Tíminn - 08.01.1944, Page 4
8
TÍMIM, laiigardagiim 8. jao. 1944
2. blað
Erlent yfirlit
(Framh. af 1. siðu)
Önnur ástæða kollvarpar líka
samanburðinn við 1918. Það eru
loftárásirnar. Markmið þeirra er
að eyðileggja hergagnaiðnaðinn,
samgöngukerfið og fram-
kvæmdastjórnina yfirleitt.
Harris flugmarskálkur segir, að
lofther Bandamanna hafi 50
þýzkar borgir í takinu. Harðast
hefir Hamborg orðið úti; um
70% hennar er í rústum. Essen,
Köln, Hannover og Mannheim-
Ludwigshaven eru litlu betur
leiknar. Mikilvægasti árásar-
staðurinn er þó Berlín. Þar er
um 10% af þýzka hergagnaiðn-
aðinum, langstærsta járnbraut-
armiðstöðin og þaðan liggja all-
ar æðar framkvæmdastjórnar-
innar. Stórfelldustu árásunum
hefir líka verið beint gegn
Berlín í seinni tíð og árangurinn
hefir orðið mikill. A. m. k. u4
hluti Berlínar er í rústum, með-
al annars sjálfur miðbærinn og
nokkur helztu iðnaðarhverfin.
Mörg borgarhverfin vantar Ijós
og vatn, hundruð þúsund manna
verða að flytja í burtu til við-
bótar við þá, sem áður eru farn-
ir. Harris segir, að loftárásum
þessum verði vægðarlaust hald-
ið áfram, unz þetta hjarta
Þýzkalands sé hætt að slá.
Þýzki áróðurinn er gleggst
tákn þess, að árangur loftárás-
anna er geigvænlegur. Þar ber
nú orðið mjög á hótunum um
hefnd. Þar mæta Þjóðverjar
strax þeirri tálmun, að lofther
þeirra verður stöðugt van-
máttugri en lofther Banda-
manna. Þeir hafa þó vafalaust
nokkur hundruð sprengjuflug-
véla í Vestur-Evrópu, en senni-
lega þykir þeim öruggast að
spara þær til innrásarinnar.
Smáárásirnar, sem þeir hafa
gert á London og ýmsa' bæi í
Suður-Englandi seinustu vik-
urnar, eru algerlega þýðingar-
lausar. Þá er það leynivopnið
margrædda. Bretum er kunnugt
um, hvað það er og neita ekki
þeim möguleika, að það geti
valdið nokkru tjóni í London.
En Þjóðverjar eru bersýnilega
ekki ennþá tilbúnir að nota það,
og það mun sýna sig, hvort
þeim finnst það svari kostnaði.
því að það mun aldrei ráða
neinu um úrslitin. (Líklegt þyk-
irí að hér sé um eins konar
langdrægar sprengjuvörpur að
ræða. Gizkað hefir verið á, að
Bretar hafi m. a. verið að eyði-
leggja slík tæki í hinum hörðu
loftárásum, sem gerðar hafa
verið á Norður-Frakkland sein-
ustu daga).
Margir telja, að loftárásirnar
á Þýzkaland muni leiða til sið-
ferðilegs niðurbrots hjá al-
menningi. Slíkt væri vissulega
æskilegt, en ekki er vert að
treysta því ofmikið. Það eitt er
víst, að enn hafa ekki árásirnar
leitt til múghræðslu eða virkr-
ar mótspyrnu, heldur öllu frek-
ar til sljóleika og áhugaleysis.
Siíkt veikir vinnugleðina og
dregur úr afköstum, en leiðir
ekki til byltingar. Leynilögregl-
an er líka vel á verði. Verði
bylting í Þýzkalandi kemur hún
vart neðan frá, þ. e. frá fólkinu
sjálfu. Hún verður að koma of-
an frá, en líkurnar til þess eru
ekki miklar, því að nazistafor-
ingjarnir og hershöfðingjarnir
vita, að skipbrot þeirra verður
sameiginlegt, ef Þýzkaland
verður að gefast upp. Banda-
menn reikna ekki heldur með
neinni uppgjöf Þjóðverja fyrr
en þýzki herinn hefir beðíð full-
kominn ósigur.
Tilgangur loftárásanna er
ekki að valda byltingu í Þýzka-
landi. Það myndi vissulega verða
gleðilegur, en óvæntur, árang-
ur. Tilgangurinn er að eyðileggja
getu Þjóðverja til að heyja
styrjöld, flýta fyrir hernaðar-
legum ósigri þeirri. Þegar hafa
20—30% þýzka hergagnaiðnað-
arins verið eyðilögð á þann hátt.
Auk þess koma stórauknir sam-
gönguerfiðleikar og torveldari
framkvæmdir á allan hátt.
Vegna loftárásanna verða Þjóð-
verjar að hafa 1 y2 milj. í loft-
varnarliðinu, auk margra
hundraða þúsunda manna, sem
verða að vera við ruðning og
viðgerðir. Allt þetta lamar þýzku
hervélina stórkostlega og veikir
varnarmátt hennar gegn hinni
stórfelldu lokasókn Banda-
manna, sem óðum nálgast.
Auglýsið í Tímanum!
1884
10. janúar
1944
Góðtemplarareglan
á Islandi 60 ára.
Afmælisdagskvá:
Siiiinudagiir 9. jamiar:
Kl. 11 f. h.: Messað í Fríkirkjunni: Séra Árni Sigurðsson. —
Templarar mæta kl. 10.30 í G.-T.-húsinu og ganga þaðan
hópgöngu til kirkju.
Kl. 1.30 e. h.: Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á Austurvelli. —
Stjórnandi: Albert Klahn.
Kl. 2 e. h. Ræða af svölum Alþingishússins:
Menntamálaráðherra Einar Arnórsson, (ræðunni útvarp-
að). Lúðrasveitin leikur þjóðsönginn.
Kl. 4 e. h.: Stórstúkufundur (stigveiting).
Kl. 8.30 e. h.: Samkvæmi í Sýningarskálanum.
Efnisshrá:
a) Gestir boðnir velkomnir.
b) Hátíðarræða: Kristinn Stefánsson, stórtemplar.
c) Söngur: Dómkirkjukórinn.
d) Ávörp.
e) Stiginn dans.
Kl. 9 e. h.: Afmælisfagnaður í G.T.-húsinu.
Mánudagur 10. janiiar:
Kl. 8 síðd.: LEIKSÝNING f IÐNÓ:
Frumsýning leikritsins TÁRIÐ, eftir Pál Árdal.
Kl. 8 síðd.: Sameiginlegur hátíðarfundur stúknanna í
Reykjavík. - Embættismenn allra stúkna mæta með ein-
kenni.
Kl. 8.30 síðd.: Útvarpserindi: „Reglan 60 ára“:
Árni Óla, stórkanzlari.
Innheímtumenn Tímans
eru vinsamlega bcðnir að senda allt það,
SEM ÞEIR ERU ISÍ iVIR AÐ IWHEIMTA af
áskriftargjöldum, og þurfa upnhæðirnar að
vera koinnar til innheimtu blaðsins fyrir loh
jumíurmánaðar.
lnnheimta Tímans
Herstiórn Banda-
ríkjamanna . . .
(Framh. af 1. síðu)
Mysuostur
frá Akureyri, nýkominn
Samband ísl. samvinnufélaga
skaga. Eftir nokkurt hringsðl
yfir skaganum var haldið aust-
ur með ströndini, yfir Krýsu-
vík, Herdísarvík, Selvog og Ölf-
usá, en síðan sveigt upp yfir
Árnessýslu og flogið skáhallt
yfir Flóa, Grímsnes, Laugardal
og Biskupstungur og upp til
öræfa, allt inn yfir Langjökul.
Þar var aftur sveigt til vesturs,
svo að vel sá um gervallt Borg-
arfjarðarhérað. Síðan var loks
haldið heimleiðis aftur yfir
Skjaldbreið, Botnssúlur og
Kjöl og lent á flugvellinum.
Rómuðu það allir af hvílíkri
mýkt Tourtellot hershöfðingi
stýrði flugvélinni, enda er
hann kunnur flugsnillingur.
Þetta flug mun hafa orðið
öllum, sem þátt tóku í því, til
óblandinnar ánægju, enda var
veðrið svo fagurt sem bezt varð
á kosið. Það var nýstárlegt
tækifæri til þess að kynnast
landinu, sjá það frá sjónarhæð,
sem tiltölulega fáir íslending-
ar hafa enn átt kost á að ná.
En við lifum nú á öld flugsins,
og hver veit nema það verði
títt á næsta mannsaldri, að
þeir, sem vilja kynnast landinu,
leigi sér flugvél á heiðríkum
góðviðrisdegi og fljúgi yfir þær
stöðvar, er þeir kjósa. Og hver
veit nema flug verði fyrr en
varir einn þátturinn í landa-
fræðikennslu skólanna?
Á víðavaugi
(Framh. af 1. síðu)
ekki síður reiðubúinn til að ræða
við Sjálfstæðisflokkinn en aðra
flokka, ef hann býður upp á
heiðarlegt umbótasamstarf og
teflir fram mönnum, sem ekki
eru margreyndir að svikum. Það
má Sjálfstæðisflokkurinn líka
eiga, að hann á nóg af slíkum
mönnum og þarf því ekki að
láta þvílíkan mannaskort vera
þránd í götu samstarfs við
aðra flokka.
GAMLA BÍÓ—h—<—o—
M ó ð u r á s t
(Blossoms in the Dust).
Sýnd kl. 9.
* TARZAN
hinn ósigrandi
(Tarzan Triumphs)
Sýning kl. 5 og 7.
Börn innan 12 ára fá ekki
aðgang.
Aðgm. seldir frá kl. 1.
—o—o—NÝJA BÍó
Svarli
svanurinn
(The Black Swan).
TYRONE POWER,
MAUREEN O’HARA.
Bönnuð börnum yngri en
14 ára.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Aðgm. seldir frá kl. 1.
Leikfélag Reykjaviknr
„Topn gnðannaM
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur
samúð við andlát og jarðarför konu minnar og móður
okkar
Katrínar Sæmundsdóttnr
frá Austvaðsholti.
JÓN ÓLAFSSON OG BÖRN.
Hjartans þakklæti til allra þeirra, sem sýndu okkur sam-
úð og hluttekningu við andlát og jarðarför mannsins míns,
föður, fósturföður, tengdaföður og afa okkar ÞORSTEINS
GUÐMUNDSSONAR, Hrauni, Tálknafirði. — Guð blessi
ykkur öil.
Ólafía Indriðadóttir, börn, fósturbörn,
tengdabörn og barnabörn.
Innilegt hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð við
andlát og jarðarför
Jónu Rannveigar Jónsdóttur
frá Syðra-Velli.
SYSTKINI HINNAR LÁTNU.
Spaðkjöt
Heiltunnur frá Rorgarfirði eystra. —
Hálftunnur frá Djápavogi og Flatey á
Breiðafirði.
Sendum heim með stiittuiu fyrirvara.
Samband isl. samvinnuf élaga