Tíminn - 10.10.1942, Síða 4
464
TÍMIM, langardagiim 10. okt. 1943
117. blað
Á hlutaveltn FRAM á morgun verða 15 0 0 krónur í pen-
Ingum, þar af 1000 krónur í elnnm drætti, tveggjja tonna
vörubíll, íbúð, 1 herbergi og eldhús, leigufrí til 14. maí
1943 og margt fleira.
HLFTAVELTUIVEFXDIN
ÚR BÆNPM
Framsóknarmenn!
Af sérstökum ástœðum getur kosn-
ingaskrifstofan ekki orðið opin nema
til kl. 6 síðdegis í dag. Sjá ennfremur
auglýsingu frá B-listanum á 3. síðu
í blaðinu.
„Drengir, sem vaxa“.
í gær kom út hér í bænum ný
barnabók, sem heitir Drengir, sem
vaxa. Bókin er eftir Aðalstein Sig-
mundsson kennara og er efni hennar
þýddar og frumsamdar drengjasögur.
Útgefandi bókarinnar er Jens Guð-
björnsson, formaður Glímufélagsins
Ármann. Er allur frágangur á bókinni
hinn vandaðasti.
Skátar
■ selja merki á götunum á morgun.
Hér er um góðan félagsskap að ræða,
sem bæjarbúum er skylt að styrkja.
Gerðu sér vatn
að góðu
í veizlu, sem Halifax lávarði,
sendiherra Breta í Bandaríkjun-
um, var haldin í San Antonio,
Texas, var skál þeirra: forseta
Bandaríkjanna, Englandskon-1
ungs og sendiherrans og frúar
hans, drukkin í vatni. Þetta gátu
slíkir menn gert sér að góðu.
Hvað er á boðstólum hjá oss í
veizlum höfðingjanna?
Þá segja ensk blöð, að ekkert
áfengi sé haft um hönd á her-
skipum Bandaríkjanna. Þegar
Englandskonungur kom í heim-
sókn til flotans og gekk um borð
í eitt herskipið, var veittur þar
aðeins óáfengur drykkur.
Bindindismönnum í Englandi
þykir það furðuleg ráðstöfun, að
spara stöðugt meira og meira
korntegundir til skepnufóðurs,
svo að menn verða að takmarka
mjög hænsnarækt, en engin tak-
mörkun á sér enn stað á korn-
tegundum til ölgerðar. Er svo
látið heita, sem þetta sé gert
fyrir verkamennina, er vinna í
verksmiðjunum. En munu þeir
kjósa að tekin sé nauðsynleg
fæða frá munni kvenna þeirra
og barna, svo þeir geti gætt sér
á ölinu?
*
Áfengisframleiðendur í Ame-
ríku eru að verða skelkaðir á ný.
Eitt af blöðum bruggaranna þar
í landi hefir nýlega komizt svo
að orði:
„Um það leyti, sem bannlög-
in voru afnumin, var bannhætt-
an ekki meiri en það að líkja
mætti við lófastóran skýhnoðra
úti við sjóndeildarhringinn. En
í dag er svo komið, aðeins fimm
árum eftir afnámið, að við
stöndum andspænis þeirri hættu
að ný bannlagabarátta verði
hafin.“
Annar hvor stríðsaðilinn verð-
ur að vera í hættu: Bakkus kon-
ungur og herskarar hans, eða
siðferðisþroski þjóðanna og heill
almennings. Hvorum megin
berjumst vér?
Pétur Sigurðsson.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
er á Lindargötu 9 A
Framsóknarmenn utan al
landl, sem koma til Reykja-
víkur, ættu alltaf að koma
á skrifstofuna, þegar þeir
geta komið því við. Það er
nauðsynlegt fyrir flokks-
starfsemina, og skrifstof-
unnl er mjög mikils virði
að hafa samband vlð sem
flesta flokksmenn utan af
landl.
Framboðslxstar
í Reykjavík við kosningar til Alþingis 18. október 1942
A B c D
Listi Alþýðuflokksins. Listi Framsóknarflokksins. Listi Sameiningarflokks al- þýðu — Sósíalistaflokksins. Listi Sjálfstæðisflokksins.
Stefán Jóhann Stefánsson. Hilmar Stefánsson. Einar Olgeirsson. Magnús Jónsson.
Haraldur Guðmundsson. Ólafur Jóhannesson. Brynjólfur Bjarnason. Jakob Möller.
Sigurjón Á. Ólafsson. Pálmi Loftsson. Sigfús Sigurhjartarson. Bjarni Benediktsson.
Jón Blöndal. Kristjón Kristjónsson. Sigurður Guðnason. Sigurður Kristjánsson.
Jóhanna Egilsdóttir. Ólafur H. Sveinsson. Katrín Thoroddsen. Pétur Magnússon.
María J. Knudsen. Jakobína Ásgeirsdóttir. Björn Bjarnason. Hallgrímur Benediktsson.
Jón Axel Pétursson. Valtýr Blöndal. Konráð Gíslason. Kristín L. Sigurðardóttir.
Guðgeir Jónsson. Guðmundur Tryggvason. Guðmundur Snorri Jónsson. Axel Guðmundsson.
Tómas Vigfússon. Jóhann Hjörleifsson. Ársæll Sigurðsson. Einar Erlendsson.
Nikulás Friðriksson. Guðjón F. Teitsson. Stefán Ögmundsson. Sigurður Sigurðsson.
Felix Guðmundsson. Guðmundur Ólafsson. Sveinbjörn Guðlaugsson. Guðrún Jónasson.
Pálmi Jósefsson. Guðmundur Kr. Guðmundss. Petrína Jakobsson. Erlendur Ó. Pétursson.
Runólfur Pétursson. Einvarður Hallvarðsson. Bjarni Sigurvin Össurarson. Ásgeir Þorsteinsson.
Guðmundur R. Oddsson. Eiríkur Hjartarson. Zophónías Jónsson. Vilhjálmur Þ. Gíslason.
Sigurður Ólafsson. Jón Þórðarson. Arnfinnur Jónsson. Halldór Hainsen.
Ágúst Jósefsson. Sigurður Kristinsson. Halldór Kiljan Laxness. Bjarni Jónsson.
E
Listi Þjóðveldismanna.
Árni Jónsson.
Bjarni Bjarnason.
Jakob Jónasson.
Kristín Norðmann.
Jón Ólafsson.
Magnús Jochumsson.
Halldór Jónasson.
Árni Friðriksson.
Páll Magnússon.
Gretar Fells.
YÍirkjÖrstjórnin
íörn Þórðarson.
Björ
í Reykjavík, 21. september 1942
B. Guðmundss. Stþ. Guðmundss.
KosníngaskriSstof a B lístans
er í Sambandshúsinu 3. hæð
(inngangur um austurdyr)
Opin alla virka daga kl. 9—22 (nema kl. 12—13 og 19—20).
Trúnaðarmenn listans og aimað áhugafólk! — IVú styttist óðum til
kosninga!-Verið í stöðugu sambandi við skrifstofnna!
Veitið upplýsingar! Leitið upplýsinga!
Síinar: 2151 off 5099
Víðnýall
nýjasta bók
Dr. Helga Péturss.
Sendiherra ThorThors
verður til viðtals í stjórnarráðinu fimmtndag-
inn 15. okt. kl. 10 til 12 og 3 til 5.
Þúsundir vita
að gæfan fylgir trúlofunar-
hringunum frá SIGURÞÓR.
Sent gegn póstkröfu.
Sendið nákvæmt máL
VInnið ötullega fyrir
Tímann.
Kennið bðrnunum
að bursta vel tenn-
ur smar
Hafið það hugfast, að und-
irstaða góðs heilbrigðis eru
sterkar, fallegar tennur.
Þess vegna er nauðsynlegt.
að börnin byrji snemma að
hirða tennur slnar, en til
þess þurfa þau að hreinsa
þær vel og vandlega á hverj-
um degi, án þess þó að
skemma eða rispa glerung-
inn.
Þetta gera þau bezt með
því að nota SJAFNAR TANN-
KREM, sem hefir alla þá
kosti, sem tannkrem þarf að
hafa.
Það hindrar skaðlega sýru-
myndun, rispar ekki, en
hreinsar og hefir hressandi
gott bragð. — Notið
SJAFJVAR tannkrcm
Sápuverksmiðjan S j ö í n
Akureyri.
Keppínautar Ástamál
(Second Chorus). ræningj af or ing j -
FRED ASTAIRE, ans
PAULETTE GODDARD, The Cisco Kid
ARTIE SHAW and the Lady
og hljómsveit. Ævintýrarík og spennandi
Sýnd kl. 7 og 9. mynd. Aðalhlutverkin leika
CESAR ROMERO
Framhaldssýning 314-6%: MARJORIE WEAVER
DÓTTIR FORSTJÓRANS GEORGE MONTGOMERY
Börn yngri en 16 ára
Wendy Barrie og fá ekki aðgang.
Kent Taylor Sýnd kl. 5, 7 og 9.
X
Vítar og sjómerki.
Á Hegranesvita í Skagafirði logar nú aftur. Ljósmagn og ljós-
einkenni eins og áður.
Á Djúpavogi hefir verið komið fyrir leiðarljósum í merkin á
innri Gleiðuvíkurtanga (sbr. skrá yfir vita og sjómerki, nr. 93
a og b, bls. 46).
Ljósin eru hvít, bera saman í 245° stefnu, og loga þegar
skipa er von og um það er beðið frá 15. okt. n. k.
Á Straumnesi við austanverðan Skagafjörð, vestan Fljóta-
víkur, hefir verið reistur nýr viti og verður væntanlega kveikt
á honum 10. okt. n. k.
Vitinn stendur utarlega á nesinu n.br. 66° 4' 48", v.l. 19°
21' 17" og sýnir 1 leiftur, hvítt, grænt og rautt, á hverjum
5,75 sek., þannig: 0,75 sek. ljós + 5 sek. myrkur — 5,75 sek.
Frá 54° — 84° rautt, frá Hrolleifshöfða yfir
— 84° — 95° hvítt, yfir Málmeyjarsund.
— 95° — 125,5° grænt, yfir Málmeyjarboða.
— 125,5° -L 193° hvítt.
— 193° — 209,5° rautt, yfir Hammersboða.
— 209,5° — 226° hvítt.
— 226° — 236,5° grænt, yfir Reksboða.
— 236,5° — 250,5° hvítt.
— 250,5° — 266° rautt, yfir Haganesvík.
Vitabyggingin er áttstrend með lóðréttum, hvítum og svört-
um röndum, 4,5 m. há með 3,5 m. háu ljóskeri, eða samtals 8
m. Hæð logans yfir sjó er 19 m. Ljósmagn 460 H.K. Ljósmál
11,5 sm. fyrir hvíta Ijósið, 9,5 sm. fyrir rauða ljósið og 7,5 sm.
fyrir það græna. Logtími 1. ágúst —15. maí.
Reykjavík, 5. okt. 1942.
VITAMÁL AST J ÓRINN
Emil.Jónsson.
Reykvíkíngar!
kaupið merki skátanna á morgun, með því styrkið þér góðan
félagsskap.