Tíminn - 14.05.1943, Qupperneq 4

Tíminn - 14.05.1943, Qupperneq 4
212 TfJHlNjV, föstndaginn 14. mal 1943 53. Mafl Sijórnmál í Bretlandi (Framh. af 1. síðu) það frá verkalýðssambandinu. En mjög hefir skorizt í odda milli hans og hinna róttækari manna flokksins, en hann nýt- ur þess að vera langvoldugasti maðurinn í verkalýössamband- inu. Annað mál, sem hefir valdið ágreiningi í verkamannaflokkn- um, eru aukakosningarnar. Þegar stjórnin var mynduö, var gert það samkomulag, að flokk- arnir skyldu jafnan styðja einn frambjóðanda og skyldi hann vera úr sama flokki og fráfar- andi þingmaður. Margir róttæk- ari forustumenn verkamanna- flokksins telja þetta tryggja i- haldsflokknum forréttindi, þar sem hann hafi tapað fylgi síð- an í seinustu kosningum. Eink- um hefir óánægja þeirra farið vaxandi síðan nýr flokkur, The Common Wealth Party, kom til sögunnar, Hefir hann haft frambjóðendur í öllum auka- kosningum að undanförnu og náð talsverðu fylgi, þótt ekki hafi hann unnið, nema eina kosningu. Einkum hefir hann dregið til sín fyrri kjósendur verkamannaflokksins. Stoín- andi fiokksins er þingmaður úr írjálslynda flokknum, Richard Aciand, og virðist helzt mega kalla flokkinn kristilegan jaín- aðarmannaflokk, ef dæmt er eftir stefnuskrá hans. Churc- hill hefir rætt um ílokk þennan eins og stríðsfyrirbrigði og þvi talið óþarft fyrir eldri ílokkana að óttast hann. Ýmsir telja þó, að flokkur þessi hafi þegar náð svo miklu fylgi, að þessi spá Churchiils sé vafasöm. Þriðja ágreiningsefnið í verkamannaflokknum er það, að Kommúnistaflokkurinn hefir boriö fram tilmæli um, að mega ganga í verkamannaflokkinn. Þó virðist þetta sæta minni á- greiningi en tvö áðurtöldu. mál- in, þar sem kommúnistar hafa á sér ótrú meðal brezkra verka- manna. Er talið víst, að inn- tökubeiðninni verði hafnað með miklum atkvæðamun, er þing verkamannaflokksins kemur saman um næstu hvítasunnu. Því er spáð, að þing þetta verði stormasamt. Þótt hér hafi aðeins verið sagt frá ágreiningi í verka- mannaflokknum, virðist hann ekki síður vera til staðar í í- haldsflokknum, þó hann snúist um önnur mál þar. Það eru framtíðarmálin, sem einkum valda þar ágreiningi. Sumir vilja halda öllu sem minnst breyttu, en aðrir vilja fallast á víðtækar breytingar, einkum aukna opinbera íhlutun. Þess vegna er því ekki ósjaldan spáð, að íhaldsflokkurinn eigi eftir að klofna. Jafnvel einn þingmaður flokksins og sonur sjálfs flokks- formannsins, Randolph Churc- hill, hefir talið líklegt, að eftir styrjöldina myndist nýr frjáls- lyndur miðflokkur í Bretlandi, sem verði skipaður frjálslyndari mönnum íhaldsflokksins og í- haldssinnaðri mönnum verka- mannaflokksins. Hann hefir og farið óvægilegum orðum um þá íhaldsmenn, sem ekki sjái, að yfirstéttirnar verð.i að fórna verulegu af forréttindum sínum og að mörg mál þarfnist ný- skipunar. Þ/óðhátíðardagur (Framh. af 1. siðu) ari leiksýningu. Að áeggjan frú Soffíu^var þess farið á leit við hana, að hún tæki að sér leik- stjórn og aðalhlutverkið í leikn- um. Gaf norska stjórnin í Lun- dúnum frú Grieg skjótt leyfi til íslandsfarar, og varð hún að því fengnu við þeim tilmælum að hafa á hendi leikstjórn, en hins vegar var hún ófáanleg til þess að taka að sér aðalhlut- verkið, þrátt fyrir ítrekuð til- mæli. í Lundúnum tók að sér und- irbúning leiksýningarinnar norskur listamaður á því sviði, Ferdinand Finne, áður starfs- maður Nasjonal Teater í Oslo. Gerði hann nákvæmar teikn- ingar af búningum öllum og út- vegaði allt, er til sýningarinnar þurfti. „Veizlan á Sólhaugum" gerist á 14. öld. Leikurinn hefir einu sinni verið sýndur hér áður, ár- ið 1924, og fór frú Soffía Guð- Vertíðin . . . (Framh. af 1. siOu) þótt verðlag haldist sama og verið hefir á lýsinu, og beina- vinnslan mun ekki gera öllu betur en svara kostnaði. Keflavík. Ellefu bátar gengu til fiskjar frá Keflavík og sex frá Njarð- víkum í vertíðarbyrjun, en nú í vertíðarlokin eru bátar þeir, er þaðan stunda veiðar, fimmtíu. Sumir þessara báta eru nú að hætta veiðum. En þeir, sem beitu hafa og mannafla, halda áfram. Afli Keflavíkur- og Njarðvík- urbátanna eftir vertíðina er 600—1400 skippund. Er vélbát- urinn Geir hæstur með 1400 skippund, en vélbáturinn Svan- ur er á 14. hundraðinu. Er hvor- ugur þeirra hættur og óvíst, hvor hærri verður. Gæftir hafa oft verið strjálar í vetur, en afli ágætur. Enn afl- ast dável, venjulega 10—14 skip- ound á bát í róðri. Hásetahlutir munu nema níu krónum eða jafnvel nokkuð á tíundu krónu fyrir hvert skip- pund afla, og er þá lifrarhlut- ur meðtalinn. Munu þeir þvi frá tæpum 6 þúsund krónum allt upp í 13 þúsund. Fjórir litlir hreyfilbátar hafa gengið á netafiski. frá Kefla- vík. Hafa aflahlutir á þeim orðið frá 3 þúsund krónum upp í 6 þúsund krónur á þeim, er bezt hefir aflað. — Hann lagði net sín fyrst 11. marz. Sandgerði. Margir bátar hafa gengið til fiskjar frá Sandgerði í vetur, og hættu tveir þeir fyrstu í gær. En flestir munu hætta þar í lok næstu viku. Afli hefir verið 4— 20 skippund í róðri, og beztu há- setahlutir nema 10—12 þúsund krónum. Meðalhlutir eru 6—8 þúsund krónur. Vestmannaeyjar. Röskir 80 bátar stunduðu veiðar frá Vestmannaeyjum í vetur. Veiddist vel á línu og í net. Botnvörpubátar fiskuðu vel síðari hluta vertíðar, en dragnótabátar hafa lítinn afla fengið sökum ótíðar og gæfta- leysis. Nú eru neta- og línubát- arnir yfirleitt að byrja með dragnót. Fiskigengd er á mið- unum. Á þeim Vestmannaeyjabátum, er bezt hafa fiskað, mun afla- hlutur háseta oifjinn 6—8 þús- uftd krónur fyrir utan lifrar- hlut, en hann nemur orðið eitt þúsund krónum. laugsdóttir þá einnig með aðal- hlutverkið. Jakob Smári þýddi leikritið, en Guðmundur Björnson kvæð- in. Hátíðahöldin, sem Norð- mannafélagið efnir til á mánu- daginn, verða þessi: Klukkan 9 um morguninn verða lagðir blómsveigar á graf- ir norskra hermanna í kirkju- garðinum í Fossvogi. Þeir, sem vilja vera viðstaddir þessa at- höfn, eru beðnir að mæta við kirkjugarðinn kl. 8.50. Klukkan 10 verður hátíðar- guðsþjónusta í dómkirkjunni. Klukkan 11.30 koma norsk og norsk-íslenzk börn saman hjá sendiherra Norðmanna, Fjólu- götu 15. Þau börn, sem eiga norsk flögg, eru beðin að taka þau með sér. Klukkan 13 fara börnin (ef veður leyfir) í skrúðgöngu og verður farið um Fjólugötu, Frí- kirkjuveg, Lækjargötu og á Arnarhólstún, en þar verður reistur ræðustóll og talar þar Sigurður Nordal prófessor. Klukkan 16—18 verður mót- taka hjá norska sendiherranum. Klukkan 20 verður hátíðar- veizla að Hótel Borg. 4 víðavangi. (Framh. af 1. siOu) ekki sýnd bein andstaða. En vill ekki Þjóðviljinn líka birta ræður Áka Jakobssonar og Þórodds Guðmundssonar. Þá myndi afstaða sósíalista til málsins, eins og hún var á sein- asta þingi, skýrast betur. Annars væri ekki nema allt gott að segja um það, ef sósíal- istar væru að taka sinnaskipt- um í málinu.' Sjálístædísmcnn og sósíalistar (Framh. af 1. siðu) kunnugt um það. Þegar hann samt sem áður heldur því fram, að það sé sérstaklega sök Fram- sóknarflokksins, að ekki varð af „alhliða samstarfi allra þingflokka um myndun ríkis- stjórnar og úrlausn í dýrtíðar- öngþveitinu", þá talar hann því gegn betri vitund í blekking- arskyni. Að Framsóknarflokkurinn síðar hafnaði tilboði Sjálfstæð- isflokksins um myndun stjórnar með honum og Alþýðuflokknum kemur ekki þessu máli við, því að þar var horfið frá þeim grundvelli, sem um hafði verið að ræða: samstarfi allra flokka. Slík stjórn hafði þegar fengið harðvítuga andstæðinga, sósíal- ista, og mátti þá ekki minna vera en að hún sjálf vissi hvað hún vildi, um leið og lagt var út í baráttu, en enginn mál- efnagrundvöllur lá fyrir um slíkt samstarf. Alþýðuflokkur- inn neitaði og þessu tilboði og verður Fraamsóknarflokkurinn því ekki sérstaklega um það .sakaður, þó sú stj órnarmyndun færist fyrir. Það var fyrst eftir að tilraun- irnar til stjórnarmyndunar allra flokka voru strandaðar, að farið var að athuga möguleika fyrir samstarfi Framsóknar- flokksins og verkalýðsflokkanna og hin svokallaða 9-manna nefnd settist á laggirnar. Starf hennar bar ekki heldur árang- ur, en um orsakir þess skal ekki rætt hér. Framsóknarflokkurinn hefir ekki góða reynslu af hinum flokkunum: fyrir rúmlega ári síðan sveik Sjálfstæðisflokkur- inn hann í tryggðum og gekk á gefin heit, þó þessir 2 flokkar væru þá í samstarfi. Sjálfstæð- isflokkurinn gerði þá bandalag við báða verkalýðsflokkana, myndaði stjórn með stuðningi þeirra og þessir 3 flokkar vörp- uðu þjóðinni síðan út í tvennar kosningar á einu missiri, alveg að þarflausu, aðeins til að hnekkja Framsóknarflokknum. Afleiðingin varð ýmiss konar upplausn í þjóðfélaginu, sem ekki er lokið enn og sem þessir flokkar bera einir ábyrgð á. Samt sem áður var Framsókn- arflokkurinn fús til, vegna hagsmuna þjóðarheildarinnar, að reyna enn samstarf við þessa flokka á síðasta þingi, ef þeir hefðu viljað beina kröftum sínum að raunhæfu viðreisnar- starfi, og hann skarst hvergi úr leik í tilraununum til að koma á samstarfi. Ádeila „íslendings“ á Framsóknarflokkinn í áður nefndri grein er því markleysa ein. Þeim, sem í glerhúsi búa, er ekki hent að kasta grjóti að öðr- um. „íslendingur" ætti að líta nær Sér: athuga feril Sjálfstæð- isflokksins frá því í fyrra, fyrst svik hans við Framsóknarflokk- inn, stjórnmálaferil hans og nú síðast forustu hans í þjóðmál- unum, sem hann lofaði í kosn- ingunum að taka. Að lokum þetta: Það er í alla staði lögleg og ábyrg stjórn, sem nú situr að völdum í land- inu, skipuð þjóðkunnum merk- ismönnum. Að fá hana í stað stjórnar Sjálfstæðisflokksins var aúðvitað hin mesta umbót. Ég efast því mjög um, að þing- inu verði með réttu álasað fyrir það, að það eirði núverandi stjórn og veitti henni starfsfrið enn um sinn. Áfengiseítrun Sl. sunnud. vildi það slys til í Þykkvabænum, að maður drakk eitraðan tréspiritus, sem fund- izt hafði á fjöru, og beið bana af. Maðurinn var frá Unhól í Þykkvabæ. Járntunnu, fuila af tréspiritus, hafði rekið á Þykkvabæjarfjörur, og voru nokkrir menn, sem reyndu spiritusinn, án þess að nokkrir þeirra drykki mikið. Varð eng- um hinna meint af. Dómsmálaráðuneytið hefir í tilefni af þessu birt aðvörun til almennings og varað við neyzlu á vogreknum tréspiritusi, því að banvænn tréspiritus sé hvorki að lit, bragði né lykt í neinu frábrugðinn venjulegum spiri- tus. Hugvekjur (Framh. af 2. síðu) blaðinu. Eitt af áformum þess er að koma á fót heilsuhæli, sem verður einstakt í sinni röð. Þar á að kenna mönnum að vinna bug á sjúkdómum og koma í veg fyrir sjúkdóma með breyttu mataræði, auknu hrein- læti o. s. frv. Vafalaust eiga margir sjúkdómar orsakir sínar í óheppilegu líferni og matar- æði. Er það áreiðanlega mikils- vert, að reynt sé að kenna mönnum eftir megni að forðast slík sjálfskaparvíti. Náttúru- lækningafélagið hefir þvi stórt verk að vinna og verðskuldar fullan skilning. Milli þess, lækna landsins og heilbrigðis- stjórnarinnar þyrfti að takast aúkin samvinna um þessi mál. Af hálfu félagsins er líka til þess ætlast, að áðurnefnt heilsuhæli verði starfrækt í samráði við heilbrigðisstjórnina. Félagið hefir nú hafið fjár- söfnun fyrir áðurgreint heilsu- hæli og á þegar nokkurn vísi að heilsuhælissjóði. Geta þeir, sem vilja leggja fram eitthvert fé í þessu skyni, komið því til stjórn- ar félagsins. Athyglisverð tilraun í Breiðfirðingi, tímariti Breið- firðingafélagsins, ræðir Jóhann Jónasson frá Öxney um fram- tíð æðarvarpsins í Breiðafjarð- areyjum. M. a. skýrir Jóhann frá merki- legri tilraun, sem ísfirzkur maður, Einar Kristjánsson, hefir gert tvö seinustu árin. Hann hefir ungað út æðareggj- um í útungunarvél með fullt eins góðum árangri og hænu- eggjum. Ungarnir hafa reynzt lífseigir og tiltölulegá auðvelt að ala þá upp. Aðallega lifa þeir á grásleppuhrognum, fisk- úrgangi, marfló o. s. frv. Mikils af fæðunni afla þeir sjálfir, ef þeir hafa aðgang að sjó. Svæðið, bar sem ungarnir eru hafðir, þarf að vera vandlega afgirt, svo þeir sleppi ekki út eða að- skotadýr komist að þeim. Enn verður ekki fullyrt um bað, hvort þessir ungar leita aftur til átthaganna, en líklegt má það teljast. Hér er áreiðanlega tilraun, sem vert er að reyna til fulln- ustu víðar á landinu. Æðarvarp- inu hefir farið hnignandi í seinni tíð. Ef til vill er hér fund- ið úrræði til að auka það aftur. Það er a. m. k. þess vert að vera reynt til þrautar, því að æðar- varp er of nytsöm og merkileg atvinnugrein til þess, að hnign- un þess sé látin afskiptalaus. Bréf úr Bárðardal (Framh. af 2. siðu' ráðunautur mætti beita sauð- fjárþekkingu þeirri, er hann ræður yfir í svo ríkum mæli, meir en hann gerir, þegar hann er að leitast við að sannfæra sjálfan sig og aðra um það, að sæmilega auðvelt og lífvænlegt sé fyrir bændur að rækta uþp á fáum árum sauðfjárstofn, sem ónæmur sé fýrir fjárpestum beim, sem nú n^æstum heltaka hverja kind, þar sem þær á annað borð geisa. J. B. Leðurkjólahelti «tg glerbclti í miklu úrvali. Vff. Toft Skólavörðustlg 5. Sími 1035. Stiilku vantar I eldhúsið á Kleppi. Upplýsingar hjá ráðs- koniumi. Sími 3099. Egill SÍgurgeirsson hæstarétt* ,4'aílutnlngsmaíur Austurstrætl 3 — Reykjavfk \ GAMLA FLJÓIMDI GULL (Boom Town) CLARK BABLE, SPENCER TRACY, CLAUDETTE COLBERT, HEDY LAMARR. Sýnd kl. 7 og 9. Kl. I%_«14. NJÓSNARAR í SAN DIEGO Ray MacDonald. Bonita Granville. r—.—■ ..nýja bíó SIGUR f EYÐUIÖRKIMI (Desert Victory) Stórfeld ensk hernaðar- mynd tekin á vígvöllunum I Afríku. Tunglsljós á llawaii (Moonlight in Hawaii) Söngvamynd með MICHA AUER og JANE FRAZER. Sýningar kl. 4, 6,30 og 9 LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR „ORÐIГ Leikið næsta sunnudag kl. 3. Karlakór Reykjavíkur Söngstjóri Sigurður Þóraðarson. Namsöngur í Gamla Bíó sunnudaginn 16. mai n. k., kl. 1.15 e. h. Aðgöngu- miðar í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. SfÐASTA SIAIV. Hafnarfjörður! Rafveita Hafnarfjarðar vill ráða til sín ungan mann, að afloknum nokkurra mánaða reynslutima, gæti fengið fasta stöðu sem aðstoðarlínumaður. /* Upplýsingar um kaup- og kunnáttukröfu gefur raf- veitustjórinn. Rafveita Hafnarfjarðar. Adalfundur Sölusambands 'íslenzkra fiskframleiðenda verður haldinn i Kaup- þingsalnum laugardaginn 15. þ. m. og hefst kl. 10,30 fyrir hádegi. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Lagabreytingar. Stjórnin. Sundnámskeið hefjast í Sundhöll Reykjavíkur mánudaginn 17. maí næstkomandi Árdegis: kl. 8—8y2 skriðsund fyrir fullorðna. kl. 8.30—9 bringusund fyrir fullorðna. kl. 9—9.30 bringusund fyrir fullorðna. kl. 9.30—10 fyrir börn. kl. 10.15—10.45 fyrir börn. kl. 11—11.30 fyrir börn. Síðdegis: kl. 5—5.30 fyrir börn. kl. 5.30—6 bringusund fyrir fullorðna. kl. 6.15—6.45 bringusund fyrir fullorðna. Reykjavík. _ Sími 1249 Simnefni: Sláturfélaq. Reykhús. - Frystihús. IMiðursnðnverksmiðja. - Bjúgnagcrð. Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: NiOur- soðið kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alls- konar áskurö á brauð, mest og bezt úrval á landinu. Hangikjöt, ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði. Frosið kjöt allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir fyllstu nútímakröfum. Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um allt land. Egjg frá Eggjasölexsamlagi Reykjavíkur. TÍMINIV er víðlesnasta auglýsinifablaðið!

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.