Tíminn - 05.11.1942, Side 4
524
TÍMIM, iimmtndagiim 5. nóv. 1942
132. blað
ÚH BÆIVrill
Kapella Hallgrímskirkju
reist innan skamms.
í ráði mun vera að hefjast handa
um byggingu kapellu Hallgrímskirkju
(suðurvœng) á nœstunni. Skólavörðu-
holtið, þar sem kirkjan á að standa,
hefir sem kunnugt er verið í hers
höndum, en heflr nú verið rýmt að
nokkru leyti, íyrir góðan skilning
Bonesteels hershöfðingja Bandaríkja-
hersins á nauðsyn þess, að hægt væri
að hefjast þarna handa um hina
miklu kirkjubyggingu.
Nýir sorphreinsunarbílar
eru um það bil að koma í notkun
hér I bænum. Alls eru þeir 4 talsins
og er búið að taka einn þeirra í noktun
nú þegar, en hinir munu koma smám-
saman. Verður starfræksla þessara
nýju sorphreinsunarbifreiða væntan-
lega til þess að þetta mikilsverða starf
verði að mun auðveldara hér eftir.
Ungmennafélag Reykjavíkur
heldur skemmtifund að Amtmanns-
stíg 4 i kvöld, fimmtudag. —
Ýmlslegt skemmtilegt verður á dag-
skrá. Skemmtifundur þessi er aðeins
fyrir félagsmenn. Aðgöngumiðar eru
seldir hjá Krlstínu Jónsdóttur, Ing-
ólfsstræti 1 í dag.
Nýtt kvennablað,
3. árg., 2. tbl. Efni m. a.: Hið al-
gjöra stríð. Bygging fæðingarstofnun-
ar má ekki dragast lengur. Stöðvun-
arvald kvenna. Þriðja skotmarkið var
tófan. Þýzk ógnaröld í Póllanadi og
ýmislegt fleira.
Dýrtídarráðstafajair
(Framh. af 1. siOuJ
Til þess að komast hjá, að
verðhækkun hafi áhrif á samn-
ingana, ákvað sænska stjórnin
síðastliðinn föstudag, að alls-
herjar verðstöðvun skyldi kom-
ið á þangað til lokaákvörðun
hefði verið tekin um verðlag og
vinnulaun.
Þessi ákvörðun stjórnarinnar
var ekki tekin, vegna yfirvof-
andi verðhækkunar, heldur er
hún aðeins gerð vegna þess, að
verðlagið virðist vera nokkuð
stöðugt nú og því tímabært að
gera ákveðnar ráðstafanir til
að koma i veg fyrir verðbólgu.
Þess vegna verður verðstöðv-
unin ekki þung byrði fyrir
sænsku framleiðsluna.
Ólafar Thors hröklast
(Framh. af 1. siSu)
inn hafi verið harður í gagn-
rýni sinni á afglöpum stjórnar-
innar. Þetta er að vissu leyti
rétt. En hann hefir talið það
nauðsynlegt til þess að reyna að
opna augu þjóðarinnar fyrir
því, að slík stjórn myndi leiða
hana til ófarnaðar og eymdar.
Þó hefir Tíminn sýnt henni
vissa hlífð. Hann hefir t. d.
dregið hulu þagnarinnar yfir
mál, sem vafalaust hefði mjög
hnekkt áliti ráðherranna í aug-
um erlendra valdamanna, ef
það hefði verið oplnberað taf-
arlaust. En þar sem stjórnin er
á förum og Árni frá Múla hefir
nokkuð hreyft þessu máli í sein-
asta blaðl Þjóðólfs, mun Tíminn
rjúfa þessa þögn áður en langt
um líður.
Hvað tekur við?
Þannig munu margir spyrja.
En þessu er enn ekki hægt að
svara. En þess ber að vænta, að
nú takist að mynda trausta
stjórn, er taki rösklega og djarf-
lega á málunum.
Strax og ríkisstjóra barst áð-
urgreind tilkynning Ólafs
Thors, sneri hann sér til for-
manna þingflokkanna með þeim
tilmælum, að hver flokkur til-
nefndi tvo menn i sameigin-
lega nefnd, sem athugaði mögu-
leika fyrir samstjórn allra
flokka. Mun þessi nefnd senni-
lega koma bráðlega saman.
Um það verður engu spáð,
hvernig sú tilraun muni takast,
að mynda samstjórn allra
flokka. Sennilega mun stríðs-
gróðaklíkan í Sjálfstæðisflokkn-
um verða treg til að fallast á
þau skilyrði, sem hinir flokk-
arnir hljóta að setja. Mun nú
fást fullkomlega úr þvi skorið,
hvort hún metur meira þjóðar-
hagsmuni en eigin hag.
Samstjórn allra flokka verð-
ur nú áreiðanlega ekki mynd-
uð, nema fyrirfram verði gerð-
ur ítarlegur málefnasamningur.
Þjóðstjórnin 1939—42 mis-
heppnaðist ekki sízt vegna þess,
að slíkur samningur var ekki
gerður.
Símun av Skarði
(Framh. af 3. slðu) .
Pæreyja hefir þó styrkt hann
öll árin, nema eitt, framan af
með 300 kr. á ári, upp í 3000 kr.
síðustu árin. Eina árið, sem
hann fékk engan styrk, var
hann „settur á guð og gaddinn“
eins og útigangsjálkur í harð-
indum. Voru þá og oftar smátt
skorin laun forstöðumannanna.
— Síðan 1918 hefir skólinn not-
ið viðurkenningar og styrks
samkvæmt lýðháskólalögum
Dana, auk þess sem Lögþingið
hefir styrkt hann.
Símun av Skarði hefir látið
menningar- og félagslíf Fær-
eyja mjög til sín taka. Enda
þótti mörgum eigi ráð ráðin um
þjóðleg menningarmál, nema
hann réði. Hann sat um skeið
á Lögþingi, og var jafnan ein-
beittur í kröfum um sjálfstæð-
ismál eyjanna. Hann hefir ver-
ið í stjórnum ýmsra menning-
arfélaga og unnið þar vel. Hann
var skáld gott, og skrifaði
manna fegursta færeysku, svo
að þýðing hans fyrir þróun
málsins er nokkuð svipuð og
þýðing Jónasar Hallgrímsson-
ar fyrir íslenzka tungu. Eigi gaf
Símun ljóð sín út í bók, en ýmis
þeirra hafa birzt hér og þar í
blöðum og tímaritum, og hlotið
miklar vinsældir. Kunnasta ljóð
hans er hinn fagri þjóðsöngur
Færeyja: „T.ú alfagra land
mítt“ — Eitt leikrit, „Vor“, gaf
hann út. — Þá gaf hann út
barnablað, „Ungu Föroyar“ í
fimm ár, í byrjun aldarinnar.
Var það að öllu efni vandað-
asta barnablað, sem ég hefi séð.
Hann gaf út þrjá árganga af
„Jóla- og nýggjársbók" og þrjú
hefti af „Föroya Fólkaháskúla-
felagsbók“. Hann hefir þýtt á
færeysku Ströndina bláu eftir
Kristmann Guðmundsson, Vík-
ingana á Hálogalandi eftir Ib-
sen og fjölda íslenzkra sálma.
Þá hefir hann skrifað fjöl-
margar ritgerðir í blöð og tíma-
rit, og ýmisar þeirra gagnmerk-
ar. — Mætti ekki líða langt þar
til kvæðum hans og ritum öll-
um er safnað í eina vandaða út-
gáfu.
Símun av Skarði festi
snemma heita og mikla ást á
íslandi. Gerðist hann stórvel að
sér í íslenzkri tungu og íslenzk-
um fræðum, enda sótti hann
mikinn styrk í íslenzk rit i starfi
sínu að menningarmálum Fær-
eyja. Hann átti mjög gott ís-
lenzkt bókasafn. Aldrei sat
hann sig úr færi að ná tali af
íslendingum, ef hann vissi
þeirra von i Þórshöfn, og var
hann á bryggjunni, er skip
komu frá íslandi, þegar hann
kom því við. Bauð hann þá oft
löndum heim til sín, en gest-
um tóku þau hjón jafnan af
sérstakri alúð og gestrisni. —
Eigi gat hann þó veitt sér þann
munað, að fara til íslands, fyrr
en Ungmennafélögin íslenzku
buðu honum hingað heim sum-
arið 1929. Það var sólríkt sum-
ar. Fór hann víða um Suður-
land og Borgarfjörð, og var
glaður yfir ferðinni. Aftur kom
hann hingað sumarið 1939, og
var kona hans þá með honum.
Þau sóttu lýðháskólakennara-
mót að Laugarvatni, og ferðuð-
ust norður um land, til Akur-
eyrar.
Símun av Skarði var gæfu-
maður um margt. En sú hygg
ég verið hafi mesta gæfa hans,
hve hann átti ágæta konu. Frú
Sanna af Skarði er af merku
fólki komin, fædd í Þórshöfn 19.
apríl 1876, systir M. A. Jacobsen,
bókavarðar í Þórshöfn, eins
helzta atkvæðamanns eyjanr.a.
gáfuð og menntuð vel, og hefir
verið manni sinum fullkomlega
samhend um stjórn skólans.
En hún hefir verið húsmóðir
skólaheimilisins jafnan, síðan
þau giftust 1901. Auk þess
hafði hún þar nokkra kennslu
lengi. Hjónaband þeirra var
ætíð mjög ástúðlegt. Er það
vafalaust nokkuð frú Sönnu að
þakka, hve miklu Símun kom í
verk, atorku hennar og hag-
sýni, hínu yndislega heimili
þeirra, og hjúkrun hennar og
umhyggju, þvi að Símun var
jafnan mjög heilsutæpur mað-
ur. — Þau eiga fímm fullorðin
börn, öll hið prýðilegasta fólk.
Símun av Skarði var hár mað-
ur og þrekinn, tigulegur á velli,
stórskorinn og karlmannlegur,
svipurinn óvenju hreinn og
drengilegur. Enda var hann um
Á krossgötmn
(Framh' af 2. síöu)
að 130, en það er með mesta
móti. Starfa allir bekkir í tveim
deildum.
Áformað var að verkleg
kennsla yrði aukin að mun,
piltum kenndar trésmíðar
en stúlkum saumar, en af
þessu gat eigi orðið, sök
um þess að bæjarstjórnin hefir
komið húsnæðislausu fólki fyr-
ir í húsnæði því, sem þessarl
starfsemi var hugað. Þó mun
verða bætt við kennslu í bók-
bandi fyrir pilta og matreiðslu
fyrir stúlkur á þessum vetri.
Skátahreyfingin 30 ára.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síOu)
Svona siðferðisvottorð ætti
spurningabarnið, Valtýr Stef-
ánsson, varlega að rétta öðrum.
Á hverju hefir þessi piltur lif-
að? — Á því að selja sál sína á
morgni lífsins í þjónustu þeirra
ódyggða, sem hann vlll nú
klína á þá stúdenta í háskól-
anum, er fyrirlíta athæfi hans. j
4. Valtýr segir, að Mennta-
málaráð beiti „ofbeldi og rang-
sleitni“, og sé það Framsóknar-
mönnum að kenna.
Hvers konar læpuskapur er
þetta? — í ráðinu hafa Fram-
sóknarmenn 2 fulltrúa af 5. All-
ar ákvarðanir ráðsins eru
byggðar á samþykki meiri hluta.
Hafa fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins haft þar sérstöðu
gegn Framsóknarmönnum?
Svarið því, Valtýr Stefánsson,
eða gerið með þögninni öllum
Stúlku
vantar i eldhúsið á Vifilsstöö-
um. Upplýsingar gefur ráðs-
konan í síma 5611.
Það er fljótlegt
að matreiða
„Freía“ fískfars,
auk þess er það hollur, ó-
dýr og góður matur.
lýðum ljósara en þegar er orð-
ið, að þér beitið „beinum lygum
og blekkingum" þegar sæmileg
rök og málsvarnir þrýtur.
tJtbreiðlð Tímann!
GAMLA BlÓ-......
GRAMI
MAÐURIM
(Another Thin Man).
Amerísk leynilögreglu-
mynd.
WILLIAM POWELL,
MYRNA LOY.
Sýnd kl. 7 og 9
— Börn fá ekki aðgang. —
Klukkan sy2—6V2
Mck Carter
WALTER PIDGEON.
að gæfan íylglr trúlofunar
hringxmum frá SIGURÞÓR.
Sent gegn póstkröfu.
Sendið nákvæmt máL
----->.NÝJA BÍÓ
Söngvagafan
(Tin Pan AUey).
Svellandl fjörug söngva-
mynd.
Aðalhlutv. lelka:
ALICE FAYE,
John PAYNE,
BETTY GRABLB,
JACK OAKIE.
Landkjörstjórn
kemur saman í Alþingishúsinu fimmtudaginn 5. nóvember kl.
10 árdegis, til þess að úthluta uppbótarþingsætum, til jöfnunar
milli þingflokka.
Magnús Sigurðsson,
oddviti landkjörstjórnar.
Tilkynniiig
um stórskotaliðsæfingar.
Stórskotaliðsæfingar fara fram á æfingasvæðinu við
Keflavík, innan bannsvæðisins, mánudaginn 9. nóv.
1942, og á hverjum mánudegi eftir það. Eftir 7. nóv.
1942 falla niður æfingar á miðvikudögum.
Reykjavík. Sími 1249 Simnefni: Sláturfélag.
Reykbús. - Frystikús.
Mðnrsuðuverksmiðja. — Bjúgnagerð.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: NiÖur-
soöið kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alls-
Jconar áskurö á brauö, mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði.
Frosiö kjöt allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir
fyllstu nútímakröfum.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar
um allt land.
Egg frá Eggjasölnsamiagi Reykjavíkur.
T1L.BOÐ.
Tilboð óskast um leigu á 30—40 smálesta mótorbáti
ásamt skipshöfn, um tveggja mánaða skeið til að
vera í föstum ferðum á milli Akraness og Reykja-
víkur.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri kl. 10 f. h.
á morgun, föstudag.
Skípaútgerd ríkísíns.
allt hinn mesti drengur, göf- | þrautseigur að góðu verki. Þess
ugur og skapheitur, með við- vegna er meiri missir að hon-
kvæmt hjarta — viljasterkur og|um en flestum mönnum öðrum.
Tökum framvegls á móti
pöntunum á
Smurðn brauði
Matsalan Gullfoss
Slml 5343.
Börn fá ekki aðgang. —
Saltkjötið er komið
t»eir. tem eig'a pantauir bjá oss, eru beðnir að
tala við oss næstu daga til að ákveða hvern
daginn þeim henti að fá tunnurnar
sendar heim.
Samband ísl. samvínnuiélag’a
Sími 1080.
Auglýiing:
um
almenna bólusetningu.
Almenn bólusetning hófst miðvikudaginn 4. þ. m. og verður
síðan fram haldið smátt og smátt eftir því sem hægt verður að
koma við.
Bólusett verður í Templarasundi 3 (Ungbarnaverndin).
Fimmtudaginn 5. þ. m. kl. 10 til 11 árd. skal færa þangað börn
af svæðinu milli Bræðraborgarstígs, Brunnstígs, Ægisgötu og
Túngötu.
Sama dag kl. 13.30 til 14.30 börn, sem heima eiga sunnan Tún-
götu að Sólvallagötu og Garðastræti, þær götur báðar meðtaldar.
Sama dag kl. 15—16 börn, sem heima eiga á svæðinu norðan
Túngötu til sjávar milli Ægisgötu og Aðalstrætis, sú gata með-
talin.
Laugardaginn 7. þ. m. kl. 10—11 árd. skal færa þangað börn,
sem heima eiga á svæðinu milli Aðalstrætis, Lækjargötu, Garða-
strætis og Tjarnarinnar suður að Hringbraut og svæðinu millí
Sólvallagötu og Hringbrautar vestur að Kaplaskjólsvegi.
Sama dag kl. 13.30—14.30 börn af svæðinu sunnan Hrlngbraut-
ar milli Melavegar og Kaplaskjólsvegar. — Grimsstaðaholt þó
ekki meðtalið.
Áframhald verður aug’Iýst síðar.
Skyldug til frumbólusetningar eru öll börn fullra tveggja ára,
ef þau hafa ekki haft bólusótt eða verið bólusett með fullum
árangri eða þrisvar án árangurs.
Skyldug til endurbólusetningar eru öll börn, sem á þessu ári
verða fullra 13 ára eða eru eldri, ef þau ekki eftir að þau voru
fullra 8 ára, hafa haft bólusótt eða verið bólusett með fullum
árangri eða þrisvar án árangurs.
Bóluskoðun fer fram viku síðar á sömu tínium dagsins.
Héraðslæknirinn í Reykjavík, 3. nóvember 1942.
Magnús Pétarsson.
NB. Kennarar eru beðnir að gefa börnum frí, ef á þarf að
halda, svo að þau geti mætt til bólusetningar á réttum tíma.
Klippið auglýslnguna úr blaðinu til ininnis.
Aígreíðslu Tímans vantar
börn eða unglinga
til að bera blaðið til kaupenda I bænum.
Cpplýsingar í skrifstofu Tímans. — Sími 2323.
Þúsundir vlta