Tíminn - 05.11.1942, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTOW'P’a^ttit.
FR AMSÓKNARFLOKKURINN.
RITST JÓR ASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Símar 2353 og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGA'SKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
26. ár.
Reykjavík, fimmtudagiim 5. nóv. 1942
132. blað
Viðræður um stjórnarmyndun heíjast:
Erlent yfirlit 5. nóvember
A víðavangi
Ólafur Thors hröklast frá
vöfdum strax í þingbyrjun
Bátur ferst
Fullvíst er nú talið, að vél-
báturinn Vignir frá Vattarnesi
við Reyðarfjörð, sem fór á veið-
ar s. 1. laugardag, hafi farizt,
sennilega á tundurdufli.
Bátur, sem var að veiðum á
þessum slóðum, heyrði mikla
sprengingu og sá mikinn strók
á sjónum.
Annar bátur fann á sunnu-
daginn brak úr vélbát.
Þrír menn voru á bátnum,
Magnús Jónsson, bóndi á Vatt-
arnesi, 39 ára, lætur eftir sig
konu og 5 börn, þar af 4 í ó-
megð, Lúðvík Sigurjónsson,
bóndi, Vattarnesi, 36 ára, lætur
eftir sig konu og 4 börn, og Jón
Austmann Jónsson, 32 ára, ó-
kvæntur.
Dýrtíðarráðstafanir
í Svíþjóð
Tímanum hefir borizt eftlr-
farandi fregn frá sænska sendi-
ráðinu:
Allan októbermánuð hafa
samningar staðið yfir milli
sænsku stjórnarinnar og fé-
laga þeirra innan framleiðsl-
unnar, sem með starfsemi sinni
hafa áhrif á verðmyndun i
landinu. Samningar þessir voru
hafnir eftir tilmælum stjórn-
arinnar, og er árangur þeirra
væntanlegur einhvern næstu
daga. Byrjað var á samningun-
um 1 þeim tilgangi að skapa
möguleika til almennrar skipu-
lagningar á vöruverði og vinnu-
launum og þannig koma i veg
fyrir verðbólgu.
(Framh. A 4. sltuj
Seinustu afrek stjórnarínnar eru þau, að
gera Jón Sveinsson að skattdómara og
kveðja ekki saman þíngíð fyrr en Möller
hefir úthlutað bílunum
Ólafur Thors tilkynnti ríkisstjóra í fyrradag, að ráðu-
neyti hans myndi biðjast lausnar strax og Alþingi
kæmi saman.
Stjórnin hefir þannig séð þann kost vænstan að
hrökklast strax frá völdum, en bíða ekki eftir van-
trausti. Er þetta eitt af fáum tilfellum, þar sem hún
hefir valið sér rétt hlutskipti.
Þjóðinni mun áreiðanlega
létta við þær fregnir, að þessi
aumasta og giftuminnsta ríkis-
stjórn, sem verið hefir á íslandi,
skuli nú hröklast frá völdum.
Undir handleiðslu þessarar
stjórnar hefir dýrtíðin tvöfald-
azt og rekstrarkostnaður fram-
leiðslunnar aukizt að sama
skapi. Útlit er fyrir,. að margt
nauðsynlegustu fyrirtækja, eins
og t. d. frystihúsin, verði nú
þegar að stöðva rekstur sinn af
þessum ástæðum. Svipað er
að segja um stóran hluta út-
gerðarinnar. Annar atVinnu-
rekstur kemur svo bráðlega á
eftir. Verkafólksskortur land-
búnaðarins hefir aldrei verið
meiri og útvegun aðalfóðurbæt-
isins, síldarmjölsins, hefir verið
í fullkomnasta ólagi.
Síðast, en ekki sízt, ber að
nefna óstjórn innflutnings-
málanna, þar sem dýrmætum
skipakosti og gjaldeyri er eytt
til að fylla landið af glysvarn-
ingi og luxusvörum. Hefir þessi
óstjórn m. a. leitt til þess, að
Ameríkumenn hafa svipt okkur
Frá Vestur-Islendingum
Viðtal við Hjálmar Björnsson
Hjálmar Björnsson, viðskiptafulltrúi Bandaríkjastjórnar hér á
landi, er nýlega kominn heim úr feröalagi til Bandaríkjanna.
Hjálmar fór vestur til að ræða um viðskiptamál íslands og
Bandaríkjanna við stjórnina í Washington. Rétt áður en hann
fór í þessa ferð fór hann svipaðra erinda til Englands.
Hjálmar hefir víða komið við
á ferðalagi sínu.
„Ég fór sömu leið vestur og
Leifur heppnl, þegar hann fann
Ameríku,“ sagði Hjálmar, er tíð-
indamaður blaðsins hitti hann
snöggvast að máli í gær.
„En ég var þó nokkru fljót-
arl í förum,“ heldur Hjálmar
áfram, „því að ferð mín til
Washington tók aðeins sólar-
hring, með viðdvöl í Grænlandi.
Ég kom til Kanada. Þar hitti
ég Jósef Thorson, ráðherra.
Hann var fyrir skömmu skipað-
ur i hæstaréttardómarastöðu,
sem er lífsstarf og jafnframt
mjög mikil virðingarstaða. Mun
þetta vera hæsta virðingarstaða,
sem nokkur Vestur-íslendingur
hefir hlotið. Thorson sagði, að
sig langaði mjög til að koma
hingað heim og jafnframt bað
han nmig að skila hingað alúð-
arkveðju.
Ég hitti einnig fjölmarga
aðra Vestur-íslendinga, bæði i
Kanada og í Bandarikjunum.
Líður þeim öllum vel i báðum
löndunum. Áhuginn fýrir ís-
landi og íslenzkum málefnum
er mjög mikill vestra. Margir
höfðu alrangar skoðanir um
land og þjóð eða þá að þeir
vissu blátt áfram ekki neitt um
hvorugt fyrir stríð. Síðan sam-
bandið milli íslands og Banda-
ríkjanna varð nánara og Banda-
ríkjamenn komust að raun um,
að hér býr gömul menningar-
þjóð, með þúsund ára lýðræðis-
skipulag, hefir áhuginn fyrir
íslandi og íslendingum farið
hraðvaxandi vestra.
Meðan ég var heima, átti fað-
ir minn 70 ára afmæli. íslenzkir
námsmenn.sem eru allfjölmenn-
ir í Minnesota, komu þá heim til
foreldra minna. Einn stúdent,
sem er við myndlistarnám þar
við háskólann, teiknaði mjög
góða mynd af föður mínum við
þetta tækifæri. Ég held, að Is-
lenzkum námsmönnum líði öll-
um vel og þeir hafa áreiðan-
lega verið landi sínu og þjóð til
sóma með iðni sinni og góðri
framkomu í hvívetna."
Hjálmar tekur nú aftur við
störfum, sem forstöðumaður
skrifstofu sinnar hér. Seinna
má gera ráð fyrir, að hann segi
blöðunum eitthvað frá erindis-
rekstri sinum vestan "hafs.
meira en helmingi þess skipa-
kosts, sem þeir hafa lánað okk-
ur til vöruflutninga.
Réttarlmeykslm
og lilutdrægnm.
Þetta gildir aðeins atvinnu-
og verzlunarmálin. En sagan
er hin sama annars staðar.
Réttarbrotin, ofbeldishneigðin
og hlutdrægnin hafa þar ein-
kennt feril stj órnarinnar. Næg-
ir þar að minna á, hversu fjár-
málaráðherra hefír traðkað
þingviljann og þverbrotið allar
heiðarlegar og sanngjarnar út-
hlutunarreglur í bifreiðamál-
inu.
Svo mikil er ofbeldishneigðin
i þessu máli, að samkvaðning
þingsins hefir beinlínis verið
dregin til þess að stjórnin gæti
úthlutað öllum bílunum.
Ef stjórnin hefði viljað hraða
þinghaldinu, hefði það hæglega
getað komið saman 1. nóv. En
alveg nýlega eru 80—90 fólks-
bílar komnir til landsins og var
enginn kostur að afhenda þá
fyrir þann tíma. Þess vegna er
þinghaldið dregið, svo að þingið
geti ekkert um málið sagt fyrr
en bílarnir eru komnir út um
hvippinn og hvappinn.
Til frekari sönnunar um rang-
indin og hlutdrægnina, mætti
nefna tilraun kennslumálaráð
hérra til að flæma Pálma Hann-
esson frá embætti, skipun for-
manna skólanefnda o. fl.
Þjónustan við stríðs-
gróðavaldið.
En þótt stjórnin hafi gætt
þjóðarhagsmunanna jafn
hörmulega og raun er á, hefir
hún ekki gleymt hagsmunum
stríðsgróðamannanna. Hún hóf
feril sinn með því, að leyfa stór-
útgerðarmönnum að flytja all
an stríðsgróðann inn í landið, í
stað þess að setja hæfilegan
hluta hans á biðreikning er
lendis. Þetta hefir aukið veru
legá braskið og verðbólguna.
Hún lét ekki skammta bygging
arefni, svo stríðsgróðamenn-
irnir gátu fengið það í luxus-
byggingar sínar. Hún vék rösk
um manni, Baldvin Jónssyni, úr
embætti skattadómara, og hefir
nú kórónað þjónustu sína við
stríðsgróðamennina með þvi að
setja Jón Sveinsson, fyrv. bæj
arfógeta á Akureyri, í þetta
embætti. Stríðsgróðamennirnir
þurfa sannarlega ekki að ótt-
ast skattadómaraembættið með-
an það er þannig skipað.
Gagnrýni Tímans.
Það hefir verið sagt, að Tlm-
(Framh. á 4. slOu)
Herstfórn Rússa
Skyldusparnaður lögboðinn í Kanada
Boris Mikhailavits Shaposh-
nikoff er eini liðsforinginn úr
rússneska keisarahernum, sem
hefir komizt til hárra metorða
í rauða hernum. Hann er nú
hermálaráðherra Rússlands og
formaður herforingj aráðsins.
Hann gengur þvi raunverulega
næst Stalin að völdum.
Shaposhnikoff er sextugur að
aldri. Hann fékk ungur full-
komna hernaðarmenntun og
barðist sem liðsforingi í rúss-
neska keisarahernum á heims-
styrjaldarárunum. Hann var
einn þeirra fáu liðsforingja,
sem strax gekk í lið byltingar-
mannanna 1917. Tign hans í
keisarahernum stóð honum þó
lengi fyrir þrifum. Hann komst
þó svo langt að verða forstöðu-
maður hernaðarháskólans í
Moskvu. Þegar Þjóðverjar réð-
ust á Rússa, gerði Stalin hann
að varahermálaráðherra. Fyrir
nokkrum vikum síðan lagði
Stalin niður embætti hermála-
ráðherra og fól Shaposhnikoff
það. Sýnir það, að Stalin
treystir honum fullkomlega,
enda hefir hann verið nánasti
ráðunautur Stalins síðan styrj-
öldin hófst. Er talið, að Shapo-
shnikoff hafi ráðið meiru um
vörn Rússa en nokkur maður
annar. Er það almannarómur,
að hann sé ráðsnjallastur og
framsýnastur allra herfræðinga
Rússa.
Shaposhnikoff hefir aldrei
gefið sig að stjórnmálum og
aldrei látið mikið á sér bera.
Hann hefir bundið starfsvið
sitt vjjð hernaðarmálin.
Fimmtugur
í dag á Arreboe Clausen, bif-
reiðastjóri hjá stjórnarráðinu,
50 ára afmæli.
Hann er fæddur 5. nóvember
1892 í Stykkishólmi. Hann lauk
námi við verzlunarskólann, en
hugur hans hneigðist á unga
aldri meira að öðrum viðfangs-
efnum en verzlunarstörfum.
Hann er mikill unnandi tónlist-
ar og annarra fagurra llsta.
Sjálfur er hann málari og tón-
skáld í tómstundum sínum.
Hefir hann samið allmörg lög
og málað fjölda mynda en fáir
aðrir en vinir hans vita um af-
köst hans á þessu sviði. í kunn-
ingjahópi er Arboe hrókur alls
fagnaðar og þar njóta þeir eig-
inleikar hans sín bezt, sem hafa
unnið honum vináttu svo
margra manna.
í sex ár hefir Arreboe Clausen
verið einkabifreiðastjóri æðstu
valdamanna landsins. Hann
hefir í því starfi unnið sér mik-
ið traust og vináttu yfirmanna
sinna fyrir dugnað í erfiðum
langferðum og sífellda glað-
værð á hverju sem gengið hefir.
í dag munu margir senda Arre-
boe Clausen sínar beztu árnað-
aróskir og minnast hans með
þakklæti fyrir skemmtilegar
samverustundir.
Shaposhnikoff
Nokkru eftir að Shaposhnl-
koff varð hermálaráðherra, var
öllum hinum pólítisku fulltrú-
um, sem Kommúnistaflokkur-
inn hafði í hernum, vikið frá
störfum. Herforingjarnir hafa
löngum talið þá vera sér til
trafala. Eigi verður sagt, hvort
þetta muni hafa pólitíska þýð-
ingu í framtíðinni, en herinn
verður þó við þetta óháðari
kommúnistiskri leiðsögu og
andrúmslofti en hann hefir
verið hingað til.
Það mun styrkja aðstöðu
Shaposhnikoff, að margir læri-
sveinar hans frá hernaðarhá-
skólanum í Moskva eru nú
orðnir háttsettir foringjar í
hernum. Meðal þeirra er Alex-
ander Rodimtseff, sem hefir
stjórnað vörn Stalingrad. Hann
er aðeins 36 ára gamall. Hann
var sjálfboðaliði Spánarstyrj-
öldinni og gat sér þá frægð
fyrir hugrekki, því að það féll
oft í hlut hans að stjórna
handsprengjuárásum og byssu-
stingjaáhlaupum á stöðvar fas-
ista. Hugrekki hans þykir þó
hafa komið enn betur í ljós
undanfarnar vikur. Jafnframt
hefir hann sýnt, að hann er
frábær herstjórnandi. Hann
hefir, eins og Shaposhnikoff,
lítið skipt sér af stjórnmálum,
en helgað sig þeim mun meir
hermálunum.
Skyldusparnaður hefir verið
lögleiddur í Kanada. Byrjaði
innheimta hans í september-
mánuði síðastliðnum.
í Kanada er skattur greiddur
daglega, vikulega eða'mánaðar-
lega eftir því, hvaða vinnu
skattgreiðandi stundar.
Til dæmis má nefna það, að
af 200 dollara skattskyldum
mánaðartekjum eru 49 dollarar
greiddlr í skatt til ríkisins og
14 dollarar í sparnaðarskatt.
Auk þess eru svo fylkisskattur
og sveitagjöld.
Seinustu fréttir eru þessar:
Rússar hafa sótt á í Stalin-
grad. Hefir dregið úr sókn Þjóð-
verja þar, a. m. k. í bili.
Þjóðverjar hafa tekið Nal-
chik í Mið-Kákasus, en þaðan
liggur allgóður vegur suður yfir
Kákasusfjöll.
Ástralíumenn hafa tekið Ko-
koda á Nýju-Guineu, en þar
höfðu Japanir búið allvel um
sig.
í Egiptalandi geisar nú hörð
skriðdrekaorusta. Telja Banda-
menn, að þeir hafi innikróað
fjölmennt lið öxulríkjanna.
Kosningar fóru fram 1 Banda-
ríkjunum á þriðjudaginn í full-
trúadeild þingsins, i/3-hluta
öldungadeildarinnar og nokkr-
um ríkisstjórum. Republikanar
hafa unnið á. Úrslitanna verður
getið nánar síðar.
VALTÝR KEMUR TIL
„SPURNINGANNA".
í síðasta blaði Tímans voru
lagðar nokkrar einfaidar spurn-
ingar fyrir Moggann. Á sunnu-
daginn var kemur svo Valtýr
sjálfur „til spurninganna", en
kann illa og er næsta úrillur.
Segir að sá vondi maður, Jón
Eyþórsson, sé enn að kvelja sig.
Gerir hinn ljóngáfaði ritstjóri
fljótt út af við Jón með þvi að
kalla hann fífl, og mun engan
undra þótt Valtýr geti úr flokki
svarað, þegar rætt er um vits-
muni, sannsögli og ráðvendni.
Honum til frekari hugarléttis
skal þess þó getið, að Jón hefir
engar spurningar fyrir Mogg-
ann lagt að þessu sinni.
En hér fara á eftir svör Val-
týs, og geta þá lesendur sjálfir
dæmt um frammistöðu „spurn-
ingabarnsins":
„5 spurningar.
Jón Eyþórsson aðstoðarrit-
stjóri Tímans varpar fram 5
spurningum í dálki sínum í dag,
út af forystugrein Morgunblaðs-
ins á föstudag og gerir sig nú
að meira fífli en hann í raun
og veru er.
Þó hér hafi ekki verið lögð
stund á að elta ólar við illkvitni
og munnfleipur Jóns í víða-
vangsdálki hans, sem oftast
nær, eins og nafnið bendir til,
er út í loftið, er rétt að svara
þessum spurningum hans.
Hann spyr, því ekki hafi mátt
minnast á fréttina um sam-
kvæmísfötin. Enginn hefir lagt
bann við henni. En það er víta-
vert að falsa staðreyndir, eins
og Tíminn gerir, og áður hefir
verið sýnt fram á.
Þá spyr Jón um húsrúm I
Menntaskólanum, sem afsökun
á því, að flokkur hans hefir
viljað þrengja aðgang að stúd-
entsmenntun. Eins og miða eigi
menntaþörf almennings við
gólfpláss í 100 ára gömlu húsi,
meðan hægt var að byggja skóla
eftir vild, en heimta að hús-
næði Menntaskólans verði auk-
ið einmitt nú.þegar ekki er hægt
að byggja vegna efnisskorts.
Svo spyr Jón, því Magnús
Jónsson hafi ekki víkkað
kennslustofur skólans í haust?
En Magnús gerði það sem jafn-
gilti þeim rýmindum með því að
veita Verzlunarskólanum leyfi
til að brautskrá stúdenta.
Morgunblaðið hefir ekki hall-
mælt Framsóknarstúdentum þó
þeir séu í kosningabandalagi
við kommúnista, eins og Jón
vill vera láta, en hefir bent á,
hve óheillavænlegt það er fyrir
hina ungu menntamenn, að
byggja bandalag sitt á beinum
lygum og blekkingum.
Að síðustu spyr Jón, sem þyk-
ist vita ennþá minna en hann
veit, hvaða ofbeldi eða rang-
sleitni Framsóknarmenn hafi
beitt í Menntamálaráði.
Svar við þessari spurningu
hans er að finna í greinum Sig-
urðar Nordal prófessors, er birzt
hafa hér í blaðinu.“
Við þessi svör Valtýs þykir
rétt að gera þessar athuga-
semdir:
1. Tíminn hefir engar stað-
reyndir falsað, fremur en Morg-
unblaðið, um það, að glysgirni
og spjátrungsháttur sumra ís-
lendinga er hafður að skopi í
Bandaríkjunum.
2. Ef menntaskólinn i Rvík
er of litill til að taka við eins
mörgum nemendum og þangað
sækja, hvers vegna hafa Sjálf-
stæðismenn aldrei hreyft því að
auka húsakost hans, þótt þeir
hafi farið með stjórn landsins?
Hvers vegna barðist Morgun-
blaðið og íhaldsflokkurinn gegn
menntaskóla á Akureyri, ef
þessum aðilum er áhugamál að
fjölga stúdentum?
3. Valtýr segir, að stúdentar í
háskólanum byggl „bandalag
sitt á beinum lygum og blekk-
ingum.“ (Frh. á 4. síðu)