Tíminn - 15.04.1944, Page 3
38. blað
TlMlM, laagardagiim 15. apríl 1944
155
Nýtt lýdrœði
(Framh. af 2. síðu)
á því marka, að mönnum var
ljóst, að hér var að gerast stjórn-
málaatburður, sem var líklegur
til að verða vísbending um kom-
andi ár. Úrslitin sýndu, að þessi
athygli hafði ekki verið tilefnis-
laus. Hinn aðalborni íhaldsmað-
ur féll og óháði, óbreytti alþýðu-
maðurinn var kosinn á þing með
talsverðum meirahluta.
Skýringin á þessum úrslitum
var ekki nema á eina leið:
íhaldsmaðurinn hafði ekki ann-
að stefnumál en að vinna stríð-
ið og hverfa aftur til hinna
„góðu, gömlu daga“. Alþýðu-
maðurinn talaði máli hins nýja
lýðræðis, um aukið efnalegt ör-
yggi allra, um útrýmingu á at-
vinnuleysi og misskiptingu auðs
ins, um afnám á skipulagsleysi
frjálsu samkeppninnar, sem yrði
leyst af hólmi með skipulögðum
þjóðarbúskap. Hann túlkaði
hug og óskir fólksins. Þess vegna
vann hann kosninguna.
í næstum öllum aukakosning-
um í Bretlandi á þessu ári hafa
úrslitin orðið á svipaða leið.
úrambjóðendur íhaldsins hafa
ýmist fallið eða náð kosningum
með örlitlum meirahluta, þrátt
fyrir stuðning hinna þjóð-
stjórnarflokkanna og hinar
miklu persónulegu vinsældir
Churchills.
Þessi stjórnmálaþróun er ekk-
erf sérkennandi fyrir Bretland,
heldur öll samveldislönd þeirra,
þótt hvergi hafi það komið
gleggra í ljós en í Kanada. í
hinum hernumdu löndum Ev-
rópu virðist allt benda í sömu
átt.
Lýðræði hinnar frjálsu sam-
keppni er hrunið. Lýðræði og
auðkýfingar geta ekki farið
saman, þegar til lengdar lætur.
Ekkert nema fasisminn getur
bjargað auðkýfingastéttinni frá
hruni, eins og líka sýndi sig víða
fyrir styrjöldina. Eftir styrjöld-
ina verður ekki um nema þrjá
vegi að velja, fasismann, komm-
únismann eða hið nýja lýðræði,
sem leggur engu minni áherzlu
á efnalegt jafnrétti en jafnan
kosningarétt. Hið efnalega jafn-
réttí eitt getur skapað þá á-
byrgðartilfinningu, sem er
grundvöllur heilbrigðs þjóðfé-
lags. Hvorki öreiginn eða auð-
kýfingurinn hefir þá ábyrgðar-
tilfinningu, er einkennir bjarg-
álnamanninn. Öreiginn finnur
ekki til þess að hann hafi nein-
ar skyldur og auðkýfingurinn er
fullkomlega ábyrgðarlaus í tak-
markalausri eyðslusemi sinni og
fjársóun, eins og hin dýra
veizla Þangbrandar í Fiskhöll-
inni sannar bezt.
'Hér á íslandi verður um þess-
ar þrjár leiðir að velja eins og
A N N A L L
AfmælL
Guðmundur Guðmundsson
bóndi í Núpstúni í Hruna-
mannahreppi, átti fimmtugsaf-
mæli 6. des. í vetur. Og þykir
mér leitt að hafa ekki vitað fyr
um það en nú. Betra seint en
aldrei, segir máltækið.
Guðmundur er góður bóndi og
þekktur fjárræktarmaður. Hef-
ir hann um margra ára skeið
ræktað eitthvert hið bezta fé,
sem til er hér á Suðurlandi.
Það er mikið útbreitt um Suð-
urland, og þekkt að ágætum. Ég
tel það ómetanlegt gagn, sem
Guðmundur hefir unnið á því
sviði.
Guðmundur er einnig hesta-
maður mikill, og hefir mikið
yndi af ferðalögum á hestum, og
fer þá mikinn á gæðingum sín-
um, enda munu fáir jafnast á
við hann, hvað hestakost
snertir.
Guðmundur er léttlyndur og
gleðimaður hvar sem hann er
í kunningjahópii, og hjúasæll
er hann, svo orð fer af. Enda
hefir sá reynt^ sem þetta ritar,
að betri húsbónda getur ekki.
Á yngri árum sínum var hann
góður og fjölhæfur íþróttamað-
ur, enda fylgdist hann vel með
þeim málum.
Guðmundur er kvæntur Sig-
ríði Guðmundsdóttur Ófeigs-
sonar frá Fjalli á Skeiðum, og
eiga þau tvo syni.
Á myndinni sézt Guðmundur
á Skolla sínum, afburða hesti
að fjöri og fegurð.
Ég þakka þeim hjónum fyrir
góðu og gömlu árin, sem ég átti
hjá þeim, og bý alltaf að.
Ég óska þeim langrar og
bjartrar framtíðar. Heill ykkur.
Kunnugur.
annars staðar í heiminum. Ef
fasisminn eða kommúnisminn
eiga ekki að sigra, verða allir
umbótamenn landsins að fylkja
sér í eina miðfylkingu, er tryggi
sigur hins nýja lýðræðis.
Þ. Þ.
„Pétur Gautur“
(Framh. af 2. síðu)
veigarsöngur er sunginn að
tjaldabaki.
Alda Möller leikur grænklæddu
konuna, dóttur Dofra konungs.
Hlutverk hennar er ekki stórt
en afar vandasamt. En það er
svo snilldarlega af hendi leyst,
að naumast verður á betra
kosið.
Hin smærri hlutverk eru all-
flest vel af hendi leyst og sum
ágætloga. Sérstaklega er hnit-
miðaður leikur Jóns Aðils í hlut-
verki föður Sólveigar og Lárus-
ar Ingólfssonar í hlutverki brúð-
gumans. Tómas Hallgrímsson
gerir beignum góð skil.
Lárus Ingólfsson hefir málað
leiktjöldin og ráðið gerð bún-
inga. Ber hvorttveggja vott um
mikið listfengi.
Að leikslokum voru leikstjóri,
hljómsveitarstjóri og leikendur
hylltir svo ákaflega, að sjald-
gæft mun vera hér. Leikhúsgest-
ir gerðu sér þegar ljóst, að hér
hafði verið stigið djarft og
merkilegt spor til eflingar leik-
listarmenningunni í landinu-.
Fylgízt með
Allir, sem fylgjast vilja með
almennum málum, verða að lesa
Tímann.
Gerist áskrifendur, séuð þið
það ekki ennþá. Simi 2323.
Auglýsið í Tímairam!
»Fögur er hlíðín«
(Framh. af 3. síðu)
hins dýra málms gæti þá
spunnið fjötra ómenningar og
nautnasýki, svo að hið gullna
gjald, er verða mátti aflvaki
aukinnar menningar, yrði leik-
soppur eyðslunnar á furðu-
ströndum hinna skammsýnu
manna. En sérstaklega mega
þeir, sem vinna að framgangi
skógræktarmálanna, minnast
hinna sígildu orða Klettafjalla-
skáldsins:
Að reikna ekki í árum, en öldum
að alheimta ei daglaun
að kvöldum —
með því lengist mannsævin
mest.
Munum að ræktun lýðs og
lands er hin bezta trygging, er
hið unga þjóðveldi getur haft
fyrir framtíð sinni, og mun
skógræktin hasla sér víðan völl
á þeim vettvangi.
Rangæingar! Leggjum hönd
á plóginn og hrindum skógrækt
í héraðinu áleiðis, og munu þá
hinar ungu hendur framtíðar-
innar bera það mál fram til
sigurs.
Aðsendar greínar
berast mjög margar til Tím-
ans. En vegna þess hve rúm
blaðsins er takmarkað, en marg-
ar greinarnar langar, þá eru það
vinsamleg tilmæli til þeirra,
sem senda Tímanum greinar,
að hafa þær eins stuttar og
gagnorðar eins og menn sjá sér
fært.
Knúts saga Rasmussens
FRAMHALD
Það var víst ekki alltaf tekið út með sældinni að vera móðir
Knúts. Á ferðum sínum í hús Eskimóanna fékk hann iðulega
á sig lús, „grákollur“, eins og þær hétu á máli móður hans. Þá
var hann tekinn og kembdur og þveginn frá hvirfli til ilja. En
slíkt var honum ærið óljúft, og voru sjaldnast önnur úrræði
fyrir hendi heldur en beita valdi við hann.
Skammt frá Jakobshöfn er byggð, sem Eskimóar nefna Igdlu-
míút. Þar áttu sumir beztu vinir Knúts heima, og á þeirra
náðir leitaði hann oft, þegar honum þótti aginn strangur heima
fyrir. Þar komst hann stundum á sjó með fiskimönnum, og það
þótti honum eigi síður gaman en að aka hundasleða á vetrum.
*
Margar skrítlur gengu meðal Eskimóanna, sem hentu jafnan
gaman að skringilegum atvikum og héldu spaugilegum sögum
mjög lofti. Lærði Knútur því snemma að meta græskulaust
gaman og varð fljótt glöggskyggn á það, sem sérkennilegt var í
fari náungans. Faðir hans var einnig gamansamur maður. Eitt
smn var ungur aðstoðarprestur sendpr honum, og skyldi hann
læra hjá honum tungumál áður en hann tæki við embætti. Þessi
ungi verkamaður í víngarði drottins var vel að sér um allt,
sem himneskt var, eri á jörðu niðri var hann eiginlega ekki
heima hjá sér. — Á þessum tímum voru afturhlaðningar að
byrja að flytjast til Grænlands, en voru fyrst í stað einungis
seldir hvítum mönnum. Eskimóarnir urðu lengi vel að láta
sér lynda framhlaðningana, þótt völ væri á fullkomnari skot-
vopnum. Ungi presturinn heyrði fólk tala um þessar nýju byssur
og orðræður þess vöktu forvitni hans. Honum datt í hug að
spyrja séra Kristján, hvaða munur væri á framhlaðningi og
afturhlaðningi. Hann hafði skoðað þessar tvær gerðir skotvopna
og engan mun getað séð á þeim.
„Já, hvaða munur er á framhlaðningi og afturhlaðningi —
það skal ég segja þér,“ mælti séra Kristján. „Munurinn er sá, að
í framhlaðninga eru höglin látin framan við púðrið, en í aftur-
hlaðninga aftan við það.“
Ungi presturinn kinkaði kolli: jú, nú skildi hann mætavel,
hvaða múnur væri á framhlaðningi og afturhlaðningi. En sagan
flaug byggð úr byggð og er jafnvel sögð enn þann dag í dag
í Grænlandi.
Jakobshöfn er meðal annars frægur bær sökum sökum hvít-
hvalaveiðinnar, sem þar er stunduð. Hvíthvalirnir koma í torf-
um upp að landi á eftir heilagfiskinu, sem leitar á vissum tímum
árs upp á grunnin utan við Jakobshöfn. Hvíthvalirnir eru skutl-
aðir frá kajökum, og er það hið mesta vandaverk, sem aðeins
hinir leiknustu veiðimenn eru færir um. Duglegustu veiðimenn-
irnir á þessum slóðum bjuggu í Igdlumíút, og voru þeir ótaldir
hvíthvalirnir, sem þeir urðu að bana.
Það er æfaforn siður meðal Eskimóa, að dýr, sem veiðast í
sjó, séu sameiginleg eign allra byggðarmanna. Veiðimaðurinn
sjálfur fær aðeins lítinn aflahlut. Þessar reglur eru þó ekki ná-
kvæmlega eins í öllum byggðum. í Jakobshöfn var það siðvenja,
að allir máttu ráðast að hvíthvalaskrokkunum og skera úr þeim
eins stór flykki og þeir gátu, þegar veiðimaðurinn hafði hirt
aflahlut sinn. í þessu tóku konur og börn þátt jafnt sem karlmenn.
Og vitanlega lét Knútur sig ekki vanta í hópinn. Að sjálfsögðu
var móður hans ekki gefið um þetta, en vitaskuld gleymdi hann
þvi í gleði og æsingu þeirrar stundar, er nýr hvíthvalur var dreg-
inn á land. Þegar hann kom heim, löðrandi í blóði og hvalfeiti
frá hvirfli til ilja, gátu foreldrar hans sjaldnast á sér setið að
hrósa honum fyrir dugnaðinn og kappið.
Þegar mikil hvíthvalaveiði var, efndu Eskimóarnir til átveizlna.
Var í veizlum þessum étið matak, en svo nefnist hvíthvalahúðin.
Er matakið skorið niður í litla bita og gleypt hálftuggið. Þykir
það hið mesta sælgæti.
í þessum átveizlum voru jafnan sagðar sögur frá fyrri tímum.
Við sérhvern stað í byggðum Eskimóa er tengd einhver sögn eða
söngur. í hverri vík og við hvern höfða hafði gerzt einhver sá
atburður, sem í minnum var hafður. Við Sermíút var til dæmis
gjá, sem trylltu fólki, gamalmennum, öryrkjum og börnum, sem
misst höfðu forsjármenn sína, var varpað í til forna. Knúti varð
illa við, er hann heyrði þessa sögu í fyrsta skipti. Það var í einni
matak-veizlunni. Honum flaug í hug, að amma hans var eitt
smn umkomulaus heiðingi, og þessi hugsun vék ekki frá honum.
Var það ekki aðeins hreinasta tilviljun, að hún lenti ekki í gjánni
við Sermíút? Og gat það ekki skeð, að honum yrði fleygt í gjána,
ef hann væri einn að snudda í öðrum þorpum. Seinast strauk
hann brott úr hófinu og hélt aleinn heim, enda þótt svarta
myrkur væri og drjúgur spölur til Jakobshafnar.
Hann hljóp alla leiðina eins og fætur toguðu, og kom móður
og másandi inn til Helgu móðursystur sinnar og sagðist aldrei
framar ætla að fara einn að heiman. Þessi atburður sýnir ljós-
lega, hve lifandi ímyndunarafli Knútur hefir verið gæddur þegar
á barnsaldri.
*
í Saqak-byggð hefir til skamms tíma verið á lífi gamall maður,
er heitir Davíð. Hann var á æskuskeiði á uppvaxtarárum Knúts.
Hann var háseti á bát er var L förum milli Jakobshafnar og
annarra minni byggða við flóann. Bátarnir, sem notaðir voru til
þessara ferða, voru oftast opnir, en samt voru stundum í þeim
þiljur. Formaðurinn var jafnan grænlenzkur og hásetarnir allir
grænlenzkir, og oft nokkru fleiri en brýn nauðsyn hefði verið.
Að vísu eru Grænlendingar yfirleitt ekki sérlega áræðnir sjó
menn, en þar veðurfari líka þannig háttað, að varkárni er nauð
synlegur eiginleiki sjómannanna, ef vel á að fara. En lentu
þeir í sjávarháska, tóku þeir því með mestu karlmennsku, og eru
margar kögur um hetjuskap sjómannanna grænlenzku. Kjörorð
þeirra var að berjast til þrautar, hversu illa sem horfði.
Eitt sinn skall ofsarok á stórbátinn — svo voru þessar fleytur
nefndar —, er Davíð var háseti á. Þetta var að haustlagi, hríðar
veður, frostbitra og niðamyrkur. Öldurnar gengu yfir bátinn, og
rennvotir mennirnir höfðu vart undan að ausa. Þeir voru sjö
í bátnum og allir illa til reika. Allt í einu kastaðist báturinn til
með þungu brothljóði. Þeir höfðu siglt beint á bjarg skammt frá
Saqak. Það leið ekki á löngu, unz brimið hafði liðað fleytuna
sundur og tvístrað flakinu. í bátnum hafði verið allmikið af
stórum lýsisfötum. Á þeim reyndu bátverjar nú að hanga, þeg
ar úti var um önnur úrræði. En lýsisfötin voru óstöðug í sjávar
rótinu. Sex mannanna fórust þarna við bjargið, ýmist drukkn-
uðu eða krömdust til dauðs, er fötin slógust saman. Hinn sjö
undi komst af. Það var Davíð.
Samhand ísl. samvinnufélaga.
SAMVINNUMENN!
Þegar eldsvoða ber að höndum, brenna ná-
lega í hvert sinn óvátryggðir innanstokks-
munir.
Frestið ekki að vátryggja innbú yðar.
Tónlistarfélatiið ofi LeiUfélaq Reyhjavíhur
„Pétur Crautur66
Sýning airaað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 i dag.
Austfirðingar!
Afgreiðum með stuttum fyrirvara
BORÐSTOFUBORÐ OG STÓLA.
Smíðum einnig alls konar húsgögn, búðar- og eldhús-innrétt-
ingar, hurðir og glugga o. fl. ^
Ábyrgjumst fyrsta flokks efni og vinnu.
Trésmidjan Eínir
Norðfirði. *
Jóhann P. Guðmundsson.
JFlóra Ausf urstræli 8
Sent gegn póstkröfu, hvert á land sem er.
Upplýsingadeild Bandaríkjastj órnar
heldur
Málverkasýningu
í Sýningarskálanum, dagana 12. til 21. apríl.
Til sýnis verða:
Vatnslitamyndir eftir 30 ameríska málara.
og
Eftirmyndir amerískra og evrópskra málara.
Sýningin verður opnuð almenningi kl. 4 í dag, 12. apríl
og verður síðan opin daglega frá kl. 12—24.
Á mánudagskvöld kl. 21,30 flytur Hjörvarður Árnason
fyrirlestur um surrealismann og hinn nýja realisma.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.
Tilkynniné
Viðskiptaráðið hefir fest kaup á nokkrum vörubifreið-
um, er væntanlega verða fluttar til landsins í vor og
sumar.
Bifreiðarnar eru y3 til 2 tonn að stærð, án vörupalls, en
með stýrishúsi.
Gert ‘er ráð fyrir að bifreiðarnar fari til þeirra staða
á landinu, þar sem mest nauðsyn er að bæta úr brýnni
flutningaþörf og endurnýjun eldri bifreiða.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um notkunarþörf, svo
og aldur og ástand eldri bifreiða, ef um endurnýjun er
að ræða, sendist Viðskiptaráðinu fyrir 20. þ. m.
Reykjavík, 12. apríl 1944.
Viðskiptaráðið.