Tíminn - 16.03.1944, Page 2
114
TÍMIW. flmmtudagiim 16. marz 1944
28. blað
‘gftmirm
Fimtudafiur 16. marz
„Stríðið eftír stríðíð“
í löndum Bandamanna er nú
engu minna rætt um vanda-
máln eftir styrjöldina en styrj-
aldarreksturinn sjálfan. Þau
eru af mörgum talin enn tor-
leystari og erfiðari viðfangs en
sjálf styrjaldarmálin. Þar koma
sérsjónarmið og stéttahags-
munir miklu meira til greina.
Það er því ekki orðið óalgengt,
þegar rætt er um lausn þessara
mála, að tálað sé um „stríðið
eftir stríðið“. í einu af seinustu
kvæðum sínum, biður Nordahl
Grieg þess, að þjóð hans fái
„afl til að þola frið“.
Öll merki benda því miður til
þess, að hér sé ekki um ástæðu-
lausan ótta að ræða. Reynzlan
eftir seinustu heimsstyrjöld
bendir eindregið til þess, að
•næsti friður verði lítið meira en
hlé milli þátta, ef ekki verður
tekin upp ný skipan, ekki aðeins
í milliríkjamálum, heldur einn-
ig í innbyrðismálum þjóðanna.
Fjárhagslegt öngþveiti og at-
vinnuleysi átti ríkan þátt í til-
veru þýzka nazismans. Harð-
svírug auðvaldsklíka í Frakk-
landi skapaði þau miklu stétta-
átök, er áttu stærstu hlutdeild-
ina í ósigri Frakka. Skipulags-
leysi frjálsu samkeppninnar í
Bretlandi, ásamt tilheyrandi
stéttabaráttu og atvinnuleysi,
gerði Breta vanmáttuga í tafli
heimsmálaiina og illa búna
undir *styrjöldina. Þetta, auk
margs annars, hefir sýnt öllum
hugsandi mönnum, að ekki
sízt innanlandsmálin, verð-
ur að taka nýjum og haganlegri
tökum en áður. Það þarf að
skapa hverju þjóðfélagi fast-
mótað, markvisst hagkerfi í stað
skipulagsleysis samkeppninnar,
útrýma óeðlilegum lífskjara-
mun stéttanna og tryggja öll-
um atvinnu og sæmilega af-
komu. Með þessum hætti einum
verður hægt að uppræta öfga-
stefnur, sem geta leitt þjóðirnar
á eyðileggingarbál nýrrar styrj-
aldar.
Til þess að koma þessu í kring,
verður ekki hjá því komizt, að
þrengja að mun sérréttindi og
gróðamöguleika yfirstéttanna.
Stór hluti þeirra mun ekki skilja
köllun tímans, heldur mun þver-
skallast gegn öllum félagslegum
umbótum. Þessi hluti hennar
mun ekki hlífast við að beita
hinum grimmilegustu örþrifa-
ráðum til að halda í hinn rang-
fengnu hlut sinn. Þótt styrjöld-
in sé háð gegn fasisma, mun
hann hvergi nærri dauður í
stríðslokin. Hann mun einmitt
þá skjóta rótum í löndum
Bandamanna og verða þar til-
tölulega öflugri en nokkuru
sinni fyrr, vegna þeirra félags-
legu umbóta, sem auðvalds-
stéttin og bandamenn hennar
fjandskapast við.
Jafnhiða og fasisminn mun
þannig færast í aukana, mun
öfgastefnan lengSt til vinstri,
kommúnisminn, magna áróður
sinn um allan helming og nota
víggengi Rússa sér til stuðn-
ings. Á sama hátt og fasistisku
auðmennirnir munu boða „heil-
agt“ stríð og samfylkingu til
þess að berja niður kommún-
ismann, munu kommúnistar
flytja svipaðan boðskap um að
berja niður fasismann. Báðar
stefnurnar telja sér hag í því, að
þessi heróp verði svo sterk, að
menn skiptist aðeins í tvær
fylkingar, fasistafylkinguna og
kommúnistafylkinguna.
Eigi ekki að verða mörg stríð
eftir þessa styrjöld eða réttara
sagt borgarastríð í mörgum
löndum, þá verður það því að-
eins, að umbótamennirnir fylki
sér svo vel saman og myndi svo
trausta og öfluga fylkingu, að
öfgahreyfingarnar sitt til hvorr-
ar hliðar megi sín lítils eða ein-
skis. Þetta sjónarmið er ráðandi
meðal Breta og samveldisþjóða
þeirra og svipað má tvímæla-
laust fullyrða um Norðurlanda-
þjóðirnar. Björgun heimsfrið-
arins mun m. a. byggjast á því,
að fordæmi þessara þjóða vísi
veginn um hina gifturíkustu
lausn málanna.
Hér á landi mun gæta allra
Ární G. Eylandss
HeyJmrkunaritöðYar
rekitur þeirra
og
I 127. tölubl. Tímans, 21. des.
1943, birtist grein, Nýjungar í
heyvinnSluaðferðum, eftir Jó-
hannes Bjarnason vélaverkfræð-
ing, er menntazt hefir í Vestur-
heimi og enn dvelur þar.
Grein þessi hefir vakið um-
tal um hið gamla vandamál,
heyþurrkunina. í tilefni af
henni hafa mér borizt nokkrar
fyrirspurnir þar að lútandi,
bæði skriflega og munnlega,
og er meðal annars spurt, hvers
vegna Verkfæranefnd ríkisins
sinni þessu máli ekki, hvort
hún taki ekki málið til athug-
unar og hefji tilraunir á næsta
sumri, o. s. frv. Á Alþingi hefir
komið fram þingsályktunartil-
laga um að fela ríkisstjórninni
að láta gera tilraunir um vél-
þurrkun á heyi, og er í greinar-
gerð, er tillögunni fylgir, gert
ráð fyrir að hefja framkvæmdir
„um prófun hinna nýju hey-
þurrkunaraðferða á íslenzku
heyi“ á sumri komandi.
Að þessu athuguðu er senni-
lega ekki úr vegi að ræða þetta
mál nokkuð, upplýsa í nokkrum
atriðum, hvernig er ástatt um
vitneskju um vélþurrkun heys
og hvers vegna hægt hefir verið
farið, bæði af Verkfæranefnd
og áhugamönnum nú undan-
farið, um það að eggja til til-
raunaframkvæmda á þessu sviði.
II.
Þau lönd, sem líklegast er að
fá frá gagnlegar upplýsingar og
þekkingu á vélþurkun heys, eru
Bandaríkin, England, Þýzkaland
og Svíþjóð. í öllum þessum lönd-
um hefir verið mikið við þetta
mál fengizt og stríðsárin hafa,
að minnsta kosti í þremur síð-
astnefndu löndunum, ýtt mjög
undir framkvæmdir, þó líklega
hvergi frekar en í Svíþjóð.
Áður en stríðið skall á höfðu
sænskir fræðimenn unnið all-
mikið að því að rannsaka mögu-
leika til þess að nota vélþurrk-
un við sænsk skilyrði og sam-
ræma hana sænskum búnaðar-
háttum. Árið 1938 sendu þeir 2
færustu menn sína, á þessu
sviði, út af örkinni, að kynna
sér rækilega allt, sem gert hefði
verið á sviði vélþurrkunarinnar
í Englandi, Þýzkalandi, Hollandi
og Danmörku. Að sjálfsögðu
öfluðu þessir menn einnig fullra
upplýsinga um vélþurrkun heys
í Ameríku, þótt ekki færu þeir
þangað í það sinn, en annar
þeirra hafði fáum árum áður
kynnt sér ameríska tilrauna-
starfsemi mjög ýtarlefa og dval-
ið vestra í þeim erindum.
Er stríðið skall á, veitti
sænska þingið án tafar 2 millj.
kr. til útlána, til þess að létta
undir að heyþurrkunarstöðvar
yrðu byggðar, og mun um það
hafa verið farið mjög að ráðum
hinna umræddu tvímenninga og
byggt á rannsóknum þeirra og
greinargerðum. Sumarið 1939
voru vélþurrkaðar 3300 smálest-
ir af heyi í Svíþjðð í 13 hey-
þurrkunarstöðvum. Hvað stöðv-
unum hefir fjölgað síðan og af-
þessara þriggja stefna um lausn
framtíðarmálanna. Fasisminn
eða Lappómennskan er byrjuð
að skjóta rótum. Kommúnist-
arnir reyna að notfæra sér það
eftir megni í áróðri sínum.
En meginþorri þjóðarinnar vill
áreiðanlega ekki fasisma eða
kommúnisma, heldur umbóta-
leiðina. í þeirri fykingu eru liðs-
menn Framsóknarflokksins og
Alþýðuflokksins og stærstur
hlutinn af liðsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins og Sósíalista-
flokksins. Það, sem aðeins þarf,
er að vinna að því, að þetta fólk
taki höndum saman. Það verð-
ur að gerast fyrr en síðar, ef
kommúnismanum og hinni upp-
vaxandi Lappómennsku, er m. a.
hefir haldið innreið sína í for-
ustugreinar Vísis, á ekki að
takast að skapa „stríð eftir
stríðið" á íslandi.
Þ. Þ.
köstin aukizt, er mér ekki full-
kunnugt.
Þetta, sem hér hefir verið
sagt, sannar nokkuð það, sem
alveg mun vera óhætt að full-
yrða, að hvergi er eins auðvelt
og aðgengilegt fyrir okkur að fá
ýtarlegar upplýsingar um vél-
þurrkun heys, eins og í Svíþjóð,
þegar þangað opnast leiðir,
upplýsingar og reynslu, sem
helzt yrði við okkar hæfi. Ekki
svo að skilja, að ekki megi nota
reynslu annarra þjóða fengna
beint frá þeim, t. d. frá Banda-
rikjamönnum, en í Svíþjóð mun
nú samandregin mjög víðtæk
reynsla og þar hefir af eðlileg-
um ástæðum verið glímt við að
samræma aðferðirnar skilyrð-
um, sem eru stórum líkari því,
sem hér getur til mála komið,
heldur en amerísk skilyrði eru.
Það mun því vera nokkuð sam-
hljóða álit þeirra manna hér á
landi, sem bezt hafa reynt að
fylgjast með því, sem gerist á
sviði vélþurrkunarinnar, að vart
komi til mála að stofna hér til
verulegra framkvæmda á þessu
sviði, þó ekki sé nema með til-
raunasniði, fyrr en stríðinu lýk-
ur og auðið verður að ná til og
styðjast við þá þekkingu, er
gagnbezt má verða fyrir okkur,
og þá líklega fyrst og fremst
þekkingu og reynslu Svíanna.
legri merkingu sé að ræða. At-
hugum það, að um 60% af hey-
inu, sem látið var í tilrauná-
hlöðuna, var það vel þurrt, að
við teljum það viðunandi þurrt
og hirðum slíkt hey án hiks, að
minnsta kosti þegar erfiðleika
gengur með heyþurrkun. Ekk-
ert áf heyinu, sem sagt er frá, að
látið væri í hlöðuna, var blautt,
allt var það hálfþurrt og meira
en það.
Með því að benda á þetta, er
á engan veg verið að gera lítið
úr þessu umrædda úrræði, til
þess að tryggja góða fullverk-
un snöggþurrs og hálfþurrkaðs
heys. En það má allt ekki blanda
þessu saman við hið erfiða úr-
lausnarefni að þurrka töðuna
af ljánum í óþurrkatíð. Þá
vandast málið.
Að sjálfsögðu er ekkert því til
fyrirstöðu, að gera hér tilraunir
með hina umræddu amerísku
aðferð strax á næsta sumri, er
Jóhannes Bjarnason kemur
heim, því hún er sem sagt í
rauninni ekki í neinu sambandi
við hina eiginlegu vélþurrkun
og á því ekki frekar en vill
samleið með frekari tilraunum
á því sviði. í sambandi við þetta
vil ég vekja máls á því, að ef
hefja skal framkvæmdir og
reyna að þurrka hey í hlöðu með
því að blása gegnum það óupp-
IV.
Hvaða líkur eru svo til þess
að við getum notfært okkur vél-
þurrkun með hituðu lofti, er hit-
að sé með rafmagni, olíu eða
kolum?
Það hefir verið bent á það
margsinnis, að í raun og veru
er enginn tekniskur vandi að
vélþurrka hey, að vissu leyti
ekki meiri vandi heldur en t. d.
að þurrka síldarmjölið í síldar-
mjölsverksmiðjunum, Það sem
um er að ræða, er aðallega hvað
þurrkunin kostar og hvort hrá-
efni það, sem um er að ræða,
getur borið kostnaðinn.
Fram að stríðinu var það
þannig, að vélþurrkun heys var
af þessari ástæðu hartnær ein-
göngu miðuð við það að þurrka
sérstaklega verðmætt fóður, t.
d. lúsernur og smára, en um hitt
var varla hugsað, að þurrka hey
— töðu — upp og ofan, hvað þá
úthey. Sú breytii^g, sem síðar er
á orðin, eftir því sem bezt verð-
ur vitað, sérstaklega í Svíþjóð
(og Englandi), er aðallega í þá
átt, að nú er meira um það
hugsað, en áður var, að þurrka
mjög snemmslegið gras —
blending af belgjurtum og gras-
tegundum — eins og gerist á
góðum akurtúnum. Þetta er
mjög athyglisvert fyrir okkur,
því innlendar rannsöknir sýna,
að mjög snemmslegið íslenzkt
töðugras stendur ekki að baki
tilsvarandi túngróðri erlendis,
þótt smáraríkur sé. Ennfremur
sýnir þetta, að þegar um eigin-
lega vélþurrkun er að ræða,
veldur hið íslenzka gróðurfar
— þétt gras og stutt, er fellur
mjög saman meðan það er ný-
slegið og blautt — engum sér-
stökum erfiðleikum við þurrk-
unina, samanborið við erlendan
'
Heyþurrkunarstöð í Danmörku. Þýzk gerð.
Heyþurrkunarstöð í Hollandi. Pehrsons-gerð.
III.
Þá skal vikið að grein Jó-
hannesar Bjarnasonar í Tíman-
um 21. des. s. 1. og tilrauna-
þurrkun þeirri, er hann segir
þar frá. Þar er 1 raun og veru
um allt annað að ræða, en þá
vélþurrkun, sem vanalega er
rætt um. Með vélþurrkun heys
er venjulega átt við þurrkun
heys með upphituðu lofti, mis-
munandi heitu, frá 80° C., eða
jafnvel minna en það, og upp
í fleiri hundruð gráður, jafn-
vel allt upp í 900° C. í tilrauna-
hlöðum þeim, er J. B. segir frá,
er heyið þurrkað með óupphit-
uðu lofti, venjulegu lofti, sem
ekki hefir annað né hærra hita-
stig, en andrúmsloftið á þeim
stað, sem unnið er. Heyið er
þurrkað með því að blása nógu
stríðum straum af slíku lofti
gegnum það í hlöðunni. Þetta er
aðferð, sem mér er ekki kunn-
ugt um, að hafi verið reynt í
verulegri framkvæmd neins
staðar á Norðurlöndum, að
minnsta kosti mun hún ekki
hafa komið til hagnýtra fram-
kvæmda, og ég held jafnvel, að
til þessa hafi alls ekki verið tal-
ið líklegt að slík vélþurrkun
væri framkvæmanleg til nytja,
viðiþau skilyrði, sem mestu máli
skipta í þessum löndum, þ. e.
votviðratíð og vatnsmikið gras.
Hin ameríska tilraun, sem
sagt er frá, ber einnig með sér,
að í því tilfelli, sem þar er nefnt,
er í raun og veru frekar um það
að ræða að verjast því að snögg-
þurrt og illa þurrt hey skemmist
í hlöðu — mygli, eða að það
hitni í því til óbóta — heldur
en að um heyþurrkun í venju-
hituðu lofti, er mjög æskilegt
að þær tilraunir nái einnig til
nokkurra annara atriða, er
miklu máli skipta við heyhirð-
ingu almennt, atriða sem því
miður er allt of litill gaumur
gefinn, svo að jafnvel hefir mjög
stefnt til hins verra á því sviði
hin síðari ár. Okkur vantar al-
veg rannsóknir, er sýni hvern-
ig hlöðurnar eiga helzt að vera
til þess að hey verkist vel í þeim
og sem hættuminnst sé að hirða
í þær linþurrkað hey. Eftir að
steinsteypa varð aðalbygging-
arefni á landi hér, hefir, um
hlöðubyggingar, mjög stefnt til
þess að byggja breiðar og djúp-
ar hlöður, og er það alkunnugt,
að fjöldinn allur af þessum
hlöðum, jafnvel þar sem ekkert
hefir verið til sparað, hafa
reynst hinir mestu gallagripir,
sumar sannkölluð háskahús.
Þótt margir bændur hafi hagað
hlöðubyggingum sínum eftir
geðþótta, er einnig þannig á-
statt, að opinberar stofnanir,
fyrst og fremst Byggingar- og
landnámssjóður, hafa haft mik-
il afskipti af útihúsabyggingum
bænda, án þess að leysa á nokkr
urn hátt þetta vandamál, hvern-
ig sé hentugast að byggja hlöð-
urnar. Það, sem þarf að rann-
saka, er fyrst og fremst hvað
hentar að hafa hlöðurnar breið-
ar, eða hvað mega heystæðurn-
ar vera breiðar í þeim og hve
hátt má hlaða heyinu, til þess
að bezt verkun fáist. Þetta o. fl.
þar að lútandi eru atriði, sem
vel hentar að rannsaka samtím-
is því að reyna súgþurrkun með
loftdælum, eins og J. B. skýrir
frá að farið sé að nota í Ame-
ríku.
túngróður. Það er síður en svo,
að það sé hávaxið og gróft gras,
sem helzt er vélþurrkað erlendis,
og ef um slíkt gras er að ræða,
er það oft brytjað í vélum,
áður en það er þurrkað, til þess
að gera það smágerðara.
Sá misskilningur gerir mjög
oft vart við sig, þegar rætt er
um vélþurrkun heys, að gert er
ráð fyrir heyþurrkunarvélum,
er hægt sé að setja upp og nota
á einstökum býlum, með meðal-
heyskap, eða jafnvel færanleg-
um vélum, er flyta megi bæ frá
bæ um sláttinn. Að sönnu er hér
um vélar að ræða, eða öllu held-
ur vélasamstæffur, en þetta eru
stórar vélar, settar upp og kom-
ið fyrir á þann hátt, að réttast
er að tala um heyþurrkunar-
stöffvar eða heyþurrkunarverk-
smiffjur.
Fyrir stríð var ekki hægt að
koma upp minnstu gerð af hey-
þurrkunarstöðvum fyrir minna
en ca. 25 þús. krónur, „meðal-
stórar“ stöðvar voru taldar kosta
'í |j|gð||||||j " ""yp,' ’l," ’ ——"
rúml. 100 þús. kr. og stærri
stöðvar 300—340 þús. krónur.
Þá er talið í Svíþjóð, að stórbýli,
sem ætluðu að koma sér upp
heyþurrkunarstöðvum eingöngu
fyrir eigin rekstur, þyrftu, ef vel
ætti að vera, að hafa 300—400
ha. af akurlendi. Árið 1940 segir
hinn kunni sænski próf. Hugo
Osvald því á þá leið, að almenn
úrlausn á sviffi vélþurrkunar-
innar verði að ske á einhvern
annan hátt en þann, sem fært
hefir reynzt með þeim vélum,
sem þá voru kunnar, reyndar
og notaðar. Því miður er ekki
vitað annað en að enn sitji við
hið sama í þessu efni. Ef enn
er ekki völ á vélum, er geri fært
að byggja minni heyþurrkunar-
stöðvar en þær, sem fyrir stríð
kcfstuðu að minnsta kosti 25 þús.
kr. segir sig sjálft, að með nú-
verandi verðlagi kemur slíkt
ekki að neinum almennum not-
um sem einstaklingsrekstur.
Stórbýli, er slíku valda, eru eng-
in hér á landi. Fyrir utan vél-
þurrkun á stórbýlum hefir mál-
ið erlendis bæði verið leyst á
samvinnugrundvelli og á þann
hátt, að um einskonar verzlun-
arrekstur hefir verið að ræða.
í Danmörku eru t. d. nokkrar
heyþurrkunarstöðvar með sam-
vinnusniði. Bændur í þéttbýli
slá sér saman um eina stöð,
setja sér sameiginlegar reglur
um ræktun belgjurtagróðurs á
búum sínum. Heyþurrkunar-
stöffin sér um slátt og flutning
hins nýslegna grass að stöðinni
og þurrkun þess, en bændur fá
aftur þurrkað hey eða heymjöl
heim til sín fyrir kostnaðarverð.
Á öðrum stöðum eru hey-
þurrkunarstöðvar reknar sem
hlutafélög og verzlunarfyrir-
tæki. Stöðin gerir samning við
bændur um ræktun heppilegra
fóðurjurta og kaupir uppskeruna
af þeim á rót eða nýslegna o. s.
frv. Óálitlegt þykir að flytja
grasið lengra að en 5—6 kíló-
metra, enda sé megnið af því
grasi, er þurrka skal, miklu nær
stöðinni.
Heyþurrkunarstöðvar með
samvinnusniði eru hugsanlegar
hér á landi, en þó vart nema
um breytta ræktunarhætti sé
að ræða á þeim býlum, er hlut
ættu að máli, sérstakt fyrir-
komulag á túnrækt og mörgu
þar að lútandi. Sökum þess hve
stöðvarnar eru dýrar, þarf að
vera hægt að halda uppi stöð-
ugum rekstri þeirra sem lengst
árlega, er oft reiknað með 1600
rekstursstundum á ári, en það
svarar til 9—10 vikna reksturs
dag og nótt.
Ef það er athugað, hve mikil
og góð ræktun þarf að vera fyrir
hendi, á litlu svæði, til þess að
hægt sé að reka fullkomna hey-
þurrkunarstöð á arðbæran hátt,
kemur berlega í ljós, að til þessa
hefir ekki verið um þá aðstöðu
að ræða á neinu búi eða búum
hér á landi.
V.
Af því sem nú hefir verið
nefnt, mun Ijóst vera, að ekki
kemur til mála, þó ekki sé nema
vegna fjárhagshliðar málsins, að
„reyna“ hér á landi eða stofna
til tilrauna með fleiri mismun-
andi gerffir af þeim heyþurrk-
unarvélum, sem margreyndar
eru erlendis og teknar hafa ver-
ið þar í notkun, enda gerist þess
lítil þörf. Því síður kemur til
mála að fara að reyna hér vél-
ar, sem ekki eru taldar full-
reyndar erlendis. Þegar til þess
kemur, að reisa hér hina fyrstu
heyþurrkunarstöð eða stöðvar,
ber að leggja til grundvallar
fullkomna faglega athugun á
því hver af þeim aðferðum og
vélum, sem bezt hafa reynzt er-
lendis, sé vænlegust til notkun-
ar hér á landi miðað við stað-
(Framh. á 3. síSu)
Heyþurrkunarstöð í Danmörku. Dönsk gerð. Þessi stöð kostaði um 55 þús-
und krónur, fyrir stríð.