Tíminn - 25.06.1943, Qupperneq 4
264
TÓIITVTV, föstndaglnn 25. jání 1943
66. blað
Landsmót U.M.F.I.
. að Hvanneyri
DAGSKRÁ:
Laugardagiim 26. júní:
Mótið sett kl. 10 árdegis. (Sambandsstjóri U. M. F. í.). '
Undirbúnings-íþróttakeppni fer fram allan daginn. Um kvöld-
ið verða fluttar ræður, kvikmyndasýning o. fl. skemmtiatriði.
Sunnudaginn 27. júní:
Úrslitakeppni hefst kl. 10 árdegis. Kl. 14,30 ræður: Sr. Eiríkur
J. Eiríksson og Bjarni Ásgeirsson alþm. Guðmundur Ingi skáld
flytur kvæði og Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi: Ávarp til í-
þróttamanna.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur milli þess að ræður eru fluttar.
Stjórnandi: Karl Ó. Runólfsson. — Hljómsveit Akraness leikur
fyrir dansinum.
Þá hefjast íþróttir aftur. Á mótinu er keppt í frjálsum íþrótt-
um, glímu og sundi. Þátttakendur eru 130 frá 12 héraðasam-
böndum, 4 fimleikaflokkar sýna leikfimi. — Næturgestir þurfa
að hafa með sér tjöld og nauðsynlegan viðleguútbúnað.
Ferðir með Laxfossi um Akranes kl. 8 á föstudagskvöld og kl.
7 á laugardagsmorgun. Vegna fyrirsjáanlegra þrengsla með Lax-
fossi síðar, er áríðandi að nota þessar ferðir. Laxfoss fer tvær
ferðir til Re'ykjavíkur á sunnudagskvöld.
Ungmeimafélag fslands.
Tímarit
II ál* oj* mennlngar
Þrjár sonnettur eftir Jón Helgason, prófessor.
Sjálfstæði íslands eftir Sigurð Thorlacius, skólastjóra.
Gegn óvinum landbúnaðarins eftir Halldór Kiljan Laxness.
Fagrar heyrði ég raddirnar, grein um þjóðkvæði eftir dr. Einar
Ól. Sveinsson, háskólabókavörð.
Vatnadagurinn mikli, lýsing á ferð yfir Skeiðará eftir Þórberg
Þórðarson.
England expects every man will do his duty, smásaga eftir
Halldór Stefánsson.
Kvæði eftir Guðmund Böðvarsson, Gest Guðfinnsson og Halldór
Helgasön, og margt fleira er í nýkomnu hefti af Tímariti
máls og menningar.
Mannkynssaga Máls og menningar, fyrsta bindið ritað af Ás-
geiri Hjartarsyni, fær einróma lof.
Fagrar heyrði ég raddirnar er að verða uppseld.
Reykvíkingar, félagar Máls og menningar í bænum eru orðnir
3500. Léttið afgreiðslustarfið með því að vitja sjálfir bókanna
í Bókabúð Má|s og menningar, Laugavegi 19.
En munið fyrst og fremst eitt: að gerast kaupendur að íslenzkri
menningu eftir Sigurð Nordal áður en það verður um seinan.
MÁL og menning.
Hrostf
g o 11 og ó d ý r t grípaíóður fæst hjá
H.L 01g. Egill Skallagrímsson
Skílnaðarmálið ....
(Framh. af 1. síöu)
ars, sem á milli ber. Þeir verða
þegar að hefja sameiginlega
undirbúning aö því, að at-
kvæðagreiðslan um lýðveldis-
stofnunina sýni eindreginn þjóð
arvilja. Virðist eðlilegt í því
sambandi, að þegar verði stofn-
uð sameiginleg nefnd þeirra til
að annast þann undirbúning.
Leggja verður áherzlu á þaö,
að útilokuð sé öll sundrungs-
starfsemi af hálfu flokkanna í
þessu máii eða reynt verði að
tengja það við önnur mál, eins
og gert var í sambandi við kjör-
dæmamálið í fyrra.
Atferli eins og það, sem Ólaf-
ur Thors hefir gert sig sekan
um á landsfundi Sjálfstæðis-
manna, að fara með lygar og
brigsl um aðra flokka í sam-
bandi við þetta mál, er hrein
skemmdarstarfsemi, sem er til
einskis annars likleg en að spilla
friði og góðri samvinnu fiokk-
anna um málið. Hver flokkur
fyrir sig verður að bæla niður
slíka starfsemi skaðræðismanna
innan vébanda sinna.
Sá hugsunarháttur, sem kem-
ur fram í forustugrein Mbl. í
fyrradag, að mismunandi við-
horf flokkanna í skattamálum
geti spillt sambúð þeirra um
skilnaðarmálið, verður líka aö
kveðast niður til fullnustu. Það
er hreinn stjórnmálaglæpur, ef
tengja á hagsmuni striðsgróða-
manna í eitthvert samband við
þetta mál.
Þeir menn, sem hugsa sér að
hægt sé að gera skilnaðarmálið
að pólitískri verzlunarvöru, eiga
ekki að koma nálægt því. Skiln-
aðarmálið á að vera hafið yfir
öll deilumál.
Á þeim grundvelli verða
flokkarnir að vinna að endan-
legri lausn þess.
Andstæðingar lýð-
veldfsins.
Það verða menn líka að gera
sér ljóst, að til er nokkur hópur
manna hér á landi, er fyrir alla
muni' vilja halda i sambandið
við Hani og eru því andstæðir
lýðveldisstofnuninni. Það eru
Danavinir, konungssinnar o. fl.
Þessir menn munu ekki koma
hreint til dyranna, heldur' taka
á sig allskonar meinleysisgerfi.
Þeir munu segja, að þetta eigi
ekki að gerast strax, það eigi að
tala um málið við Dani, þetta
geti slitið tengslin við Norður-
lönd o. s. frv.
Allt er þetta aumustu firrur
og rökleysur. Við eigum ekkert
ótalað við Dani um þetta mál,
nema við ætlum eitthvað að slá
af kröfum okkar. Ef skilnaður
nú slítur okkur úr tengslum við
Norðurlönd, gerir hann það al-
veg eins síðar. Hver heilvita
maður ætti líka að sjá, að sam-
bandslagaslitrið er ekki minnsta
trygging fyrir tengslum okkar
við Norðurlönd. Þau verða að
hafa önnur og eðlilegri upptök.
Einmitt til þess að koma í veg
fyrir, að slíkar rökleysur geti
fundið einhvern hljómgrunn og
spillt fyrir lausn málsins, þurfa
flokkarnir strax að koma sér
saman um nefnd, er vinnur að
fullnaðarlausn málsins. Allur
dráttur í þeim efnum er til hins
verra.
Skilnaðarmál —
sjálfstæðlsmál.
Þetta mál, sem í daglegu máli
er nefnt sjálfstæðismál, er hér
með vilja nefnt skilnaðarmálið.
Þetta mál er raunverulega ekki
nema einn þátturinn í sjálf-
stæðismáli okkar, sem eigi
snertir síður menningarlega og
fjárhagslega afstöðu okkar en
afstöðuna til annarra landa.
Þótt sambandinu við Dani verði
slitið, höldum við eigi að síður
áfram að eiga óleyst ýms sjálf-
stæðismál. Við verðum að gera
okkur ljóst, að barátta okkar
fyrir frelsinu og sjálfstæðinu
heldur alltaf áfram; þegar eitt
málið er leyst' skapast annað.
Þess vegna megum við ekki falla
í neinn dofa, þótt þetta mál
leysist á æskilegan hátt. Þá er
skilnaðarmálið leyst — en sjálf-
stæðismálið heldur samt á-
fram að vera til. Núverandi for-
sætisráðherra komst rétt að
orði, þegar hann sagði, að sjálf-
stæðisbaráttan væri eilíf.
En því fyrr. sem við getum
leyst einstök verkefni sjálfstæð-
isbaráttunnar, eins og t. d.
skilnaðinn við Dani, því auð-
veldara er fyrir okkur að snúast
að öðrum viðfangsefnum. Þess
vegna eigum við ekki að draga
lausn skilnaðarmálsins lengur
en nauðsyn krefur.
Annáll óstjórnarínnar
(Framh. af 2. síöu)
í þeirra valdi stæði, til að reyna
að koma á þingræðisstjórn í
landinu. Var þá ekki um aðra
möguleika að ræða, eftir að
fjögra flokka stjórn varð ekki á
komið, en að prófa hvort unnt
væri að mynda stjórn með Al-
þýðuflokknum og Sósíalista-
flokknum. Sósíalistaflokkurinn
hafði í tvennum þingkosning-
um og einatt síðan keppst við
að lýsa yfir því, að hann væri
ekki lengur byltingaflokkur,
heldur lýðræðissinnaður um-
bótaflokkur. Kjósendur jafnað-
armanna og Framsóknarmanna
yrðu að knýja þingmennina til
að vinna með SósíalistaflQkkn-
um, hann væri reiðubúinn. Einn
bezti ræðumaður sósíalista fór í
langa fundaferð til að flytja
þenna boðskap og færðu blöð-
in í frásögur, að á fundi á Húsa-
vík hefði þessi sósíalisti talað
þannig um væntanlegt sam-
starf vinstri flokkanna, að einn
aðalandstæðingur sósíalista á
staðnum, hefði þakkað ræðu-
manni og farizt orð á þá leið, að
ef sósíalistar væru eins og þessi
sósíalisti talaði, þá væri ekki
nema gott að hugsa til samstarfs
við þá.
Fjöldi af kjósendum Alþýðu-
flokksins og eigi síður Fram-
sóknarflokksins álitu, að í þess-
um ræðum sósíalista fælist ær-
leg meining, -og þegar þeir litu
til reynslunnar af Sjálfstæðis-
flokknum undanfarin starfs-
tímabil, gerðu margir þeirra þær
kröfur til samstarfsmanna
sinna, að þeir reyndu þenna
samstarfsvilja sósíalista. Það
var því sameiginlegt álit Fram-
sóknarflokksins, þegar Sósíal-
istaflokkurinn óskaði eftir um-
ræðum um þetta mál, að verða
við þeirri ósk. Skýrsla Eysteins
Jónssonar um niðurstöðu þeirra
viðræðna er svo glögg og greini-
leg, að ástæðulaust er að ræða
það hér. En víst er það og aug-
ljóst hverjum manni, er skilja
vill staðreyndir, að ráðandi
menn Sósíalistaflokksins meintu
ekkert með skrafinu um sam-
starf annað en nota það sem
kosningaflesk. Það er ekki þýð-
ingarlaust, að þetta er nú betur
upplýst en nokkru sinni fyrr.
„Forusta" Sjálfstæðisflokks-
ins í ríkisstjórn árið 1942, er
skapað hafði hina óviðráðan-
legu dýrtíð, og. „umbætur" kjör-
dæmaskipunarinnar höfðu þá
leitt til þess ástands í þinginu,
að óframkvæmanlegt reyndist
að mynda nokkra stjórn. Þing-
ið var að þessu leyti i fyrsta
sinn óstarfhæft á sama tíma og
málefni þjóðarinnar voru skil-
in eftir í slíkri upplausn, að
aldrei var meira undir því kom-
ið að takast mætti að skapa rík-
isstjórn, er tekið gæti málin
föstum tökum með einbeittum
vilja meirihluta þings að baki.
Það eru ekki neinar fyrirsjá-
anlegar líkur til þess að þetta
breytist í haust. Til þess liggja
þau rök, sem þegar eru talin, og
einnig aðrar djúptækari aðstæð-
ur, er væntanlega vinnst tími
til að glöggva sig á við tæki-
færi.
Á víðavangl.
(Framh. af 1. síðu)
heldur landsfund, án þess að
taka nokkura afstöðu til þess.
Finnst mönnum það vænlegt
til heppilegrar stjórnmálaþró-
unar í landinu, að stærsti flokk-
urinn skuli enga afstöðu vilja
taka til þess máls?
KVELDÚLFSKLÍKAN VALDI
FULLTRÚANA.
Landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins sóttu sárfáir menn utan af
landi. Flestir fulltrúarnir voru
úr Reykjavík og næstu kaup-
túnum. Þeir voru yfirleitt ekki
kjörnir af flokksfélögum, held-
ur gat hver komið, sem vildi.
Flokksforustan, þ. e. Ólafur
Thors og Bjarni Ben.,réðu mestu
hverjir komu. Vitanlega buðu
þeir ekki öðrum en þeim, sem
þeir töldu sér fylgisspaka. Birni
Ólafsson rá’ðherra var ekki boð-
ið á fundinn, enda hefði það
leitt til átaka, þar sem Ólafur
rægði stjórniná óspart. Fundur-.
inn var því ein hallelúja-sam-
koma í anda Ólafs og Bjarna,
eins og hið spaugilega þakkará-
varp sýnir bezt.
Hefðu Sjálfstæðismenn al-
mennt fengið að sækja fundinn
eða senda fulltrúa þangað, er
ólíklegt að ekki hefði verið tek-
in ákveðin afstaða til helztu
dægurmálanna, t. d. dýrtíðar-
málsins. En klíkan, sem ræður
flokknum, hindraði það vitan-
lega. Fyrir henni vakir að geta
notað flokkinn, eins og hags-
munum hennar hentar bezt.
Þess vegna boðaði fundurinn
engin þáttaskipti í vinnubrögð-
um flokksins.
Helstu Sréttir
(Framh. af 1. síöu)
að þau séu nú á fimmta hundr-
að. Álíta þeir, að kálfar séu nú
eins margir og dýrin öll voru
1939.
Súðin kom hingað í fyrra-
kvöld. Hafði tekizt að gera við
hana til bráðabirgða svo að hún
reyndist vel sjófær. Það þykir
sýnt, að þang hafi bjargað því,
að skipið sökk ekki fljótlega
eftir árásina. Hafði það setzt í
botnlokuna og varnað því að
meiri sjór flæddi inn í skipið en
raun varð á.
Kauplagsnefnd hefir nýlega
reiknað út verðlagsvísitölu fyr-
ir júnímánuð og reyndist hún
vera 246 stig eða 3 stigum lægri
en í maí. Lækkunin stafar að-
allega af verðlækkun á kartöfl-
um.
f—■■■ OAMLA. B1Ó»» . — .1iii.i
Rödd
hjartans
(Hold Back the Dawn).
Amerísk stórmynd.
CHARLES BOYER,
OLIVIA DE HAVILLAND
PAULETTE GODDARD.
_________Sýnd kl. 7 og 9.
KL «%.
RÆNINGJARNIR,
eð William Boyd.
Hjartanlega þakka ég öllum, frœndum og vinum, sem
gerðu mér sjötugsafmœli mitt ógleymanlegt, með stórfelld-
um gjöfum, ölómum, skeytum og nœrveru. Sömuleiðis sendi
éf Grímsnesingum hjartans þakkir fyrir rausnarlega gjöf
um leið og ég þakka þeim öllum ógleymanlega vináttu,
auðsýnda mér, fyrr og síðar. — Ykkur öllum óska ég gœfu
og guðs blessunar í nútíð og framtíð.
Sigrún Kjartansdóttir frá Mosfelli.
Öllum þeim mörgu, nœr og fjœr, sem sýndu okkur inni-
lega vinsemd á tuttugu og fimm ára hjúskaparafmœli
okkar, með heimsókn, stórum gjöfum og innilega hlýjum
skeytum, vottum við okkar hjartanlegasta þakklæti. .
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Daníelsdóttir, Hafl. Guðmundsson, Búð.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim mörgu, er sýndu mér
vinarhug á sjötugsafmœli mínu 17. júní.
Ragnheiður Torfadóttir.
Bræðra
þrætur
(Unfinished Business)
Aðalleikarar:
IRENE DUNNE,
PRESTON FOSTER,
ROB. MONTGOMMERY.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Innilegt hjartans þakklæti öllum þeim hinum mörgu
nær og fjær, er auðsýndu mér samúð og hluttekningu við
fráfall og jarðarför mannsins míns,
Kristjáns Ilauscns verkstjóra
á Sauðjárkróki, og vottuðu hinum látna virðingu sína á
margan hátt.
Þórey Hansen.
Tilkynning
til innflytjenda.
Útlilutað verður innan skainnis gjaldeyris-
og innflutningsleyfum fyrir vefnaðarvörum
o" skófatnaði frá Ameríku. —
Umsóknir sendist fyrir 1. júlí n. k.
Gólfteppi verða undanskilin á leyfum fyrir
vefnaðarvörum, og leyfi fyrir slcófatnaði
verða ekki látin gilda fyrir neinum skófatn-
aði úr gúmmí.
24. júní 1943.
Viðskiptaráðið.
Uppboð.
Opinbert uppboð verður haldið að Kletti við Laugarnesveg
næstk. laugardag, kl. 1 e. hád. og verður þar selt: hurðir, skápar,
skúffur, gluggakústar, rúmstæði, rúmbotnar (spiral), handvask-
ar, vatnssalerni (í skip), tröppur, frystivél, Aga-eldavél (com-
plet), mikið af innanþiljum o. m. fl.
Mest af munum þeim, er seldir verða og megnið af innanþilj-
um, er úr mahognytré.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Lögmaðurinn 4 Reykjavík.
T I M IIV IV er víðlesnasta auglýsingablaðið!