Tíminn - 27.01.1944, Side 4

Tíminn - 27.01.1944, Side 4
36 TÍMIM, finimtiiclagiim 27. jan. 1944 9. Maö ÚtSiutningur ísl RBÆNUM Þingnefndír athuga lýðveldísfrv. og afurða Hagstofa íslands hefir nú birt skýrslu um útflutning íslenzkra afurða á síðastliðnu ári. — Hefir útflutningurinn numið 233 milj. kr. eða 33 milj. kr. meira en árið áður. Eftir ein- stökum vöruflokkum skiptist hann þannig: Saltfiskur, verkaður Saltfiskur, óverkaður Saltfiskur, í tunnum Harðfiskur ísfiskur Freðfiskur Fiskur, niðursoðinn, Síld, s'ltuð Freðsíld Lax og silungur Lýsi Síldarolía Fiskmjöl Síldarmjöl Hrogn, söltuð Hrosshár Freðkjöt Saltkjöt Garnir, hreinsaðar Ostur • Ull Gærur, saltaðar Gærur, sútaðar Refaskinn Minkaskinn Skinn, söltuð Ýmsar vörur 1.534.050 1.736.770 ý71.190 905 950 109.774.270 31.187.070 480.310 4.824.260 15.000 78.880 20.197.760 27.152.540 419.910 6.129.270 Í640.260 12.090 10.630.040 169.910 560.700 ' 192.430 9.094.860 5.197.720 83.040 454.810 841.180 280.770 144.920 Til Bretlands hafa verið flutt- ar vörur fyrir 190.2 milj. kr., til Bandaríkjanna fyrir 39.9 milj. kr., til Spánar fyrir 1.7 milj. kr., til írlands fyrir 800 þús. kr., til Færeyja fyrir 360 þús. kr. Gjafír til vmntihælís berklasjúklinga Á seinasta Alþingi var sam- þykkt, að gjafir til vinnuheim- ilis Sambands í§l. berklasjúkl- inga skyldu vera skattfrjálsar. Síðan hafa vinnuheimilinu borizt þessar gjafir: Oddur Helgason útgerðar- maður 20 þús. kr., Marteinn Einarsson stórkaupmaður 10 þús. kr., Bjarni Jónsson bíóstjóri 5 þús. kr. og Ásgeir Þorsteinsson verkfræðingur 1 þús. kr. Héraðsþíng ungm.iél. (Framh. af 1. síðu) bindindismálið, sem jafnan hlýtur að vera grundvallarhug- sjón félagslífsins. Telur þingið sérstaka ástæðu til að áminna félögin um öflugt viðnám gegn tóbakstízkunni með öflugu starfi tóbaksbindindisflokka, almennri fræðslu og tóbaks- lausum samkomum.“ Skinfaxi: „Héraðsþingið hvet- ur ungmennafélaga tii að kaupa Skinfaxa og vinna sem bezt að útbreiðslu hans.“ Samþykkt var að veita kr. 500,00 í Minningarsjóð Aðal- steins Sigmundssonar. Stjórn sambandsins skipa: Björn Guðmundsson á Núpi, forseti, Guðmundur Ingi Krist- jánsson, Kirkjubóli, ritari, og Kristján Davíðsson, Hjarðardal, gjaldkeri. F ágætur atburður Fyrsta þorradag nú um dag- inn bar gimbur á annan vetur, sem Kjartan Ólafsson á Grett- isgötu 60 í Reykjavík átti. Fæddi hún fallegt gimbrarlamb svart. Mun það fátitt, að ær beri um þetta leyti árs og væri fróðlegt að heyra, ef þess væri fleiri dæmi. Móðir þessarar gimbrar, er lambið ól, hefir þrisvar komið upp þrem lömbum. ORÐSETVDING til kaupenda Tímaus. Ef kaupendur Tímans verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vinsamlega beðnir að snúa sér STRAX til ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR, afgreiðslumanns, í síma 2323, helzt kl. 10—12 f. hád. eða kl. 3—5 e. hád. Félag ungra Framsóknarmanna heldur fund í Samvinnuskólanum á föstudagskvöld kl. 8,30. XJmrœðuefni: Dægurmálin. Framsögumaður Þórar- inn Þórarinsson, ritstjóri. — Ungir Framsóknarmenn. Fjölmennið á fund- inn. Skíðafélag Reykjavíkur hélt aðalfund sinn nýlega. Öll stjórn félagsins var endurkosin, en hana skipa: Kristján Ó. Skagfjörð formað- ur. Magnús Andrésson varaformaður, Björn Pétursson ritari, Einar Guð- mundsson gjaldkeri og Kjartan Hjalte- sted. í varastjórn eru: Jón Ólafsson og Stefán Bjarnason. Á fundinum gaf formaður skýrslu um starfsemi félags- ins á liðnu starfsári. í sambandi við skála félagsins í Hveradölum gerðist það merkilegast, að skálinn var raf- lýstur og hitalögn hans endurbætt. — Fjárhagur félagslagsins stendur vel, þrátt fyrir kostnað vegna Skíðaskál- ans. Skuldlaus eign félagsins er nú rúmlega 50 þús. kr. 101 félagi bætt- ist við á árinu og eru nú 630. Að lokum gat formaður þess í skýrslu sinni, að allt útlit væri fyrir, að skíða- íþróttin verði mikiö stundað í ívetur. Félagið á í erfiöleikum vegna bíla- skorts, en tryggt er, að 120 manns geta komizt með félaginu á hverjum sunnudegi og verður unnið að því, að útvega bíla í viðbót. Sjómannafélag Reykjavíkur hélt aðalfund sinn nýlega. Öll stjórn þess var endurkosin, en hana skipa Sigurjón Ólafsson formaður, Ólafur Friðriksson varaformaður, Sveinn Sveinsson ritari, Sigurður Ólafsson gjaldkeri og Garðar Jónsson varagjald- keri. Þetta er í 25. sinn, sem Sigurjón er kosinn formaður félagsins. Rafmagnið. Tilkynnt hefir verið, að Reykvíking- ar fái ekki aukið rafmagn frá stækk- un Sogsstöðvarinnar fyrr en í marz- byrjun. . Flokkur í lausu loíti (Framh. af 2. síðu) ekki reikað eftir geðþótta eins eða fárra manna. S'amkvæmt tilgangi flokksins og stefnuskrá ber honum að leita samstarfs jöfnum höndum til hægri og vinstri. Ef hann tæki upp þann hátt, að sniðgánga möguleika til að neyta krafta sinna, hvort sem væri til hægri eða vinstri, bryti hann stefnu sína og væri ekki lengur frjálslyndur um- bótaflokkur. Það get’ ég sagt frá mínu sjónarmiði, að ég tel eðlilegra, að verkamanna- flokkarnir í landinu væru á þeim leiðum, að Framsóknar- flokkurinn gæti unnið með þeim að málefnum þjóðarinnar. Eins og hverjum Framsóknar- manni hlýtur að vera’ljóst, er það fullkomlega í samræmi við stefnu flokksins, að viðræður fóru fram milli Framsóknar- manna og kommúnista um myndun ríkisstjórnar. Það læt- ur Egill líka gott heita að nafn- inu til, en hitt gerir hann að meginsök, hvað viðræðurnar stóðu lengi yfir. Hitt minnist hann ekki á, og hefir það vakið athygli, að Framsóknarflokkur- inn sat í átta vikur og ræddi við kommúnista og Sjálfstæðis- menn um myndun þjóðstjórnar. Var hægt að bera meiri tiltrú til kommúnista í nærveru í- haldsins? En hvar hefir það atriði kom- ið svo hrapallega við þjóðfélag- ið, að Framsóknarflokkurinn hóf viðræður um vinstri stjórn, að hann eigi fyrir þá sök að missa allt traust og tilverurétt? Hins vegar er það vitanlega al- gert aukaatriði, hvort viðræð- urnar stóðu yfir nokkra daga, vikur eða „svo mánuðum skipti" eins og Egill lætur það heita. Nauman tíma var þó alltaf hæpið að binda sig við. Þá hefði getað fallið sá dómur á þessar viðrgeður, að Jiæiv hefðu verið alvörulausar af hálfu Fram- sóknarmanna og gefið áróðri kommúnista byr í segl. Var þá ver farið en heima setið. Þeim ráðamönnum Framsóknaf- flokksins, sem hlut áttu að þessum viðræðum, ber að þakka það alveg sérstaklega, að ekki orkar tvímælis um árangur þeirra. Má fullyrða, að þessar viðræður hafa rýrt fylgi kom- múnista og tiltrú meðal þjóðar- innar meira en öll skrifin og skammirnar til samans undan- farin ár. Það var lengi vitað, að kommúnistar eru niðurrifs- menn, en það getur oft verið eðlilegt og réttmætt að rífa nið- ur. En því aðeins auðvitað, að byggt sé upp um leið og til þess höfð fullkomin fyrirhyggja, annars er allt ofurselt tortím- ingu. Þessar viðræður leiddu það í ljós, að kommúnistar eru uppsagnartíHögima (Framli. af 1. síðu) ekki skuli kveðja saman þjóð- fund til að afgreiða stjórnar- skrármálið í heild. Þessi leið er talin hafa sömu ókosti og sú, er nefnd var hér á undan, nema hún myndi vera enn seinvirkari. Til þess að hægt sé að veita þjóðfundi vald til að semja nýja stjórnarskrá, þarf tvímælalaust stjórnarskrárbreytingu, er þyrfti að samþykkjast á tveim- ur þingum með kosningum á milli. Gangur málsins myndi þá verða þessi: 1. Alþingi myndi fyrst verða að samþykkja stjórnarskrár- breytingu um þjóðfund og mætti telja líklegt, að hún yrði nýtt kjördæmamál, því að menn virðast mjög ósammála um, hvernig hann skuli kosinn. Hafa t. d. heyrst raddir um, að hann yrði öðruvísi kjörinn en Alþingi, hlutfallskosningar og uppbótar- menn felldir niður, og vissir embættismenn ættu þar sæti, líkt og konungkjörnu þing- mennirnir forðum. Myndu vafa- laust margir þessari skipan þjóðfundarins mótfallnir, þótt aðrir gætu fallizt á hana. 2. Kosningar til Alþingis þyrftu þar næst að fara fram og gætu blandazt inn í þær harðar deilur um skipun þjóð- fundarins. 3. Alþingi þyrfti aftur að koma saman til að samþykkja þj óðfundarstj órnarskrána. 4. Kosning til þjóðfundarins færi þar næst fram eftir tiltek- inn kjörfrest. 5. Þjóðfundurinn kæmi sam- an og tæki alla stj.órnarskrána til athugunar. Myndi það verða tafsamt verk og flokkadeilur miklar um einstök mál. Flest bendir til, að þessi máls- meðferð gæti tekið svo langan tíma, að sambandsslitin og lýð- veldisstofnunin gæti ekki orðið á þessu ári, auk þess sem göm- ul og ný deilumál myndu bland- ast inn í meðferð þeirra og get- að torveldað framgang þeirra á margan hátt. Frá sjónarmiði þeirra, sem vilja afgreiða sambandsslitin og lýðveldisstofnunina í vor og að fylgt sé þeirri gömlu reglu, að þessum málum sé haldið ofan við öll deilumál, getur því þjóð- fundur nú ekki komið til greina. Hins vegar virðist það mjög til athugunar, hvort fela skuli þjóðfundi að annast hina fyrir- huguðu endurskoðun og setn- ingu framtíðarstjórnarskrár- innar. Mætti hugsa sér, að stjórnarskrárbreyting um þjóð- fund yrði samþykkt við næstu kosningar, er vart geta verið langt framundan. Stcfna þingsms er giftusamlegust. Stefnan, er Alþingi hefir mót- að í þessum málum er tvímæla- laust rétt. Hún er í fyrsta lagi hin gamla viðurkennda regla, að halda þeim utan og ofan við önnur mál. Hún er í öðru lagi að ljúka afgreiðslu þeirra sem fyrst, en þó ekki fyrr en sam- rímist samningum og marg- gefnum . yfirlýsingum íslend- inga. Þessi stefna er áreiðanlega hina eina einingarstefna í mál- inu og allt hvik frá henni myndi aðeins leiða til aukinnar sundr- ungar og ófagnaðar. Þingið hefir vissulega unnið sér margt til ámælis að undan- förnu, en gagnrýnin á þeim misfellum þingsins má hinsveg- ar ekki ganga svo langt, að einn- ig sé reynt að sverta það, sem því hefir vel tekizt. Sú stefna, sem yfirgnæfandi meirihluti þingsins tók í þessu máli á síð- astliðnu hausti, var tvímæla- laust réttust og farsællegust úr því, sem komið Var. Nú er það þjóðarinnar að hindra ekki á- rangurinn af starfi þingsins, þegar því hefir tekizt vel. Hún þarf að styrkja enn betur ein- inguna, sem skapast hefur í þinginu um lýðveldismálið, og sýna það öllum heiminum við atkvæðagreiðsluna í vor, að hún vill vera óháð öllu erlendu valdi. Betra tækifæri getur hún ekki fengið til að auglýsa þann vilja sinn eða heppilegri tíma til að gera það, þar sem vænta má þess, að ekki sé langt til friðar- samningana. ekki við þvi búnir að byggja upp og hafa það ekki í huga. Geta þeir nú ekki framar látið aðra trúa því, að þeim sé alvara með að vilja eiga þátt í umbóta- og viðreisnarstarfi þjóðarinnar, eftir að hafa hafnað því tæki- færi, er þeim bauðst. Þá kem ég að annarri megin- ástæðu, sem Egill í Sigtúnum telur til stofnunar nýs flokks. Það er „sársaukinn", sem hann segir að myndazt hafi milli ráð- herra Framsóknar- og Sjálf- stæðismanna „út af fyrri skipt- um“. Er svo látið heita, sem hér sé um að ræða persónulegar tilfinningar, en ekki málefna- ágreining milli flokka. En því í ósköpunum þarf þá nýjan flokk? Hvers vegna þurfa mennirnir með hinar „persónulegu til- finningar" endilega að koma fram nú sem samningsaðilar milli flokkanna, ef samstarf er eðlilegt og æskilegt? En því ætla ég hiklaust samt sem áður að halda fram, að sá Framsóknar- maður er ekki með heilbrigða hugsun í þessu tilfelli, sem læt- ur sér á sama standa, þótt flokkur hans hafi samstarf framvegis við þá menn í Sjálf- stæðisflokknum, sem reyndir eru að því að halda ekki dreng- skaparheit. Það er leiðinlegt, að til skuli vera menn í Framsókn- arflokknum, sem taka undir grín Sjálfstæðismanna um þessa hluti. Það hefir þó jafnan frá því er land þetta byggðist, verið talið eitt af mestu mann- dómseinkennum, að loforðum manna væri treystandi, hvað þá heitum að viðlögðum dreng- skap. Forfeður vorir gáfu oft líf sitt undir þetta heit og þeir menn, sem gengið hafa á gefin heit, hafa löngum verið í litlu áliti í augum íslenzku þjóðar- innar. Nú láta sumir, sem þetta komi ekki þjóðinni við. Þetta sé hlægilegt. En víst kemur það þjóðinni við að þekkja sína for- ingja. Og aldrei hefir íslenzk alþýða hlegið að þeim, sem lið- Á víðavaugi (Framh. af 1. síðu) í utanríkismálum. Væri slíkt ekki til hróss fyrir íslendinga, þótt það gæti samrímzt fram- komu Alþýðubl. í seinni tíð. Hvað ætti það líka að geta verið í þessum skjölum, sem gæti haft áhrif á vilja og á- kvarðanir þjóðarinnar í þessum málum og fengið hana til að hverfa frá marggefnum yfirlýs- ingum sínum um sambandsslit 1944? Vill ekki Alþýðublaðið svara því. ið hafa óþægindi eða dauða fyrir það að treysta öðrum til drengskapar og manndóms, heldur hafa þeir jafnan átt vísa aðdáun hennar og trú á þá eiginleika í fari þeirra sjálfrai er þeir treystu öðrum til að hafa. Framsóknarflokkurinn er nú málefnalega styrkari en nokk- uru sinni fyrr. Þjóðin heimtar áframhaldandi starf hans og skilur æ betur þýðingu hans. Hann er jafnvægi^lokkurinn í þjóðfélaginu, flokkur hinna hugsandi manna, sem sækja inn á braut framtíðarinnar yf- irvegandi og öfgalaust. Fram- sóknarflokkurinn á raunhæfan og rökréttan tilverurétt í þjóð- lífinu. Hann á fastmótaða stefnu, byggða á reynslu margra liðinna ára. Það kemur ekki til mála, að kasta allri þeirri reynslu á glæ og gefast upp. Framsóknarmenn hljóta ein- dregið að mótmæla því að yfir- gefa málstað sinn og hugsjón-’ ir, en standa betur sameinaðir um flokk sinn en nokkru sinni fyrr og því fremur sem hlutverk hans sýnist stöðugt verða veiga- meira og nauðsynlegra í þjóð- félaginu. ttbrelðlð Tímann! —GAMLA BÍÓ— Konan með örið (A WOMAN’S FACE) JOHN CRAWFORD MELVYN DOUGLAS, CONRAD VELDT. Sýnd kl. 7 og 9. Börn innan 12 ára fá ekki aðgang. ELLERY RÆÐUR GÁTUNA. Leynilögreglumynd með RALPH BELLAMY og MARGRET LINDSAY. sýnd klukkan 5. ►NÝJA BÍÓ Aibrýðísamar konur (The Feminine Touch) ROSALIND RUSSELL, DON AMECHE, KAY FRANCIS. sýnd klukkan 7 og 9 BÆNDALEIÐTOGINN (In old Monterey) Cowboy söngvamynd með GENE AUTRY Sýnd kl. 3 og 5. Sala hefst kl. 11 f. h. Leiltfélag Reykjavíknr „Topn gnðanna^ Sýning annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 i dag. Maðurinn minn, Jón Suðmundsson bóndi í Ljárskógum í Dalasýslu, andaðist að heimili sínu þann 25. þ. m. ANNA HALLGRÍMSDÓTTIR. Stúlku vantar Llíiílýsingas* í skrifstofu Ríkisspítal- anna. — Sínii 1765. Erlent yfirlit. (Framh. af 1. síðu) korn annarsstaðar í Indlandi, því að önnur fylki voru lítt af- lögufær. Var því að leita til Ástralíu og Kanada, en flutn- ingar þaðan taka nú langan tíma. Það á vitanlega nokkurn þátt í hungursneyðinni, að Japanir hafa hernumið Burma. Þaðan hafa Indverjar jafnan fengið allmikið korn, en minnst af því hefir þó farið til Bengal. Mjög er það rómað, að hinn nýi landsstjóri Breta í Indlandi, Wavell hershöfðingi, hafi geng- ið vel fram í því að bæta úr hungursneyðinni og dvaldi hann um tíma í haust í Kalkútta til að stjórna hjálparstarfseminni persónulega, en þar var neyðin mest. Hungursneyð þessi hefir mjög vakið athygli manna á því, hve landbúnaður Indverja sé illa rekinn. Uppskera af ekru er þar hlutfallslega miklu minni- en annarsstaðar, þótt landgæði séu ekki lakari. Stafar það af úr- eltum vinnuaðferðum og verk- færum. Þjóðernissinnar halda því fram, að verkmenningu þjóðarinnar muni ekki fara verulega fram fyrr en hún fær fullt frelsi og benda þeir á er- lenda reynslu því til sönnunar. Bretar benda hinsvegar á, að allmiklar verklegar framfarir hafi dafnað undir stjórn þeirra og hafi Indverjar margt af þeim lært. Þess eru mörg dæmi, að upp- skerubrestur hafi valdið hung- ursneyð í Indlandi, en þó er talið, að hungursneyðin í Bengal sé sú mesta, er orðið hef- ir í Indlandi síðan um aldamót. Krýsuvíkurleiðin er uæstum snjólaus. (Framh. af 1. síðu) vegur muni kosta um 5 milljón- ir kr. með núgildandi verðlagi. Kom fram í þessari ferð sú rödd, að nauðsyn bæri til, að þessari vegalagningu yrði lokið þegar á næsta sumrij ella sumarið 1945. Þótt þessi vegalagning sé dýr, er áreiðanlega miklu dýr- ara fyrir alla aðila að búa við samgöngur, sem allsendis eru ófullnægjandi á fjölfarinni leið. Á Krýsivíkurvegi var byrjað árið 1936. Var unnið að honum í þrjú ár og varið til hans um 750 þúsund krónum. Rannsókn á breyt- ingum fiskiskipa (Framh. af 1. síðu) Max Pemberton, til þess að leit- ast við að finna orsök að hvarfi skipsins. Var þess óskað, að aflað verði m. a. skýrslna um: 1. Hvort breytingar hafi verið gerðar á skipinu, sem hafi rýrt það sem sjóskip, og sér- staklega hvort breytingar hafi verið gerðar á fiskirúm- um skipsins, sem leitt gætu til ofhleðslu þess. 2. Hvort loftvarna- og björgun- arútbúnaður skipsins hafi verið þannig, að ætla megi, að hann hafi gefið skipinu óeðlilega yfirvígt, og 3. að sjódómur láti fara fram próf í síðustu höfn, er skipið kom á, til þess að fá upplýst um hleðslu þess þá — og annað, sem máli mætti skipta. Jafnframt, og í’ þessu sam- bandi, hefir ráðuneytið óskað, að sjódómur Reykjavíkur at- hugi og leiti skýrslna um, hvern- ig ástatt er með íslenzka togara og önnur fiskiskip, sem sigla milli landa, hvað snertir breyt- ingar gerðar á þessum skipum, með tilliti til þess, sem fram- tekið er hér að ofan undir atriði 1. og 2. Ennfremur og alveg sérstak- lega óskar ráðuneytið þess, að rannsókn sé gerð á því,.hvernig hleðslu þessara skipa hefir ver- ig og er háttað í veiðiferðum og millilandasiglingum, — með til- liti til öryggis skipanna. Ráðuneytið hefir lagt mikla áherzlu á, að athugun þessi fari fram sem allra fyrst, og til þess að svo geti orðið og sem beztui' árangur náist, hefir það talið sjálfsagt, að sjódómurinn fái sér til aðstoðar sérfræðinga og kunnáttumenn, svo sem þurfa þykir. Að lokinni rannsókn verður ráðuneytinu gefin skýrsla um niðurstöður hennar og verða þá gerðar þær ráðstafanir, sem rannsóknin kann að gefa til- efni til. ÁskriftaPííiakl Tímans utan Rvíkur uig Hafnarfjarðar er kr. 30.00 árgangurinn. Vinniff ötúUega fyrir T ímanm,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.