Tíminn - 10.10.1942, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.10.1942, Blaðsíða 3
mh 117. blað laagardaglim 10. okt. 1943 463 Sjálfstæðismálið 1942 (Framh. af 3. síOu) manna, er þeir hengdu fána landsins á kosningabíla sína. Nú hafði Sjálfstæðisflokkurinn þó brotið þessa reglu. Hann hafði tekið sjálfstæðismálið til með- ferðar í flokkslegu áróðursskyni, að fornspurðum samstarfsflokki sínum, og beitt þann flokk full- um fjandskap, en ætlaðist þó til, að Framsóknarmenn væru með í fylkingunni, þrátt fyrir allt, sem gert var til að sýna þeim sem mesta flokkslega á- reitni. Eftir að kjördæmamálið var komið á fleygiferð, lét Sjálf- stæðisflokkurinn skipa fimm manna nefnd til að endurskoða lýðveldisstjórnarskrá, sem til var frá tímum þjóðstjórnarinn- ar. Framsóknarmenn voru ekki hafðir í ráðum um þessa nefnd- arskipun, en hún var samþykkt með atkvæðum hinna þriggja flokkanna. En eftir að nefnd- arskipun var ákveðin, án sam- ráðs við Framsóknarmenn, kaus hann þó okkur Hermann Jónasson til að mæta þar, fylgj- ast með hvað gerðist og styðja eftir verðleikum mál, sem fram kynnu að koma. Hvað ntymli Mbl. hafa gert? Ég hefi stundum reynt að leiða hugann að því, hvað þing- flokkur Sjálfstæðismanna hefðu gert, ef hann hefði verið beittur öðru eins ofríki og ofstopa eins og Framsóknarmenn urðu fyr- ir af Mbl.mönnum í þessu efni. Ég tek sem dæmi, að Fram- sóknarmenn hefðu tekið marg- endurteknum yfirlýsingum kommúnista og jafnaðarmanna og gera bandalag við þessa» flokka, gert alla verzlun kaup- manna á íslandi að þjóðarfyr- irtæki, sagt þeim að lifa á göml- um gróða og sjúga hramminn næsta ár, ef ekki væri annað til framfæris. Þetta hefði verið flokkslega hörkuleg meðferð á Sjálfstæðisflokknum, einkan- lega, ef þessar góðgerðir hefðu verið' veittar Sjálfstæðisflokkn- um eins og skilnaðarkveðja í vinsamlegu samstarfi. Ég vil ennfremur gera ráð fyrir, að Framsóknarflokkurinn hefði eftir þetta sagt við Sjálfstæðisr menn: Við höfum að vísu gefið ykkur lítilsháttar áminningu, en þar sem við ætlum nú óbeðn- ir af öllum að taka að okkur að gera landið að lýðveldi, með dyggum stuðningi komma og krata, þá ætlumst við til að þið látið nú sem ekkert hafi í skorizt, þar sem telja má, að heill föð- urlandsins sé í veði, og fylgið nú trúlega í slóð Framsóknar- manna um glæsilegan sigurvinn- inga fyrir forgöngu okkar. Mér finnst, að ég geri ekki Sjálfstæðisflokknum rangt, þótt ég segi, að hann hefði harðneit- að allri samvinnu við Fram- sóknarflokkinn, jafnvel við jafn „friðheilagt" mál eins og lýðveldismyndunina. í stað þess hefði allur Sjálfstæðisflokkur- inn tekið upp baráttu upp á líf og dauða, til að hefna ágangs og harðleikni í hagsmunamáli flokksins. Var það „dyggð“? Við Hermann Jónasson og aðrir Framsóknarmenn verðum víst aldrei leiddir í kór í kirkju Mbl., eins og hinir dyggðum prýddu kommúnistar og jafnað- armenn. Ég skal ekki fullyrða, að það hafi verið dyggð, en ég held það megi kallast þegn- skapur, að þrátt fyrir alla þá rangsleitni og óviðurkvæmi- legan fjandskap, sem flokki okk ar hafði verið sýndur, þá létum við ekki frelsismálið gjalda þess. Við komum á fundi í þeirri nefnd, sem kosin var til að endurskoða mjög fullkomið frv., sem þjóðstjórnin hafði fengið dómarana í hæstarétti og Bjarna borgarstjóra til að semja, eftir því sem tími okkar leyfði í kosningaátökunum. Ég lét bóka í fundabókina all- margar athugasemdir um málið og hógværa bendingu um, að upptaka málsins væri ekki gerð á sem heppilegustum tíma. Síð- an lét ég fyrir mitt leyti óhik- að i ljós, að ég vildi styðja að skilnaði sem allra fyrst, ef þess væri nokkur kostur. Þar sem ég hefi verið eindreginn og yfir- lýstur skilnaðarmaður frá æskuárum, og auk þess orðið fyrir þeim heiðri 1939, að vera af Stauning talinn eini maður- inn á íslandi, sem vildi að þjóð- B-lísta kjósendur! Á morgun, sunnudaginn 11. október, verður kosningaskrif- stofan í Sambandshúsinu opin frá kl. 1.30 til kl. 6 síðdegis. Þess er fastlega vænzt, að allir — konur og karlar — sem efla vilja fylgi B-listans, mæti til skrafs og ráðagerða um seinasta og afdrifaríkasta áfanga kosningabaráttunnar. Nú er aðeins ein vika til kosninga Notið vel hverja einustu frístund til að efla fylgi B-listans! Skrifstofan verður opin kl. 9—22 alla næstu viku! Símar 5099 og 2151. Vöntun á hjólbörðum Sveinn Ingvarsson, sem var Amerískum yfirvöldum er ljóst, forstjóri bifreiðaeinkasöl- unnar, hefir sent Tímanum til birtingar eftirfarandi grein, þar sem vakin er at- hygli á mjög mikilsverðu at- riði fyrir flutninga á landi og atvinnulíf landsmanna í heild: Bifreiðafjölgunin og mikil aukning á daglegri notkun bif- reiðakostsins í landinu, hafa í för með sér stórum aukna notkun á hjólbörðum, miðað við það, sem inn hefir verið flutt og notað í landinu á síðast liðn- um árum. Hinar stórkostlegu verklegu framkvæmdir setulið- anna, sem nota að miklu leyti íslenzkan bifreiðakost, svo og stór aukning á öllum flutning- um innan lands, bæði á vörum og fólki, leiða til þess, að vér þurfum að fá stórum aukna heimildina til kaupa á hjól- börðum frá Bandaríkjunum. Það mun því miður ekki verða auðsótt mál að fá útflutnings- aukningu, þar sem gúmmí er ein dýrmætasta hernaðarvara Bandaríkjanna. En þar sem in fengi fullt frelsi, þá var vita- skuld engin sérstök dyggð frá minni hálfu að fylgja hugsjóna- máli mínu. Hermann Jónasson tók sömu aðstöðu, þó að hann leyndi ekki, að honum mislík- aði vinnubrögð Sjálfstæðis- flokksins. Eftir að Framsókn- arþingmenn komu saman á sumarþinginu, lýsti þingflokk urinn því yfir, að hann myndi óhikað og óskiptur styðja lýð- veldisfrumvarp það, sem áður er um talað, og sem Ólafur Thors ætlaði að leggja fram á þinginu. (Framh. í næsta bl.) VI. Tveir kjördagar. Einu sinni á siðasta þingi sá- ust þó úlfshár Reykjavíkur- flokkanna undan gærunni. Sveitaþingmenn vildu hafa tvo kjördaga, annan til vara, ef veður hömluðu, eða ef allir kæmust ekki áð heiman í senn, þar sem langt er á kjörstað. Þarna risu andstæðingar sveit- anna öndverðir á móti og heita á harðveðrin til bjargar sér í veglausum sveitum. Málið marð- ist þó gegnum þingið. Aftur á móti vildu þeir hafa tvo kjör- daga í Reykjavík óg leggja nótt við dag. Rétta svarið við þessum mót- þróa er öflug kjörsókn í haust. Einu rökin fyrir kjördæmamál- inu voru þau að fá atkvæði kæmu á hvern sveitaþingmann. í haust þurfa þau að vera fleiri en nokkru sinni áður. VII. Postulínskýrnar. Sú saga gengur, að kona há- tekjuverkamanns hafi keypt tvær kýr úr postulíni tíl skrauts í stofum sínum, hvora á 500 kr. Þetta var vorið 1941, en þá voru mjólkurkýr seldar þessu verði. Ef sagan styðst ekki við veru- leikann, er hún hún góður skáld- skapur, sem geymir mikinn raunhæfan sannleika. Þjóðin er sem ölvuð af dýrtíðarvinnunni, og fjöldi fólks er hættur að greina gagnleg verðmæti frá fá- nýtum. Gróðamenn á öllum sviðum æsa kaupfýsn fólksins, allt er hægt að selja afarverði, án tillits til nytsemi. Svo segja fróðir menn, að 150 heildsalar hafi bætzt í vænan hóp, sem fyrir var í Reykjavík í stríðsbyrjun. „En svo hljóp öll réttin ótalin“. Engin hefir reynt að telja aragrúa smásala og alls konar mangara, allar „sjopp- urnar“, sem upp hafa þotið eins og gorkúlur í óþurrkum. Nú vita allir, að innflutning- ur nauðsynjavöru hefir minnk- að og að hinir gömlu heildsalar og kaupmenn, Sambandið og kaupfélögin önnuðu vel þeim viðskiptum og mundu nægja enn. Hlutverk hinnar nýju verzl- unarstéttar er því að selja ó- þarfann, sem inn flæddi, er inn- flutningshöftin voru leyst, að fá menn til þess að kaupa postu- linskýrnar. Hópur þessi vex um mörg hundruð árlega, ef þjónustulið er með talið. Eftir því sem hann stækkar, verður minna fóðurs aflað handa mjólkurkúnum. færri kálfar látnir lifa, færri fiskar dregnir úr sjó. Starfið miða að því að fá menn til að kaupa misjafnlega þarfa hluti, og helzt hina óþörfu, er mesta álagningu þola. VIII. Húsbændur Sjálfstæðis- manna. Það er alkunna, að heildsal- arnir í Reykjavík eiga bæðí Vís- ir og Morgunblaðið. Ekkert birt- ist í þeim blöðum, sem ekki fell- ur i kram heildsalanna. Þeir geta múlbundið ritstjórana og raunar alla Sjálfstæðismenn. Sennilega hefir ráðherrum flokksins og ýmsum öðrum ekki verið ljúft að gleypa gæsirnar steiktu. En heildsalarnir kröfð- ust þess, með blöðin í broddi fylkingar. Gegn ofurvaldi blað- anna, þorði flokurinn ekki að rísa. Hver einasti Sjálfstœðis- maöur hefir heildsalana ad hús- bœndum. Ýmsir segja, að margir at- vinnurekendur Sjálfst.flokks- ins, bændur og útvegsmenn, séu „beztu menn“ og engu ólíklegri til þess að vinna að heill stéttar sinnar en Framsóknarmenn, á þingi sem annars staðar. En reynslan hefir sýnt, fyrr og síðar. að þeir eru ekki sjálfum sér ráð- andi. Þeir bregðast,. þegar mest á ríður. Þá verða stórlaxarnir í Reykjavík að ráða. Svo var ár- um saman með einkasölu á á- burði, Bygginga- og landnáms- sjóð, afurðasölulögin o. s. frv. Flokkurinn var allur á móti. Og svona er það enn. Það sýnir kjör- dæmamálið og kjördagurinn. Hver, sem gefur Sjálfstæðis- að mikill hluti af bifreiðakosti landsins vinnur beint í þágu setuliðanna, og þar sem bif- reiðar eru einu flutningatækin, sem til eru í þessu landi, og ennfremur, að öll framleiðsla vor er miðuð við fisk- og matar- framleiðslu fyrir Bretland og Bandarikin, er vér höfum sér- stakan vináttusamning við, þá væntum vér fastlega, að þetta mál verði leyst svo vel fyrir oss, að ekki skapist af því stöðvun eða hnekkir fyrir atvinnulíf þessa lands. í viðræðum okkar Thor Thors, sendiherra, 'við ýmsar stjórnar- deildir í Washington, á síðast- liðnum vetri, viðvíkjandi bif- reiðahjólbörðum fyrir ísland árið 1942, fékkst ekki samþykkt heildarmagn, er íslandi skyldi ætlað, en samkomulag varð um, að fyrst um sinn skyldi leyft líkt magn og sannanlega hefði verið flutt inn til íslands árið 1941. Lagðar voru svo fram sannan- ir fyrir innflutningi ársins 1941, og á þeim grundvelli samþykkti War Production Board, eftir 3ja mánaða þúngan málflutning, pöntun, sem miðaðist við líkt magn og allur innflutningur ársins 1941. Nú hefir reynslan sýnt, að notkun bifreiða í landinu á þessu ári er mikið meiri en á árinu 1941 og notkun hjólbarða stór- um aukin. Það er því óhjákvæmilegt að gera hið ítrasta til að fá við- bótarpantanir Bifreiðaeinkasöl- unnar á hjólbörðum samþykkt ar, ,svo að ekki verði stöðvun á fjölda ökutækja í landinu. Þar sem breyting hefir orðið á með Bifreiðaeinkasöluna, en hún hefir annast kaup á þess- ari vöru á undangengnum ár um, tel ég rétt að benda nú þeg- ar á það, að það atriði, að afla framleiðslu-heimildar og út- flutningsleyfis fyrir nægilegum birgðum af bifreiðahjólbörðum frá Bandaríkjunum, er mál, sem flytja þarf vel og með góðum undirbúningi, hvernig svo sem dreifingu vörunnar hér innan lands verður hagað. Sveinn Ingvarsson HEIlDSÖLyBIRGÐIRr ÁRNI J0NSS0N REYKJAVÍK S manni atkvæði nú við vetrar- kosningarnar, hann vinnur fyrir heildsalana í Reykjavík. Hann vinnur á móti stétt sinni, móti bændasamtökum, sem framar öllu hafa lyft sveitunum upp úr örbirgð og niðurlægingu. Samband ísl, samvtnnufélaga. Bréfaskóli S. f. S. er ætlaður jafnt ungum sem gömlum. Nemendur geta innritast hvenær sem er á árinu, og mega velja um námsgreinar. Námshraði eftir óskum. Lágt kennslugjald. Látið Bréfaskólann hjálpa yður til sjálfsnáms. Bréfaskóli S. í. S., Sambandshúsinu, Reykjavík. Saltkj öt liman skamms fáum vér spaðkjöt í mörgum tuimustærðum. Tökum á mótí pöntunum í síma 1080 alla virka daga og gcrum ráð fyrir að gcta Iiafið afgrciðslu kjötsins eftir miðjan októbcr. Samband ísl. samvinnuíélaga. NIGLIMGAR milli Bretlands og íslands halda áfram, eins og að undanförnu. Höfum 3—4 skip í förum. Tilkynningar um vöru- sendingar sendist Culliíord’s Associafed Línes, Ltd. 26 LONDON STREET, FLEETWOOD. Neítóbaksumbúðir keyptar. Kaupum fyrst um sinn neftóbaksumbúðir sem hér segir: 1/10 kg. glerkrukkur ........ með loki kr. 0.50 1/5 — glerkrukkur ............ — — — 0.60 1/1 — blikkdósir ............. — — — 2.25 1/2 — blikkd. (undan ósk. neftób. — — — 1.10 Dósirnar mega ekki vera ryðgaðar og glösin verða að vera óbrotin og innan í lokum þeirra samskonar pappa- og gljápappírslag og var upphaflega. Umbúðirnar verða keyptar í tóbaksgerð vorri í Tryggvagötu 8, fjórðu hæð (gengið inn frá Vesturgötu) alla virka daga kl. 9—12 árdegis. TÓBAKSEINKASALA RÍKISINS. A V O de P A R I varðveita hörund yðar — gera það mjúkt og heilbrigt og verja það öllum kvillum. SAVON de PARIS er mjúk sem rjómi og hefir yndislegan hressandi rósailm. — Notið beztu og vönduðustu sápuna! - JVoítð SAVOJV de PARIS -

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.