda í Þrændalögum frá kl. 5 að morgni hins 4. okt. Hefir Rog- ar verið reknir frá starfi, tekn- ir höndum eða lokaðir í fanga- búðum. Rogstad „fylkisstjóri“ er ungur maður en alræmdur fýrir grimmd og hörku. Síðan hafa borizt fregnir um að 24 Norðmenn hafi verið teknir af lífi í Þrándheimi. Alls stad fylkisstjóri fengið óskorað hafa þannig 34 norskir ætt- vald til allra aðgerða, sem jarðarvinir látið lífið síðan her- hann kann að telja nauðsyn- J lögin voru sett. Er þá alls vitað legar á þessu svæði. Norðmenn um 135 Norömenn, sem þýzka verða að halda sig í húsum inni herstjórnin hefir tekið af lifi. frá kl. 20 til kl. 5, samgöngu- tæki innan héraðs skulu stöðv- uð kl. 19. Aðeins þýzki herinn má ferðast á járnbrautunum, nema sérstakt leyfi komi til. Opinberar stofnanir og veit- ingastaðir verða að loka kl. 19. I Osló beitir fylkismaður, sem Stenersen heitir, hinni mestu hörku. Hefir látið hefndir ganga yfir norska borgara. fyrir loft- árás Breta á Osló 25. sept., þeg- ar Quisling var að halda hátíð- Fundarhöld eru með öllu bönn- legt ársafmæli valdatöku sinn- uð. Öll mótstaða verður bæld ar. Stenersen hefir þvingað niður með vopnavaldi. Brot marga háskólakennara, blaða- gegn settum reglum verða dæmd menn, íþróttamenn og útgerð- af herrétti. | armenn til þess að vinna við að 8. okt., í fyrra kvöld, voru 10 ryðja úr rústunum eftir loft- Norðmenn skotnir í Þránd- j árásina. Meðal þeirra, sem sett- heimi að boði lögregluforingj-; ir hafa verið í þessa þvingun- ans þýzka, Rediess. Meðal arvinnu eru skíðakapparnir þeirra eru nokkrir af fremstu Birgir og Sigmund Ruud, hinn borgurum Þrándheims. Fara aldurhnigni skátaforingi séra hér á eftir nöfn þeirra: Otto J Gassmann, Ditlev-Simonsen, Shirstad, lögfræðingur, Henry útgerðarmaður, Herbert leikari, Gleditsch, leikhússtjóri, Harald auk margra lækna og vísinda- Langhelle, ritstjóri, Hirsch, verzlunarmaður, Birch, banka- stjóri, Per Tangen Lykke, skipamiðlari, Finn Berg, skip- stjóri. Ennfremur: Hans Kon- rad Ekornes, verkfræðingur frá Álasundi, Bull Aakran, lög- fræðingur frá Röros og Peder Eggen, byggingameistari frá Orkanger. Allir þessir menn voru skotn- ir án dóms og laga. Miklar æsingar hafa orðið út af manndrápunum. Vita menn ekki til, að alvarleg skemmdar- verk hafi verið unnin, en hins vegar er vitað um óróa í liði Quislingsmanna í Þrændalög- Ef ólánið er með veltur hún út af til annarrar hvorrar handar á leið niður brekkuna. (Framli. á 2. síðu) manna. Þá hefir og Stenersen gert upptæk hús margra borgara í Osló og fyllt þau fólki, sem varð húsvillt í loftárásinni. Meðal annarra hefir prófessor Halles- by verið hrakinn úr húsi sínu í grennd við Osló. Hjóðverjar þröngva kosti Dana Fregnir berast nú frá Dan- mörku um vaxandi erfiðleika í sambúð Þjóðverja og Dana. Hafa Þjóðverjar krafizt þess, að Danmörk gengi í „germanska þjóðabandalagið", er þeir nefna svo. Þessu hefir danska stjórn- in neitað. Þá er sagt, að Þjóðverjar heimti í sínar hendur yfirstjórn dönsku lögreglunnar. Nemendur Mennta- skólans fylkja sér um Pálma Hannesson Tímanum barst í gær afrit af bréfi, sem nemendur Mennta- skólans í Reykjavík hafa sent kennslumálaráðuneytinu og flytur mótmæli, er samþykkt voru einróma á fjölmennum nemendafundi gegn gerræði Magnúsar kennslumálaráð- herra gegn Pálma Hannessyni. „Við undirritaðir leyfum oss hérmeð að tilkynna hæstvirtum kennslumálaráðherra, að al- mennur fundur nemenda Menntaskólans í Reykjavík, haldinn 8. október, samþykkti eftirfarandi ályktun: „í sambandi við misklíð þá, sem upp hefir komið út af bréfi rektors Pálma Hannessonar til kennslumálaráðuneytisins, dag- settu 5. október 1942, þar sem hann hótar afsögn sinni, ef ekki verður gengið að kröfum hans varðandi umráð hans yfir skóla- húsinu og viðgerðina á því, vill fundurinn taka eftirfarandi fram: 1. Við styðjum eindregið kröf- ur rektors í húsnæðismálum skólans og lýsum óánægju okk- ar vegna seinagangsins og um- hirðuleysisins við viðgerð hans, þar sem kennsla hefir þegar fallið niður langan tíma af skólaárinu. 2. Það kann að hafa verið á- lit hæstvirts kennslumálaráð- herra, að gagnrýni sú, sem fram kom frá nemendum á stjórn ýmissa eigna skólans, hafi verið vantraust á rektor. Það er á algerum misskilningi byggt, enda erum við þess full- viss, að nú, er skólinn hefir endurheimt húsnæði sitt, og ef kröfur rektors nái fram að ganga, sé full ástæða til að ætla, að málefnum skólans verði vel borgið í framtíðinni undir þeirri stjórn, sem hann nú hef- ir.“ Undirskriftir. Þessu hafa Danir neitað. Enn krefjast Þjóðverjar leyf- is til að leggja akbraut mikla norður eftir Jótlandi. Danskir Quislingar hafa sig nú meira í frammi en áður, og hafa viða brotizt út óeirðir fyr- ir þá sök. Danska þingið hefir verið kvatt til fundar til að ræða þessi vandamál. Leíðbeining; um kosningu í tvímenningskjördæmi Við alþinglskosningar 18. október verður listakosning viðliöfð í öllnm tvímenningskjör- dæmum landsins í fvrsta skipti. — Kjóscndum til leiðbeiningar vcrður bér birt sýnisborn af kjörseðli í tvímenningskjördæmi, eins og hann lítur út, þegar listi Framsóknarflokksins hefir verið kosinn. Eiigin merki má gera við aðra lista, því að þá verður seðillinn ógildur. A Listi Alþýðuflokksins X B Listi Framsóknarflokksins C Listi sameiningarflokks al- þýðu — Sósíalistaflokksins D Listi Sjálfstæðisflokksins Páll Pálsson Sigurður Sigurðsson Þórður Þórðarson Jón Jónsson Sigurður Sigurðsson Þórður Þórðarson Jón Jónsson Páll Pálsson Jón Jónsson Páll Pálsson Sigurður Sigurðsson Þórður Þórðarson Sigurður Sigurðsson Þórður Þórðarson Páll Pálsson . Jón Jónsson A Landslisti AipÉlíksiiis B Landslisti Framsdknarllokksins f* Landslisti Sameiningarflokks alþýðu - Sócialistaflokksins D Landslisti Sjálfstmðisflokksins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.