Tíminn - 28.09.1943, Side 3

Tíminn - 28.09.1943, Side 3
92. blað 371 Bóharírega: Katrin Tvær konur, er setið hafa í valdastóli á síðari öldum, hafa þótt bera af öðrum. Þessar kon- ur voru Elísabet Engladrottning og Katrín mikla Rússadrottning. Þótt konur þessar væru ólíkar um margt, og mótuðust af ólík- um áhrifum, áttu þær sam- merkt um það, að ríki þeirra efldust stórum undir stjórn þeirra. í stjórnartíð Elísabetar var lagður grundvöllurinn að flotaveldi Breta, en i stjórn- artið Katrínar færðust landa- mæri Rússa langt vestur á bóg- inn. Báðar áttu þær mikinn þátt í þessum viðgangi ríkja sinna. Katrín (1729—96) var þýzk íurstadóttir að uppruna, giftist ung rússneska erfðaprinsinum, samdi sig mjög að rússneskum háttum, steypti manni sínum úr yaldastóli og varð einvalds- drottning Rússa í 34 ár. Hún hneigðist á yngri árum mjög að frönsku upplýsingastefnunni, sem þá var efst á baugi, og á- setti sér að ná takmarki hennar, hinu menntaða einveldi. Á fyrstu stjórnarárum sínum vann hún talsvert íþessa átt.en mætti minni skilningi almennings en hún gerði sér vonir um, gerðist þvi íhaldssöm með aldrinum og varð höfuðfulltrúi öfgafyllsta i afturhaldsins í álfunni eftir, frönsku byltinguna. Aukning Rússaveldis varð þá alltaf meira og meira áhugamál hennar og beitti hún þar meira ofurkappi en réttsýni. Hún átti meginþátt- inn í skiptingu Póllands, fékk þá Kurland, Litháen, pólsku Ukrainu og ailstóran hluta Pól- lands, og einnig vann hún lönd . af Tyrkjum, m. a. Krimskagann. Katrín var miklum gáfum gædd og sérstaklega laginn stjórnandi. Bókmenntasmekk hafði hún góðan og átti lengi í bréfaskiptum við ýmsa helstu andans menn álfunnar, t. d. Voltaire og Grimm. Sjálf samdi hún smáleikrit og allmargar tímaritsgreinar. Mun óhætt að ] segja, að Katrín hafi verið, merkilegasti stjórnandi Rússa á j timabilinu frá Pétri mikla til Lenins. Það, sem gert hefir Katrínu einna sögufrægasta, er þó ekki nema að hálfu leyti það, sem hér hefir verið talið. Ástamál henn- ar hafa veriö alræmd. Framan af árum var hún lítt við karl- menn kennd. Hjónabandið var misheppnað og ástlaust. Þegar hún hafði ekki eignast erf- ingja eftir 9 ára hjónaband, komu forsjármenn ríkisins því til leiöar, að hún eignaðist elsk- huga, því að nauðsynlegt þótti, Hafði hann rækt hið háa kirkju- lega embætti sitt, án þess að al- menning _grunaði. Vitanlega hafa margir prestar brugðizt kirkjunni af hugleysi eða von um bætta lífsafkomu. En ýfir- ieitt hefir sannast á kirkjunnar mönnum sú einfeldni trúarinn- ar, sem Dostójevsky lýsir svo meistaralega í Bræðrunum Karaniasóv: þol til að þjást og andleg nautn þjáningarinnar. T. d. er ofsóknirnar tóku þá stefnu að fangelsa biskupana til þess að lama kirkjuna, voru jafnan nýir menn á takteinum i embættin. Þegar þeir hurfu líka komu enn aðrir. Aldrei hefir skort presta til hinna áhættu- sömu starfsemi. Kristnir leik- menn hafa líka orðið að þola margvíslegan yfirgang, háð og spott, og ætíð verið litið niður á þá sem lélega þegna. Jafnframt því sem kristnir menn hnappa sig fastar saman hefir guðleysingjasambandinu hnignað. Opinbert málgagn kemst svo að orði I árslok 1939: „Það er miklu erfiðara að út- rýma trúarbrögðunum úr með- vitund verkamanna en að frelsa þá undan oki auðvaldsins." Árið 1933 taldi guðleysingjasam- bandið 5yz miljón meðlima. í 5- ára áætluninni var reiknað út, að þeir yrðu orðnir 15 milljónir 1937. Þetta brást. Árið 1937 var talan ekki nema 2 milljónir samkvæmt opinberum skýrsl- um. Að vísu hefir fjölgað nokk- uð síðan, en orsakirnar til þess, að sambandið hefir brugðizt vonum manna, eru ræddar á ráðstefnum og i blöðunum. TlMlW. þrlðjudagiim 28. sept. 1943 BRÉF TIL Tí M ANS: snikla Fréllir úr V.-Hánavatnssýslu að hún eignaðist afkvæmi, vegna ríkiserfðanna. Síðan átti hún marga elskhuga og fjölgaði þeim óðum eftir þvi, sem aldur- inn færðist yfir hana. Seinni tíminn hefir tekið mjög hart á þessum breyskleika Katrínar, en samtíðarmenn hennar áfelldust hana trauðla eins mikið, því að einvaldar voru þá ekki við eina fjöl felldir í ástamálum. Fyrir- rennari Katrínar, sem einnig var kona, hafðí og sízt verið henni fremri i þessum efnum Æfisaga Katrínar eftir Gínu Kaus, sem nú er komin út í ís- lenzkri þýðingu Freysteins Gunnarssonar, lýsir Katrínu á margan hátt vel, þótt öllu meira beri þar á ástamálum hennar en stjórnarafskiptum, einkum í síðari hluta bókarinnar. Ýmsir þættir bókarinnar lýsa og vel hinu hörmulega menningar- ástandi, sem ríkti þá í Rúss- landi, og raunar ríkti fram á daga bolsevikkabyltingarinnar, en síðan hafa frekar orðið breyt- ingar til bóta. Því fer þó enn fjarri, að Rússar séu nálægt því að vera Evrópuþjóð í hugsunar- hætti og menningu. Frásögnin er samfelld og skemmtileg, enda er Gina Kaus viðurkenndur rithöfundur og hefir bersýnilega vandað sig við samningu þessarar bókar. Þýðing Freysteins er með mikl- um ágætum, óþvinguð og laus við tilgerð og tildur. Er Frey- steinn vafalítið í röð beztu þýð- enda okkar nú. Útgefandinn, H. f. Leiftur, hefir vandað til frágangsins. Margt ágætra mynda prýðir bók- ina. I*. Þ. Þjóðleikhúsið Dóms- og kirkjumálaráðu- neytið hefir sent Tímanum eftirfarandi til birtingar: Alþingi skoraði 22. marz þ. á. já stjórnina, að hún beitti sér ^ fyrir því að þjóðleikhúsið yrði j rýmt.Dómsmálaráðuneytið sendi utanrikismálaráðherra þessa á- skorun Alþingis þann 29. apríl þ. á., og sneri utanríkismála- ráðuneytið sér þegar til hins aðiljans og er nú loforð hans fengið um það, að þjóðleikhús- inu verði skilað aftur þegar er það hafi verið rýmt af vörum þeim, er þar eru nú geymdár og ný vörugeymsluhús byggð, en því mun hraðað, eins og kostur er á. Er smíði nýrrar vöru- geymslu þegar hafin samkvæmt munnlegum upplýsingum flota- foringja Breta. Leiðtogarnir kenna þvi um, að meðlimirnir séu að mestu leyti lélegasti hluti kommúnista- flokksins, og fólk, sem hafi blettaða fortíð. Það er hrein- skilnislega viðurkennt, að guð- leysingjaáróður sé upp á síð- kastið skoðaður sem óþrifaverk. Áróðursmennirnir, sem oftast eiga að hafa fengiö einhvers konar „vísindalega menntun“ ,eru oft svo fáfróðir um einföldustu atriði i sögu og sálarfræði, að fólk hlær að erindum þeirra og skemmtir sér við að bera fram spurningar, sem þeir geta ekki svarað. Mistökin stafa þó mest af því, að áhugi fyrir málinu fer þverrandi. Hin vakandi trú á því, að þjóðfélagið mundi batna og dafna, ef fólkið hætti að trúa á guð, er nú að hverfa. Þvert á móti hafa menn veitt því athygli, að þegar guðstrúin hverfur, siglir hin megnasta óreiða í kjölfarið. Jaroslavski, sem verið hefir forseti guðleys- ingja um langt skeið, lýsti ástandinu nýlega með þessum dapurlegu orðum: „Það er ó- mögulegt að koma á kommún- isma í þjóðfélagi, þegar helm- ingurinn af þjóðinni trúir á guö, og hinn helmingurinn óttast djöfulinn“. Timasheff álítur að straum- hvörf séu að verða í Rússlandi gagnvart trúarbi’ögðunum. Hin nývaknaða ættjarðarkennd hef- ir aukið áhuga fyrir sögu Rúss- lands geysilega á síðustu árum. Og kirkjan kemur afarmikið við sögu Rússlands. Vladimir mikli, Alexander Nevski stórfursti og Suvorov herforingi eru líka 20. september. Hér í sýslu voru miklir og langvarandi kuldar síðastliðið vor. Um miðjan maímánuö var norðanstormur og hríðarveður dögum saman og allar skepnur á gjöf. Eyddust þá mjög hey, og voru fyrningar í héraðinu miklu minni í vor en á undanförnum árum. Kuldarnir héldust óslitið fram að Jónsmessu, og yfirleitt var ekki farið að beita kúm fyrr en eftir miðjan júní, sökum gróðurleysis. Vegna vorkuldanna* byrjaði sláttur állmiklu seinna en venju- lega, óvíða fyrr en í 13. viku sumars. Grasspretta var yfir- leitt sæmileg, að því undan- skildu, að háarspretta á túnum brást að mestu vegna kulda. Veðrátta mátti teljast hagstæð til heyskapar í júlí og ágúst, víðast í sýslunni, þótt oftast væri mjög kalt, og varð því nýt- ing heyja allgóð þann tímann. En um höfuðdag brá til vot- viðra, og nú, um réttir, eiga bændur úti þriggja vikna hey- skar>, og er sumt af því heyi orðiö nokkuð hrakið. Þar sem heyskapartíminn er nú óvenjulega stuttur, og fólk við heyvinnu víða færra en áð- ur, er heyfengur bænda með minnsta móti, og fyrningar frá fyrri árum einnig, eins og áður segir. Bændur verða því að farga með mesta móti af bú- peningi sínum i haust. Eru horfur á að slátrað verði rúml. 20% fleira fé hjá kaupfélaginu á Hvammstanga 1 haust en í fyrra. Seint í júlímánuði gerði mik- ið norðanveður, sem eyðilagði gróður í kartöflugörðum. Má þvl telja að uppskera garðávaxta hafi brugðist algerlega hér í sýslu að þessu sinni. Á þessu sumri létust þrír Vestur-Húnvetningar á Víflls- staðahæli, Ólöf Karlsdóttir og Karl Axelsson frá Bjargi og' Magnús Sigurgeirsson bóndi á Vigdísarstöðum. Magnús lætur eftir sig konu, Sigríði Sigurðar- dóttur, og þrjú ung börn. í júlímánuði í sumar andaðist Ólöf Jónasdóttir á Torfastöðum í Miðfirði, fyrrum húsfreyja þar, rúmlega áttræð að aldri. Hún var dóttlr hjónanna Kristbjarg- ar Björnsdóttur og Jónasar Guð- mundssonar, sem bjuggu á Ytri Völlum og síðar í Svarðbæli i Miðfirði. Jónas var bróðir Björns á Marðarnúpi, föður Guðmundar landlæknis. Ólöf giftist Jóni Jónssyni árið 1887. Byrjuðu þau búskap á Torfa- nöfn í sögu Rússlands, sem sanntrúaður kommúnisti hefir nú orðið fullt leyfi til að vera hreykinn af. Haft er eftir ein- um leiðtoga guðleysingja: Sam- band okkar hefir gert mörg ax- arsköft gagnvart kristindómn- um. — — Kirkjan hefir ekki ávallt haft skaðsamleg áhrif“. í kvikmyndum hefir ekki heldur borið neitt á guðleysisáróðri upp á síðkastið. Blöðin flytja fáar greinar gegn kristindómi. Sex daga vikan hefir verið afnumin og sjödaga vikan tekin upp með sunnudaginn sem hvildardag. Stríðið hefir enn fremur ýtt undir hina nýju trúmálastefnu. Yfirmaður grískkatólsku kirkj- unnar lýsti yfir því, að kirkjan hefði ávallt tekið þátt í örlög- um þjóðarinnar og borið byrðar hennar. Hún tæki einnig nú virkan þátt í baráttunni fyrir föðurlandið. í ágústmánuði 1941 birti jafnvel útvarpið í Moskvu ávarp til allra „sann- kristinna“ manna í héruðum þeim, er Þjóðverjar höfðu her- tekið, og hvatti þá til að berj- ast fyrir trúfrelsi gegn stjórn- endum Þýzkalands, er afneit- uðu grundvallaratriðum krist- indómsins. Mánuði síðar hætti Besbosnik að koma út, og nokkru síðar annað andkristi- legt málgagn. Allt miðar þetta bersýnilega til þess að skapa samheldni meðal þjóðarinnar, þar sem ekki verður fram hjá því genglð, að allt að því helm- ingur hennar er kristinn. Þessar tilslakanir þýða þó ekki, að Stalin og nánustu sam- (Framh. á 4. slðu) stöðum, og bjuggu þar alla tíð unz sonur þeirra, Magnús, tók við búi á jörðinni. Jón, maður Ólafar, er enn á lífi, 88 ára að aldri. Hann er orðinn blindur, en að öðru leyti við allgóða heilsu. Synir þeirra hjóna eru Björn, skólastjóri á ísafirði, og Magnús, bóndi á Torfastöðum. Jún Jónsson, bóndi i Huppa- hlíð í Miðfirði, andaðist í júlí- mánuði í sumar að heimili sínu. Hann varð 80 ára 7. maí í vor, eins og frá var skýrt í Tírhanum þann dag, og hafði búið góðu búi í Huppahlíð í 60 ár. Jón var jarðsunginn að Staðarbakka 26. júli að Viðstöddu fjölmenni. Nýlega lézt á sjúkrahúsinu á Hvammstanga Ingibjörg Þor- steinsdóttir frá Barði í Miðfirði, 73 ára að aldri. Hún hafði verið yfir 40 ár vinnukona á Melstað og Barði, fyrst hiá þeim hjón- um séra Þorvaldi Bjarnarsyni og Sigríði Jónasdóttur, og síðar hjá frú Sigríði, eftir lát séra Þor- valds, en frú Sigríður lézt í fyrra, þá komin á tíræðisaldur. Ingibjörg heitin átti syni, Jón, nú starfsmann á Vífilsstöðum, og Björn Bergmann, bónda i Svaröbæli. Ný löggjöí . . . (Framh. af 2. síðu) andi gagnfræðaskólar og jafn- vel 2 og 3 í sumum þeirra, og í sveitum starfa auk þess 6 hér- aðsskólar. Öllum er skólum þessum ætlað svipað, verkefni, að veita almenna fræðslu í á- framhaldi af barnaskólunum, enda þótt starfsaðferðir séu að einhverju leyti sitt með hverj- um hætti. En' jafnhliða því, að skólar þessir hafa að markmiði að veita almenna, hagnýta fræðslu, eru þeir einnig undir- búningsskólar fyrir nokkurn hluta, nemendanna undir fram- haldsnám við aðra skóla, t. d. menntaskólana og ýmsa sér- skóla. Hins vegar veita próf frá þeim engin réttindi í þessum efnum, og verða nemendur frá þeim, sem áfram vilja halda í öðrum skólum, að undirbúa sig undir það sérstaklega og taka próf á ný inn í aðra skóla, sem þeir vilja stunda nám við. Að- eins 3 undantekningar eru þó frá þessu. Gagnfræðadeildirnar við menntaskólana báða, í Reykjavík og á Akureyri, veita með burtfararprófi sínu nem- endunum heimild til að stunda nám í menntaskólunum án inn- tökuprófs, og Gagnfræðaskóli Reykvíkinga mun hafa sömu að- stöðu við menntaskólann hér i Reykjavík. Það' liggur í augum uppi, að þetta er mjög ófullnægjandi fyrirkomulag og óþægilegt og veröur til þess, að aðsóknin að þeim skólum, sem einhver rétt- indi veita, verður langsamlega mest og oftast um of og að hin- ir skólarnir verða skeytingar- minni um að ná vissu marki með fræðslu sinni. Auk þess ber á það að líta, að það væri hverjum manni til hins mesta hagræðis að geta stundað nám, eins lengi og unnt er, í þeim skóla, sem næstur honum er, ef hann hugsar til framhaldsnáms. Er það oftast ódýrara aðstandendum hans, og tengslin við heimili standa leng- ur og meðan þess er þörfin mest fyrir nemandann. Við að framkvæma þetta, svo að vel sé, eru vissulega ýmsir örðugleikar, en það er trú okk- ar, að þá sé hægt að yfirstíga með viturra og reyndra manna ráðum, hér á landi eins og ann- ars staðar, ef viljinn og skiln- ingurinn eru fyrir hendi, og þetta er vissulega verkefni, sem leysa þarf, og það sem fyrst.“ Stúlku vantar á Vífilsstaðahælið nú þegar eða um næstu mánaða- mót. Uppl. hjá yfirhjúkrunar- konunni frá kl. 8,30 í síma 5611 og í skrifstofu ríkisspítalanna. tltbreiðið Tímann! Sambnnd ísl. smntyinnuféHtgtsi KAUPFÉLÖG! Gætið þess að hafa vörur yðar nægilega vá- tryggðar. Tílkynníng Viðskiptaráðið hefir ákveðið, með tilliti til hækkaörar visitöiu, að frá «g með 1. okt. megi saumalaun ekki vera hærri en hér segir: I. Mlæðskeraverkstaeði: Á klæðskerasaumuðum karlmannafötum mega saumalaun eigi vera hærri en kr. 320,00 fyrir einhneppt föt, en kr. 330,00 fyrir tvíhneppt föt. Fyrir klæðskerasaumaðar kvenkápur mega sauma- laun vera hæst kr. 183,00, en fyrir dragtir kr. 202,00. Fyrir al- genga skinnavinnu má reikna hæst kr. 20,00, auk hinna ákveðnu saumalauna. II. Hraðsaumastofui*: Fyrir hraðsaumuð karlmannaföt mega saumalaun vera hæst kr. 275,00. Hjá klæðskeraverkstæðum og hraðsaumastofum skulu saumalaun á öðrum tegundum fatnaðar vei-a í samræmi við of- angreint verð. III. Kjólasaiimastofur: Saumalaun á kápum mega hæst vera kr. 150,00, nema ef um algenga skinnavinnu er að ræða, þá hæst kr. 170,00. Fyrir saum á drögtum má hæst taka kr. 165,00. Reykjavík, 24. sept. 1943. VERHLAGSSTJÓRIW. Að gcfnii tilefni viljum við undirritaöir, sem skipum sjó- og verzlunardóm Reykja- víkur við rannsókn á Þormóðsslysinu, taka fram, að af óviðráð- anlegum orsökum er þeirri rannsókn ekki fullkomlega lokið. Allt það, er fram kemur við rannsókn þssa, sem fram fer fyrir lukt- um dyrum, er og verður sent atvinnu- og samgöngumálaráðu- neytinu, sem fyrirskipaði rannsóknina, og ber þess vegna að snúa sér þangað um upplýsingar varðandi þetta mál. Reykjavík 13. sept. 1943. Árni Tryggvason. Hafstcinn Rergþórsson. Jón Axel Pétnrsson. Anglýiing um hámarksverð. Með tilliti til árstíðarsveiflna á verði eggja hefir Viðskipta- ráðið ákveðið eftirfarandi hámarksverð á eggjum frá og með 25. september 1943. í heildsölu ..i..... kr. 14.60 í smásölu .......... — 17,20 Með auglýsingu þessari er úr gildi fallin tilkynning Viðskipta- ráðsins um hámarksverð á eggjum, dags. 30. apríl síðastliðinn. Reykjavík, 24. sept. 1943. VERÐL AGSST J Ó RINN. Blautsápa frá sápuverksmHIjjiinni Sjöfn er almennt við- urkennd fyrtr gæðl. Elestar húsmæðnr nota Sjalnar-blautsápu TÍMINN er víðlesnasta auglýsingablaðið!

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.