Tíminn - 06.04.1943, Side 4
160
TÍMIM, þrigjudaginn 6. apríl 1943
40. blað
tTR « ^ivrn
Listaverkasýningin.
RiklsstjCrl opnaði listaverkasýning-
una í hínum nýja Sýningarskála
myndlistarmannafélagsins á • laugar- I
daginn. Viðstaddur var fjöldi erlendra
boðsgesta, ríkisstjórn, alþingismenn,
sendlherrar erlendra rikja, yflr- |
menn hersins og fleiri. — Plutti |
ríkisstjóri snjallt ávarp og hvatti til
þess að komið yrði upp málverka-
safni. Á sýningunni eru verk eftir 20
málara og 4 myndhöggvara.
Fölsun skömmtunarseðla.
Fimm menn hafa verið settir í
gæzluvarðhald og eru þeir ákærðir
fyrir fölsun skömmtunarseðla. Menn
þessir eru Adolf Bergsson lögfræðing-
ur, Jón Kjartansson framkvæmdar-
stjóri og Friðjón Bjarnason prentari
og tveir starfsmenn í einnl prent-
myndagerð bæjarins. Málið er enn í
rannsókn.
Hámarksverð á veitingahúsum.
Viðskiptaráð hefir sett hámarksverð
á allar veitingar i veitingahúsum.
Gengur það í gildi næstk. fimmtudag.
SJá nánar í auglýsingu á öðrum stað
i blaðinu.
Víxilfölsun.
Nýlega var kveðinn upp í Lögreglu-
rétti Reykjavíkur dómur yfir 17 ára
ungling fyrir vixilfölsun. Hafði ungl-
ingur þessi falsað vixil og selt hann í
Crtvegsbankann. — Hlaut hann fyrir
það 5 mánaða fangelsi skllorðsbundið.
Áskriftargjald
Tímaas
utan Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar er kr. 30.00 árgangur-
inn.
Hví skal ei bera
höfuð háti?
(Framh. af 3. síSu)
manna sem sönnunargagn fyrir
því, að íslenzkur landbúnaður
eigi ekki framtíð sem sjálfstæð-
ur atvinnurekstur, heldur hljóti
jafnan að verða ómagi á öðrum
atvinnuvegum landsins. Og svo
ýtinn er þessi áróður, að mér
finnst jafnvel ýmsir bændur
vera farnir að ^bogna undir
honum. En þetta er stórháska-
leg fcenning, sérstaklega ef hún
yrði til þess að lama trú hinna
ungu manna i landinu og þó
einkum í sveitunum, á tilveru-
rétt og tilverumátt landbúnað-
arins í framtíðinni. En leggið
ekki eyrun að slíkum söng,
ungu menn.
íslenzka þjóðin getur ekki
orðið langlíf í landinu, nema
hér sé rekinn blómlegur og
þróttmikill landbúnaður, sam-
hliða öðrum atvinnugreinum.
Hún getur ekki án hans verið,
af framleiðslu og atvinnuástæð-
um, af menningar og þjóðernis-
ástæðum. Og hann verður
aldrei»að velli lagður á meðan
bændurnir í landinu skilja
sjálfir gildi hans fyrir þjóðfé-
lagið, og hafa trú, á honum og
heilbrigðan metnað fyrir hönd
bændastéttarinnar, á meðan
hann hefir á að skipa mönn-
um, sem bera höfuð hátt, þótt
móti blási.
Kveldúlísklíkan og Moskvuklíkan
(Fravih. af 1. síðu)
blöð sln fara að ófegra það, sem
nást á með samningunum, get-
ur heldur ekki hafa meint þá
alvarlega.
Það virðist þvl mega slá þvi
föstu, að tilboð Sósíalista-
flokksins hafi aðeins verið her-
bragð Moskvuklíkunnar, sem
enn ræður lögum og lofum í
flokknum og hefir óskir meira-
hluta flokksmanna um vinstra
samstarf að engu.
Fyrir Moskvudeildinni vakir
það fyrst og fremst, að upplausn
sú, er hófst með svikum Sjálf-
stæðisflokksins í kjördæma-
málinu á siðastl. ári, haldi á-
fram og aukizt. Moskvuklíkan
telur upplausnina bezta jarð-
veginn fyrir stefnu sína. En til
þess að leyna þessum tilgangi
sínum, reynir hún að eiga vin-
gott við hina flokkana, læzt
vera að ræða við þá um sam-
starf o. s. frv. meðan þjóðfé-
tlagsbyggingin er að nálgast
hrunið.
Kveldúlfsklíkan og
Moskvuklíkan
skríða saman.
Stærsta sönnunin fyrir þvi,
að ráðandi menn Sósíalista-
flokksins vilja nú ekki vinstri
stjórn, er samdrátturinn milli
þeirra og Kveldúlfsklíkunnar
seinustu vikurnar. Ólafur Thors
og Brynjólfur Bjarnason hafa
varla getað'séð hvor af öðrum.
Frá bæði Moskvuklíkunni og
Kveldúlfsklíkunni hefir fregn-
azt, að nokkur von sé um mynd-
un þjóðstjórnar. Ýms mál í
þinginu hafa sýnt þennan sam-
drátt. Klíkur þessar bræddu sig
saman um eyðileggingu bif-
reiðaeinkasölunnar og viðhald
einkabrasks í lýsisherzlumál-
inu. Síðast, en ekki sízt, má
nefna það, að Brynjólfur
Bjarnason er nú að hjálpa
Kveldúlfsfjölskyldunni til að
eignast nær útsvarsfrjálsan
hólma innan lögsagnarum-
dæmis Reykjavíkur.
Mörgum mun þykja þetta til-
hugalíf þeirra.Brynjólfs Bjarna-
sonar og Ólafs Thors næsta ó-
trúlegt. En séu hlutirnir rann-
sakaðir nánar, kemur eitt
sameiginlegt áhugamál I ljós:
Hvorugur vill róttæka, um-
bótasinnaða stjórn. Brynjólfur
óttast slíka stjórn, því að hún
gæti hindrað þá upplausn,
sem hann álítur bezta jarðveg
kommúnlsmans. Ólafur óttast
slíka stjórn, því að hún myndi
skerða hlunnindi stríðsgróða-
valdsins. Flokksleg aðstaða
beggja er nokkuð lík. Brynjólf-
ur þarf að koma i veg fyrir, að
hinir frjálslyndari menn í flokki
hans geti gerzt þátttakendur í
viðreisnarstarfinu. Ólafur þarf
sömuleiðis að hindra viðsýnu
mennina í flokki hans frá því
að taka þátt í slíku starfi. Sem
þrautaúrræði til þess að koma
í veg fyrir, að eitthvert slíkt
samstarf skapist, geta Bryn-
jólfur og Ólafur hugsað sér
allra flokka stjórn, sem yrði svo
sundurleit og ósamstæð, að út-
koman yrði ekki neitt eða verra
en það. Stríðsgróðamennirnir
héldu þá sínu og kommúnist-
arnir gætu áfram fitnað af
upplausninni.
Kveldúlfsklíknnni og’
Moskvnklíkunni
verður að ryðja
úr vegl.
Þær staðreyndir, sem hér
hafa verið dregnar fram, sýna
þetta:
Það myndi ekki standa á
Framsóknarflokknum að taka
þátt í viðreisnarstarfinu. Svip-
að mun mega segja um Alþýðu-
flokkinn.
Það myndi heldur ekki standa
á meginþorra liðsmannanna í
Sjálfstæðisflokknum og Sósíal-
istaflokknum.
! En það strandar á tvelmur
klíkum 1 síðarnefndu flokkun-
um, Kveldúlfsklíkunni, sem er
sviksamleg öllu samstarfi, er
skerðir hlut stríðsgróðavaldsins
og Moskvuklíkunni, sem vill
ekkert samstarf, er dregur úr
| upplausninni, því að hún skap-
ar beztan jarðveg fyrir bylting
arstefnuna.
Til þess að unnt verði að
hefja viðreisnarstarf, verður því
nauðsynlegt að ryðja þessum
klíkum úr vegi. Sjálfstæðis-
flokkurinn verður ekki starf-
hæfur fyrr en hann hefir losað
sig við forsjá Kveldúlfsklík-
unnar. Sósíalistaflokkurinn
verður ekki starfhæfur fyrr en
hann hefir brotizt undan leið
sögn Moskvuklíkunnar.
Þ. Þ.
Fulltrúaráð ÞJóðræknisfé
lagsins hefir ákveðið að hefja
fjársöfnun á meðal meðlima fé
lagsins og annarra, er vilja
stuðla að því að treysta böndin
á milli íslendinga vestan hafs
og austan, með það fyrir augum
að félagið geti greitt fyrir eitt
herbergi í nýja Stútentagarðin
um og ánafnað það til afnota ís
lenzkum stúdent frá Vestur
heimi.
Þessar gjafir hafa þegar bor
lzt:
Jóhannes J. Reykdal, verk
smiðjueigandi, Þórsbergi 500.00
(ásamt loforði um hús-
gögn í herbergið).
Geir Thorsteinsson, út-
gerðarmaður ........... 500.00
Kveldúlfur h.f....... 1000.00
Tryggvi Ófeigsson,
framkvæmdastjóri .... 1000.00
Þeir, sem vilja styðja þessa
Alúðarfyllstu þakkir viljum við votta öllum þeim, er
sýndu vináttu og samúð við burtför mannsins míns, föður
og tengdaföður
ÓLAFS ÍSLEIFSSOJVAR læknis
Guðríður Eiríksdóttir,
Ingveldur Ólafsdóttir, Huxley Ólafsson, Eggert Ólafsson
Loftur Loftsson, Vilborg Ámundadóttir, Sigríður Ásbjörnsd.
Liitsýning
Félags íslenzkra
myndlístarmanna
í Sýningarskálanum,
Kírk justræti 12,
opin daglega frá kl. 10-10.
Dómnr hæstaréttar
(Framh. af 1. síðu)
Ef ágreiningur eða vafi verður
um það, við hvaða verðlag skuli
miða, sker dómnefnd úr“, en
samkvæmt 8. mgr. sömu grein-
ar hefir hún eftirlit með öllu
verðlagi og vald og skyldu til að
taka ákvarðanir varðandi verð- :
lag. Á fundi dómnefndar 23.'
des. 1942 var bókað það, er nú
verður greint: „Formaður skýrði j
frá þvi, að hann hefði átt tal I
við ríkisstjórnina um mismun-
andi verð á vörum og væri rík-
isstjórnin einhuga um, að þegar
um mismunandi verð væri að
ræða, væri ekki unnt að banna
að sélja vöruna á því verði, sem
dómnefndin hefði ákveðið sem
hámarksverð. Hins vegar óskaði
ríkisjtjórnin, að nefndin gæti
nú birt lista um þær vörur, sem
hámarksverð hefði verið sett á.“
Sama dag samdi dómnefndin
lista um smásöluverð þeirra
vara, sem hún hafði hámarks-
verð á og lét birta hann almenn-
ingi í blöðum og útvarpi. Hinn
31. des. s. á. skýrði Samband
íslenzkra samvinnufélaga kærða
í símskeyti frá hámarksverði
nokkurra vörutegunda, og í
bréfi 2. Jan. þ. á. tjáir Sam-
bandið kærða, að ríkisstjórnin
hafi samþykkt verðlagsákvæði
þau, er greindi I símskeytinu,
„til þess að fyrirbyggja stór-
fellt tap verzlunarfyrirtækja á
vörubirgðum þeim, sem nú eru
til í landinu."
Eftir að kærði fékk í hendur
nefnt símskeyti og bréf svo og
auglýsingu dómnefndar, setti
hann verðlag það á matvöru,
sem hann m. a. er saksóttur
fyrir í máli þessu. Kveður kærði
sig hafa skilið auglýsingu dóm-
nefndar þannig, að hún leyfði
hækkun allt að nefndu há-
marksverði.
Forstjóri sambandsins hefir
fyrir dómi skýrt svo frá, að
hann hafi, áður en hann sendi
kærða fyrrgreint bréf og sím-
skeyti, spurzt fyrir um það í
skrifstofu dómnefndar í verð-
lagsmálum, hvort ekki mætti
selja vörur á hinu nýauglýsta
hámarksverði, þótt ódýrara
hefði verið selt 18. desember, ef
ekki væri meiri álagning en
leyfilegt væri. Segir forstjórinn,
að starfsmaður í skrifstofu
dómnefndar hafi tjáð þetta
réttan skilning á auglýsingu um
hámarksverð og verðlagningu
með þessum hætti leyfilega. En
ekki hefir dómnefnd né starfs-
menn hennar verið krafðir um
þetta í rannsókn málsins. Þá
hefir ekki verið fengin skýring
dómnefndarmanna og ríkis-
stjórnar á því áliti ríkisstjórn-
arinnar, sem formaður dóm-
nefndar skýrði dómnefndar-
mönnum frá og áður er greint.
Einkum var þörf á því að fá
skýring nefndra aðilja á því,
hvert hafi verið skilorð þess, að
hækka mæ.tti vöru til hámarks-
verðs, eins og gert er ráð fyrir í
nefndri bókun. Loks hefði átt
Uppboð
Opinbert uppboð verður hald-
ið á Grundarstíg 11, föstudag
inn 9. þ. m. kl. 2 e. h. og verða
þar seldir ýmsir húsmunir, þ. á
m. dagstofuhúsgögn, útvarps-
grammofónn, útvarpstæki,
grammofónplötur, stálhúsgögn,
gólfteppi, málverk, ljósakrónur,
ryksuga o. m. fl.
Ennfremur verður þar seld
ýms vefnaðarvara, þ. á m.
gardínutau, borðdúkar, sokk-
ar, bindi o. fl.
Greiðsla fari fram við ham
arshögg.
Lögmaðurinn
f Reykjavík.
Jörðin
■ i
I Leiru
fæst til kaups og ábúðar i næstu
fardögum.
Fénaður og áhöld geta fylgt.
Tilboðum sé skilað fyrir 15.
apríl til
Þorbergs P. Sigurjónssonar
Hverfisgötu 42, Reykjavík
■ eða
Ólafs Sigurjónssonar,
Simstöðinni Leiru
Innheímtumenn
Tímans
Sendið skilagrein liið
allra fyrsta!
hugmynd, eru vinsamlega
beðnir að tilkynna gjafir sínar
til einhvers af stjórnarnefndar-
mönnum félagsins: Árna G. Ey-
lands, Ófeigs J. Ófeigssonar eða
Valtýs Stefánssonar.
Lesendur!
Vekið athygll kunnlngja yð-
ar á, að hverjum þeim mannl,
sem vlll fylgjast. vel með al-
mennurn málum, er nauðsjm-
legt að lesa Tímann.
Skrifið eða simið tll Timans
og tilkynnið honum nýja áskrlf
endur. Síml 2323.
að afla skýrslu dómnefndar á
framkvæmd verðlagsmála á
þeim tíma, er hér skiptir máli.
Með því að rannsókn máls
ins er áfátt um ofangreind
mikilsverð atriði og þar sem
telja verður samkvæmt lögum
nr. 99/1942 að leggja skuli mál
slíkt sem þetta fyrir dómnefnd
í verðlagsmálum, áður það er
dæmt 1 héraði, og fá rökstutt
álit hennar um, hvort og að
hverju leyti brotin séu verðlags
ákvæði, þá þykir ekki verða hjá
því komizt að ómerkja hinn
áfrýjaða dóm og vísa máiinu
heim í hérað.“
Það er nú á valdi ríkisstjórn
arinnar, hvort málið verður tek
ið upp að nýju.
GAMLA Bl<!
„NÝMÁNIXN“
(NEW MOON)
Aðalhlutverkin leika:
JEANETTE MACDONALD
Og
NELSON EDDY.
Sýnd kl. 7 og 9
Kl. 3 y2—6%.
LI’L ABNER
Amerísk skopmynd.
r-~
-NÝJA »Í6
Spellvirk jarnir
(THE SPOHjERS)
Stórmynd gerð eftir sögu
Rex Beach’s. Aðalhlut-
verkin leika:
Marlene Dietrich,
John Wayne,
Randolph Scott,
Richard Barthelmess.
— Sýnd kl. 5, 7 og 9 —
Bönnuð fyrir börn yngri
en 16 ára.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR.
tí
„Fagurt er á fjöllum
Sýniiig annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 1 dag og eftir kl. 2 á morgun.
Aýjar bækur:
ANNA KARENINA
annað bindi hinnar heimsfrægu skáldsögu eftir Leo Tol-
stoj í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar.
LJÓÐMÆLI BÓLU-HJÁLMARS
með formála eftir Jónas Jónsson, annað bindið i safninu
íslenzk úrvalsrit.
Bækurnar vrða sendar til umboðsmanna eftlr þvi sem
ferðir falla.
Bókaútgáfa
Mcnniiigarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.
Skrifstofa að Hverfisgötu 21, sími 3652, pósthólf 1043.
Crélfteppi
stór og’ Smá tcppi, scm ég hefi sjálfur
valið meðan ég dvaldi í London, sd ég
næstn daga. fnnkaupin voru sérstaklega
hagkvæm og er þetta því alveg óvenju-
lega gott tækifæri til þess að gera góð
kaup. — Sleppið ekki tækifærinu, það
kemur ekki aftur.
Kjartan Milner
Sími 5893. Tjarnargötu 3. Simi 5893.
Það er vissast að kaupa
hangíkjötið til páskanna
nú þegar
Annars getur farið eins og í vetur fyrir jólin,
að þeir, sem síðast koma, fái ekkert.
Blautsápa
frá sápnverksmiðjnnni Sjöfn er almennt við-
urkennd fyrir gæði. Flestar húsmæðnr nota
Sjainar-blautsápu
Spyrjið um
HRlFfJR MEÐ f Ð J fJ - KLÓ
hjá Guðjóni Jónssyni
Hverfisgötu 50, Reykjavík.