Tíminn - 22.10.1942, Qupperneq 3
126. blað
TÍMIM, fimiiitiidaginn 22. okt. 1942
499
Skíldinganesskólinn
Á fundi skólanefndar Skild-
inganesskólans þann 10. þ. m.
var þetta samþykkt m. a. um
skólahaldið í vetur:
„Vegna þess að fyrirsjáanlegt
þykir, að skólahúsnæði það, sem
verið er að innrétta í Grímsby
á Grímsstaðaholti fyrir byggð-
irnar við Skerjafjörð, muni
reynast ófullnægjandi, beinir
skólanefnd því til bæjarstjórn-
ar, að elzta árgangi skólans
verði ætluð kennsla í Miðbæj -
arbarnaskólanum í vetur. í því
sambandi þykir skólanefnd til-
hlýðilegt, að börnunum verði
séð fyrir ókeypis fari ^með
strætisvögnum, til skóla og frá.
Jafnframt verði einum kennara
skólans fengið starf við Mið-
bæjarskólann.
Að leggja til við bæjarstjórn,
að börnum á svæðinu innan
Þvervegs, Reykjavíkurvegar og
Þorragötu, verði veitt ókeypis
far með strætisvögnum úr og í
skóla og jafnframt, að börnum
1 skólanum á Grímsstaðaholt-
inu verði séð fyrir öruggu loft-
varnarbyrgi.“
Þá endurtók skólanefndar-
fundurinn áskorun um nauðsyn
þess, að byggingu hins fyrirhug-
aða skólahúss verði hraðað svo
sem kostur er á.
Deílan nm Aquacide
(Framh. af 2. slðu)
sléttum 1000 málum meira af
síld á sólarhring en S. R. N,-
verksmiðjan gerði i sumar og
getur nú hver sem vill reiknað
dœmið á enda og séð, hve miklu
meira af síld S. R. N.-verksmiðj-
an á Siglufirði hefði brœtt, ef
hún hefði haft Aquacíde-vökv-
ann.
Við efumst ekki um, að J. G.
muni fara enn einu sinni á stúf-
ana og reyna að flækja petta
mál með blekkjandi tölum og
endalausu málþófi. Við styðjum
því eindregið þá áskorun Par-
manna- og fiskimannasambands
íslands til ríkisstjórnarinnar, að
skipuð verði nefnd dómbærra
manna til að rannsaka rekstur
Síldarverksmiðja ríkisins á síð-
astliðnu sumri.
Reykjavík, 5/10 1942
Þórður Þorhjarnarson
Ingi Bjarnason
fyndi að hagur hans byggðist á
því, að hann ynni störf sín í
annarra þágu vel og trúlega.
VI. Nýjar vélar.
í vesturbrún Vaðiaheiðar ligg-
ur þjóðvegurinn framan í
brattri brekku og fyllist oft af
snjó. Þar hefir margur bíllinn
strandað, og mörgu dagverki
verið eytt 1 snjómokstur. í sum-
ar var fengin amerísk vél, er
ruddi úr brekkunni og breikk-
aði veginn, svo að þessi farar-
tálmi er úr sögunni. Reyndur
vegastjóri segir vélina vinna á
við tvö hundruð menn.
Lengi hefir verið í ráði að
ræsa fram Staðarbyggðar mýr-
ar, neðan við Vaðlaheiði, en
vantaði fé og mannafla. í sumar
útvegaði Árni G. Eylands vél,
sem er að sínu leyti eins stór-
virk við skurðgröft og ruðnings-
vélin í heiðarbrúninni. Báðar
þessar vélar eru mjög ódýrar í
rekstri.
Hljótt hefir verið um vélar
, þessar og vinnu þeirra. En ef til
vill eru þetta mestu tíðindi
sumarins.
Ekkert bagar sveitirnar meir
en vegleysið. Upphlaðinn, mal-
borinn vegur heim að hverju
býli, hefir verið takmark í óra-
fjarlægð, og þó frumskilyrði
þess að lifað verði nútíma lífi í
sveitum. Hann mundi breyta
„dreifbýli í þéttbýli“. Talið er
að vélin á Staðarbyggð mundi,
með fjórum mönnum, byggja
undirlag elns kilómetra vegar á
mánuði, eða 5 km. á sumri.
Vinnur hún miklu meira en
hundrað menn í slælegri tíma-
vinnu. Ef sveitarmenn tækju
síðan í ákvæðisvinnu að laga
undirstöðu og malbera, þegar
minnst væri að gera í sveitum,
gætu vegirnir komið tífallt fyrr
með jöfnum framlögum hins
opinbera, ef þær vélar væru
fengnar, er bezt henta.
(Framh. á 4. síðu)
Mark Twain
ustu manna heimsins.
Hér er getið ýmissa öreiga úr hópi fræg-
Ert þú maður skuldugur? Helzt þér illa á fé? Sé sú raunin,
getur þú huggazt látið við umhugsunina um það, að margir mik-
ilhæfustu menn heimsins hafa reynzt harla ófengsælir á vett-
vangi fjármálanna. Tökum Mark Twain sem dæmi. Hann var
peim hæfileika gæddur, að hann gat látið gervallan heiminn
hlæja — eða gráta. En þegar til þess kom að afla fjár, var hann
hvorki mér né þér fremri.
Hann tapaði nær hundrað þúsundum dollara á alls konar upp-
finningum, svo sem gufuröfulum, sæsíma og ýmsum furðuvélum,
sem áttu að valda þáttaskiptum í sögu prentlistarinnar. Það
var aðeins ein uppfinning, sem hann taldi óráðlegt að verja fé
í. Það var talsíminn. Þannig vísaði hann á bug tækifæri til þess
að verða auðkýfingur. í þess stað réðist hann í það að stofna
fyrirtæki með ættingja sínum. Það segir ekki af því, að hann
tapaði aleigu sinni á skömmum tíma.
Vinur hans, H. H. Rogers, forstjóri Standard olíufélagsins,
bauðst til þess að greiða skuldir hans gegn fimmtíu centa vöxt-
um á dollara, en Mark Twain mátti ekki heyra á það minnzt.
Aðdáendur hans hófu þá almenn samskot, og ávísanir bárust
brátt hvaðanæva að. En Mark Twain endursendi allar fjárupp-
hæðir og kvaðst mundu greiða skuldir sínar sjálfur. Hann hafði
vanþóknun á því að halda fyrirlestra. Þó tókst hann för á hend-
ur um viða veröld, hélt fyrirlestra og bjó í gistihúsum og þjáð-
ist af heimþrá og leiðindum. Hann varði sex árum ævi sinnar
til þess að greiða skuldir sínar en tókst það þó að lokum.
Grant hershöfðingi bar Lee ofurliði, vann borgarastyrjöidina
og varð forseti Bandaríkjanna. En á fjármálasviöinu var hann
engan veginn eins skeleggur. Síðustu ár ævi hans komust tveir
svikarar í kynni við hann og fengu hann til þess að ganga í félag
við þá í fjáröflunarskyni. Menn þessir notuðu nafn Grants á
miður viðurkvæmilegan hátt. Þeim auðnaðist áð hafa fé af þjóð-
inni, er nam sextán miljónum dollara. Þegar hrunið kom og
Grant hugðist að greiða skuldir sínar, varð hann að láta af
hendi óðalssetur sitt, hús sín í Philadelphíu og New York og
jafnvel sverðin og heiðursmerkin, sem harin hafði hlotið.
Hann var blásnauður maður og var að bana kominn af völdum
krabbameins. Hann gerði sér það ljóst, að ekkja hans myndi éiga
við örbirgð að búa. Hann ákvað því að skrifa endurminningar
sínar til þess að firra hana því hlutskipti. Hann las fyrir, unz
krabbinn í-hálsi hans varnaði honum máls. Þö lauk hann við
bókina, þrátt fyrir óbærilegar þjáningar. Síðustu kaflana ritaði
hann með blýanti og lauk þeim þrem dögum fyrir andlátið.
Mark Twain gaf bókina út og greiddi ekkju Grants nær hálfa
miljón dollara fyrir útgáfuréttinn.
Daniel Webster var einhverju sinni lögsóttur fyrir þá sök, að
hann átti ógoldinn reikning frá slátraraverzlun nokkurri.
Oliver Goldsmith, hinum frábæra skáldsagnahöfundi, er ritaði
Aðstoðarprestinn i Wakefield, var einhverju sinni varpað í
fangelsi, sökum þess að hann gat ekki greitt húsaleiguna.
Balzac, hinn frábæri franski skáldsagnahöfundur, var svo
auðugur, að honum var jafnan óljúft að fara til dyra.
Charles annar Englandskonungur var svo skuldugur, að hann
seldi William Penn allt það landrými, sem nú er ríkið Pennsyl-
vanía, fyrir aðeins sjötíu og fimm dollara.
Ekkja Abrahams Lincolns varð svo mjög skuldum vafin, að
hún neyddist til þess að selja kjóla sína, loðfeldi og skartgripi. Er
hún hafði flutt úr Hvíta húsinu, var hag hennar þannig kom-
ið, að hún varð jafnvel að selja skyrtur hins látna eiginmanns
síns, en fangamark hans var saumað í þær.
Whistler, einhver mesti málari Vesturheims, tók fé óspart að
láni og veðsetti myndir sínar til þess að greiða skuldir sínar.
Þegar skuldheimtumaður hans færði brott stól eða rekkju Whist-
lers, málaði Whistler mynd af stólnum eða rekkjunni á gólfið
— og lét við það sitja. Þegar fulltrúi lögmanns kom til þess að
taka hús Whistlers lögtaki, fékk Whistler hann til þess að klæð-
ast sem þjón og bera te á borð fyrir sig og vini sína.
Beau Brummel drottnaði í samkvæmislífi Englands fyrir meira
en öld. En í fjármálum var hann miður sín. Hann lagði ríkisarf-
anum af Wales ráð um klæðaburð hans, en hann gat ekki kennt
sjálfum sér að segja skilið við veðreiðarhesta og spil. Þegar
skuldheimtumennirnir börðu að dyrum, faldi Beau Brummel sig
oft í klæðaskápnum. Þar kom að lokum, að hann var tekinn hönd-
um og hnepptur í varðhald fyrir skuldir.
Maður þessi, sem einu sinni hafði verið mestur tízkuherra
heimsins og er enn í dag talinn tákn glæsileiks og viðhafnar í
klæðaburði, varð að lokum svo snauður, að hann bar tötra og
varð að þola hæðnisorð þeirra, er höfðu dáð hann fyrrum. Hann
lét bugast og lézt að lokum á geðveikrahæli.
Þegar Abraham Lincoin var ungur maður, stofnaði hann ný-
lenduvöruverzlun i félagi við drykkjurút nokkurn. Verzlunin
varð gjaldþrota. Drykkjurúturinn lézt og lét Lincoln eftir að
greiða skuldirnar. Lincoln hefði getað komizt hjá því að greiða
skuldir þessar. En það var honum eigi að skapi. Hann sparaði
fé og neitaði sér um allt nema brýnustu nauðþur^tir, um ellefu
ára skeið, unz hann hafði greitt skuldunautum sínum allt það,
sem þeim bar.
Sókrates er í tölu hinna mestu vitringa, sem veraldarsagan
greinir frá. Þó var hann svo snauður maður, að hann varð oft að
fá málsverð að láni, ef hann átti eigi að svelta. Þegar Sókrates
lá banaleguna, minntist hann þess, að hann hafði fengið kjúkling
að láni og átti hann ógoldinn. Síðustu orðin, sem Sókrates mælti,
voru þau, að hann bað einn vina sinna að greiða fyrir sig skuld
þessa.
Dvöl
DragiS ekki lengur aS
gerast áskrifendur aS
Dvöl, þessu sérstæða
timariti i íslenzkum bókmenntum. -
Ykkur mun þykja vænt um Dvöl, og
því vænna um hana sem þiS kynnizt
henni betur. .
Egill Signrgcirsson
hæstarétta málaflutningsmaður
Austurstræti 3 — Reykjavík
Vtttntð ötullega fgrir
Títnann.
Samband ísl. satnvinnufélaga.
Bréfaskóli S. í. S. er skóli yðar, sem at-
vinnu vegna getið eigi sótt aðra skóla.
Gerið tómstundirnar ánægjulegar og arð-
bærar með því að verja þeim til þess að
auka kunnáttu yðar.
Leitið upplýsinga hjá Bréfaskólanum,
Sambandshúsinu, Reykjavík.
immmmm*mfímmv*immmmmmmmmfímmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
:
Skinnaverksmiðjan ÍÐUNN
framleiðir fjölmargar tcguudir af skóm á karla,
konur og börn. Viniiur cnnfrcmur úr Iiúðum, skinn-
um og gærum margskonar leöurvörur, s. s. leður til
skógerðar, fataskinn, hanzkaskinn, töskuskinn, loð-
sútaðar gærur o. m. fl.
Skinnavcrksmiðjan Iðunn, er húin nýjustu og full-
komnustu tækjum, og hefir á að skipa hóp áf fag-
lærðum möimum, sem þegar hafa sýnt, að þeir eru
færir um að keppa við útlenda framleiðslu á þessu
sviði.
i
IÐUNNARV0RUR fást hjá kaupfélögum um allt
land ogf mörgum kaupmönnum.
Iðunnarvörur eru smekklegar, haldgódar, ódýrar
Aotið IIUIWAK vöriii*
NA?
SKOR
Kaupendur Tímans
utan Rcykjavíkur
eru minntir á, að gjalddagi 26. árgangs var 1.
júlí síðastl. Eru þcir því vinsamlega bcðnir að
greiða ársgjaldlð, kr. 15.00, sem fyrst, til inn-
heimtumanns blaðsins, cða beint til afgreiðsl-
unnar, Lindargötu 9A, Reykjavik.
Gleymið ekki að borga
Tímann.
jimwwwwipnnmnwmmrr/mmmmwg.
heildsölubirgðir: f
ÁRNIJÓNSSON |
REYKJAVÍK S
itt\H
Vinnið ötullega fgrir
Tímann.
Hvammstanga
DILKAKJ0T
nýslátrað, selt í dag.
©T-l'V, '
Getum saltað í nokkrar tunnur.
Frystihúsið Herðubreið
Sími 2678.